Morgunblaðið - 02.11.2006, Page 52
FIMMTÁN ára baráttu
Norður-Atlantshafslaxa-
sjóðsins gegn reknetaveið-
um á laxi er nú senn lokið
því ríkisstjórn Írlands hef-
ur ákveðið að stöðva veið-
arnar. Orri Vigfússon, for-
maður sjóðsins, segir að
nú séu að skapast mögu-
leikar til að hefja endur-
reisn laxastofna við allt
Norður-Atlantshafið.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er tekin í
kjölfar þess að ráðgjafarnefnd skilaði nið-
urstöðu sinni þar sem fram kom að laxa-
stofnarnir væru í mikilli hættu. Nefndin
lagði til að algert bann yrði lagt við veið-
unum frá áramótum og að 30 milljónum
evra, jafngildi rúmlega 2,5 milljarða króna,
yrði varið í að bæta sjómönnum skaðann.
„Þetta er lokaáfangi í baráttu gegn úthafs-
veiðum á laxi. Hlutur Íra var stór,“ segir
Orri. Hann tekur þó fram að netaveiðar séu
enn stundaðar við Noreg og klára þurfi það
mál. | 13
Orri Vigfússon
Fimmtán ára
baráttu lokið
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 306. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Suðaustanátt
10–15 m/s og
rigning en hægari
og þurrt að mestu
leyti norðan- og aust-
anlands. » 8
Heitast Kaldast
9°C 4°C
Fagleg oglögleg
þjónusta í boði
Löggilt menntun snyrtifræðinga, í Félagi íslenskra snyrti-
fræðinga, tryggir viðskiptavinum faglega ráðgjöf og sérhæfða
meðhöndlun andlits og líkama með heilbrigði og vellíðan að
leiðarljósi - og þá er að finna á Meistarinn.is
og dekur
Hollusta
í dagsins önn
ÞAÐ getur munað rúmlega þrjú þúsund
krónum að láta skipta um dekk á fólksbíl
með 16" dekkjum á stálfelgum á milli hjól-
barðaverkstæða. Það kostar 4.690 krónur
þar sem það er ódýrast, hjá Bílkó á Smiðju-
vegi, og 7.760 krónur þar sem það er dýrast,
hjá Betra gripi í Lágmúla. Munurinn nemur
65,5%.
Þetta kemur í ljós í nýrri verðkönnun
verðlagseftirlits ASÍ sem kannaði verð á
þjónustu hjólbarðaverkstæða við skiptingu,
umfelgun og jafnvægisstillingu á dekkjum sl.
þriðjudag.
Þjónusta hjólbarðaverkstæða við fólksbíla
hefur að meðaltali hækkað um 8–9% frá því
síðasta könnun verðlagseftirlitsins var gerð
fyrir rúmu ári. Meiri hækkun hefur þó orðið
á þjónustu við stærri fólksbíla á stálfelgum
sem hefur hækkað um rúm 11% frá fyrra ári.
Þjónusta við jeppa hefur hækkað minna eða
um 4–5% á milli ára að undanskilinni þjón-
ustu við meðalstóra jeppa sem hefur hækkað
um tæplega 7%. | 22
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðmunur Það margborgar sig að gera
verðsamanburð áður en skipt er um dekk.
Mikill verð-
munur á
þjónustu
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
GENGIÐ var frá samningum um
sölu á hlutum Reykjavíkurborgar
og Akureyrarbæjar í Landsvirkj-
un í gær, og verður ríkið eini eig-
andi fyrirtækisins frá 1. janúar
2007. Miðað við uppreiknað mat á
verðmætum Landsvirkjunar í
byrjun árs hefur verðmæti fyr-
irtækisins rýrnað um 1,3 millj-
arða.
Landsvirkjun er metin á 60,5
milljarða í samningi ríkisins við
sveitarfélögin og fær Reykjavík-
urborg, sem átti 44,5% í félaginu,
26,9 milljarða, en Akureyrarbær,
sem átti 5,5%, fær 3,3 milljarða.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
fyrrverandi borgarstjóri, segir að
þegar slitnaði upp úr viðræðum
um sölu á hlut borgarinnar í
byrjun árs hafi ríkið metið það
svo að verðmæti fyrirtækisins
væri 58 milljarðar króna. Verð-
mætið hafi því aukist um 2,5
milljarða.
Á sama tíma hefur vísitala
neysluverðs hækkað um rösklega
6,6%. Það þýðir að ef verðmæti
Landsvirkjunar í byrjun árs er
uppreiknað á verðlagi október-
mánaðar er það 61,8 milljarðar
króna, eða 1,3 milljörðum hærra
en nú er reiknað með.
