Morgunblaðið - 02.11.2006, Side 26

Morgunblaðið - 02.11.2006, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Ríkið verður eini eigandiLandsvirkjunar þann 1.janúar nk., þegar samn-ingar um kaup ríkisins á hlutum Reykjavíkurborgar og Ak- ureyrarbæjar í Landsvirkjun taka gildi. Kaupverðið er 30,25 milljarð- ar króna og greiðast 3,4 milljarðar út við gildistöku og eftirstöðvarnar með skuldabréfum til 28 ára. Reykjavíkurborg átti 44,525% í Landsvirkjun og koma því um 26,9 milljarðar króna í hlut borgarinnar. Eignarhlutur Akureyrarbæjar var 5,472% og fær því bærinn um 3,3 milljarða króna í sinn hlut. Skrifað var undir samninga í Þjóðmenningarhúsinu í gær með fyrirvara um samþykki Alþingis, borgarstjórnar Reykjavíkur og bæjarstjórnar Akureyrar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri sagði ástæðu þess að Reykjavíkurborg hefði viljað selja sinn hlut í Landsvirkjun einfalda. „Við búum í gjörbreyttu raforku- umhverfi og ég hef margoft sagt það, að það gangi ekki til lengdar að Reykjavíkurborg eigi 95% í Orku- veitu Reykjavíkur og 45% um það bil í Landsvirkjun. Þetta eru sam- keppnisaðilar og ég tel þetta mjög óheilbrigt.“ Jón Sigurðsson tók undir það að breyttar aðstæður væru uppi. „Þessi fyrirtæki eru meira og minna í samkeppni og þess vegna er eðlilegt að hreinsa þetta svo það sé skýrt, að það verði ekki hagsmuna- eða trúnaðarárekstrar þar.“ Mest í lífeyrisskuldbindingar Megnið af kaupverðinu, um 26,9 milljarðar króna, munu renna til líf- eyrissjóða sveitarfélagana; Lífeyr- issjóðs starfsmanna Reykjavíkur- borgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar. Vil- hjálmur sagði að hlutur Reykjavík- urborgar dygði ekki fyrir öllum líf- eyrisskuldbindingum borgarinnar, sem í dag væru í kringum 34–35 milljarðar króna. „Það fara um 24 milljarðar í að mæta þeim skuld- bindingum svo það verður minna eftir og viðráðanlegra.“ Vilhjálmur sagði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvernig þeim 3 milljörðum, sem greiðast í reiðufé um áramótin, yrði ráðstaf- að. „Ég held að það væri skynsam- legast að ráðstafa þeim í að minnka uppsafnaðan halla sem hefur verið á borgarsjóði undanfarin ár.“ Hann sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að frá því upp úr við- ræðum slitnaði hefði bæst við veiga- mikil trygging í samninginn þess efnis, að verði Landsvirkjun seld fyrir árið 2012 fyrir hærri upphæð en fyrirtækið er metið á í dag, muni Reykjavíkurborg og Akureyri njóta hagnaðar af þeirri sölu í hlutfalli við fyrri eignaraðild. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, sagðist gera ráð fyrir, að það fé, sem Akureyrarbær fengi út úr sölunni, yrði nýtt til að greiða lífeyrisskuldbindingar bæj- arsjóðs en þær hljóðuðu upp á um 3,5 milljarða. Skrifað var undir viljayfirlýsingu af hálfu Reykjavíkurborgar, Akur- eyrarbæjar og ríkisins þann 17. febrúar 2005 um að ganga til samn- inga um kaup ríkisins á hlutum sveitarfélaganna tveggja í Lands- virkjun, en viðræður lágu niðri frá ársbyrjun 2006 þar til síðla sumars. Vilhjálmur sagði þetta hlé skýr- ast af því að þær viðræður, sem hefðu farið fram þegar Reykjavík- urlistinn var við völd, hefðu greini- lega aldrei