Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 16

Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 16
Daglegtlíf Yamaha píanó. Yamaha píanó og flyglar með og án SILENT búnaðar. Veldu gæði – veldu Yamaha! Samick píanó. Mest seldu píanó á Íslandi! Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 357.000 kr. Goodway píanó. Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 238.000 kr. 15 mán. Vaxtalausar greiðslur. Estonia flyglar. Handsmíðuð gæðahljóðfæri. Steinway & Sons Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Til sýnis í verslun okkar. H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350                               !"# $%  &' ()*+"# ,-# .$/ $0  1112+232# Það eru um 5–6% sem fákrabbamein í ristil eðaendaþarm (KRE) einhverntímann á ævinni. Nýgengi sjúkdómsins hefur farið vaxandi und- anfarna áratugi, meira hjá körlum en konum en sjúkdómurinn er heldur al- gengari á meðal karla. Það hafa orðið miklar framfarir í meðferð KRE, bæði skurð- og lyflækningum, sem þýðir að fleiri læknast af sjúkdómn- um og þeir sem ekki læknast lifa lengur, einkum vegna framfara í lyfjameðferð. Sjúkdómurinn líkist því oftar hægfara eða langvinnum sjúk- dómum en þeirri hefðbundnu mynd sem við höfum af krabbameini,“ segir Tryggvi B. Stefánsson skurðlæknir. ,,Það getur tekið upp í tíu ár frá því að krabbamein byrjar að myndast í sepa og þangað til það gefur einkenni en á þeim tíma er ekki hægt að greina það nema með ristilsspeglun eða röntgenmyndatöku. Algengustu einkennin eru breyttar hægðavenjur, blóð í hægðum, verkir og almenn ein- kenni eins og blóðskortur, þreyta og megrun en þessi einkenni koma yfir- leitt ekki fram fyrr en sjúkdómurinn hefur búið um sig í ristlinum og er jafnvel farinn að dreifa úr sér til eitla, lifrar eða lungna. Horfur sjúklingsins og kostnaður af meðferð fer mikið eftir því á hvaða stigi sjúkdómurinn uppgötvast.“ Tryggvi segir að samkvæmt grein í European Journal of Cancer Preven- tion í júní 2002, sem m.a. er skrifuð af Laufeyju Tryggvadóttur, hjúkrunar- fræðingi og M.Sc. í faraldsfræðum, benda rannóknir til að á árabilinu 2000–2020 verði 50% aukning í fjölda KRE-tilfella á Íslandi en aukningin sé mest í elstu aldurshópunum. ,,Það er hægt að greina og finna forstig sjúkdómsins, sepana í ristlinum, en ef þeir eru fjarlægðir má koma í veg fyrir sjúkdóminn.“ Mikilvægt að fá vísindalegar upplýsingar Það eru einkum þrír hópar sem beita sér fyrir því að hafin verði skim- un á KRE að sögn Tryggva. Í fyrsta lagi sjúklingar og aðstandendur þeirra sem fengið hafa sjúkdóminn, í öðru lagi fagfólk sem greinir og með- höndlar hann og í þriðja lagi vísinda- menn sem vilja rannsaka hegðun sjúkdómsins og leita nýrra meðferða- leiða. ,,Það er ákveðin hætta á að ristil- speglun sem skimunaraðferð verði innleidd án nægilegrar vísindalegrar undirstöðu. Ég starfa með hópi nor- ræna sérfræðinga, NordICC (Nordic Initative on Colorectal Cancer), sem allir hafa mikla reyslu af meðhöndlun og meðferð KRE og forvörnum gegn krabbameinum. Við teljum nauðsyn- legt að gera samnorræna slembi- rannsókn til þess að fá upplýsingar um áhrif skimunar bæði á dánartíðni og nýgengi og kanna um leið mögu- leg neikvæð áhrif skimunarinnar á al- menning en skimun er í sumum lönd- unum hafin að einhverju marki. Tilgangurinn með því að taka upp ristilspeglun sem skimunaraðferð væri að reyna að útrýma sjúkdómn- um en fræðilega er mögulegt að út- rýma þeim krabbameinum sem verða til í sepum. Þau krabbamein sem fyndust myndu þá líka flest vera líka á fyrri stigum og meiri líkur á því að lækna þau. Það bendir margt til þess að skim- un með ristilspeglun sé góð forvarn- araðgerð, sem gæti bæði komið í veg fyrir þjáningar og sparað fé, svo að jafnvel er hægt að tala um nýja teg- und af meðferð. Samstarf á milli stjórnmálamanna og vísindamanna er því nauðsynlegt.