Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2007 9 myndina sem sköpuð hefur verið m í erlendum tónlistarfjölmiðlum. yndinni yfir í krúttbangsa eða oðsaga um hið krúttlega, skrítna, ennur saman við ímyndina af ið verður gremlin, skrímsli eftir g með erótískum undirtónum. táknfræði í eigin hendur, leika r þannig viðbragð við eigin hlut- tnilegt útkjálkafyrirbæri. Auð- myndinni en með því festist mað- orgaralega og fágaða í andstöðu m hefur lítið fram að leggja í s og er einungis áhugavert að arverkefni sem felur í sér að 50 pum á 8 mismunandi stöðum á Áhersla er á samvinnu lista- ð. Aðgengi íslenskra listamanna arðar samgöngur og athygli hef- g með tilheyrandi sókn í þá átt. gnið, athyglin og vöxturinn sem tkjálkans er eftirsóknarverður elja í útkjálkaþorpinu 101 ð en markaðssetningu. Hið gagn- ð þátttöku hennar í samfélaginu. n í Reykjavík virðast halda á sér kileg sköpun á öðrum út- SÍA sem verkefni er hugsað til að og skapa tengslanet til framtíðar Eftir Guðmund Odd Magnússon Frá aldamótum í það minnsta hafa nýrómantískir vindar blásið ávíðtækan hátt um samtímann. Þetta gerist á tímum nánast al-tækrar alheimsvæðingar þar sem allt líkist hvað öðru, það tap- ast auðkenni og sérkenni. Viðspyrnan verður leitin að hinu ekta og hinu sérkennilega en ekki endilega hinu þjóðlega. Ekki er eins gaman eða merkilegt að ferðast til stórra borga og maður ímyndar sér alla- vega að hljóti að hafa verið hér áður fyrr. Jaðarsvæðin og smábæirnir verða mun eftirsóknarverðari fyrir vikið. Virðing fyrir útkjálka- mennsku og því heimatilbúna, upplifun fegurðarinnar í því sem flestum fannst annars ómerkilegt kom mjög hægt til mín persónulega. Ég varð samt fyrir gríðarsterkum áhrifum þegar ég flutti af landsbyggðinni til höfuðborgarinnar – nánast sleginn á sínum tíma þegar mér varð ljóst að allt sem mig dreymdi um sem fegurð var með öfugum formerkjum. Þessi upplifun mín hangir saman við vakninguna fyrir þeirri fegurð sem breska ljóðskáldið Keats orðaði eitthvað á þá leið að fegurðin væri sannleikur og sannleikurinn fegurð. Sannleikurinn getur verið í huga okkar flestra bæði ljótur og beiskur og upphafinn draumurinn sleginn töfraljósi, baðaður sykurhjúpi yfirborðsins mun fegurri. Ástæðan fyrir flutningnum frá landsbyggðinni var að ég varð nem- andi við Myndlista- og handíðaskólann haustið 1976. Ég dróst á tveim árum að þeirri deild sem ég var varaður mest við af kennurum forskól- ans og annarra deilda skólans sem fullyrtu að þessi snerist ekki um myndlist heldur eitthvað allt annað. Þeim til mikillar skelfingar gekk ég í hóp þeirra sem voru nánast uppnefndir nýlistamenn á sínum tíma. Þetta voru flúxus- og konsept-listamenn. Margir þeirra notuðu efni sem aðrir höfðu kastað – þeir voru á móti upphafningu efnisins sem var ansi fyrirferðarmikil í samfélaginu á þeim tíma. Algengasta spurningin sem listamenn svöruðu í fjölmiðlum var: „Í hvaða efni vinnur þú“? og svarið var kannski. „Jú, ég vinn mest með gifs en fer aðeins út í kopar“ eða „ég er nú mest í aquarellunni en vinn aðeins með blek“. Einn áhrifamesti kennarinn í forskólanum sýndi okkur hróðugur fulla tunnu af rauðu litarefni (pigmenti) sem hann hafði búið til sjálfur. Ekki fór mörgum orðum af myndlistariðkun hans meðan kennarar og nem- endur nýlistardeildar iðkuðu umræðuna um inntak og tilgang list- arinnar. Sem dæmi spurði nemandi eitt sinn einn kennara við nýlista- deildina. „Er ekki örugglega rétt hjá mér að málverkið sé dautt?