Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Eystein Björnsson
eystb@ismennt .is
!
Mér fannst dálítið skondið að
lesa eftirfarandi frétt í Morg-
unblaðinu fyrir skemmstu, með
fyrirsögninni:
Húðkrabbamein til bóta.
„Vísindamenn hafa komist að
þeirri óvæntu niðurstöðu að
húðkrabbamein geti verið til
marks um heilbrigði, að sögn Jyllands-
Posten. Húðkrabbamein er auð-
meðhöndlað og dregur sjúklinga sjaldan
til dauða. Raunar eru líkurnar á því að
sjúklingar lifi sjúkdóminn af ríflega
100%, þ. e. þeir sem hafa greinst með
húðkrabbamein lifa að meðaltali heldur
lengur en hinir.“
Svo mörg voru þau orð.
Sá hræðsluáróður sem rekinn hefur
verið í fjölmiðlum undanfarin ár um þá
gífurlegu hættu sem fylgi sólböðum hef-
ur örugglega ekki farið framhjá neinum.
Hver sérfræðingurinn eftir annan hefur
látið móðan mása um þessa ógn sem að
mannfólkinu steðji, einkum þó bleiknefj-
unum sem byggja norðurhjarann. Varla
sé óhætt fyrir þá að vera á ferli í sól-
skini hvað þá heldur að þeir beri hörund
sitt fyrir þessum lífshættulegu geislum.
Láti þeir samt sem áður ekki segjast
eru þeim lagðar lífsreglurnar svo um
munar. Það gildi líf og dauða að maka
sig allan í lútsterkum sólarvarn-
arkremum. Brýnt sé að gera það að
minnsta kosti tveimur tímum áður en
holdið er berað fyrir sólinni og svo á
klukkutíma fresti upp frá því. Alltaf er
endað á að taka fram að best sé auðvit-
að að láta þetta hættuspil eiga sig.
Halda sig einlægt fjarri sólu og eiga þar
af leiðandi góða daga.
Margir svokallaðir sérfræðingar vinna
að sjálfsögðu ómetanlegt starf, og þá
ekki hvað síst á sviði læknavísindanna.
En þessu ágæta fólki, körlum og konum,
er um leið viss hætta búin. Eftirsótt,
elskað og dáð, á svimandi háum launum,
fer það ef til vill að trúa að það geti
læknað alla kvilla með sérfræðikunnáttu
sinni. Ýmis gamanmál eru höfð uppi um
þessa tilhneigingu sérfræðinganna. Að
ýmsir þeirra séu snöggir að greina sjúk-
linginn inn á sitt svið og óðar í bili
komnir með hann í þá meðferð sem sér-
þekking þeirra segir til um. Að þeir
standi svo dyggan vörð um sína kenn-
ingu að þeir verði súrir ef ekki er farið
að þeirra ráðum og fussi jafnvel og sveii
ef sjúklingurinn fær bót meina sinna
eftir öðrum aðferðum en þeir mæltu fyr-
ir um. Þetta viðhorf er stundum kallað
rörsýn og ef henni er beitt í greiningu
og meðhöndlun er hætt við að menn
þurfi stundum að grípa til frasans: Að-
gerðin heppnaðist fullkomlega en sjúk-
lingurinn dó.
En svo ég snúi mér aftur að hinni
merkilegu niðurstöðu vísindamanna að
húðkrabbamein geti verið til marks um
heilbrigði þá blasir hættan við sem
steðjar að blessuðum sérfræðingunum.
Nefnilega að þeir viti alltaf meira og
meira um minna og minna. Verði svo
uppteknir af sínu sviði að þeir gleymi að
líta á heildarmyndina. Í tilviki sóldýrk-
endanna læðist strax að manni sá grun-
ur að sérfræðingarnir hafi ekki séð til
sólar í þessu efni. Eða öllu heldur ekki
séð sólina fyrir húðinni. Og gleymt því í
svipinn að blessuð sólin elskar allt/allt
með kossi vekur.
Að vera úti við, draga djúpt andann
og njóta sólargeislanna hefur löngum
verið talin mesta heilsubót. Birta, súr-
efni, vítamín. Bjartsýni, lífsgleði, vellíð-
an. Þakklæti til lífgjafans. Allir þessir
þættir stuðla að heilbrigði og auka lífs-
gæði. Lífsgleði njóttu. Lífið er ekki
sjúkdómur sem á að taka meðal við. Og
þótt vissulega sé hægt að fara offari í
sólböðum þá er það ábyrgðarhluti að
koma óorði á blessaða sólina fyrir þær
sakir.