átt að skila árangri. Vinstrihreyfingin – grænt framboð sé algerlega á móti því að selja hlut Reykjavíkurborgar en Samfylking og Framsóknarflokkur væru hlynnt sölunni. „Getum ágætlega við unað“ „Það verð sem miðað var við þeg- ar leiðir skildust síðar er töluvert lægra en það verð sem nú semst um. Einnig eru ýmsir aðrir þættir í þessu samkomulagi sem teknir voru inn að ósk núverandi meiri- hluta, bæði í Reykjavík og á Akur- eyri. Ég tel að við getum ágætlega við unað,“ sagði Vilhjálmur. Þegar slitnaði upp úr viðræðum um sölu á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar á hlut þeirra í Landsvirkjun í byrjun árs lá á borð- inu tilboð frá ríkinu sem miðaðist við að verðmæti Landsvirkjunar væri rúmir 56 milljarðar króna. Þá bókuðu sjálfstæðismenn, sem þá voru í minnihluta, í borgarráði að þeir væru sammála meirihluta R- listans um að verðmat upp á rúma 56 milljarða væri ekki viðunandi. Steinunn Valdís Óska þáverandi borgarstjóri, se þeim tíma hafi tilboð ríkisin hljóðað upp á um 58 milljón ekki 56 eins og sjálfstæ sögðu í bókun sinni. Við sölu á hlut borgari miðað við að verðmæti La unar væri 60,5 milljarðar, lega 2,5 milljörðum kr. hæ byrjun árs, samkvæmt S Valdísi. Á þeim tíma sem hefur vísitala neysluverðs um 6,61%. Það þýðir að ef v Landsvirkjunar eins og metið í byrjun árs er uppre núvirði er það 61,8 milljarð Sé miðað við verðlag dags hefur því mat á verðmæt virkjunar lækkað um 1,3 m Ef gengið hefði verið f byrjun árs hefði hlutur R urborgar verið um 25,8 m sem má uppreikna í um 2 arða að núvirði. Samkvæm ingnum sem undirritaður v fær Reykjavíkurborg 26,9 í sinn hlut. Verðmæt Reykjavíkurborgar hefur þ að um í kringum 600 m þessum tíma. Vilhjálmur sagði í sam Morgunblaðið í gær að það líta til fleiri þátta en ver þessu tímabili. Hann benti is á að í lok júní sl. hefð Landsvirkjunar verið 167 ar króna. „Að langstærstu Ríkið kaupir hlut arfélaga í Landsv Reykjavíkurborg og Akureyri hafa selt ríkinu hluti sína í Landsvirkjun á samtals 30,25 millj- arða. Heildarvirði LV er metið 60,5 milljarðar króna. Samningarnir taka gildi 1. janúar 2007. Samið um sölu Kristján Þ. Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, Ár urðsson iðnaðarráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgars JÓN Sigurðsson iðnaðar- skiptaráðherra sagði eftir irritun samninga í Þjóðme arhúsinu í gær að ekki læ að Landsvirkjun yrði brey hlutafélag. Viljayfirlýsing lútandi var þó undirrituð febrúar 2005 af þáverand aðarráðherra, Valgerði S dóttur. Í viljayfirlýsingunni seg þegar Reykjavík og Akur verði ekki lengur eigendu Landsvirkjun sé stefnt að sameina Landsvirkjun tve öðrum orkufyrirtækjum r Orkubúi Vestfjarða og Ra veitum ríkisins. „Síðan er áform um það árið 2008 e um bil að því fyrirtæki ve breytt í hlutafélag. Í fram er hægt að hugsa sér að þ nýir aðilar að þeim rekstr félagið verði skráð á mar sagði Valgerður í samtali Morgunblaðið í febrúar 20 Í gær sagði Jón Sigurðs Verði ekk Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ANDRÚM NÝRRA TÍMA Í gær gekk Alph Mehmet, sendi-herra Bretlands á Íslandi, á fundráðuneytisstjóra utanríkisráðu- neytis og afhenti honum mótmæla- skjal 25 þjóða og