Morgunblaðið - 23.10.2006, Side 3

Morgunblaðið - 23.10.2006, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 3 Brasilíumaðurinn Fernando Ba-iano var hetja Celta sem vann góðan útisigur á Bilbao, 1:0. Hann skoraði sig- urmarkið eftir aðeins sex mín., er varnarmenn Bilbao sofnuðu á verðinum er Matias Lequi tók aukaspyrnu og sendi knöttinn á fjærstöngina, þar sem Baiano var einn og óvaldaður og sendi knöttinn í netið. Eftir þetta sóttu leikmenn Bilbao grimmt, en þeir náðu ekki að skora og hafa aðeins náð einu stigi úr fjórum heimaleikjum sínum.    Raul Tamudo, miðherji Esp-anyol, kom mikið við sögu er liðið var að sætta sig við jafntefli heima gegn Racing Santander, 2:2, heimamenn gerðu sjálfsmark, 1:2, þegar þrjár mín. voru til leiksloka og reiknuðu flestir með að það yrðu úrslit leiksins. En á síðustu mín. leiksins braut Pablo Pinillos á Ta- mudo – vítaspyrna var dæmd og Pinillos fékk að sjá reisupassann. Tamudo tók sjálfur vítaspyrnuna og gerði engin mistök, 2:2.    Albano Bizzarri, markvörðurGimnastic, varði einnig víta- spyrnu – frá Enzo Maresca, leik- manni Sevilla. Það dugði skammt, því að leikmenn Sevilla voru búnir að skora tvö mörk hjá honum og þeir fögnuðu síðan sigri, 2:1.    Leikmenn Getafe fylgdu eftirglæsilegum sigri á Real Ma- drid með því að fagna sigri á úti- velli gegn Recreativo Huelva, 2:1. Þeir náðu strax yfirhöndinni í leikn- um og skoraði Sergio Pachon fyrra markið rétt fyrir leikhlé. Frakkinn Florent Sinama Pongolle jafnaði fyrir heimamenn á 54 mín. og síðan skoraði Manu del Moral sigurmark gestanna með skallamarki á 54 mín. Argentínski markvörðurinn Ro- berto Abbondanzieri gerði sér síð- an lítið fyrir og varði vítaspyrnu frá heimamönnum á 71. mín.    Leikmenn Valencia fögnuðu sín-um fjórða heimasigri í röð í leik gegn Osasuna, 1:0. Fernando Morientes lagði upp sigurmarkið, sem David Villa skoraði á 15. mín. Valencia missti miðjumanninn David Albelda af leikvelli, meiddan á hné. hann verð- ur frá keppni í þrjá mánuði. Leikmenn liðsins máttu hrósa happi að Osasuna náði ekki að jafna – þegar skot frá Valdo hafnaði á stönginni á marki þeirra og á lokamín. leiksins var miðjumaður þeirra, Jorge Lopez, rekinn af leikvelli.    Deportivo La Coruna lagði Atle-tico Madrid að velli, 1:0. Leik- menn La Coruna fögnuðu sínum fjórða heimasigri í röð á keppn- istímabilinu og geta þeir þakkað ísraelska markverðinum Dudu Ao- uate fyrir það, en hann varði eins og berserkur í leiknum. Gegn gangi leiksins skoraði Angel Arizmendi, fyrrverandi leikmaður Atletico, mark með skalla á 66. mín.    Argentínska tríóið Pablo Aimar,Andres D’Alessandro og Diego Milito hjá Real Zaragoza sá um sigurinn á Real Betis, 2:1. Mi- lito skoraði bæði mörkin og kom Zaragoza yfir, 2:0. Betis lék einum leikmanni færri allan seinni hálf- leikinn, þar sem Brasilíumaðurinn Edu var rekinn af leikvelli rétt fyrir leikhlé. Fólk sport@mbl.is Leikmenn Real Madrid í sýndu stuðningsmönnum sínum í gær að þeir eru á réttri leið undir hand- leiðslu Ítalans Fabio Capello sem tók við stjórn liðsins í sumar. Þeir gáfu aldrei þumlung eftir, komust yfir snemma og tókst að halda sjó í rigningunni á Bernabeu. Stuðnings- menn þeirra fór glaðbeittir í burtu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var einn þeirra leikmanna liðsins sem var vandlega haldið í skefjum og svo fór að Frank Rijkaard skipti Eiði út af á 65. mínútu. Eiður fékk reyndar eitt besta færi Barcelona á 25. mínútu þegar skot hans fyrir nær opnu marki af mark- teig fór framhjá. Hann fékk send- ingu frá Lionel Messi sem leikið hafði varnarmenn Real Madrid afar grátt. Barcelona heldur enn forystu í deildinni, hefur 16 stig, jafnmörg og Valencia en er með hagstæðara markahlutfall. Real Madrid færðist hins vegar upp í fjórða sætið og er aðeins tveimur stigum á eftir Kata- lóníurisanum, sem virðist ekki hafa sömu yfirburði í deildinni og á síð- ustu leiktíð. „Stigin eru gríðarlega mikilvæg,“ sagði Capello, þjálfari Real Madrid í leikslok og var ánægður með spila- mennsku sinna manna. „Að þessu sinni lék lið mitt betur en í flestum leikjum til þessa á leiktíðinni. Ég sé framfarir með hverjum leiknum sem