Hin
hliðin
Eftir Guðna Elísson
gudnieli@hi.is
Í
upphafi skapaði Guð himin og jörð“
segir í yfirlýstu vísindariti. Sköp-
unarsaga Biblíunnar lýsir af smá-
smugulegri nákvæmni tilurð him-
inhvolfsins og jarðarinnar, því
hvernig festingin skilur í sundur
vötnin yfir okkur og þau sem undir henni eru,
en þeim hið neðra safnaði Drottinn saman og
gerði úr höfin. Við það reis þurrlendið og jarð-
sögulegur tími hófst með gróðurmyndun. Vera
má að það komi einhverjum á óvart að rekja
megi sögu gróðurfars á jörðinni sólarhring
lengra aftur en ljósgjafanna tveggja, sólar og
tungls, en þau hengdi drottinn á fjórða degi á
festinguna. Degi síðar skapaði Drottinn fuglana
og fiskana, og á hinum sjötta fénaðinn, hvern
eftir sinni tegund, og síðast manninn sem hann
setti ofar öðru. „Verið frjósöm“ sagði Drottinn
við karlinn og konuna, „margfaldist og uppfyllið
jörðina, og gjörið ykkur hana undirgefna, og
drottnið yfir fiskum sjávarins og yfir fuglum
loftsins og yfir öllum dýrum, sem hrærast á
jörðunni!“ (1M: 28). Og allt gekk eftir sem hann
sagði.
Hvað veit sá vísindamaður sem kennir sig við
Gamlatestamentissannleik? Hann veit að jörðin
er fjórum dögum eldri en sólin og að fyrstu
plönturnar hófu sig til himins í algjöru myrkri.
Hann veit að maðurinn er tveimur dögum yngri
en himintunglin, og að hátt yfir okkur, handan
festingarinnar eru þau vötn sem flóðgáttir him-
insins halda í skefjum, þó að stundum rigni
hressilega. Hann veit þannig séð alveg nóg, en
rétt eins og aðrir unnendur sannleikans hefur
honum þó lengi þótt sköpunarsagan láta ýmsum
veigamiklum spurningum ósvarað.
Þó að sjálfri sköpuninni sé fylgt eftir dag frá
degi í fyrstu Mósebók kemur til dæmis hvergi
fram hvenær sköpun heimsins átti sér stað og
hafa ýmsir rannsakendur hennar birt skýrslur
um efnið, þar sem þeir leitast við að rekja sig
aftur á bak frá þekktum dagsetningum í Gamla
testamentinu, eins og byggingu musterisins.
Tvær sjálfstæðar rannsóknir gefa til kynna að
heimurinn hafi verið skapaður um 4000 fyrir
Krist. Sá fyrsti sem taldi sig færa fyrir því
óyggjandi rök var dr. John Lightfoot sem birti
niðurstöður sínar í tveimur skýrslum á árunum
1642 og 1644, en frægari er eflaust írski erki-
biskupinn James Ussher sem gaf út ritgerð um
efnið sex árum síðar, eða 1650. Í ritum dr. Lig-
htfoot kemur fram sú vel rökstudda skoðun að
maðurinn hafi verið skapaður klukkan níu á
sunnudagsmorgni 12. september 3928 fyrir
Krist, en af því má ráða (samkvæmt mínum eig-
in útreikningum) að himintunglin hafi verið
sköpuð á föstudegi 10. september og jörðin
þriðjudaginn á undan. Það flækir málin nokkuð
að Ussher erkibiskup segir sköpunina hafa átt
sér stað 76 árum fyrr, eða 23. október árið 4004
fyrir Krist, sem þýðir að 6011 ára afmæli jarð-
arinnar var síðasta þriðjudag. Engum hefur
tekist að tímasetja sköpun jarðarinnar með jafn
nákvæmum hætti og dr. Lightfoot og Ussher
erkibiskup gerðu fyrir rúmum 360 árum.
Aðeins einn sýnilegur galli er á vísindalegu
gildi sköpunarsögunnar í fyrstu Mósebók.
