Morgunblaðið - 02.11.2006, Side 32

Morgunblaðið - 02.11.2006, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hjörleifur Ing-ólfsson fæddist á Vöglum í Vatnsdal í A-Húnavatnssýslu 4. september 1940. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 28. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru Ingólfur Konráðs- son, f. 12. desember 1914 í Forsæludal, bóndi í Vöglum og síðar að Grund í Vesturhópi, d. 20. mars 1978, og kona hans, Jakobína Ingveldur Þorsteinsdóttir hús- freyja í Vöglum, f. í Stóru-Hlíð í Víðidal 1. mars 1900, d. 2. ágúst 1973. Bróðir Hjörleifs er Helgi Ing- ólfsson, f. 7. október 1937, fyrrum bóndi á Marðarnúpi, nú búsettur á Hvammstanga. Sambýliskona Helga er Helga Sigfúsdóttir, f. 23. ág. 1951 og eiga þau einn son, fyrir átti Helga tvö börn. Hálfbróðir hans, samfeðra, var Guðmundur Jóhann Húnfjörð Ingólfsson, f. 1. mars 1943, fórst af slysförum 29. október 1972. Hann átti eina dótt- ur. Fyrri kona Hjörleifs er Sigríður Árnadóttir, f. 28. júní 1943. For- eldrar hennar eru Árni Bjarn- mundur Árnason, bátasmiður, f. 4. maí 1919, d. 11. janúar 1972, og Þuríður Halldórsdóttir, húsfreyja, f. 29. maí 1920. Börn Hjörleifs og Sigríðar eru: 1) Arna Björk Hjör- leifsdóttir, f. 8. september 1965, gift Högna Sturlusyni, f. 21. sept- ember 1971. Þau eiga einn son, fyr- Hjörleifur ólst upp á Vöglum. Hann vann við hefðbundin sveita- störf, vélaviðgerðir o.fl. frá unga aldri. Hann gekk í sveitaskóla, tvisvar sinnum part úr vetri. Hann vann við bílaviðgerðir í Reykjavík og vann einnig í Fálkanum, lærði rennismíði í Vélsmiðjunni Óðni í Keflavík 1963–1967 og tók sveins- próf frá Iðnskólanum í Keflavík 1967. Hann starfaði hjá Kaupfélagi Suðurnesja, m.a. sem verslunar- stjóri. 1971 tók hann að sér afleys- ingar í sjúkraflutningum í Keflavík og starfaði sem sjúkraflutn- ingamaður eftir það, fyrst í auka- vinnu en síðar sem aðalstarf. Frá 1988 starfaði hann sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Suðurnesja. Hann varð varðstjóri árið 1992 og frá árinu 2000 starfaði hann sem yf- ireldvarnaeftirlitsmaður BS. Hjör- leifur vann einnig við kistulagn- ingar í Keflavík í rúm 20 ár. Hjörleifur vann í mörg ár að kjaramálum fyrir Starfsmanna- félag Keflavíkurbæjar og BSRB. Hann sat í stjórn vinnudeilusjóðs BSRB síðustu árin. Hjörleifur endurvakti ásamt fleirum Keflavíkurdeild Rauða kross Íslands árið 1983 og 24. nóv- ember 1984 sameinuðust Keflavík- urdeild, Njarðvíkurdeild og Sand- gerðisdeild í eina deild, Suðurnesjadeild. Hjörleifur starf- aði ötullega fyrir deildina allar göt- ur síðan. Hann sat í stjórn Suð- urnesjadeildarinnar er hann lést og einnig í svæðisráði RKÍ á Suður- landi. Hann var einn af stofnendum björgunarsveitarinnar Stakks í Keflavík 1968 og var virkur með- limur sveitarinnar til margra ára. Útför Hjörleifs verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. ir átti Arna Björk einn son. 2) Ingvi Þór Hjör- leifsson, f. 9. janúar 1971, kvæntur Að- alheiði Ósk Gunn- arsdóttur, f. 19. des- ember 1967. Þau eiga tvö börn. 3) Árni Jak- ob Hjörleifsson, f. 11. október 1974, kvænt- ur Geirþrúði Ósk Geirsdóttur, f. 10. febrúar 1977. Þau eiga einn son. Fósturdóttir Hjör- leifs um tíma var Ing- unn Guðmundsdóttir Larsson, f. 12. sept. 1958, búsett í Svíþjóð. Sambýliskona Hjörleifs var Gréta Súsanna Sigurjónsdóttir Fjeldsted, f. 30. júní 1949. Foreldrar hennar voru Sigurjón Ólafsson Fjeldsted og Sigfríður Pálína Konráðsdóttir, vita- verðir á Reykjanesvita. Hún á tvö börn. Eftirlifandi eiginkona Hjörleifs er Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir fram- haldsskólakennari, f. 7. sept. 1954. Foreldrar hennar voru Gunnar Haf- steinn Kristinsson, fyrrv. hitaveitu- stjóri í Reykjavík, f. 1. nóv. 1930, d. 27. ágúst 2000, og Auðbjörg (fædd Bárðardóttir) Brynjólfsdóttir, starfsmaður í Furugerði 1, f. 1. nóv. 1929, d. 17. janúar 2000. Sonur þeirra er Halldór Hagalín Hjörleifs- son, f. 3. mars 1993. Börn Sigrúnar og fósturbörn Hjörleifs eru: 1) Gunnar Brynjólfur Sigurðsson, f. 31. des. 1980, sambýliskona Ólöf Har- aldsdóttir. Þau eiga einn son. Ólöf á einn son áður. 2) Sara Björg Péturs- dóttir, f. 10. ágúst 1988. Elsku pabbi. Þó að söknuðurinn sé mikill, þá veit ég að þú hefur fengið líkn og hvíld sem þú varst farinn að bíða eftir. Í gegnum starf þitt vissir þú manna best að lífið heldur áfram þrátt fyrir ástvina- missi og sorgir. Ég sakna þín og hugsa til þín og man allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ég veit að þú verður nálægur og fylgist með öllu sem ég á eftir að taka mér fyrir hendur af sama áhuga og hingað til. Hvíl í friði, elsku pabbi minn. Ingvi Þór. Þá er komið að kveðjustund. Tengdafaðir minn, Hjörleifur Ing- ólfsson, hefur fengið hvíldina eftir erfiða baráttu. Ég kom inn í fjöl- skylduna þegar ég kynntist Ingva Þór syni hans fyrir 15 árum síðan og tók hann mér eins og sinni eigin dóttur. Hann hefur alltaf sýnt mér mikla umhyggju og kærleika, og sama má segja um barnabörnin hans, hann leit á þau sem gimsteina. Þessi kærleikur var svo sannarlega gagnkvæmur hjá okkur. En það voru fleiri en við sem nutu umhyggju hans, svo marga hefur maður heyrt lofa hann. Hann ann- aðist marga, oft á erfiðum stundum í starfi sínu sem sjúkraflutninga- og slökkviliðsmaður síðustu 35 árin, og veit ég að margir hugsa til hans með þakklæti. Hjörleifur helgaði líf sitt því að hjálpa öðrum. Auk þess að starfa stóran hluta ævinnar sem sjúkra- flutninga- og slökkviliðsmaður, starfaði hann mikið með Rauða krossinum og tók þátt í björgunar- sveitastörfum. Fjallamennska og veiði var stórt áhugamál hjá Hjörleifi og margar bestu stundir lífsins átti hann uppi á heiði á æskuslóðum þar sem hann stundaði veiði og naut náttúrunnar. Elsku Hjörleifur minn, ég kveð þig með söknuði en veit að þú ert á góðum stað og hefur án efa fengið höfðinglegar móttökur. Ég bið góðan Guð að styrkja alla aðstandendur Hjörleifs og senda ljós friðar, vonar og kærleika til okkar allra. Hvíl í friði, kæri vinur. Þín tengdadóttir, Aðalheiður Ósk. Elsku Hjölli minn, ég er ekki enn búinn að átta mig á því að þú sért farinn. Þessir dagar hafa verið mjög furðulegir frá því þú kvaddir þenn- an heim. Ég man þegar ég flutti heim til þín og mömmu árið 1994. Þá fannst mér virkilega skrýtið að hafa „húsbónda“ á heimilinu sem sagði mér hvað ég mátti og hvað ég mátti ekki. Þetta fannst mér vera mikil viðbrigði því áður en þú komst inn í líf okkar mömmu og Söru þá vorum við bara þrjú og ég var „karl- inn“ á heimilinu. Okkur kom ekki alltaf vel saman fyrstu árin en það lagaðist þegar ég sætti mig við það að ég réði ekki öllu. Í sameiningu af- sönnuðum við ákveðnar kenningar sem var haldið fram um mig. Ég minnist þess að í gegnum tíð- ina gafstu mér góð ráð þegar ég þurfti á þeim að halda, ég gat alltaf leitað til þín þegar eitthvað bjátaði á. Það verður erfitt að sætta sig við þá staðreynd að þú ert farinn, Hjölli minn, þú varst mín stoð og stytta. Það er svo tómlegt án þín. Lífið heldur áfram og ég veit að þú verður með mér og okkur hinum í anda. Ég, Ólöf, Aron og Þröstur Arnar söknum þín sárt og viljum við þakka þér fyrir alla þá ást og hlýju