Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.2007, Side 12
12 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Jakob Björnsson
jakobbj@simnet.is
Í
Lesbók Morgunblaðsins
10. mars á þessu ári birt-
ist grein eftir Jón Kal-
mansson undir heitinu
„Er hnattræn skylda að
virkja?“. Greinin er um-
ræða um virkjanir á Ís-
landi almennt og sér-
staklega um grein eftir mig sem
birtist í Kirkjuritinu, 2. hefti 66. ár-
gangs, í nóvember 1999 og nefndist
„Um samskipti manns og náttúru“.
Þessi grein Jóns er málefnaleg og
að því leyti ólík mörgu því sem birst
hefur í blöðum um sömu eða hliðstæð
mál að undanförnu. Ég þakka honum
fyrir málefnaleg efnistök enda þótt ég
sé honum ósammála um margt.
Minnka virkjanir á Íslandi
mengun í heiminum?
Framarlega í greininni segir höf-
undur: „Ég ætla ekki að ræða þá
spurningu hvort sú fullyrðing stenst
að það minnki mengun í heiminum ef
Íslendingar virkja orkulindir sínar í
þágu stóriðju – þótt mér virðist það
ekki jafn sjálfgefið og Jakobi.“
Það má færa gild rök að því að nýt-
ing á íslensku orkulindunum dragi úr
mengun í heiminum. Til þess er ekki
rúm að sinni.
Nytjahyggja
Höfundur segir: „Að þessu sinni hef
ég áhuga á að ræða þann siðferð-
isskilning sem liggur röksemdafærslu
Jakobs til grundvallar. Þessi tiltekni
skilningur á siðferði og skyldu okkar
við náungann er býsna algengur nú
um stundir. Siðferðisskilningur Jak-
obs byggist á nytjahyggju; því við-
horfi að frumskylda okkar sé að gera
það sem samkvæmt útreikningum
okkar stuðlar að sem bestu ástandi í
öllum heiminum. Við eigum að reyna
að hámarka góðar afleiðingar breytni
okkar fyrir heildina og lágmarka hin-
ar slæmu. Þessi afstaða til siðferðis er
á hinn bóginn fremur ný af nálinni í
sögunni og hún er sannarlega ekki
hafin yfir allan vafa. Að mínu mati
höfum við góðar og gildar ástæður til
að hafna henni.“
Það er rétt að sú hnattræna hugsun
er ný að allt mannkyn eigi sameig-
inlegra hagsmuna að gæta. Það er
ekki síst gróðurhúsavandinn sem hef-
ur ýtt undir hana. Hann spyr ekki að
landamærum en ógnar öllu mannkyni
jafnt.
Höfundur víkur í framhaldinu að
því að ég vísi aðeins í hluta af æðsta
boðorði kristinna manna en sleppi
upphafi þess þar sem segir: „Elska
skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu
hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum
huga þínum.“ „Þetta er hið fremsta
og æðsta boðorð. Guð setti mann-
kynið yfir sköpunina og ætlaði því
jörðina til afnota. Mannkynið er aftur
á móti á jörðinni til að þjóna og til-
biðja Guð. Notkun þess á jörðinni á að
þjóna þessu markmiði,“ segir hann.
Hvað er að þjóna Guði og tilbiðja
Guð? Að hlýða boðum hans og gjöra
vilja hans. Framkvæma boð hans um
að elska náungann eins og sjálfan sig?
Sá sem það gerir í raun og sannleika
elskar um leið Drottin Guð sinn af
öllu hjarta sínu, allri sálu sinni og öll-
um huga sínum. Ekki er unnt að sýna
Guði meiri þjónustu og meiri til-
beiðslu en þá, sem felst í að elska
náungann eins og sjálfan sig. Guð er
kærleikur. Sá sem ekki sýnir náunga
sínum kærleika elskar ekki Guð. Ég
valdi orðalag sem mér fannst komast
næst kjarna málsins. Ég held að mér
hafi ekki skjátlast.
