Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Síða 6
Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu Íathyglisverðri grein sem birtist nýverið íStúdentablaðinu og er eftir Odd BjörnTryggvason er fjallað um stöðu kvikmynda-náms hérlendis. Í raun er verið að skoða hvers konar vettvangur í menntakerfinu sé fyrir hendi fyrir þá sem áhuga hafa á störfum í kvik- myndaiðnaði í framtíðinni. Slíkur mennta- vettvangur er vitanlega einn af grunnþáttunum í langtímaafkomu fagsins, og á það við bæði hér- lendis og annars staðar. Það sem hér liggur undir er sú staðreynd að kvikmyndagerð, ef eitthvað á að henni að kveða, treystir á framboð af hæfu fagfólki sem reiðubúið er að ganga inn í hinar fjölbreyttu stöður sem tengjast iðnaðinum. Hvað þetta varðar finnst mér grein Odds bregða birtu á ýmsa þætti sem gefa tilefni til ákveðinnar bjartsýni. Kvikmyndaskóli Íslands undir stjórn Böðvars Bjarka Péturssonar hefur starfað sem samfelldur skóli síðan árið 2000 og Listaháskóli Íslands leitast um þessar mundir við að koma á laggirnar kvik- myndadeild sem myndi starfa á svipuðum grund- velli og fyrrnefndi skólinn en á hærra skólastigi. Það hefði væntanlega í för með sér ákveðinn áherslumun hvað námsskrá og kröfur varðar þar sem Listaháskólinn myndi starfa á háskólastigi en Kvikmyndaskóli Íslands á framhaldsskólastigi. Þeirri hugmynd er jafnvel varpað fram í grein Odds að eins konar samstarf mætti hugsa sér þar sem fólk sem útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Ís- lands gæti sótt frekara nám í faginu í Listaháskól- anum. Slíkar vangaveltur tilheyra vitanlega framtíðinni þar sem nokkuð virðist vanta upp á það að Listahá- skólinn komist að samkomulagi við mennta- málaráðuneytið um rekstur kvikmyndadeildar. Þar til það mál er í höfn er of snemmt að tala um nokkra samþættingu þessara tveggja stofnana, en því verður ekki neitað að áðurnefnd mynd af línulegu framhaldi og samstarfi milli skólanna tveggja virð- ist mun eftirsóknarverðari en sú sem sýnir tvo skóla keppast um sömu nemendur og reyna að skila af sér sams konar vinnu. Í grein Odds er vitnað til Hjálmars H. Ragn- arssonar, rektors Listaháskólans, þar sem hann lýsir yfir eindregnum vilja skólans til að koma á fót kvikmyndanámi og því til stuðnings er m.a. vísað til þess fjölbreytta starfs sem þegar er unnið innan skólans og það gefið í skyn að fjarvera þeirrar einu listgreinar sem 20. öldin skapaði, kvikmyndarinnar, sé nokkuð sár. Undir þetta er auðvelt að taka. Ef nútíminn á sér tiltekið birtingarform þá er það kvikmyndin og því skiljanlegt að metnaðarfull stofnun á borð við Listaháskólann vilji taka þátt í þróun og uppgangi hennar hér á landi. Það er hins vegar tvennt ólíkt að skapa mennt- unargrundvöll sem nýtist íslenskum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði og að skapa umhverfi þar sem fag- fólk sem ákveður að leggja starf þetta fyrir sig get- ur þrifist. En eins og Oddur segir í grein sinni þá hefur „ekki öllum gengið vel að fá fasta stöðu“ í þessum erfiða bransa. Enda þótt hugtakið „föst staða“ sé kannski ekki alveg við hæfi í þessu sam- hengi er auðvelt að sjá hvað Oddur er að fara, það kann að vera erfiðleikum háð að tryggja sér sam- fellt lífsviðurværi í iðnaði sem hér á landi virðist öðru fremur háður veðri og vindum. En hvernig mætti betrumbæta umhverfið og tryggja frekari stöðugleika í íslenskum kvikmyndaiðnaði? Eitt svar væri að auka framlög ríkisins til Kvik- myndamiðstöðvar og innlendrar kvikmyndafram- leiðslu almennt, auk uppbyggingar á kvikmynda- menningu þjóðarinnar, þ.e. bókaútgáfu, ráðstefnuhaldi, kvikmyndahátíðum o.s.frv. en nauð- syn þess myndi ég telja brýna og í raun er heilmikla skömm af því að hafa hversu óþægilega og ein- feldningslega mörkin hafa fram til þessa verið dregin milli kvikmyndagerðar og kvikmyndamenn- ingar, líkt og annað geti þrifist án hins. Þannig mætti benda á það að kvikmyndagerð hér á landi, eða íslenskt þjóðarbíó sem einhverju máli skiptir, verður náttúrlega ekki til í einhverjum hálfkæringi. Þá verður slíkt þjóðarbíó ekki búið til af ofurhugum sem eiga á hættu að fara