sem þú gafst okkur í gegnum tíðina. Gunnar B. Sigurðsson. Í dag er til grafar borinn Hjörleif- ur Ingólfsson, sjúkraflutningamaður í Reykjanesbæ. Hjörleifur gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Starfsmannafélag Keflavíkur, síðar Reykjanesbæjar, og einnig BSRB á starfsferli sínum. Leiðir okkar Hjör- leifs lágu oft saman á vettvangi heildarsamtakanna og eru minning- ar mínar um hann einstaklega góðar. Um langt árabil sat hann í stjórn Vinnudeilusjóðs BSRB en þegar skipað hefur verið í það rúm hefur verið horft til þeirra einstaklinga sérstaklega, sem njóta trausts og eru óumdeildir. Hjörleifur kynnti sér jafnan vel málavöxtu áður en hann tók ákvörðun um hvert hann vildi stefna, var fylginn sér en alltaf hreinskiptinn. Hann sýndi félagslegu umhverfi sínu ætíð mikla ræktar- semi. Hjörleifur kom síðast í BSRB hús- ið fyrir um það bil mánuði síðan þeg- ar stjórn Vinnudeilusjóðs kom þar saman til fundar til undirbúnings fyrirhugaðs þinghalds BSRB. Þá var hann þjakaður af veikindum en engu að síður staðráðinn í að standa sína vakt. Fyrir óeigingjarnt framlag hans vil ég þakka. Ég veit að ég mæli fyrir munn félaga Hjörleifs í BSRB þegar ég lýsi söknuði við frá- fall hans og færi fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur okkar. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Það voru ekki gleðilegar fréttir sem konan færði mér þegar ég kom heim frá Svíþjóð á laugardaginn var. Félagi minn og vinur, Hjörleifur Ingólfsson hafði dáið þá um morg- uninn. Ekki það að það kæmi mér mikið á óvart en Hjörleifur var bú- inn að eiga í sínum veikindum í tölu- verðan tíma og þegar ég kíkti á „kallinn“ fyrir nokkrum vikum sá ég að farið var að draga af honum en ekki kvartaði hann en hann var bú- inn að berjast lengi og með ótrúlegri þrautseigju. Ég hafði komið á mótorhjólinu, al- gallaður og í fullum skrúða og kom hann með mér út þegar ég fór og lét nokkur góð aðvörunarorð falla, enda búinn að sjá ýmislegt á sinni starfs- ævi, en með bros á vör enda var hann alltaf að hugsa um okkur „strákana sína á stöðinni“. Þegar ég byrjaði hjá Brunavörn- um Suðurnesja sumarið 1995 var maður alveg grænn í faginu og var Hjölli einn af þeim sem tóku okkur að sér og kenndi manni á sjúkrabíl- ana, slökkvibíla, dælur og annað dót enda var hann mikill fagmaður og kunni fagið sitt vel auk þess að vera mikill vélakall og býr maður að því enn þann dag í dag. Þegar við lent- um saman í „útköllum“ átti „kallinn“ það til að segja við mig: „Siggi, nú ertu alveg eins og hann pabbi þinn,“ enda hafði vinna þeirra samtvinnast á sínum tíma, og vissum við báðir hvað hann átti við. En þó að við starfsfélagar og vinir Hjölla hjá Brunavörnum Suður- nesja, félagar hans í Rauða kross- inum , björgunarsveitinni og aðrir vinir höfum misst mikið, veit ég að Sigrún og fjölskylda hans hafa misst mest og er hugur minn hjá þeim á meðan ég skrifa þessar línur. Góðan vin og félaga er ég er stolt- ur af að segja að aldrei féll skuggi á, í ellefu ára vináttu í leik og starfi. Hvíl í friði, kæri vinur. Sigurður Skarphéðinsson. Hér við lífsins leiðarenda leitar klökkur hugurinn. Hjartans þakkir því skal senda þér, og kveðjur, vinur minn. Meðan ég er moldum yfir man ég okkar kynni vel. Þín í anda áfram lifir alúð, tryggð og vinarþel. (Höf. ók.) Hafðu þökk fyrir allt og allt, kæri Hjörleifur, hvort sem það var spjall við eldhúsborðið á heimili ykkar Sigrúnar eða endalaus stuðningur og vinátta á erfiðum tímum í lífi okkar systkina. Sigrúnu og börnunum öllum sendum við innilegar samúðarkveðj- ur. Þið vitið af okkur