Sköpunarsaga Biblíunnar er líklega „afsann-
aðasta“ kenning sem sett hefur verið fram í
sögu mannsandans. Jörðin var hvorki sköpuð
árið 3928 eða 4004 fyrir Krist, eða einhvers
staðar þar á milli. Himinninn er ekki festing og
sólin er ekki degi yngri en gróður jarðar. Síðast
en ekki síst bendir fátt til þess að karlynjan Eva
hafi verið sköpuð úr rifi Adams eins og þessi
annars ágæta frásögn vill vera láta. Sé aðferð-
um raunvísindanna beitt á sköpunarsögu Bibl-
íunnar er hætt við að menn missi sjónar á þess-
ari skemmtilegu tilraun til að skýra upphaf
mannsins með ímyndunaraflið eitt að vopni.
Því vaknar sú spurning hvaða greiði kristn-
um mönnum sé gerður með því að kenna Biblíu-
fræðin við raunvísindi. Verður sá sannleikur
sem menn vilja draga af lestri þessa forvitnilega
rits ekki að liggja handan vísindanna, tilheyra
táknrænum veruleika goðsögunnar, eða búa í
þeim sannindum sem trúin getur fært fólki?
Verðum við ekki að skilja sannleika Biblíunnar
frá þeim sannindum sem raunvísindin færa okk-
ur eigi hún að halda velli sem merkingarbært
rit í nútímasamfélögum? Biblían er einfaldlega
ónothæf sem undirstaða í raunvísindum.
Þrátt fyrir þetta hafa ýmsir þrýstihópar
kristinna bókstafstrúarmanna krafist þess að
sköpunarsögu Biblíunnar sé gert jafnhátt undir
höfði og þróunarkenningunni í vísinda-
námskeiðum. Svipuð hreyfing hefur risið upp
meðal múslima og nú er svo komið að þing Evr-
ópuráðsins taldi nauðsynlegt að samþykkja
ályktun þar sem aðildarríki ráðsins „eru ein-
dregið hvött til þess að sköpunarkenning Bibl-
íunnar verði ekki kennd í skólum nema með
skýrum fyrirvara um að vísindalegt gildi henn-
ar sé nákvæmlega ekkert“ (Fréttablaðið, 17.
október 2007). Skýrsla ráðsins frá 17. sept-
ember (skjal #11375) er upp á nítján síður og
þar er rakið í löngu máli hvernig trúarlegir
þrýstihópar hafa í sívaxandi mæli beint augum
að menntastofnunum og reynt að gera trúar-
skoðanir sínar að viðurkenndu námsefni í raun-
vísindanámskeiðum, jafnvel þótt ekkert í hug-
myndum þeirra standist vísindalegar prófanir
eða sé yfirhöfuð prófanlegt. Það er kannski eng-
in furða þótt Evrópuráðið telji vá fyrir dyrum. Í
Bandaríkjunum hafa hugmyndir sem þessar
náð fótfestu eins og kemur fram í skýrslu ráðs-
ins, en í könnun frá 2005 voru 65% Bandaríkja-
manna á þeirri skoðun að auk þróunarkenning-
arinnar ætti að kenna „kenninguna um vitræna
hönnun“ sem er tilraun til þess að laga nýjar
uppgötvanir í raunvísindum að sköpunarkenn-
ingum Biblíunnar. Forseti Bandaríkjanna,
George W. Bush, er einn þeirra sem eru á þess-
ari skoðun. Jafnframt töldu 38% aðspurðra að
ekki ætti að kenna þróunarkenninguna í rík-
isreknum skólum. Í skýrslunni kemur einnig
fram að í 20 af 50 ríkjum Bandaríkjanna séu lík-
ur á að breyta þurfi námsskrá í samræmi við
þessar kröfur.
Í skýrslu Evrópuráðsins er fjallað um fjölda-
margar tilraunir til þess að festa trúarkreddur
sem þessar í sessi í vísindanámi, jafnt í Tyrk-
landi, Frakklandi, Sviss, Belgíu, Rússlandi,
Grikklandi, Hollandi, Svíþjóð, Þýskalandi og á
Spáni. Í Póllandi, Ítalíu, Serbíu og Hollandi hafa
valdamiklir stjórnmálamenn (í þremur tilvikum
menntamálaráðherrar) reynt að koma í veg fyr-
ir að þróunarkenningin væri kennd í skólum,
nema þá ásamt sköpunarkenningum, eða kenn-
ingunni um vitræna hönnun. Niðurstaða skýrsl-
unnar er sú að baráttan gegn þróunarkenning-
unni stofni menntun barna í hættu, jafnframt
því sem hún gæti ógnað rannsóknum í lækn-
isfræði og á öðrum sviðum vísinda.