framkvæmdastjórn- ar ESB vegna hvalveiða okkar Íslendinga í atvinnuskyni. Þessar 25 þjóðir eru: Argentína, Ástralía, Aust- urríki, Belgía, Brasilía, Chile, Tékk- land, Finnland, Frakkland, Þýzka- land, Írland, Ísrael, Ítalía, Lúxemborg, Mexíkó, Mónakó, Hol- land, Nýja-Sjáland, Perú, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svíþjóð, Bretland og Bandaríkin. Í mótmælum þessara 25 þjóða og framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins segir m.a.: „Við ítrekum andstöðu ríkja okkar við þessa aðgerð og hvetjum íslenzku ríkisstjórnina til að endurmeta afstöðu sína í málinu og taka þessa óþörfu ákvörðun til baka og hætta hvalveiðum.“ Einhver hefði nú talið að það væri hyggilegt af ríkisstjórn Íslands að hlusta á sjónarmið 25 þjóða sem margar hverjar eru helztu nágranna- og viðskiptaþjóðir okkar. En það er ljóst af grein Einars Kristins Guð- finnssonar sjávarútvegsráðherra hér í blaðinu í gær að ríkisstjórnin mun ekki hlusta. Hún mun hafa aðvörunar- orð ríkisstjórna þessara 25 landa og framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins að engu. Það má vel vera að einhverjir telji að við Íslendingar séum orðnir svo ríkir og stæltir að við getum farið okkar fram hvað svo sem aðrir segja. Það er hæpið að slíkt mat sé rétt. Jafnvel Bandaríkin sjálf eru að byrja að átta sig á því að þau geti ekki lifað ein í heiminum án eðlilegs og skynsamlegs samstarfs við aðrar þjóðir. Það er merkilegt að sjá í grein sjáv- arútvegsráðherra hvað honum er upp- sigað við Morgunblaðið. Hvers vegna? Hefur blaðið gert honum eitthvað? Annað en að styðja hann í flestum málum? Hér eru sýnishorn úr orðaforða ráðherrans þegar hann víkur orði að Morgunblaðinu: Blaðið hefur að mati ráðherrans sýnt „þrákelkni“ í afstöðu sinni til hvalveiða. Það hefur „fest sig rækilega í síendurteknum klisjum“, það „spólar … í sama farinu“, það „ber höfði sínu áfram við steininn og virðist algjörlega eitt um að koma ekki auga á fáránleika“ tiltekinnar fréttar. Ráðherrann talar um „þver- girðingsskrif“ Morgunblaðsins og það „hímir hins vegar við heygarðshornið sitt eitt og einmana alveg eins og árið 2003“. Og loks segir ráðherrann að skrif Morgunblaðsins einkennist af „flaumi fúkyrða og önuglyndisskrifa.“ Það eru til dæmi úr sögu Sjálfstæð- isflokksins um stjórnmálamenn í þeim flokki, sem byggðu stjórnmálaferil sinn að verulegu leyti á því að hnýta í Morgunblaðið fyrir skoðanir þess. Ætli Einar K. Guðfinnsson sé að bæt- ast í þann hóp? Í grein sinni segir sjávarútvegsráð- herra: „Við erum þjóð, sem byggir af- komu sína á auðlindanýtingu sinni. Í sjálfu sér eigum við ekki mikið val. Auðlindanýtingin verður að vera ábyrg/sjálfbær til þess að tryggja að kynslóðir framtíðarinnar njóti af- rakstursins líkt og við og helzt í enn ríkari mæli. Aðrar þjóðir geta ef til vill út frá þrengstu efnahagslegu hagsmunum sínum leyft sér annað við auðlindanýtingu sína. Við getum það ekki á hinn bóginn. Aðstæðurnar setja okkur strangan ramma um nýt- ingu auðlinda hafsins. Þess vegna hefur okkur vegnað vel og hvað sem öllu öðru líður deila menn varla um, að sjálfbær auðlindanýting okkar og framtak einstaklinga í sjávarútvegi hefur átt mestan þátt í lífskjaraæv- intýrinu, sem saga Íslands var á 20. öldinni. Réttur okkar sem sjálfstæðr- ar þjóðar til þess að nýta auðlindir hafsins þarf að vera ótvíræður … Nú skrifar Morgunblaðið eins og þessi réttur skuli undirorpinn ákvörðunum á öðrum vettvangi.