á hausinn eftir hverja mynd. Ágæt leið til að skapa starfsumhverfi fyrir fagfólk í kvikmyndagerð á Íslandi er að á Íslandi séu búnar til kvikmyndir af fagfólki sem fá dreif- ingu annars staðar en á Íslandi. Og þar er hlutverk kvikmyndaskóla skýrt eins og auðséð má vera hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndunum þar sem há- gæða kvikmyndaskólar hafa gegnt lykilhlutverki í sköpun kraftmikils iðnaðar sem ekki einvörðungu nær vinsældum heima fyrir heldur hefur átt erindi langt út fyrir eigin strendur. Góðir kvikmynda- skólar sýna vissulega menningarstyrk og sömuleið- is vitna þeir um að kvikmyndamenning þjóðar hef- ur náð tilteknu marki en að sama skapi er tilvist þeirra forsenda fyrir þvi að kvikmyndamenningin þróist og blómstri. SJÓNARHORN » Þannig mætti benda á það að kvikmyndagerð hér á landi, eða íslenskt þjóðarbíó sem einhverju máli skiptir, verður ekki til í einhverjum hálfkæringi. Kvikmyndaskólar og kvikmyndamenning 6 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Suður-kóreska leikkonan JeonDo-Yeon var verðlaunuð fyrir leik sinn í kvikmyndinni Secret Sunshine á nýafstaðinni kvik- myndahátíð í Cannes. Jeon sagði í viðtali fyrr í vikunni að hún hefði upphaflega hafnað hlut- verkinu þegar það bauðst því henni fannst hún ekki skilja persónuna nógu vel. Í myndinni fer Jeon með hlut- verk einstæðrar móður sem flytur í heimabæ fyrr- um eiginmanns síns ásamt ung- um syni sínum. Hörmulegir at- burðir í smábæn- um verða til þess að konan leitar á náðir kristinnar trúar í leit að hugarró. „Mér fannst ég ekki skilja konuna við það eitt að lesa handritið,“ sagði Jeon í umræddu viðtali. „Lee Chang-Dong (leikstjóri mynd- arinnar) útskýrði stöðu hennar í líf- inu og hann sannfærði mig um að taka hlutverkið að mér.“ Suður-Kóreubúar samglöddust Jeon innilega og var hún á forsíðum allra dagblaða þar í landi í kjölfar verðlaunanna. Forseti landsins, Roh Moo-Hyun, var meðal þeirra sem sendu henni heillaóskir sínar.    Nú bendir allt til að það verðisænskt undirfatamódel sem taki við hlutverki Tortímandans úr höndum ríkisstjórans Arnolds Schwarzeneggers. Sænska fyr- irsætan og leik- arinn Marcus Schenkenberg var staddur á kvikmyndahátíð- inni í Cannes á dögunum í leit að fýsilegum hlut- verkum fyrir framtíðarferil sinn. Í samtali í hollenskum spjallþætti staðfesti Schenkenberg að hann hefði fengið fjögur hlutverk í kvikmyndum á há- tíðinni, þar af eitt sem Tortímandinn sjálfur í fjórðu myndinni sem á að gera um vélmennið. Schwarzenegger verður þó ekki alveg fjarri góðu gamni við gerð myndarinnar en honum mun að sögn bregða fyrir í litlu aukahlutverki.    Þó svo að Cameron Diaz lýsti þvíyfir á dögunum að hún væri til í að taka þátt í gerð Shrek 87 er hæp- ið að til þess komi. Allavega sagði Jeffrey Katzenberg, yfirmaður hjá DreamWorks Animation, að áform væru um að gera tvær myndir um tröllið græna í viðbót, ekki meira. „Þetta er saga sem tekur enda, það stóð til alveg frá upphafi,“ sagði Katzenberg. „Öll sagan var tilbúin þeg- ar við réðumst í gerð fyrstu mynd- arinnar. Ég held að það sé styrkur myndanna. Þær byggja á traustum grunni og það er ekki verið að spinna söguþráðinn upp jafnóðum.“ Meðal þess sem fram mun koma í Shrek 4 og 5 er forsaga Skrekks sjálfs og hvernig hann endaði í fen- inu sínu góða.    Samkvæmt The Times Online re-ports hefur Helen Mirren tekið að sér hlutverk móður af gyð- ingaættum í kvikmyndinni Gaza. Myndin segir frá móðurinni sem bú- sett er á Gaza-ströndinni ásamt dóttur sinni sem á palestínskan unn- usta. Kvikmyndir Jeon Do-Yeon Marcus Schenkenberg Shrek og Stígvélaði kötturinn. Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is N ýjasta kvikmynd breska leik- stjórans Shane Meadows, Þetta er England (This is Eng- land), hefur vakið mikla athygli en þar er tekist á við tímabil í nálægri fortíð bresku þjóð- arinnar í gegnum sögu ungs drengs sem er á miklu umbrotaskeiði í lífi sínu. Myndin gerist snemma á níunda áratugnum þegar atvinnuleysi, útlendingahatur og nýafstaðið Falklands- eyjastríð setur mark sitt á þjóðarsálina. Að- alpersóna myndarinnar, Shaun, er 12 ára og glímir við sorg eftir að hafa misst föður sinn í Falklandseyjastríðinu. Eftir fráfallið flytur Shaun með móður sinni í sjávarbæ nálægt Nott- ingham á Mið-Englandi en gengur illa að aðlag- ast lífinu þar. Þegar Shaun eignast vini sem raka á sér hausinn, klæðast uppbrettum gallabuxum, axlaböndum og Dr. Martens skóm, hlusta á ska- tónlist og gefa skít í kerfið, upplifir hann við- urkenningu sem hann áður skorti. Hann er nú orðinn hluti af klíku sem tekur honum opnum örmum, ekki síst foringinn í hópnum, hinn yf- irvegaði og sjarmerandi Woody. Klofningur kem- ur hins vegar upp í klíkunni þegar Combo, fyrr- um meðlimur vinahópsins, kemur aftur til bæjarins eftir að hafa setið í fangelsi og tekur að boða klíkufélögum sínum þjóðernishyggju og út- lendingahatur í anda breska Þjóðarflokksins (British National Front) sem var þá að leita að nýjum fylgisgrunni meðal reiðra ungra manna. Sannfæringarkraftur Combos og gagnrýni hans á stríðsrekstur og stefnumál ríkisstjórnarinnar hefur djúpstæð áhrif á hinn leitandi og viðkvæma Shaun, sem leitar enn útrásar fyrir heiftina sem býr í honum eftir föðurmissinn. Þetta er England hefur verið lofuð fyrir að sameina vandaða og kraftmikla frásögn og til- finningalega dýpt en gagnrýnandi Times sagði myndina þá bestu sem komið hefði frá breskum leikstjóra síðan Trainspotting gerði allt vitlaust um árið. Þá hefur hinn barnungi Thomas Tur- goose hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki Shauns. Saga fyrrum snoðinkolls Shane Meadows er sjálflærður kvikmyndagerð- armaður sem hefur gert nokkrar kvikmyndir en sú þekktasta er líklega spennumyndin Once Upon a Time in the Midlands, mynd sem Meadows hef- ur reyndar sjálfur sagt vera eina af sínum ómerki- legustu verkum. Í myndum sínum tekst Meadows gjarnan á við líf fólks af verkamannastétt og sam- spil karlmennskuhugmynda og ofbeldis en Þetta er England er nýjast viðbótin við svokallaðar Nottingham-sögur hans. Í nýlegu viðtali, sem birtist við Meadows í Time Out, segir hann Þetta er England vera sína sjálfsævisögulegustu kvik- mynd hingað til. Í myndinni, sem hann skrifar sjálfur handritið að, hverfur hann til æskuslóða sinna á Mið-Englandi, en á unglingsárunum bjó hann í Nottingham þar sem hann varð hluti af menningarkima snoðinkolla sem bölvuðu von- leysinu sem blasti við ungu fólki af verka- mannastétt. Sjálfur segist Meadows hafa fylgst með því hvernig þessi æskumenningarkimi, sem spratt af pönkbylgjunni bresku og hlustaði af ástríðu á tónlist frá Jamaíka, varð áróðri þjóðern- issinnaðra öfgaafla að bráð, og klofnaði m.a. í hóp nýnasista sem flestir tengja nú snoðinkollana við. Í myndinni dregur Meadows upp sterka mynd af tísku og tíðaranda fyrri hluta níunda áratug- arins og verður vonleysi og ömurleiki staða á borð við bæinn sem Shaun býr í allt að því áþreifanlegt. Hárgreiðsla og klæðnaður er útfært af mikilli ná- kvæmni niður í smæstu smáatriði, en myndin hefst á nokkurs konar inngangi þar sem tíðarand- inn er bókstaflega seiddur fram með fréttamynd- um úr Falklandseyjastríðinu, brúðkaupi Díönu og Karls, fundum Reagans og Thatcher og mannlífs- myndum úr atvinnuleysishrjáðum borgum Bret- lands sem römbuðu á barmi óeirða og upplausnar. Fjallað er um hugmyndafræðileg átök sem hrærðust með ungu fólki í Bretlandi á þessum tíma í gegnum sögu Shaun og vina hans, og eru hugleiðingar um orsakir ofbeldis og ofbeld- ishyggju áberandi þáttur í frásögninni. Meadow segir í áðurnefndu viðtali að skelfilegur ofbeld- isverknaður hafi bundið enda á samvistir hans við snoðinkollana og foringja hópsins sem var honum föðurleg fyrirmynd. Ekki er erfitt að sjá ævi- sögulegu tengslin í sögunni af Shaun í Þetta er England og þessum atburði í lífi leikstjórans Shane. England árið 1982 Þetta er England Myndin þykir sameina vandaða og kraftmikla frásögn og tilfinningalega dýpt Menningarkimi snoðinkolla, útlendingahatur og átakatími Thatcher-áranna er meðal þess sem Shane Meadows fjallar um í mynd sinni, Þetta er England, en myndin er um leið nokkurs konar sjálfsævisaga.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.