“ Kennarinn svaraði: „Nei, aldeilis ekki. Málverkið er ekki dautt – mál- verk er bara ein aðferð til að tjá sig eða að koma hugmynd á framfæri. Það skiptir ekki svo miklu máli hvaða aðferð þú notar til að tjá þig svo framarlega sem þú ert að því og hefur eitthvað að segja og þá skiptir miklu máli að segja satt! Mér sjálfum til mikillar furðu þá voru þessir flúxus-listamenn mjög hrifnir af hinu heimatilbúna. Á þessum árum var nýútkomin bók sem hét „Án titils“. Við nemendur deildarinnar lásum hana allir. Hún er ágætt dæmi um þessa fagurfræði. Hún var í dagbókarformi, frásaga af daglegu lífi bóhemsins vafin skyndimyndum, bömmerum og brönd- urum þynnkunnar, skreytt póstkortum og sendibréfum frá sama tíma- skeiði. Annar kennari benti okkur á þetta væri heil hefð hér á landi sem Þórbergur Þórðarson náði meistaratökum á. Hann nefndi einnig fjölmargar ævisögur og sjálfsævisögur sem hefðu þessi heimatilbúnu einkenni þar sem ekkert réð ferðinni nema brjóstvitið – ekki væri um að ræða fágaðan og menntaðan smekk. Til þess að útskýra betur nefndi hann nóbelsskáldið sem dæmi um andstæðuna. Þar væri á ferð- inni listamaður upphafningar og fágunar sem meðvitað vildi sýna heiminum að við gætum líka skrifað lærðar heimsbókmenntir. Að Þór- bergur sýndi sannleikanum virðingu en nóbelsskáldið næði því ekki á sama hátt. Í verk hans væri ofin of mikil tilgerð og upphafning til þess að hægt væri að kalla þau sönn í þessum skilningi. Þetta á ekki bara við um íslenskar bókmenntir. Það sama gildir um íslenska tónlist, karlakórana og lúðrasveitirnar. Það sama gildir um ís- lenskan fatnað, frá upphlutnum að gúmmískónum, Íslandsúlpunni og lopapeysunni. Það sama gildir um íslenskan arkítektúr. Líklega er kjarni málsins falinn í íslenskum tuttugustu aldar arkítektúr. Þar eru augljósar allar meginhugmyndir hinna vestrænu menningarhreyfinga þess tíma. Þær berast að utan eins og hver annar rekaviður. Þar er þjóðernis-rómantíkin, þar er art deco, þar er fúnksjónalisminn. Þar er módernismi alþjóðastílsins frá sjötta áratugnum. Þar er póst- módernisminn. Allir eru sammála um að þar finnist engin Corbusier eða Frank Loyd Wright en sama hugmynd finnist samt. Hugmyndir ferðast en hjartað ferðast ekki. Það er staðbundið eins og úrlausnir eru staðbundnar. Verksvit okkar, tækni og efni eru staðbundin – þar koma auðkennin í ljós. Útkjálkinn eru auðkenni okkar því þar er heimili okk- ar og hjarta. Nesjamennska og sveitarómantík Höfundur er grafískur hönnuður og prófessor við LHÍ. Eftir Allison Peters Útkjálkamennska er hugar-ástand. Hugmyndin um út-kjálkamennsku gefur til kynna bæði landfræðilega staðsetn- ingu sem og vitsmunalega einfeldni einstaklings, staðar eða hlutar sem hugtakið vísar til. Frekari rannsókn á þessum tveimur algengu eiginleikum útkjálkamennsku gefur til kynna að skilgreiningarnar tvær eru óháðar hvor annarri. Nú til dags takmarkar það ekki þekkingu eða sýnileika að vera staðsettur á jaðarsvæðum, þökk sé samskiptahraða eins og Netinu, fjarskiptatækni og miðlun yfirleitt. Það er seinni skilgreiningin, um vits- munalega einfeldni, sem vekur gagn- rýnar spurningar. Menning verður ekki til í tómarúmi; þvert á móti er menning afleiðing sameiginlegrar meðvitundar. Augnablik samtímans setur fram