ef það er eitt- hvað sem þið þarfnist. Dagný, Erla, Rögnvaldur Karstein og Rakel Kristinsbörn. Mig langar að minnast í örfáum orðum vinar míns og samstarfs- manns til margra ára Hjörleifs Ing- ólfssonar frá Vöglum í Vatnsdal. Það kom mér ekki á óvart þegar mér barst andlátsfregn hans sl sunnudag, en hann hafði átt við al- varleg veikindi að stríða frá febr.2004. Kynni okkar Hjölla eins og hann var alltaf kallaður af fjölskyldu og vinum hófst 1978 þá var talað um Hjölla á sjúkrabílnum en það var það starf sem hann starfaði lengst við. Seinna lágu leiðir okkar saman á starfsvettvangi Brunavarna Suð- urnesja en þar hóf hann störf 1988 sem slökkviliðs og sjúkraflutninga- maður. Hjölli var einstaklega fjölhæfur maður þá skipti ekki máli hvað hann tók sér fyrir hendur hann lagði sig ávallt allan fram við það sem hann var að gera þannig að allt væri sem best úr garði gert. Hjálpsemi var honum í blóð borin og var hann ávallt reiðubúinn til að rétta vinum sínum hjálparhönd þeg- ar þess gerðist þörf og leysa úr þeim vandamálum sem að honum voru rétt. Það má segja að ævistarf Hjölla hafi verið sjúkraflutningar og að þar hafi hans hæfileikar notið sín best, þeim sinnti hann af metnaði og um- hyggju þeim samferðamönnum okk- ar sem minna mega sín í okkar þjóð- félagi, þar kom í ljós ósérplægni hans og hlýleiki til samferðamanna best í ljós. Frá árinu 2000 störfuðum við saman í eldvarnaeftirliti Bruna- varna Suðurnesja, þar sýndi hann sama metnað og samviskusemi sem alltaf einkenndu störf hans, en á þessum árum hef ég kynnst Hjölla vel og skynjað hversu mikill mann- kosta maður hann var, það er fyrir svona menn sem lífið er skemmti- legt og það eru svona menn sem bæta og styrkja samfélagið, við þyrftum að vera fleiri þessarar gerðar þá væru vandamálin færri og viðráðanlegri. Kæri vinur, nú ert þú loksins komið að leiðarlokum, þú laus við þá kvöl og pínu sem veikindin ollu þér. Það var ekki þinn stíll að vera þiggjandi í þessu lífi heldur varst þú alltaf í hlutverki veitandans þar sem þú hjálpaðir þínum samferðamönn- um, það fór þér sannarlega vel úr hendi. Megi góður guð styrkja eftirlif- andi eiginkonu, börn og aðra að- standendur í þessari erfiðu raun. Jón Guðlaugsson. Hjörleifur Ingólfsson Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR, áður til heimilis á Sléttuvegi 15, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2 sunnu- daginn 22. október, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstudaginn 3. nóvember kl. 15.00 Elín Ólafsdóttir, Leó Kristjánsson, Kristrún Auður Ólafsdóttir, Skúli Pálsson, Birna Þ. Ólafsdóttir Ros, Fredrik Ros. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SIGURÐUR SNÆBJÖRNSSON, Höskuldsstöðum, Eyjafjarðarsveit, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtu- daginn 26. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. nóvember kl. 13.30. Jarðsett verður að Munkaþverá. Rósa Árnadóttir, Snjólaug Sigurðardóttir, Matthías Henriksen, Snæbjörn Sigurðsson, Elva Sigurðardóttir, Árni Sigurðsson, Hrefna Laufey Ingólfsdóttir, Ingólfur Sigurðsson, Bryndís Lúðvíksdóttir, Elín Kristbjörg Sigurðardóttir, Hafþór Hreiðarsson, Margrét Sigurðardóttir, Pálína Stefanía Sigurðardóttir, Freyr Aðalgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir minn, LEIFUR JÓHANNESSON hárskeri, Rauðagerði 20, lést á Landspítala Hringbraut sunnudaginn 29. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 6. nóvember kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Jóhannesdóttir Arnholtz.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.