Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MANNINUM ,sem lenti í snjóflóð-
inu í Hlíðarfjalli í fyrradag, er enn
haldið sofandi. Hann er þungt hald-
inn en ástandið sagt stöðugt.
Í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir einum vélsleðamannanna að
þrátt fyrir að hafa ekið á þessu
svæði í 20 ár hefðu þeir aldrei orðið
varir við snjóflóð.
Björgunarsveitarmenn sem
Morgunblaðið ræddi við í gær
sögðu hins vegar allar Hrapps-
staðaskálirnar þekkt snjóflóða-
svæði og þar kæmi flóð á hverju
ári. Einn þeirra lenti í snjóflóði fyr-
ir um þremur áratugum í Manns-
hrygg, og annar 1999 þegar hópur
manna var þar á æfingu.
Manninum
enn haldið
sofandi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
VALTÝR Sigurðsson, forstjóri
Fangelsismálastofnunar, telur
ekki að mistök hafi verið gerð
með því að gera Ágústi Magn-
ússyni, dæmdum kynferðis-
brotamanni, kleift að ljúka af-
plánun á áfangaheimilinu
Vernd. Ágúst hafi sýnt mikla
iðrun og samstarfsvilja meðan
hann afplánaði á Litla-Hrauni
og sálfræðingar stofnunarinn-
ar hafi ekki talið að hætta stafaði af honum. „Hann
virðist hafa kunnað svör við flestum þeim spurn-
ingum sem beint var til hans,“ sagði Valtýr. Nú
hefði komið í ljós að þetta var rangt mat.
Í kjölfar tilkynningar frá fréttaskýringaþætt-
inum Kompási á miðvikudag var leitað í tveimur
tölvum Ágústs sem hann hafði á Vernd. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins fann lögregla
barnaklám í tölvunum og var það ástæðan fyrir því
að hann var aftur fluttur á Litla-Hraun.
Ágúst var í mars 2004 dæmdur í fimm ára fang-
elsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn sex drengjum og
var það einn þyngsti dómur sem kveðinn hafði ver-
ið upp í kynferðisbrotamáli.
Á sunnudag sýndi Kompás frá því þegar Ágúst
hugðist ná fundum 13 ára stúlku sem hann taldi að
hann gæti haft kynmök við. Stúlkan var tálbeita
sem hann hafði sett sig í samband við á spjallrás á
Netinu. Yfir 100 karlmenn höfðu samband við
stúlkuna en nánar verður greint frá því síðar, að
því er fram kom í þættinum.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Valtýr að þar
sem Ágúst hefði hegðað sér vel á Litla-Hrauni
hefði hann átt rétt á að ljúka afplánun á Vernd og
síðan sækja um reynslulausn. Sálfræðingar Fang-
elsismálastofnunar hefðu ekki séð neitt þessu til
fyrirstöðu og bætti hann við að Ágúst hefði sam-
tals fengið yfir 50 meðferðarviðtöl. Fyrr eða síðar
hefði Ágúst, líkt og aðrir fangar, fengið frelsi og þá
hlytu menn að spyrja sig hvort væri skárra, að
sleppa honum úr öryggisfangelsi beint út á götuna
eða gefa honum kost á því að aðlagast samfélag-
inu, undir eftirliti, á áfangaheimilinu Vernd og síð-
an undir eftirliti í reynslulausn. Kvaðst Valtýr
ekki í nokkrum vafa um að Vernd væri betri kost-
ur enda hefði áfangaheimilið reynst afar vel í
gegnum tíðina.
Tilkynning hefði þjónað litlum tilgangi
Aðspurður hvort rétt hefði verið að tilkynna
lögreglu að dæmdur kynferðisbrotamaður væri
hjá Vernd sagðist Valtýr ekki sjá ástæðu til þess á
meðan ekkert kerfi væri til staðar hjá lögreglu til
að taka við slíkum tilkynningum. Hann sagði sjálf-
sagt mál að taka upp viðræður við lögreglu um
hvort þessu þyrfti að breyta. „Þetta er alvarlegt
mál og við munum fara yfir það gaumgæfilega.
Það er ekki síður alvarlegt að yfir 100 manns svör-
uðu tálbeitunum. Þetta er bersýnilega ekki bara
vandamál fangelsisyfirvalda,“ sagði Valtýr.
Gerðu ekki mistök með
að leyfa afplánun á Vernd
„Virðist hafa kunnað svör við flestum þeim spurningum sem beint var til hans“
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu mun taka
skýrslu af Ágústi Magnússyni vegna ummæla
hans í Kompási um að hann hefði brotið gegn
5–8 öðrum börnum en þeim sem hann var dæmd-
ur fyrir, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar
yfirlögregluþjóns. Aðspurður sagði hann að lög-
regla hefði ekki heimild til að fylgjast sér-
staklega með föngum á Vernd eða þekktum
brotamönnum sem hefðu lokið afplánun.
Lögregla mun rannsaka
Valtýr Sigurðsson
„EITT af því sem einkennir hvers-
dagslífið hjá okkur í Stígamótum er
vanmáttarkennd vegna þess hversu
erfiðlega gengur
fyrir samfélagið
að taka á þessum
málum. Kompás-
menn hafa farið
leið sem almennt
er ekki siðferði-
lega réttlætan-
leg, að setja upp
tálbeitur, en í
þessum málum
finnst manni að
þarna sé fundin leið til aðhalds í af-
skaplega hættulegum heimi. Ég
verð að segja að ég er mjög ánægð
með það,“ sagði Guðrún Jónsdóttir,
talskona Stígamóta, um fréttaskýr-
ingaþáttinn Kompás sem sýndur
var á Stöð tvö á sunnudagskvöld.
