Morgunblaðið - 23.10.2006, Page 2

Morgunblaðið - 23.10.2006, Page 2
2 MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins MICHEL PLATINI, fyrrverandi knattspyrnukappi frá Frakklandi, sem varð knattspyrnumaður Evr- ópu þrjú ár í röð, 1983, 1984 og 1985, hefur hafið kosningabaráttu sína, en hann gefur kost á sér sem forseti Knattspyrnusambands Evr- ópu, UEFA, þegar kosið verður á ársþingi sambandsins í Düsseldorf í Þýskalandi 27. janúar. Platini, sem er 51 árs, var búinn að ákveða að gefa kost á sér þegar Lennart Jo- hannson, 76 ára, tilkynnti að hann ætlaði að hætta. Johansson hætti síðan við að hætta og ákvað að gefa kost á sér áfram. Platini hóf kosningabaráttu sína með því að heimsækja Eng- land og kynna sín sjónarmið. Hann fékk þar góðar móttökur og hafa tveir kunnir knatt- spyrnukappar tilkynnt stuðning sinn við hann – Thierry Henry, fyr- irliði Arsenal, og Gary Lineker, fyrrverandi fyrirliði enska lands- liðsins. Þeir segja að Platini sé rétti maðurinn til að stjórna UEFA, þar sem hann þekkir knattspyrnuna í Evrópu út og inn. Platini vill gera þær breytingar á Meistaradeild Evrópu að fækka lið- um í riðlakeppninni úr 32 í 18. Þá vill hann að stóru knattspyrnuþjóð- irnar eigi möguleika á að vera með þrjú lið í keppninni, en ekki fjögur eins og nú er. Platini telur að Meist- aradeildin sé orðin of umfangsmikil og álagið sé of mikið á þeim leik- mönnum sem leika með liðum í keppninni samtímis að taka þátt í erfiðari deildarkeppni í heimahög- um. Henry og Lineker styðja Platini Michel Platini THIERRY Henry, fyrirliði Arsenal, sagði fyrir helgi að enska landsliðið gæti ekki verið án David Beckham, fyrrverandi fyrirliða landsliðsins. Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englands, tilkynnti það eftir að hann tók við starfi Sven-Göran Eriksson eftir HM í Þýskalandi, að Beckham væri ekki inni í framtíðarplani hans. Henry sagði að hinn 31 árs Beck- ham, miðvallarleikmaður hjá Real Madrid, ætti mikið eftir og enska landsliðið væri ekki það sama án hans. Henry sagði að þrýstingurinn væri nú mikill á McClaren, landsliðs- þjálfara Englands, eftir slæmt gengi Englendinga í tveimur síðustu landsleikjum sínum – jafnteflisleik gegn Makedóníu og tap fyrir Króat- íu. „McClaren er í einu erfiðasta starfi heims. Hann á að kalla á Beck- ham og gefa honum annað tækifæri með landsliðinu. Beckham myndi hleypa nýju lífi í leik liðsins.“ Stuðningur við Beckham Rúnar Kristinsson tognaði aftan íöðru læri í síðasta leik Lokeren og gat því ekki tekið þátt í við- ureign liðsins gegn Antwerpen í belgísku bik- arkeppni í knatt- spyrnu á laug- ardagskvöld. Miklu munaði um fjarveru Rúnars í liði Lokeren sem náði sér aldrei á strik og tapaði leiknum, 4:1. Andwerpen leikur nú í næst efstu deild.    Werder Bremen lagði BayernMünchen að velli í toppslagn- um í þýsku 1. deildarkeppninni í knattspyrnu á laugardaginn, 3:1. Brasilíumaðurinn Diego skoraði fyrsta mark Bremen á elleftu mín., en síðan bætti Pierre Wome marki við – eftir aukaspyrnu á 34 mín. og þriðja markið var sjálfsmark Lucio, en Roy Makaay skoraði mark Bæj- ara.    Fjörutíu þúsund áhorfendur íBremen sáu leikmenn Bremen hefja leikinn með stórsókn og skora tvö fyrstu mörkin. „Við lögðum upp með það að ná yfirhöndinni strax í byrjun og okkur tókst það,“ sagði Thomas Schaaf, þjálfari Bremen, sem var ánægður með sóknarþunga sinna manna. Fjórtán leikmenn Bre- men hafa skorað 21 mark á keppn- istímabilinu, en næstu lið á marka- listanum hafa skoraði fjórtán mörk.    Brasilíski miðjumaðurinn Diego,21 árs, sem hefur slagið í gegn í þýsku deildinni í vetur – skoraði fjögur mörk, átti stóróðan leik og skoraði fallegt mark. „Munurinn á liðinum var aðeins einn – það var Diego,“ sagði Franz Beckenbauer, forseti Bayern.    Brasilíumaðurinn Lucio, varn-armaður Bayern, meiddist á ökkla í leiknum og verður hann frá keppni í þrjár vikur. Hann tók stöðu Frakkans Valerien Ismael sem miðvörður, eftir að Ismael fótbrotnaði á dög- unum og verður frá keppni í sex mánuði. Lucio mun missa af bikarleik gegn Kais- erslautern á miðvikudaginn, leik gegn Sporting Lissabon í Meist- aradeild Evrópu og deildarleikjum gegn Frankfurt, Schalke og Hann- over.    