líður og það skiptir mestu máli þeg- ar öllu er á botninn hvolft,“ sagði Capello ennfremur. „Ég játa mig sigraðan að þessu sinni en undirstrika að þessi úrslit ráða ekki úrslitum í deildarkeppn- inni því við erum jafn staðráðnir og áður að verja titilinn,“ sagði Rijka- ard, þjálfari Barcelona. „Mínir menn lögðu sig fram og gerðu hvað þeir gátu. Þeim tókst ekki að nýta sín færi á meðan leik- mönnum Real gekk það betur. Við töpuðum hér að þessu sinni og það er ekkert óvenjulegt því fæstir sækja gull í greipar Real Madrid á Bernabeu,“ sagði Rijkaard þjálfari ennfremur. „Við vorum gríðarlega vel ein- beittir í þessum leik frá fyrstu mín- útu,“ sagði brasilíski varnarmaður- inn hjá Real Madrid, Roberto Carlos. „Eins og nærri má geta er það alveg stórkostlegt að vinna spænsku meistaranna og Evrópu- meistarana í þessu stórkostlega andrúmslofti sem var hér á Berna- beu að þessu sinni,“ sagði Carlos sem gengið hefur í gegnum súrt og sætt með Real Madridar-liðinu síð- ustu misseri, sem ekki hafa verið þau sigursælustu í sögu félagsins. Gulldrengur Madrídarbúa og fyr- irliðið liðsins, Raúl, gaf tóninn með marki strax á þriðju mínútu leiksins og ljóst var að heimamenn ætluðu ekki að láta kjöldraga sig. Það gerð- ist heldur ekki. Lið Real Madrid var lengst af mun sterkari aðilinn í leiknum. Hollendingurinn Ruud van Nistelrooy bætti síðan um betur þegar hann á 51. mínútu skoraði annað markið, að margra mati verð- skuldað. Það kom eftir skyndisókn og góðan undirbúnings Robinho sem var sívinnandi í leiknum og senni- lega einn besti leikmaður Real Ma- drid. Van Nistelrooy hafði nærri því bætt þriðja markinu við einni mín- útu síðar en þá fór skot hans í stöng. Vörn Real Madrid stóðst allar árásir leikmanna Barcelona og held- ur þar með uppteknum hætti, en Real-liðið hefur fengið á sig fæst mörk allra liða í deildinni það sem af. Annað var upp á teningnum er Real Madrid-vörnin var sem sigti líkust. „Það var afar dýrmætt fyrir okk- ur að skora mark svona snemma leiks því þar fór úr okkur meti skrekkurinn,“ sagði Iker Casillas, markvörður Real Madrid, sem stóð svo sannarlega fyrir sínu. „Þar með gátum við einbeitt okkur betur en ella.“ Leikmenn Real Madrid fetuðu í fótspor ensku meistaranna Chelsea frá því fyrri í vikunni er þeir mættu Barcelona. Leikmenn Real Madrid „pressuðu“ leikmenn Barcelona úti um allan völl, gáfu þeim fá færi til þess að byggja upp sóknir og lokuðu fyrir hlaup. Þremur mínútum fyrir leikslok bjargaði Casilla vel skoti Ronald- inho úr aukaspyrnu. Ljóst var að Barcelona-liðið saknaði mjög fram- herja síns, Samuels Eto’o sem leikur ekki með liðinu fyrr á næsta ári vegna meiðsla. Hraða hans er sár- lega saknað hjá spænsku meisturun- um og þótt varamenn liðsins séu engir meðaljónar þá gengur þeim illa að fylla skarð Kamerúnbúans. David Beckham kom inn á sem varamaður í liði Real Madrid átta mínútum fyrir leikslok þegar Jose Maria Guitierrez var kallaður af velli. Beckham tókst ekki að láta ljós sitt skína á þessum stutta tíma. Hann fékk gult spjald skömmu eftir að hafa komið inn á og virtist kapp- inn ekki vera í góðu jafnvægi. Haft var eftir honum í ensku fjölmiðlum í gær að langvarandi seta á vara- mannabekk Real Madridar-liðsins væri farin að pirra hann mjög. Ljóst virðist vera að Beckham á ekki upp á pallborðið hjá Capello þjálfara sem hyggst byggja lið upp í kring- um aðra leikmenn. Reuters Markahrókur Raul Gonzalez, til hægri, fagnar marki sínu gegn Barcelona ásamt Robinho og Jose Maria Gutierrez. Real Madrid hefndi niður- lægingarinnar frá í fyrra REAL Madrid tókst að koma fram hefndum gegn Barcelona fyrir tap- ið á Bernabeu fyrir ári þegar liðin mættust í höfuðborg Spánar í gær. Real Madrid vann 2:0 en tapið 0:3, fyrir ári var Madrídar-liðinu nið- urlæging og ekki bætti úr skák þegar Barcelona bætti um betur síðar á keppnistímabilinu með því að vinna bæði spænska meistaratit- ilinn og Meistaradeild Evrópu. Þá hélt Ronaldinho sýningu en honum var haldið niðri í gær. „Þessi úrslit ráða ekki úrslitum í deildarkeppninni því við erum jafn staðráðnir og áður í að verja titilinn,“ sagði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.