Morgunblaðið - 02.11.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 17
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
NÝÚTKOMIN er fyrsta plata rokk-
sveitarinnar Shima og kallast hún
...and for a moment all fell silent.
Innihaldið er rokk og ról í þyngri
kantinum, sem er reglubundið
skreytt dramatískum hljóðmyndum.
Ekkert ósvipað því sem ambient-
þungarokkararnir í ISIS eru að
gera. Rætur sveitarinnar liggja ann-
ars í því að meðlimir hittust á tónlist-
arhátíð í Finnlandi, í ágúst 2004, og
rokkkyns „ástarsamband“ hófst þá
og þegar.
„Ég og Matti trommari vorum að
spila þar í bandi,“ segir Láki Þór,
gítarleikari og söngvari og á við
Martin Jörgensen, fyrrum trymbil
Snafu og núverandi trymbil Shima.
„Hinir tveir voru þeir Jón Dal
(söngvari og gítarleikari) og Helgi
(bassaleikari). Þeir voru að hlaupa í
skarðið fyrir tvo meðlimi úr annarri
sveit. Jón leyfði mér að heyra efni
sem hann hafði verið að vinna hér
heima og við byrjuðum að vinna það
frekar um leið og við komum aftur til
Íslands.“
Láki Þór, sem kallaður er Þór, og
Jón kipptu Helga fljótlega með sér í
þetta og eftir að hafa skipt um
trommara eins og nærbuxur, eins og
Þór orðar það, höfðu þeir loks sam-
band við Matta. Söngvarinn Hlynur
starfaði svo stutt með sveitinni. Eftir
að hann hætti, fóru hlutirnir hvað
plötuna varðar loks að gerast.
„Þá opnaðist loksins eitthvað, við
vorum með ca. 21. útgáfuna af plöt-
unni þá í höndunum. Við byrjuðum á
því að taka upp sönginn aftur og svo
fór mikil tilraunastarfsemi í gang.
Nýjar pælingar gerðu vart við sig, og
platan gjörbreyttist. Á tímabili var
ég hættur að líta á mig sem gítarleik-
ara, miklu fremur sem hljóðlista-
mann. Við prufuðum alls konar hlut-
ir, sungum í gegnum „filtera“, tókum
upp lög og lög af gíturum o.s.frv.“
Út fyrir landsteinana
Plötuna gefur sveitin sjálf út, en
það er Músík ehf. sem dreifir.
„Það er heljarinnar vinna að gera
þetta sjálfur en um leið ertu þinn
eigin yfirmaður,“ segir Þór. „Það er
enginn að hnýsast í þetta. Við erum
líka allir miklir hljóðupptökugaurar
þannig að það var engum vand-
kvæðum bundið, þannig séð, að taka
þetta upp.“
Þór segir að þeir félagar komi úr
frekar ólíkum áttum, tónlistarlega
séð. Það hafi verið hressandi og hafi
skemmtileg áhrif á útkomu tónlistar-
innar. Framundan er svo kynning á
plötunni en boltinn er nú tekinn að
rúlla á fullu stími.
„Við fórum til Kanada síðasta
haust, nánar tiltekið til Toronto. Við
vorum tilnefndir sem besti alþjóðlegi
listamaðurinn á Toronto Independ-
ent Music Awards. Við erum með
umboðsmann úti sem sendir efni
með okkur á milli fyrirtækja. Við er-
um farnir að finna fyrir eftirköst-
unum af þessu, fólk er farið að setja
sig í samband við okkur. Annars sitj-
um við á tveimur nýjum plötum sem
við erum að fara að vinna í. Og svo er
stefnt á að skreppa út fyrir land-
steinana eftir áramót og spila.“
Tónleikar Hljómsveitin Shima lætur vaða á tónleikum
Eftirköstin
af þögninni
Shima gefur út sína fyrstu plötu
(gulur rammi)
www.worldofshima.com
www.myspace.com/shimamusic
Helgar
tilboð
3.990,-
Fylgist með umfjöllun um
þessa bók í helgarútgáfunni
á Rás 2, nú á
laugardaginn kl. 11.00
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
“Frásagnartæknileg opinberun”
INFORMATION