Schalke skaust upp í annað sætiðá eftir Bremen – með því að leggja Hannover að velli, 2:1. Zlatan Bajramovic og Levan Kobiashvili skorðu mörk liðsins, en Jan Rosent- hal skoraði mark Hannover, sem er í fallbaráttu. Fólk sport@mbl.is Það var mikið fjör á óhorfendapöll- unum í Brasilíu enda hafði Massa nokkra yfirburðu í keppninni og for- ystu hans var í raun aldrei ógnað. Þetta er í fyrsta sinn sem heima- maður sigrar í Brasilíukappakstr- inum síðan Ayrton Senna heitinn gerði það árið 1993. „Þetta er ólýs- anleg tilfinning, að sigra hérna fyrir framan fólkið mitt er eins og draumur manns rætist,“ sagði Messa og bætti við: „Bíllinn var frá- bær og þetta var auðveldasti kapp- akstur sem ég hef tekið þátt í.“ Messa hóf keppni á ráspól. „Ég verð nota tækifærið til að þakka Michael fyrir allt sem hann hefur kennt mér. Hann er frábær öku- maður og vinur, en því miður fyrir hann þá er þetta besti dagur lífs míns - dagurinn sem hann hættir að keppa, það er dálítil kaldhæðni í því,“ sagði Messa. Heimsmeistarinn Alonso var lengst af nokkuð öruggur um annað sætið og greinilegt að hann ók af miklu öryggi og um leið varkárni til að gefa Schumacher ekki færi á að ná sér að stigum og einnig til að fá nægilega mörg stig til að Renault hefði sigur í keppni bílasmiða. Jason Button var á eftir Alonso en gerði aldrei alvarlega tilraun til að fara fram úr honum. Úrslitin í Brasilíu þýddu að Alonso tókst að verja heimsmeist- aratitilinn sem hann vann til í fyrsta sinn í fyrra. Hann hlaut 134 stig en Schumacher 121 í annnað sætið. Massa varð í þriðja sæti með 80 stig, Giancarlo Fisichella hjá Re- nault fjórði með 72 stig, Finninn Kimi Räikönen á McLaren fimmti með 65 stig og Button sjötti með 56 stig. Schumacher reyndi eins og hann gat Schumacer gaf þetta ekki frá sér þrátt fyrir að dragast nokkuð aftur úr vegna sprungins dekks. Þegar hann kom út af viðgerðarsvæðinu aftur keyrði hann eins og hann gerir best og mjakaði sér hægt og bítandi framar með djörfum akstri. Því framar sem hann komst því meiri spenna varð í keppni bilasmiða, en frammistaða hans dugði ekki því Renault fékk 206 stig en Ferrari 201. Það má segja að Schumacher hafi skyggt aðeins á sigur liðsfélaga síns, Messa. Bæði með frábærum akstri og ekki síður að áður en keppnin hófst afhenti fótboltahetjan Pele þýska ökuþórnum sérstakann grip þar sem þetta var síðasta mót hans. Áhorfendur klöppuðu vel og lengi fyrir meistaranum sem nú er sestur í helgan stein. Hann hóf keppni í 10. sæti en vann sig fljótlega upp í það fimmta. Þá sprakk hjá honum og hann lét fylla bensíntankinn í leið- inni. Kom síðan út af þjónustusvæð- inu og ók eins og hann gat þá 40 hringi sem eftir voru. Williams og Toyota valda vonbrigðum Flestir komust klakkslaust fyrsta hringinn í gær en samt ekki Mark Webber og Nico Rosberg hjá Willi- ams. Bílar þeirra rákust saman og bíll Rosbergs lenti á vegg þanni að kalla varð öryggisbílinn út. Ekki löngu síðar helltust báðir Toyotabílarnir úr lestinni og var sagt að eitthvað hefði verið að fjöðr- unarbúnaði bílanna. Það má því segja að árangur Williams og Toyota í síðasta kappakstri vertíð- arinnar hafi verið táknrænn því það hefur ekkert gegnið hjá liðinum í sumar, en þeim var báðum spáð fínu gengi áður en keppnistímabilið hófst. Reuters Tveir í röð Spánski ökuþórinn Fernando Alonso, sem ekur fyrir Renault, fagnar hér öðrum heimsmeistaratitli sínum í Formulu-1 kappakstrinum ásamt hluta af starfsliði bilaframleiðandans. Annað sætið í gær dugði Alonso til sigurs og Renaulst til að hafa betur í keppninni við Ferrari. Alonso heimsmeistari og Renault hafði Ferrari SPÁNVERJINN Fernando Alonso á Renault tryggði sér í gær heims- meistaratitil ökumanna í formúlu-1 kappakstrinum og Renault sigraði einnig í keppni bílaframleiðenda. Alonso varð annar í síðasta kapp- akstri tímabilsins, en hann fór fram í Brasilíu. Heimamaðurinn Felipe Massa hjá Ferrari sigraði í kapp- akstirnum við mikinn fögnuðu áhorfenda en Michael Schumacer endaði í fjórða sæti í sínum síðasta kappakstri, en það sprakk hjá hon- um snemma í keppninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.