“ Hvers konar vitleysa er þetta? Morgunblaðið hefur aldrei sagt að við eigum að láta aðrar þjóðir ráða því hvort við veiðum hval. Blaðið hefur þvert á móti sagt að við séum orðin svo efnuð þjóð að við höfum efni á því að veiða ekki hval. Morgunblaðið hef- ur aldrei sagt að Íslendingar eigi að afsala sér rétti til þess að taka ákvarðanir um þetta efni. Hvalveiðarnar hafa enga efnahags- lega þýðingu fyrir þjóðina, þegar hér er komið sögu. Það er meira að segja hæpið að Hvalur hf. geti fundið nokk- urn markað fyrir hvalaafurðir. Mark- aður fyrir hvalaafurðir er að hverfa í Japan. Hvalaafurðir voru fátækra- matur í Japan. Japanir eru orðnir rík- ir eins og við og nýjar kynslóðir borða ekki hval. Sjávarútvegsráðherra hlýt- ur að hafa aðgang að skýrslum um samtöl íslenzkra ráðamanna á undan- förnum árum við ráðamenn víða um heim, m.a. í Japan um hvalveiðar og möguleika á að finna markað fyrir hvalaafurðir. Hvernig væri að ráð- herrann upplýsti þjóðina um efni þeirra skýrslna? Eru þær eitthvert leyndarmál? Við þurfum ekki á hvalveiðum að halda til þess að lifa í þessu landi. Það getur vel verið að Hvalur hf. þurfi á þeim að halda – þó er það hæpið – en það eru ekki þjóðarhagsmunir. Og Einar Kristinn Guðfinnsson er kjör- inn á Alþingi og af Alþingi í ríkis- stjórn til þess að gæta þjóðarhags- muna en ekki einkahagsmuna eins fyrirtækis. Við eigum að nýta auðlindir okkar eins og við teljum skynsamlegast. Það er t.d. lítið vit í því að hreyfa við Þjórsárverum þótt orkuframleiðsla Landsvirkjunar geti orðið eitthvað hagkvæmari við það. Við höfum efni á að hlífa Þjórsárverum alveg eins og við höfum efni á að hlífa hvalnum. Ráðherrann telur bersýnilega að hann hafi meirihluta þjóðarinnar með sér í þessu máli en ætli sú sé raunin þegar til kastanna kemur? Getur ver- ið að sú mikla náttúruverndarbylgja, sem gengið hefur yfir landið á und- anförnum mánuðum og kann að leiða til sjálfstæðs framboðs náttúruvernd- arsinna til Alþingis, eigi eftir að ná til hvalanna? Það verður fróðlegt að fylgjast með sjávarútvegsráðherra berjast við þann óvíga her rísi hann upp og út- skýra hvers vegna hann vill drepa hvali gersamlega að ástæðulausu. Það er ekki Morgunblaðið sem spólar í gömlu fari. Það er sjávarút- vegsráðherra landsins sem virðist ekki skilja og skynja andrúm nýrra tíma. „ÉG TEL að þetta sé ekki góður samn- ingur fyrir Reykjavík- urborg og að menn hafi verið of linir í við- ræðum við rík- ið,“ segir Stein- unn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri. Hún segir að fyrirvarinn, sem gerður er í samningnum nú um að sveitarfélögin sem selja njóti hagnaðar verði Landsvirkjun seld innan fimm ára, sé lítils virði. „Mér finnst ekkert hald í þessum fyr- irvara, fimm ár eru mjög stuttur tími og ef Landsvirkjun verður seld um mitt ár 2012 fáum við ekki neitt. “ Ekki góður samningur Steinunn Valdís Óskarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.