marga raunveruleika – alla jafn réttháa – sem hafa áhrif hvor á annan á ýmsa vegu, burtséð frá land- fræðilegri staðsetningu. Menningarfræðingurinn Frederic Jameson setti fram hugtakið hugræn kortlagning (e. cognitive mapping) til að lýsa póstmódernískri menning- arfagurfræði. Hugtakið byggir á skilningi á rými (staðsetningu) og tíma (sögu), og lýsir því hvernig ein- staklingurinn öðlast tilfinningu fyrir stað (tilfinningalegri nærveru) þegar hann hefur sagt skilið við stórborg- armiðjuna. Hugtak Jameson um korta- gerð réð ríkjum í listfræði 10. áratug- arins þegar sjálfsmyndir (hvort heldur byggðar á þjóðerni eða landfræðilegu) urðu að umfjöllunarefni í samtímalist. Í þessu erindi verður þetta hugtak Jamesons endurlífgað í þeim tilgangi að setja fram beinskeytta staðhæfingu um það hvernig list og menning, fram- leidd í borgum, bæjum og þorpum hvaðanæva úr heiminum, burtséð frá íbúafjölda og auði, getur af sér spenn- andi og mikilsverð verk sem setja samtímaaugnablikið í samhengi, óháð þeirri menningarframleiðslu sem fer fram í hinni miklu listamaskínu stór- borganna. Á þessum stöðum verður ósvikin, persónuleg listtjáning til sem nærist á tiltekinni staðsetningu, sem á sér tiltekna sögu, hefð og fagurfræði. Umræðan um áhrif landfræðilegu á samtímalist er nú í fullum gangi á vígstöðvum menningarframleiðsl- unnar, eins og sjá mátti á málþingi í New Museum undir yfirskriftinni Location, Location, Location, Is Pro- vincialism a Bad Word? sem haldið var í New York 10. janúar síðastlið- inn. Ég legg til að á málþingi Reykja- víkurAkademíunnar í dag verði reynt að yfirstíga neikvæð hugrenn- ingatengsl við hugtakið „útkjálka- mennska“, og í staðinn verði byggt á kenningum Jamesons um kortagerð með því að deila hvert með öðru heimildum okkar, tengslaneti og hug- myndum sem kunna að koma upp meðan á málþinginu stendur. Þannig getur útkjálkamennska orðið að ein- stöku verkfæri sem nota má á marga vegu. Hugmyndin um að hugsa staðbund- ið, ekki hnattrænt, gæti virst aft- urhaldssöm, en segja má að við lifum nú á tímum eftir-hnattrænunnar (e. post-global). Al Gore hefur sýnt okkur hvernig gríðarmikið magn af elds- neyti til flugferðalaga hefur átt stór- an þátt í eyðileggingu umhverfisins á ógnarstuttum tíma. Ef til vill er kom- inn tími til að búa staðbundið og heimsækja hvert annað í sýndarveru- leika Netsins, meðan við einbeitum okkur að reynslu, hugmyndum og óháðum framleiðsluháttum sem sprottið er úr okkar nánasta um- hverfi, til að örva samtímalist og menningu. Að hugsa staðbundið, ekki hnattrænt Allison Peters er sýningarstjóri Hyde Park Art Center í Chicago. (Þýðing: Ólöf Gerður Sigfúsdóttir) Eftir Örnu Mathiesen Að alast upp á bæjarmörkunum hafði mikil áhrif á áhuga-mál, skoðanir og fordóma mína. Nýtt hverfi var að rísa,nýr veruleiki búinn til. Við krakkarnir fylgdumst með af frauðplastbátunum úr grunnum þar sem allt var á floti og frá yf- irgefnum holræsarörum þar sem við hreiðruðum um okkur, eða allt þar til þau voru lögð neðanjarðar og fylltust af skólpi. Á sama tíma var náttúran alltumlykjandi. Við vorum í nánu sambandi við hunda, kindur, hesta, hænur og pöddur og klifruðum á fjöll og syntum í ískaldri Köldukvísl. Dásamleg minning um að hálf- drukkna í skurðum og vera drullug upp fyrir haus! Þessi ævintýri leiddu til gegndarlausrar vorkunnar gagnvart krökkunum í miðbænum. Ekki að Reykjavík væri nein stórborg í þá daga, en þetta var þó höfuðborgin og hvað væri agalegra en að alast upp í Þingholtunum? Mér þótti borgin ekki bara leiðinleg, al- gjörlega án allra dásamlegu byggingarefnanna liggjandi út um allt, heldur hlaut öllum að stafa ógn af umferð, glæpamönnum og rónum. Krakkagreyin! Einhvern veginn duttu mér þó aldrei í hug sparkandi hestar og drukknun þegar hugsað var um hættur og ógnir. Loks, þegar ég hitti krakkana úr Þingholtunum sönnuðust hleypidómarnir engan veginn; Þinghyltingarnir höfðu mér til undrunar (og vonbrigða?) sín eigin ævintýri sem ég gat bara látið mig dreyma um. Dýrðlegir staðir eins og verslunargötur, torg, söfn og höfnin þar sem maður sýndi sig og sá aðra. Þetta vakti forvitni mína fyrir borg og menningu og – þrátt fyr- ir mótbárur spákonu sem sá fyrir sér glæsta framtíð mína í Nor- egi – flutti ég til Parísar. Fordómar mínir hindruðu mig að leita örlaga minna í Noregi, „þjóðgarði Evrópu“, eins og hollenskur arkitekt kallaði hann um árið (Winy Maas á Arkitektatríenalnum í Ósló árið 2000), það krummaskuð myndi ég ekki heimsækja, hvað þá flytja þangað. Það sem heillaði mig í París og öðrum borgum sem ég var svo heppin að gista voru ekki aðeins hin opinberu rými sem höfðu þann dásamlega eiginleika að svolgra í sig fólk í öllum stærðum og gerðum í mörg samfélagslög. Þessar borgir höfðu líka náttúru. Gjörsamlega manngerða og hamda en samtímis gerða úr vatni, mold og plöntum, alveg eins og í túninu heima. Græn lungu sem næra borgina með súrefni og losa út mengun; staðir fyrir end- urnýjun og útivist. Nú bý ég í mínum frábæra Noregi og hérna, líkt og á Íslandi, eru hugmyndir fólks um borgina tengdar hugmyndum um náttúr- una. Þegar valið stendur á milli þess að ala upp börnin „í nátt- úrunni“ og „á malbikinu“ virðist valið vera upplagt. Þráin eftir einingu við náttúruna hefur oft tekið ýkta mynd í okkar heims- hluta, t.a.m. ótal glæfralegar pólferðir. Þegar kemur að því að byggja heimili og draumurinn um gott líf úti í náttúrunni blandast öllu amstrinu og kröfum nútímaþjóðfélags, er útkoman sjaldnast neitt aðlaðandi. Hvorki endalaus úthverfi þar sem nágrannar hafa lítið hverjir með aðra að gera né „sumarbústaður“ með 17 bað- herbergjum (eins og þekktur milljónamæringur í Noregi hefur reist sér) eiga margt sameiginlegt með fjallakofa milli jökla, jafn- vel þótt það sé torfþak. Oft eru lausnirnar á kostnað náttúrunnar fremur en til þess fallnar að tengja fólk náttúrunni. Æ stærri og fleiri brautir flytja fólk til og frá vinnu, skóla og verslun. Gatna- kerfið fer að lifa sínu eigin lífi og leikur aðalhlutverkið í borginni. Gaman er að spranga um óbyggðir (þótt þær reynist ekki eins óspilltar og við héldum), en er ekki jafn mikilvægt að skerpa sam- band okkar við náttúruna í hversdagönnunum þar sem við lifum og hrærumst í borgum og bæjum á mörkum óbyggðanna? Hér hafa listamenn útnárans verk að vinna; að endurmeta samskipti við náttúruna og draga upp myndir sem birta auðlindirnar í okk- ar nánasta umhverfi í nýju ljósi. Út í heim og heim aftur Höfundur er arkitekt og búsett í Noregi. ka málþingi um hugtakið ýningaropnunar lista- a dag í Gerðarsafni kl. 15. hljóðfæraleikurum. ð útkjálkamennsku. Fyr- órnun, munu ræða hug- ið almennt. Málþingið .provincialists.com

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.