„Að langstærstu leyti er kostn-
aður Landsvirkjunar háður þró-
un gengis og frá því í janúar hef-
ur gengisvísitalan verið að
hækka, sem hefur haft þær af-
leiðingar að verðmæti eiginfjár
hefur minnkað. Gengistap Lands-
virkjunar fyrstu sex mánuði árs-
ins 2006 var 26 milljarðar króna.
Þetta hefur auðvitað áhrif,“ segir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri, sem segir að líta þurfti
til fleiri þátta en verðbólguþró-
unar.
„Þegar við slitum þessum við-
ræðum síðast var verðmæti
Landsvirkjunar metið 58 millj-
arðar,“ segir Steinunn Valdís.
„Þegar þetta var rætt síðast í
borgarráði vorum við Vilhjálmur
alveg sammála um að verðið væri
allt, allt of lágt. Menn voru að
tala um í kringum 70–80 [millj-
arða], svo mér finnst að menn
hafi enn eina ferðina gefið eftir.“
Ríkið kaupir | Miðopna
Verðmæti Landsvirkjunar
rýrnað frá því í janúar?
Í HNOTSKURN
»HeildarverðmætiLandsvirkjunar er met-
ið 60,5 milljarðar í samn-
ingi ríkisins við Reykjavík-
urborg og Akureyrarbæ.
»Reykjavíkurborg færþví 26,9 milljarða í sinn
hlut en Akureyrarbær 3,3
milljarða.
»Mestur hluti kaup-verðsins mun ganga
upp í lífeyrisskuldbind-
ingar sveitarfélaganna
tveggja, en 3,4 milljarðar
verða greiddir í reiðufé 1.
janúar 2007.
HVENÆR ætlar þessari rigningu
eiginlega að linna, gæti konan
hafa verið að hugsa er hún átti
leið um Bankastrætið. Á sama
andartaki og þessar vangaveltur
fóru í gegnum hug hennar leit
hún til himins til að athuga hvort
líklegt væri að létta færi til. Það
er reyndar ólíklegt næstu dagana.
En konan var ekki sú eina í
Bankastrætinu sem beindi sjónum
upp fyrir húsin í bænum. Það ger-
ir líka ein af styttum listakon-
unnar Steinunnar Þórarinsdóttur.
Kannski var konan alls ekkert
að gá til veðurs heldur einmitt að
velta fyrir sér hvað hefði vakið
athygli styttunnar, eða réttara
sagt fyrirmyndar hennar.
Kannski sjálft almættið? Hver
veit. Morgunblaðið/Ómar
Horft til
himins í
rigningunni
VELTA á fasteignamarkaði á síðustu fimm
mánuðum er um 30% undir meðalveltu síðustu
fimm ára. Á síðustu tveimur mánuðum hefur
veltan aukist og er núna farin að nálgast með-
altalið. Þetta kemur fram í skýrslu greining-
ardeildar KB banka um fasteignamarkaðinn. Í
skýrslunni segir að horfur á fasteignamarkaði
séu að mörgu leyti að batna. Framvinda á
markaðinum næstu 12 mánuðina ráðist þó að
töluvert miklu leyti af þróun efnahagsmála,
einkum atvinnuástandi og því framboði á hús-
næði sem nú er í pípunum.
KB banki spáir því að fasteignaverð hækki
að meðaltali um 1% að nafnvirði á næsta ári, en
það þýði tæplega 1,5% lækkun að raunvirði.
Bankinn spáir 6% raunhækkun á árinu 2008.
Það sem af er ári hefur fasteignaverð hækkað
um 15,3%. Í fyrra hækkaði það um 35%.
Ólíklegt að reyni á ríkisábyrgð
Íbúðalánasjóðs
Ríkisendurskoðun birti í gær skýrslu um
fjárhagsstöðu Íbúðalánasjóðs. Niðurstaða
hennar er að ólíklegt sé að eiginfjárhlutfall
Íbúðalánasjóðs stefni niður fyrir tilskilin hlut-
föll í fyrirsjáanlegri framtíð. Ólíklegt sé því að
reyni á ríkisábyrgð á skuldbindingum sjóðsins.
Þessi niðurstaða byggist á þeirri grunnfor-
sendu að Íbúðalánasjóður geti ávallt endurlán-
að eða endurfjárfest með hagnaði það fjár-
magn sem kemur til vegna uppgreiðslna útlána
hjá sjóðnum. Í skýrslunni er tekið fram að erf-
itt sé að meta líkurnar á hvort þessi forsenda
standist.
Sala | Viðskipti
Velta á fasteignamarkaði eykst
♦♦♦