Morgunblaðið - 02.11.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.11.2006, Blaðsíða 21
Suðurströnd 4 Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000 Bestu dekkin átta ár í röð! Í átta ár í röð hafa Toyo dekkin verið valin þau bestu af Tire Review Magazine, sem er tímarit sjálfstæðra hjólbarðasala í Bandaríkjunum. úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 21 Haustþing Rannís 2006 Hóte l Loft le iðum 9. nóvember DAGSKRÁ R a n n s ó k n a m i ð s t ö ð Í s l a n d s • L a u g a v e g i 1 3 • 1 0 1 R e y k j a v í k • w w w. r a n n i s . i s Vís indamaður inn í samfélag inu – ábyrgð, skyldur og hagsmunir 13.00 Setning Hans Kristján Guðmundsson, forstöðumaður Rannís 13.15 TENGSL VÍSINDAMANNS OG FJÁRMAGNS Hamlar fjármögnun rannsókna frelsi vísindamannsins? Magnús Karl Magnússon, sérfræðingur í blóðmeinafræði við blóðmeinafræðideild og erfða- og sameindalæknisfræðideild LSH Hver eru áhrif verkkaupa á álitsgerðir vísindamanna? Þorlákur Karlsson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík Er sjálfstæði vísindamanna stefnt í hættu með kostun fyrirtækja á akademískum störfum og rannsóknum? Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu og gæðastjóri Háskóla Íslands 14.10 Kaffihlé 14.25 ÁBYRGÐ, SAMVISKA OG HEILINDI VÍSINDAMANNSINS Er vísindamaðurinn ábyrgur fyrir því hvernig niðurstöður hans eru notaðar? Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands Getur öflun þekkingar verið neikvæð? Þórarinn Guðjónsson, sérfræðingur við læknadeild Háskóla Íslands og verkefnastjóri við blóðmeinafræðideild LSH Hvenær má vísindamaðurinn þegja og hvenær ekki? Áslaug Helgadóttir, aðstoðarrektor rannsóknarmála Landbúnaðarháskóla Íslands 15.30 Kaffihlé 15.45 VÍSINDAMAÐURINN OG ÞJÓÐFÉLAGSUMRÆÐAN Hvernig geta vísindamenn tekið þátt í pólitískri umræðu? Vilhjálmur Árnason, prófessor við hugvísindadeild Háskóla Íslands Eiga vísindamenn að hafa áhrif á samfélagsumræðuna? Jón Ólafsson, prófessor og deildarforseti Háskólans á Bifröst Skulda vísindamenn samfélaginu skýringu á vinnu sinni? Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands Hvers virði er þekking ef hún nær ekki út fyrir hóp sérfræðinga? Páll Valdimarsson, prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands 17.00 Léttar veitingar Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarpsins, er þingstjóri og stýrir umræðum. Haustþing Rannís er öllum opið. Skráning er í síma 515 5800 eða á rannis@rannis.is. Á haustþingi Rannís verður athyglinni beint að vísindamanninum í samfélaginu, ábyrgð hans, skyldum og hagsmunum. Fjöldi fyrirlesara fjallar um efnið frá ólíkum sjónarhornum. Sýning Leikfélags Akureyrar á Herra Kolbert hefur fengið mjög fína dóma. Að sögn leikhússtjórans, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, rignir nú fyrirspurnum yfir LA hvenær fé- lagið sýni verkið fyrir sunnan – en til að taka af öll tvímæli er rétt að það komi fram að sýningin verður bara sýnd á Akureyri. Það er löngu ákveðið. Áhugasamir verða því að koma norður.    Herra Kolbert er að sögn alveg raf- mögnuð sýning. Þó má kannski segja að forsýningin á föstudags- kvöldið, daginn fyrir frumsýningu, hafi verið órafmögnuð. Þegar um það bil 15 mínútur voru búnar fór nefnilega rafmagnið af húsinu, því var að vísu kippt í liðinn fljótlega og þá var byrjað aftur frá byrjun …    Tónlistarfélag Akureyrar stendur reglulega fyrir hádegistónleikum í Ketilhúsinu á föstudögum kl. 12.15. Á morgun kemur þar fram píanó- leikarinn Aladar Rácz sem býr og starfar á Húsavík. Mörgum eru enn í fersku minni tónleikar hans á síðasta ári þegar hann lék Goldberg- tilbrigði Johanns Sebastians Bacs í Salnum í Kópavogi og Ketilhúsinu en fyrir þá fékk hann feikigóða dóma gagnrýnenda.    Það getur reynst dýrkeypt að vera gleymin rjúpnaskytta. Lögreglu- menn gómuðu eina slíka í Víkur- skarði á mánudaginn; viðkomandi kvaðst hafa steingleymt því að bann- að væri að veiða á mánudegi. Þegar farið var að ræða við hann rámaði hann þó í að hafa heyrt það.    Rjúpnaskyttan má búast við því að fá sekt fyrir brot á veiðilöggjöfinni auk þess sem hald var lagt á hagla- byssu, skotfæri, tösku og rjúpna- vesti, skotvopnaskírteini og veiði- kort.    Herra Norðurland var kjörinn í Sjallanum um síðustu helgi og það var Þorbergur Ingvi Sævarsson sem hreppti titilinn en hann er 19 ára. Þorbergur var einnig valinn Net- herra Sjallans og Sportstrákur Sportvers.    Helgi Héðinsson var valinn Ljós- myndafyrirsæta akureyri.net og Heiðu.is og tískumódel Perfect. Helgi Steinar Halldórsson var val- inn Voice gaurinn.    Fimm nemendur Menntaskólans á Akureyri eru meðal tuttugu efstu nemenda í sínum flokki í stærð- fræðikeppni framhaldsskólanna, skv. frétt á heimasíðu skólans. For- keppnin fór fram í skólanum fyrir skemmstu og er fimmmenningunum boðið að taka þátt í úrslitakeppni, sem venjulega fer fram um miðjan mars.    Veturinn kom til Akureyrar í síðustu viku en er farinn aftur. Í gærmorgun var að vísu níu stiga frost en í dag er spáð átta stiga hita í morgunsárið og spáin er eins fyrir næstu daga. Mað- ur veltir því fyrir sér hvort jafnvel sé rétt að taka nagladekkin aftur und- an bílnum! Líklega ekki, frostmarki er spáð á mánudaginn.    Mikið fjör verður örugglega í húsa- kynnum Verkmenntaskólans í kvöld. Þar fer fram árleg söngvakeppni nemenda á starfsbrautum fram- haldsskólanna, en á starfsbrautum stunda nám nemendur með sérþarf- ir.    Nemendur á starfsbraut VMA unnu keppnina sem haldin var í Mennta- skólanum í Kópavogi í fyrra og því er keppt nyrðra nú. Níu skólar keppa að þessu sinni og er reiknað með að um 170 manns taki þátt í keppninni á einn eða annan hátt. Keppnin hefst klukkan 20.00 og allir eru velkomnir.    Listunnendur gætu líka lagt leið sína á Amtsbókasafnið í kvöld, en þar les Aðalsteinn Ásberg Sigurðs- son úr þýðingum sínum á ljóðum metsöluskáldsins Hal Sirowitz og Kristín Helga Gunnarsdóttir les úr nýjustu bók sinni, Fíasól á flandri. Dagskráin hefst kl. 20. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson Góð Edda Björg Eyjólfsdóttir er einn leikaranna í Herra Kolbert.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.