Morgunblaðið - 02.11.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.11.2006, Blaðsíða 4
ALLSNARPUR jarðskjálfti skók byggðir í nágrenni Skjálfanda í gær. Styrkur skjálftans var 4,5 stig á Richter og honum fylgdu tugir eft- irskjálfta sem allir voru þó minni en 2 á Richter. Skjálftinn reið af klukkan 13.55 um átta kílómetra suðaustur af Flat- ey og fannst hann víða, m.a. á Húsa- vík, Grenivík og Akureyri. Sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands varð skjálftinn á svonefndu Húsavíkur-Flateyjarmisgengi. Sigurður Pétur Björnsson, Silli, fréttaritari Morgunblaðsins á Húsa- vík, hringdi til blaðsins þegar eftir jarðskjálftann til að láta vita um hann. Sagði Silli að jarðskjálftinn hefði fundist mjög greinilega á Húsavík. Silli hefur verið fréttaritari blaðsins síðan árið 1936 og hefur hann því staðið fréttavaktina á Húsavík í 70 ár. Munu vera fá dæmi ef nokkur um svo langan fréttarit- araferil hér á landi. Skjálftinn fannst víða                          ! " # $ %  & !&" %  ' &   % $ % ( ) *)""  +, * Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Það er viss veikleiki hjá mér að ég erupptekinn af því sem er ógert,“ seg-ir Þór Jakobsson veðurfræðingur ogáréttar að hann hafi nóg að gera þótt hann sé hættur opinberum störfum sem veðurfræðingur. Síðasti vinnudagur Þórs Jakobssonar á Veðurstofu Íslands var í fyrradag og gærdag- inn notaði hann til að rýma skrifstofuna og færa gögn í skjalasafn stofnunarinnar. „Þar ætla ég að vinna við að flokka þessi gögn í ró- legheitum.“ Þótt Þór sé hættur að vinna vegna aldurs er hann ungur í anda og útliti og í fullu fjöri. Hann segir að áhugamálin séu mörg og því þurfi hann ekki að kvíða aðgerðarleysi. Hann sé til dæmis í forystu Oddafélagsins sem sé félag fólks í Rangárþingi og annarra áhuga- manna hér og þar til að vekja áhuga á Odda á Rangárvöllum. „Þetta er lítið félag sem var stofnað 1990 og mig langar til að efla það svolítið,“ segir hann og leggur áherslu á að Oddi sé jafn merkur staður og Skálholt og Hólar og eigi að vera næst á dagskrá hjá þjóðinni. „Svo geng ég með bók um hafís í maganum og reyni að vinna eitthvað að henni. Við hjónin erum líka að bauka í Land- sveit þaðan sem amma mín er ættuð. Við er- um með skika á leigu sem Landgræðslan á og okkur langar til að gera gagn í land- græðslu og skógrækt og slíku á sumrin. Svo gefst meiri tími í börn og barnabörn sem eiga heima í útlöndum.“ Þór segir að nú hafi hann líka meiri tíma til að skipuleggja sólstöðugöngur víða um heim einu sinni á ári. Hann og fleiri hafi byrjað á því 1985 og draumurinn sé að þetta verði al- þjóðlegt fyrirbæri. „Nú hef ég meiri tíma til að senda út bréf og reyna að koma þessu á annars staðar.“ Hann segist í raun vera í sömu sporum og aðrir sem haldi áfram að sinna mörgum hlutum eftir að hafa hætt formlega að vinna. „Þeir segjast hafa jafn- mikið að gera en eru bara lengur að því.“ Í veðurfréttum Sjónvarps í fyrrakvöld þakkaði Þór Jakobsson fyrir sig á þeim vett- vangi og kvaddi með því að veifa til áhorf- enda. „Skömmu eftir að ég byrjaði í Sjón- varpinu fyrir um 10 árum bað lítill frændi mig um að gefa sér merki. Ég gerði það og hef kvatt á sama hátt síðan.