Sólundun af heimsku og
kunnáttuleysi
Höfundur hefur réttilega eftir mér að
við sólundum efnahag okkar. En
hann segir mig ekki sjá „hvernig það
efnahagskerfi sem við höfum búið
okkur til beinlínis hampar og þrífst á
þessum brestum okkar né heldur
hvernig hugarfar mitt og okkar
flestra felur í sér skurðgoðadýrkun
sem skapar vandann fremur en að
leysa hann“. Og hann segir: „Ekki er
gert ráð fyrir þeim möguleika að
skynsamt og siðferðilega ábyrgt fólk
geti með réttu neitað að láta heims-
eftirspurn eftir áli ákvarða hvað rétt
sé eða rangt og hvert beri að stefna.“
Og enn síðar: „Við getum haft að leið-
arljósi annars konar lögmál en hið
manngerða lögmál framboðs og eft-
irspurnar. Þetta lögmál gæti verið
kærleiksboðorðið sem minnst var á
áðan, sem hvetur menn til að elska
hinn sanna Guð, Guð sem ekki þykist
vera annar en hann er, sem ekki er
hjáguð er skrýðist búningi náunga-
kærleika og hreinleika en er í raun
manngerð eftirspurn.“
Þetta eru athyglisverðar hugleið-
ingar. Lítum nánar á þær.
Geymum aðeins að fjalla um sól-
undunina. Hitt finnst mér minna svo-
lítið á umræðuna um ræðarann og
árina. Tilhneiginguna til að kenna
öðru, eða öðrum, en sjálfum sér, um.
Það er ýjað að „vondu“ efnahagskerfi
sem „þrífist á brestum“, „feli í sér
skurðgoðadýrkun“ og „skapi vanda
fremur en að leysa hann“.
Þessi hugsanagangur held ég að
leiði í blindgötu. Efnahagskerfi eru
hvorki vond né góð. Menn geta verið
vondir eða góðir. Þessi kerfi hafa það
eitt hlutverk að miðla því sem menn
sækjast eftir, nema framboð á því sé
beinlínis bannað með lögum. Í lýð-
ræðisríkjum eru slík bönn því aðeins
sett að sæmilega almenn sátt sé um
að hvað skuli bannað, eins og t.d.
vændi. Að slíkum tilvikum frátöldum
er það framboð og eftirspurn sem
ræður gangi markaðskerfis. Erf-
iðleikarnir við að stýra slíku kerfi eft-
ir því hvað er gott eða illt eru þeir, að
flest er hægt að nota bæði til góðs og
ills, gagns og ógagns. Aðeins fólk get-
ur greint þarna á milli. Það gerir fólk
á markaðinum. Markaður án fólks er
óhugsandi. „Heimseftirspurn eftir
áli“ er ákveðin af fólki í milljónatali
um allan heim og hún er af þeim sök-
um „manngerð eftirspurn“ og getur
ekkert annað verið. Tölum ekki í lít-
ilsvirðingartón um slíka eftirspurn
þótt fólk sé ófullkomið. Að elska hinn
sanna Guð er að elska náungann,
ófullkomið fólk, eins og sjálfan sig. Sá
sem ekki gerir það elskar ekki Guð.
Þá er það sólundunin. Sólundun er
að eyða efnhagslegum verðmætum
án þess að fá meiri lífshamingju af
því. Eyðsla á efnahagslegum verð-
mætum með lágri nýtni, lítilli skil-
virkni. Slíkt hátterni stafar langoftast
af reynsluleysi vegna langvarandi fá-
tæktar.
Ég hef stundum bent á hliðstæð-
una milli slíkrar lágrar efnahags-
legrar skilvirkni og lágrar nýtni
varmaaflvéla. Nýtnin í gufuvél James
Watts, sem markaði upphaf iðnbylt-
ingarinnar, var í kringum 1%, þ.e. um
1% af orku kolanna sem hann lét
moka undir ketilinn skilaði sér út á ás
vélarinnar til að gera gagn. Það má
því með sanni segja að James Watt
hafi sólundað kolum. Algeng nýtni
varmaflsvéla nú á dögum er milli 30
og 40%. Besta nýtni er 55% og nær
líklega 60% áður en langt um líður. Á
hliðstæðan hátt getum við stórbætt
skilvirkni efnahagsins í sköpun lífs-
hamingju. Þá hverfur sólundunin.
Að sökkva íslenskum dölum til
að bræða heiminum ál
Höfundur segir: „Ég efast ekki eitt
andartak um að við höfum góðar og
gildar ástæður til að andæfa nytja-
hyggju Jakobs og leggjast gegn því
að íslenskum dölum sé sökkt í nafni
þess að systkini okkar annars staðar
á hnettinum geti fengið sitt daglega
ál.“
Eitt sinn sáu menn á Íslandi „eftir
sauðunum sem að komu af fjöllunum
og étnir voru í útlöndum“. Nú sjá
sumir eftir íslensku landi undir lón
rafstöðva til að bræða heiminum ál.
Skyldu Brasilíumenn ekki sjá eftir
náttúrulegu gróðurlendi undir kaffi-
ekrur til að rækta heiminum kaffi?
Meðal annars ofan í kaffiþyrsta Ís-
lendinga sem eru duglegir kaffineyt-
endur en slakir kaffiræktendur. Eða
Sádi-Arabar, Alsírbúar, Túnisbúar
og fleiri eftir ósnertum eyðimörkum
undir borpalla fyrir olíu- og gasbor-
anir og olíu- og gasleiðslur? Eða
Rússar eftir óbyggðum Síberíu undir
olíu- og gasvinnslusvæði og leiðslur?
Eða Reykvíkingar eftir grasi, kjarri
og melum í nágrenni sínu undir göt-
ur og húsgrunna og fjörum undir
bryggjur og akbrautir?
Söknuður nútímamannsins er á
margan hátt skiljanlegur. En hann
verður að meta í samhengi við það
sem vinnst með breytingunum. Ég
sé ekki betur en Reykvíkingar séu
sæmilega sáttir við þær breytingar
sem að ofan eru taldar og snerta þá.
Í langan tíma hafa umræður um
áhrif virkjana á náttúruna á Íslandi
verið nánast fáránlegar. Áhrifin á
náttúruna hafa verið skrumskæld og
ýkt út yfir öll skynsemismörk. Því
hefur verið haldið fram að naumast
yrði nokkur ósnert náttúra eftir á Ís-
landi ef við nýtum orkulindir okkar
eins og efnahagsleg rök eru til. Ég
hef haldið til haga ummælum úr
blaðaskrifum frá 10-12 síðustu árum
um þetta. Hér eru fáein dæmi:
„Hálendi Íslands. Uppistöðulón
eða þjóðgarður?“
„Þessu landi má ekki breyta í eitt
stórt uppistöðulón.“
„Er stóriðjan okkur virkilega svo
nauðsynleg að við þurfum að eyði-
leggja það sem eftir er af öræfum
landsins til að gera hana að veru-
leika?“
„En það sem líklega er erfiðast er
það sem hér fer á eftir: Það er að
sumir af þessum mönnum eru svo
grunnhyggnir að þeir halda að þjóðin
græði á að gera landið að einu alls-
herjar vatna- og virkjunarsvæði þar
sem síðustu uppúrstandandi hálend-
is- og öræfaperlurnar verða þaktar
rafmagnsflytjandi staurav-
íravirkjum.“
Hálendi Íslands eitt stórt uppi-
stöðulón! Það sem eftir er af öræfum
landsins eyðilagt! Landið gert að
einu allsherjar vatna- og virkj-
unarsvæði! Er unnt að kalla svona
endaleysur vitrænar umræður? Nei.
Er að furða að margir hafa brengl-
aðar hugmyndir um áhrif virkjana á
náttúru landsins þegar umræðan er
á slíkum fáránlegum nótum?
Orðalag höfundar um að „sökkva
íslenskum dölum“ dregur aug-
ljóslega dám af þessum „umræðum“.
Menning í blindgötu ósjálf-
bærra mengandi framleiðslu-
hátta og neyslu?