Lögreglan mætti íhuga vandlega
hvort hún gæti notað svipaðar að-
ferðir í þessum brotaflokki.
Veitir brotamönnum aðhald
Guðrún sagði að fréttamenn
Kompáss hefðu fundið leið sem virk-
aði. „Það er eins og það sé innbyggt
í réttarkerfið okkar, í fjölmiðla og
hvaða samfélagsstofnun sem er, að
ná ekki utan um þessi mál. Og
þarna er að minnsta kosti ein leið
fundin til að veita kynferðisbrota-
mönnum aðhald,“ sagði Guðrún. Al-
mennt væri ekki réttlætanlegt að
villa á sér heimildir en önnur ráð
dygðu ekki gegn þessu glæpsam-
lega athæfi.
Aðspurð hvort hún teldi þörf á að
breyta því hvernig fylgst er með
kynferðisbrotamönnum eftir að þeir
losna úr fangelsi sagðist Guðrún
ekki vita um neina meðferð sem
væri treystandi. „Þannig að ég hef
engin góð svör um hvað ætti að gera
við þessa menn ef þeir nást. Ein-
hvers konar eftirlit þyrfti að vera
með þeim en hafi þeir brotavilja,
eins og í þessu tilviki, þá finna þeir
sér leiðir.“ Í því tilviki sem fjallað
var um í þætti Kompáss dygði ekk-
ert annað en að loka manninn inni.
Guðrún sagði að fyrirbyggjandi
aðgerðir væru bestar, að ala drengi
þannig upp að þeir yrðu ekki kyn-
ferðisbrotamenn og beina sjónum
karla að eigin ábyrgð.
Að jafnaði leita um 250 einstak-
lingar á ári til Stígamóta vegna kyn-
ferðisbrota, 90% þeirra eru konur,
10% karlar.
Lögregla íhugi að nota tálbeitur
gegn kynferðisbrotamönnum
Morgunblaðið/Ómar
Innilokaður Talskona Stígamóta segir að ekki dugi annað á manninn sem
Kompás fjallaði um, Ágúst Magnússon, en að hafa hann bak við lás og slá.
Guðrún Jónsdóttir
Í HNOTSKURN
»Talskona Stígamóta lýsiránægju með notkun Kompáss
á tálbeitum og vill að lögregla
íhugi að beita sömu aðferðum í
þessum brotaflokki.
»U.þ.b. önnur hver kona semleitar til Stígamóta varð fyrir
kynferðisbroti þegar hún var
ung stúlka. Þriðjungur kemur
þangað vegna nauðgana.
»Brotið var gegn langflestumkarlanna þegar þeir voru á
barnsaldri.
Á slysstað Hlúð að manninum meðan þyrlan sveimar yfir en hún lenti neðar. Hægra megin eru sleðar sem snjóflóðið lenti á rétt áður en það stöðvaðist.
KONA hefur lagt fram kæru á hend-
ur manni fyrir tilraun til nauðgunar í
heimahúsi í Þorlákshöfn á sunnu-
dagsmorgun en maðurinn hefur á
hinn bóginn lagt fram kæru fyrir lík-
amsárás. Lögreglan á Selfossi rann-
sakar málið.
Að sögn konunnar komu vinir
hennar að manninum hálfnöktum
uppi í rúmi hennar þar sem hún svaf.
Til átaka kom á milli þeirra sem lykt-
aði með því að manninum var hent út
úr húsinu, á nærfötunum einum
klæða, og þar héldu átökin áfram.
Maðurinn hafði allt aðra sögu að
segja lögreglu þegar hann lagði
sjálfur fram kæru. Sagði hann svo
frá að ráðist hefði verið á hann þar
sem hann hafði lagst til svefns í húsi í
Þorlákshöfn þar sem hann var gest-
komandi. Honum hefði síðan verið
hent út úr húsinu á nærfötunum og
þar verið gengið í skrokk á honum.
Árásarmennirnir hefðu skilið sig eft-
ir fyrir utan en hann komist í nær-
liggjandi hús og leitað aðstoðar.
Honum var síðan komið undir lækn-
ishendur.
Laminn og
kærður
FULLTRÚAR Samfylkingar,
Vinstri grænna og Frjálslynda
flokksins í umhverfisráði Reykja-
víkur mótmæla hækkun á far-
gjöldum Strætó bs. sem fulltrúarnir
segja vera 6,7%–33%.
Í tilkynningu frá flokkunum seg-
ir, að þessi hækkun gangi í berhögg
við stefnu Reykjavíkurborgar um
að efla almenningssamgöngur í því
markmiði að bæta umhverfi, heilsu
og borgarbrag. Þessar hækkanir
bitni á þeim sem síst skyldi, fólki
sem velji umhverfisvænan sam-
göngumáta.
„Stjórn Strætó bs. skýlir sér á
bak við það að lækka staðgreiðslu-
gjald unglinga 12–18 ára niður í
100 kr. sem er afar jákvæð aðgerð,
en það er þó gert með því að hækka
staðgreiðslugjald barna yngri en 12
ára um 33% eða úr 75 kr. í 100 kr.
Engin rök fylgja hækkununum
enda eru þær a.m.k. tvöfalt meiri
en verðbólguspá fyrir árið 2007. Á
sama tíma voru framlög Reykjavík-
ur til Strætó lækkuð við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar sem lýsir metn-
aðarleysi gagnvart þessum mik-
ilvæga málaflokki,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Mótmæla far-
gjaldahækkun