“ Hættur störfum en jafnmikið að gera Veriði sæl Þór Jakobsson hefur kvatt í veð- urfréttum Sjónvarpsins í síðasta sinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg 4 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FJÖLLIN virðast færast nær þegar þau klæðast snjóhvítum vetrarbúningi sínum. Þannig hafa þau verið undanfarna daga; með hvítan topp og dökkbláar rætur. Líkt og þeim hafi örsnöggt verið dýft í flórsykur. Það er margt sem gleður augað þegar ekið er um Hvalfjörðinn, ekki síður að vetri en sumri, og æ fleiri velja að keyra þar um í rólegheitunum í stað þess að aka göngin. Morgunblaðið/ÞÖK Toppurinn hvítur en ræturnar bláar JÓGVAN á Lakjuni, samstarfsráð- herra Færeyja, sagði í umræðum á Norðurlandaþingi í gær að Rann- veig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefði móðgað færeysku þjóðina með framgöngu sinni í umræðunni um réttindi samkynhneigðra í Færeyjum. Hann sakaði jafnframt danska fjöl- miðla um neikvæðni í umfjöllun um Færeyjar. Hart var sótt að Fær- eyingum vegna réttinda samkyn- hneigðra. Rannveig tók ítrekað til máls og hvatti Færeyinga til að banna mis- munun gegn samkynhneigðum. Hún segir Færeyinga nú fjalla um tillögu á lögþinginu um að banna mismunun fólks vegna t.d. trúar og hörundslitar. Ekki hefði tekist að fá orðið „kynhneigð“ þar inn. Hart sótt að Færeyingum Hvattir til að banna mismunun vegna kynhneigðar LÖGREGLUMÖNNUM hefur stundum blöskrað svo losaralegur frágangur á farmi flutningabíla að þeir hafa krossað sig þegar óhöpp verða án þess að nokkur bíði alvar- legan skaða af. Ekki þyrfti að giska á afleiðingarnar ef manneskja yrði undir níðþungu hlassi sem þeyttist af vörubílspalli. Í gær sást flutningabíll með frá- gang á farmi sem Guðbrandur Sig- urðsson lögregluvarðstjóri sagði glannanlegan og sig setti hljóðan þegar annað eins sæist. Segir hann umferðarlög taka af allan vafa um að ökumaður beri ábyrgð á frágangi farmsins og hljótist af mannsbani í slysi sem rekja megi til lélegs frá- gangs megi ökumaður vænta ákæru fyrir manndráp af gáleysi. Að sögn Guðbrands virðist sem sumir atvinnubílstjórar séu ekki nægilega vel meðvitaðir um þá miklu ábyrgð sem hvíli á þeim. Þessir þættir séu teknir fyrir á meiraprófs- námskeiðum en svo virðist sem menn fjarlægist þekkingu á reglun- um þegar frá líður. Óvandaður frágangur á farmi hef- ur verið viðvarandi vandamál í um- ferðinni áratugum saman en vandinn hefur aukist samfara stórauknum landflutningum eftir að sjóflutningar stórminnkuðu. „Stóru flutningafyr- irtækin standa sig með ágætum, þótt víða sé pottur brotinn,“ segir Guð- brandur. Á þessu ári hafa 843 flutningabíl- stjórar verið kærðir hjá lögreglunni í Reykjavík fyrir brot á umferðarlög- um með því að hafa vanrækt skyldur um frágang á farmi og hleðslu. Glannalegt athæfi Morgunblaðið/Júlíus Hættulegt Víða er pottur brotinn varðandi frágang á farmi flutningabíla og nauðsynlegt að atvinnubílstjórar taki sig á, segir lögreglan í Reykjavík. 843 bílstjórar kærðir vegna frágangs OLÍUDREIFING ehf. á flutninga- bílinn sem mynd er af hér til hliðar en lögregla telur að glannalega hafi verið gengið frá farmi hans. Í reglugerð um hleðslu, frágang og merkingu farms er kveðið á um að skjólborð, klossar eða styttur skuli notaðar til að koma í veg fyrir að farmur falli af bílum. Engu slíku var til að dreifa þegar umræddur farmur var fluttur og aðeins annar tankanna stóð á fæti, sem notaður er til að tankurinn renni ekki til hliðar þegar hann stendur á jafnsléttu. Árni Ingimundarson, forstöðu- maður þjónustusviðs Olíudreifingar, sagði að þó að hann gæti tekið undir að betur mætti ganga frá farminum, olíutönkum sem verið var að flytja í brotajárn, teldi hann að þeir hefðu samt verið tryggilega festir. „Þetta er á mörkunum að duga en það er mat [bílstjórans] að það sé nægilega vel frá þessu gengið með því að binda þetta niður með þrælsterkum strekkjara,“ sagði Árni. Hann ræddi við bílstjórann og benti honum á að með réttu hefði átt að vera skjólborð á pallinum. „Á mörk- unum að duga“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.