“ Spilað á óttann – En má líta á umræðuna og kröfur um skimun sem hluta af ákveðinni sjúkdómsvæðingu sem töluvert hefur verið rætt um á Vesturlöndum? ,,Umræðan um sjúkdómsvæðingu er mjög nauðsynleg en það er mikil- vægt að hugtakið sé vel skilgreint. Fyrir mér á sjúkdómsvæðing við þegar sett eru sjúkdómsheiti á al- geng einkenni sem eru ósértæk og allir fá einhvern tímann á ævinni. Það getur verið hárfín lína milli þess sem við myndum kalla eðlilegar upplýs- ingar til almennings og sjúkdóm- svæðingu. Varðandi krabbamein þá óttast það flestir og stundum er verið að spila á þann ótta og fólk hvatt til þess að fara í rannsóknir og leita af sér allan grun og auðvitað eyðir fólk peningum í það. Þetta sjáum við í dag. Það er töluvert gert af því að aug- lýsa hættuna á því að fá krabbamein í ristilinn og frægt fólk hefur verið virkjað til þess að hvetja almenning til þess að láta spegla á sér ristilinn. Sífellt fleiri einkennalausir ein- staklingar leita því núna til lækna og vilja fá ristilinn speglaðan. En þessi tegund af skimun er stjórnlaus og það er ekki hægt að meta árangur af henni eins og nauðsynlegt er áður en ákvörðun er tekin í opinbera heil- brigðiskerfinu. Við viljum þess vegna gera áðurnefnda samnorræna rann- sókn, til þess að fá vísindalegur nið- urstöður um hvort að ristilspeglun geti lækkað dánartíðni og nýgengi en nú er talið að hægt sé að lækka ný- gengi sjúkdómsins um allt að 80% með slíkri skimun.“  HEILSA | Skimun á krabbameini í ristli og endaþarmi Nauðsynlegt að fá upplýsingar í rannsókn Það eru um 115 Íslendingar sem fá krabbamein í ristil eða endaþarm (KRE) á hverju ári. Víða á Vesturlöndum eru raddir orðnar háværar um að skima eigi eftir sjúkdómnum í forvarnarskyni líkt og leghálskrabbameini. Unnur H. Jóhannsdóttir ræddi við Tryggva B. Stefánsson skurðlækni um sjúkdóminn og hvaða forsendur þurfi að liggja til grundvallar slíkri ákvörðun í hinu opinbera heilbrigðiskerfi. Tryggvi B. Stefánsson skurð- læknir segir skimun með rist- ilspeglun hjá ákveðnum aldurs- hópi geta reynst góða forvarnaraðgerð. Sepi í ristli. Það getur tekið allt að tíu ár frá því að sepi verður til og þar til krabba- mein sem vekur sjúkdóms- einkenni myndast. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson BANDARÍSKIR vísindamenn hafa snúið á hvolf áður viður- kenndum kenningum um starfsemi fyrsta gensins sem vitað er til að hafi áhrif á lík- amsklukkuna. Uppgötvun vís- indamannanna kann, að sögn netmiðils BBC, að fela í sér að endurhugsa þurfi lyf sem hönnuð hafa verið til að vinna á flugþreytu og svefnleysi. Hingað til hefur verið talið að genastökkbreytan tau hægði á líkamsklukkunni og orsakaði 85% virknitap, en þessi rannsókn bendir til að genastarfsemin verði í raun hraðari. Rannsóknin fór fram við Huntsman-krabbameins- stofnunina við háskólann í Ut- ah og Michigan-háskóla og byggir m.a. á tölvuhermi stærðfræðingsins dr. Daniel Forgers sem sýnir hraðari stökkbreytni hjá hömstrum með „styttri“ sólarhring. Rannsókn á frumum rotta og músa sem gerð var í kjölfarið undir stjórn dr. David Virshup styður þessa kenningu, en þar sýndi sig að stökkbreyttu gen- in unnu hraðar úr próteini sem leikur stórt hlutverk í stillingu líkamsklukkunnar. Mikið rannsóknarstarf er þó enn óunnið. „Lykillinn á lækningu við vanda á borð við þunglyndi og svefnleysi – kvilla sem dægurloturytminn hefur áhrif á – er að geta spáð fyrir um hvernig stjórna megi líkams- klukkunni. Ef vinnumódelið er rangt, þá munu lyfin hafa kolöfug áhrif,“ sagði Virshup. Kenningar um líkams- klukkuna dregnar í efa  SVEFN júlí

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.