Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.2007, Qupperneq 1
Laugardagur 3. 11. 2007
81. árg.
lesbók
SAFNAR LEYNDARMÁLUM
HREINN FRIÐFINNSSON HELDUR SÝNINGU Í HAFNARHÚSINU
OG SAFNAR PERSÓNULEGUM LEYNDARMÁLUM » 3
Fjöll eru til margs nýtileg, þau eru svo yfirgnæfandi » 11
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Kristján Davíðsson „Hann er okkar abstrakt Kjarval. Þeir eru báðir feikilega miklir teiknarar og báðir miklir einfarar sem eiga sér engar beinar hliðstæður.“ » 8
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Það var algerlega ótíma-bært þetta tal um vondastöðu ljóðsins í vor. Þaðvar reyndar skrýtið að
heyra það tal í ljósi mikillar og
góðrar útgáfu ljóðabóka á síðasta
ári en nú þegar haustútgáfan að
þessu sinni liggur nokkurn veginn
fyrir þá má öllum vera ljóst að ljóð-
ið lifir enn mjög góðu lífi.
Ég ætla að nefna nokkrar ljóða-
bækur sem eru að koma út þessa
dagana og allar fá mann til þess að
trúa því að ljóðið eigi erindi við
samtímann.
Þegar hefur verið vakin athygli á
Blótgælum Kristínar Svövu Tóm-
asdóttur hér á þessum stað. Sú bók
er eins og opið sár í samtímanum
og hið sama má segja um bók Sig-
urbjargar Þrastardóttur, Blysfarir,
sem væntanleg er á næstu dögum.
Um er að ræða prósaljóð um ást, í
raun ljóðabálk sem segir sögu af
sambandi. Þeir sem lesa þessar
tvær bækur og segja svo að ljóðið
sé dautt eru sálarlausir!
Gerður Kristný sendir frá sér
sína þriðju ljóðabók, Höggstað.
Gerður er – ekki ólíkt Sigurbjörgu
– með hefðina á sínu valdi. Fyrsta
ljóð bókarinnar heitir Ættjarð-
arljóð og endar svona: „Landið
mitt/útbreidd banasæng/nafn mitt
saumað/í hélað ver“. Nafn bók-
arinnar minnir óneitanlega á nafn
skáldsögunnar Hjartastaður eftir
Steinunni Sigurðardóttur og í titill-
jóðinu kemur það orð reyndar fyr-
ir. Steinunn sendir einnig frá sér
nýja ljóðabók um þessar mundir,
Ástarljóð af landi. Efnislegir þræð-
ir liggja á milli bóka Gerðar og
Steinunnar því í báðum er ort um
landið og þjóðina.
Landið er líka umfjöllunarefnið í
fallegri ljóðabók Sjón, Söngur
steinasafnarans, þar sem náttúran
og menningin ummyndast í leik-
andi tungumáli skáldsins. Það sem
við lærum loksins í sextíuogáttaára
bekk er meðal annars þetta, segir
Sjón: „þegar litirnir hverfa úr þjóð-
fánanum/tekur jörðin að blakta“.
Hægt væri að nefna fleiri ljóða-
bækur sem vekja athygli í flóðinu.
Til dæmis verðlaunabók Ara Jó-
hannessonar, Öskudagar, og fyrsta
bók Guðrúnar Hannesdóttur,
Fléttur, sem hlaut Ljóðstaf Jóns úr
Vör á árinu. Þórarinn Eldjárn
sendir svo frá sér nýja ljóðabók,
Fjöllin verða að duga, sem hann
segir frá í viðtali á síðu 11 í Lesbók
í dag.
Sálarlausir segja ljóðið dautt
MENNINGARVITINN
MEISTARAVERK!
ANTONY
B E E V O R
STALÍNGRAD
Orrustan um Stalíngrad kostaði
meira en milljón mannslíf.
Hér lýsir Antony Beevor þessari
grimmu orrustu og byggir hann
frásögn sína að verulegu leyti á
áður óbirtum gögnum í söfnum
í Þýskalandi og Rússlandi.
Orrustan um Stalíngrad var
ekki einungis sálfræðilegur
vendipunktur síðari heims-
styrjaldarinnar – hún breytti
einnig nútímahernaði.
holar@simnet.is
M
bl
92
72
57