Þetta segir höfundur um menningu
jarðarbúa. Samt búa þrír fjórðu
þeirra við fátækt. „Maðurinn hefur
gert sig að þræli langana sinna,“ seg-
ir hann eins og það eigi við um alla
jarðarbúa. Að vísu nefnir hann líka
„neyð hinna fátæku í heiminum“ sem
hann segir tengjast „nær alfarið
óréttlátum leikreglum í alþjóða-
viðskiptum, misskiptingu auðs og
spillingu“. Var hagur fólks í núver-
andi fátækum löndum betri áður en
Vesturlönd, Japan og Ástralía náðu
sér efnahagslega á strik en versnuðu
svo vegna arðráns hinna síð-
arnefndu? Stafar aum staða þriggja
fjórðu jarðarbúa að langmestu leyti
af arðráni fjórða hlutans, Vest-
urlandabúa? Svona umræða leysir
engan vanda. Jarðarbúar í heild
sinni eru vissulega í vanda. Einmitt
þess vegna eru svona ummæli vel
menntaðs og hugsandi manns von-
brigði.
Vesturlandabúar eru vissulega
ekki syndlausir. Þeir hafa bæði arð-
rænt hverjir aðra og íbúa þriðja
heimsins svokallaða. En núverandi
efnahag sinn eiga þeir þó fyrst og
fremst að þakka tækniþróun sem átti
upphaf sitt hjá þeim. Núverandi aum
staða þriðja heimsins á að miklu
stærri hluta rót sína í tæknilegri
vanþróun en arðráni Vesturlanda-
búa. Þriðji heimurinn hefur ekki ein-
vörðungu sætt arðráni frá Vest-
urlandabúum heldur líka þegið frá
þeim tækniþekkingu sem íbúar hans
eru smám saman að tileinka sér og
að verða þátttakendur í að þróa
áfram. Það er sú þátttaka sem fram-
ar öllu öðru gefur þeim von um bjart-
ari framtíð.
Framtíð mannsins á jörðinni
Þótt íbúar þriðja heimsins séu farnir
að taka þátt í sókn alls mannkyns til
betra lífs er ekki þar með sagt að
greið braut sé framundan. Það er
nokkuð til í því sem sagt hefur verið
að til að allir jarðarbúar geti búið við
jafngóð kjör og Bandaríkjamenn og
Evrópubúar, við núverandi háttsemi
þeirra, þurfi fjóra hnetti á við jörð-
ina. Nú höfum við aðeins einn hnött
til umráða. Hvað gerum við þá?
Svarið er: Hættum að sólunda
efnahagslegum verðmætum! Bætum
skilvirkni efnahagsins í sköpun lífs-
hamingju. Förum betur með auð-
lindir jarðar. Fetum svipaða leið og
við gerðum frá gufuvél James Watts
til varmaflsvéla nútímans. Frá 1% til
30-40% nýtni. Takist okkur það dug-
ar einn hnöttur, móðir Jörð, auðveld-
lega til að allir íbúar hennar geti lifað
góðu og hamingjusömu lífi. Með
þessu reynum við líka minna á um-
hverfið.
Þetta verður ekki endilega einfalt.
Samt er engin ástæða til svartsýni.
Manninum er gefin meiri skynsemi
en nokkurri annarri lífveru. Hann
hefur sýnt sig að vera snjall þegar
hann leggur sig fram. Með mann-
legri snilli og Guðs hjálp mun það
takast.
Hnattræn skylda
að virkja á Íslandi?
Jón Kalmann spyr í grein sinni í Les-
bókinni 10. mars sl. „Er hnattræn
Já! Það er hnattræn skylda að vir
Er það hnattræn skylda Íslendinga
að virkja þá orku sem til þess þarf?
Ég svara spurningunni játandi, seg-
ir greinarhöfundur. Hann segir það
hnattræna skyldu okkar að nýta
þessar orkulindir. „Það er skylda
okkar að virkja á Íslandi sem mest
við megum í þágu alls mannkyns.
Það getum við gert án þess að
verða „náttúrulaus“.“