Í fyrstu grein sjálfrar ályktunarinnar frá 4.
október (#1580) er lögð rík áhersla á að mark-
miðið með henni sé ekki að ráðast gegn trúarlífi
fólks eða grafa undan trúfrelsi, heldur sé henni
fremur ætlað að vara við þeirri tilhneigingu að
setja trú fram í nafni vísinda. Ályktun ráðsins
var samþykkt með 48 atkvæðum gegn 25, en
þrír þingmenn sátu hjá. Guðfinna S. Bjarna-
dóttir, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykja-
vík og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var einn
þeirra þingmanna sem greiddu atkvæði gegn
ályktuninni og skýrði þá ákvörðun sem svo að
hún sæi það ekki „af skýrslunni hve útbreidd
sköpunarhyggja [væri] í ríkjum Evrópuráðs-
ins“. Hún bætti þó við: „ef sköpunarhyggja hef-
ur í raun vaxandi áhrif í Evrópu, og ef mann-
réttindum stafar raunveruleg ógn af henni, þá
eiga varnaðarorðin sem sett eru fram í skýrsl-
unni rétt á sér“ (Fréttablaðið, 17. október).
Nú ættu þau varnaðarorð að tveir af hverjum
þremur Bandaríkjamönnum séu á þeirri skoðun
að kenna eigi „kenninguna um vitræna hönnun“
í skólum að vera rík ástæða til þess að gamli há-
skólarektorinn styddi mikilsverða ályktun Evr-
ópuráðsins um aðgreiningu trúar og vísinda.
Guðfinna hefði einnig getað haft í huga að
skýrslan nefnir hvorki meira né minna en þrjá
evrópska menntamálaráðherra sem á árunum
2004 og 2005 drógu þróunarkenninguna í efa á
trúarlegum forsendum. Guðfinna kaus engu að
síður að greiða atkvæði gegn tillögunni.
Þessi merkilega ákvörðun Guðfinnu hefði lík-
lega farið framhjá flestum hér á landi hefði líf-
fræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands
ekki sent frá sér harðorða ályktun sem sam-
þykkt var einróma á fundi hennar 12. október
síðastliðinn. Þar segir: „Líffræðiskor raunvís-
indadeildar Háskóla Íslands harmar þá afstöðu
fulltrúa Íslands í Evrópuráðinu, Guðfinnu
Bjarnadóttur, að greiða atkvæði gegn ályktun
ráðsins sem varar við því að sköpunarkenningin
verði kennd sem vísindagrein í hinu opinbera
menntakerfi Evrópulanda. Líffræðiskor beinir
þeim tilmælum til ríkisstjórnar Íslands að
fulltrúi Íslands í Evrópuráðinu verði kallaður
heim og að skipt verði um fulltrúa í ráðinu.“
Kennarar líffræðiskorar benda síðan á að þró-
unarkenningin sé „yfirgripsmesta útskýring
vísinda á fyrirbærum lífsins“, hún hafi staðist
strangar prófanir og sé „grundvallarkenning
líffræði, raunvísinda og læknisfræði“, en stór
hluti þekkingar og „lykilframfarir í líffræði og
læknisfræði“ byggist á kenningunni. Sköp-
unarkenningin og kenningin um vitræna hönn-
un eigi aftur á móti „ekkert erindi í umræðu og
kennslu í vísindum.“
Guðfinna Bjarnadóttir var um árabil rektor í
íslenskri háskólastofnun. Það gerir ábyrgð
hennar meiri og þá ákvörðun hennar að greiða
atkvæði gegn ályktun Evrópuráðsins nær
óskiljanlega.
Vísindin efla alla trú
Guðfinna Bjarnadóttir Trúir hún að sköpunarkenning Biblíunnar hafi vísindalegt gildi?
FJÖLMIÐLAR
» Verðum við ekki að skilja
sannleika Biblíunnar frá
þeim sannindum sem raunvís-
indin færa okkur eigi hún að
halda velli sem merkingarbært
rit í nútímasamfélögum?
Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýs-
ingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins