Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„MÁLIÐ er ekki búið. Þetta færist inn í kosningar,“ segir
Mörður Árnason, framsögumaður minnihlutans varðandi
RÚV-frumvarpið, og bætir við að flokkarnir þrír í stjórn-
arandstöðu hafi skuldbundið sig til að skoða málið aftur að
loknum kosningum. Mörður segir tvennt hafa vakað fyrir
stjórnarandstöðunni. Annars vegar að sýna andstöðu við
frumvarpið og skýra ástæður fyrir henni og hins vegar að
skapa svigrúm fyrir sættir. „Allt frá því í mennta-
málanefnd og alveg fram á helgi vorum við að leita hóf-
anna um það hvort stjórnarflokkarnir væru tilbúnir til
sátta. Það voru þeir ekki og í veginum stóð einkum einn
maður og það var Þorgerður K. Gunnarsdóttir, sem hafn-
aði öllum slíkum boðum. Þegar þetta var ljóst var engin ástæða til að draga
þessa umræðu á langinn,“ segir Mörður og bætir við að stjórnarandstaðan
hafi verið búin að ræða málefni Ríkisútvarpsins og að meginefnið í tillögum
sem hún birti í yfirlýsingu í gær hafi verið tilbúið skömmu eftir áramót.
Vildu skýra andstöðu sína og
skapa svigrúm fyrir sættir
Mörður
Árnason
Mörður Árnason segir málið ekki búið
„ÞETTA kom óvænt upp en ég held að öllum hafi verið
ljóst að stjórnarandstaðan fann ekki taktinn, hvorki í
þessu máli né hjá þjóðinni,“ segir Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra um lok umræðunnar um
Ríkisútvarpsfrumvarpið. „Mér finnst auðvitað skynsemi
hjá þeim að hætta en um leið er þetta ákveðin uppgjöf,“
segir Þorgerður og bætir við að þetta sé fyrst og síðast
sigur fyrir Ríkisútvarpið. „Ég er sannfærð um það að við
eigum eftir að sjá enn öflugra Ríkisútvarp á sviði menn-
ingarmála og sérstaklega innlendrar dagskrárgerðar og
að þetta eigi eftir að stuðla að betri nýtingu á fjármunum
skattborgaranna.“ Þorgerður segir stjórnarandstöðuna
ekki hafa talað einni röddu í þessu máli. „Þau geta ekki komið sér saman um í
hvaða átt frumvarpið snýr, hvort það sé ríkisvæðing eða einkavæðing. Þau
geta heldur ekki komið sér saman um hvort Ríkisútvarpið eigi að vera sjálfs-
eignarstofnun eða ríkisstofnun.“
Skynsamlegt að hætta
en um leið ákveðin uppgjöf
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín segir frumvarpið sigur fyrir RÚV
MAGNÚS ÞÓR Hafsteinsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, gerði
athugasemd við gjaldskrárhækkun
Herjólfs á Alþingi í gær og hafði það
eftir fréttablaðinu Fréttum í Vest-
mannaeyjum að verðhækkun myndi
nema að meðaltali 12%. Magnús
sagði óskiljanlegt að vandamálum
Vestmannaeyja væri ekki sýndur
meiri skilningur þar sem fólki hefði
fækkað og atvinnulífið berðist í
bökkum. Magnús sagði jafnframt að
ætla mætti að fjármunir hefðu spar-
ast við útboð á rekstri Herjólfs og
spurði hvort stjórnvöld hefðu ekki
nýtt mismuninn í að koma í veg fyrir
verðhækkanir, enda Herljólfur þjóð-
vegur milli lands og eyja.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði þjónustu við Eyjar hafa
stóraukist og að m.a. hefði verið
veittur styrkur til að tryggja flug
milli Vestmannaeyja og Reykjavík-
ur. Vegagerðin
hefði síðan gert
samning við Eim-
skipafélagið um
rekstur Herjólfs
og að allt hefði
verið unnið í góðu
samstarfi við
heimamenn.
Hagsbótin af út-
boðinu hefði verið
nýtt til að fjölga
ferðum. „Ég hef ekki fengið á mitt
borð neinar athugasemdir við fram-
kvæmd þess samnings. Aðalatriðið í
mínum huga er að við höfum bætt og
stóraukið þjónustuna við Vest-
mannaeyjar með þessum samgöngu-
bótum en að sjálfsögðu væri æski-
legt að ekki þyrfti að koma til
hækkana. Samningurinn er þó stað-
reynd og eftir honum verður að
fara,“ sagði Sturla Böðvarsson.
Ósáttur við hækkun
gjaldskrár Herjólfs
Magnús Þór
Hafsteinsson
nefnd hefði lokið
störfum. „Mér er
kunnugt um að
hún hafi náð
áfanga með sam-
eiginlegri niður-
stöðu um nokkur
atriði. Mér er ekki
kunnugt um ann-
að en að hún starfi
áfram að öðrum
viðfangsefnum
sínum, m.a. þessu ákvæði. Starfið
heldur áfram og ég treysti því að því
verði ráðið til lykta.“ Jóhann Ársæls-
son sagðist fagna því að störfum
stjórnarskrárnefndar væri ekki lokið
en að skilaboðin hefðu virst önnur.
„Menn skulu muna eftir því að stjórn-
arsáttmálinn gildir einungis um þetta
kjörtímabil og loforðið um að þetta
komi fram hlýtur því að þurfa að
koma fram á þessu vori.“
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
sveik loforð sitt við Framsóknarflokk-
inn með því að leggjast gegn því í
stjórnarskrárnefnd að sjávarauðlind-
ir yrðu skilgreindar sem þjóðareign í
stjórnarskrá. Þetta er mat Jóhanns
Ársælssonar, þingmanns Samfylk-
ingarinnar, en hann spurði formann
Framsóknarflokksins að því á Alþingi
í gær hvort Framsókn gæti setið í rík-
isstjórn með flokki sem hefði hunsað
stjórnarsáttmálann. Jóhann sagði eitt
af kosningaloforðum Framsóknar
hafa verið að sjávarauðlindir yrðu
skilgreindar sem þjóðareign og að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði fallist á
það. Í stjórnarskrárnefnd hefðu allir
flokkar verið tilbúnir að stíga þetta
skref, að undanskildum Sjálfstæðis-
flokknum.
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, sagði að sér væri
ekki kunnugt um að stjórnarskrár-
Sveik loforð sitt við
Framsóknarflokkinn
Jóhann
Ársælsson
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÞRIÐJU umræðu um Ríkisútvarpið
ohf. lauk á Alþingi laust fyrir há-
degi í gær með því að stjórnarand-
staðan gaf út sameiginlega yfirlýs-
ingu um framgang málsins og
stefnu sína í málefnum RÚV. At-
kvæðagreiðsla um frumvarpið fer
fram í dag.
Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar og framsögu-
maður nefndarálits minnihlutans í
menntamálanefnd, las yfirlýsinguna
í ræðustóli og í framhaldinu létu all-
ir stjórnarandstöðuþingmenn fjar-
lægja nöfn sín af mælendaskrá.
Þriðja umræða um Ríkisútvarpið
ohf. hafði þá þegar tekið rúmar 56
klukkustundir og 46 ræður voru
fluttar.
Flokkarnir þrír í stjórnarand-
stöðu, þ.e. Samfylking, Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð og
Frjálslyndi flokkurinn, héldu blaða-
mannafund og kynntu sameiginleg-
ar áherslur varðandi Ríkisútvarpið
en flokkarnir telja óæskilegt að það
sé gert að hlutafélagi. Stjórnarand-
staðan vill m.a. að stjórn RÚV sé
rekstrarstjórn, dagskrárákvarðanir
séu í höndum starfsmanna, rekstur
fjármagnaður með ríkisframlagi og
auglýsingatekjum án þess að það
rýri um of svigrúm annarra ljós-
vakamiðla og að málefni starfs-
manna RÚV fylgi meginreglum og
hefðum á opinberum vinnumarkaði.
Markar lok umræðunnar
„Þessi yfirlýsing markar af okkar
hálfu lok þeirrar umræðu sem hér
hefur staðið yfir í þinginu undan-
farna daga og reyndar kannski vik-
ur,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylking-
arinnar. Ingibjörg sagði stjórnar-
andstöðuna hafa reynt sitt besta til
ná fram sátt um frumvarp um Rík-
isútvarpið ohf. „Við viljum auðvitað
tryggja og höfum lagt á það áherslu
að hér verði ríkisútvarp en ekki rík-
isstjórnarútvarp. Sú spurning hlýt-
ur auðvitað að vakna hvernig hægt
er að treysta Ríkisútvarpi sem ekki
er pólitísk sátt um í samfélaginu,“
sagði Ingibjörg og bætti við að sú
sátt sem ríkti um RÚV væri nú rof-
in. Verkefni nýs meirihluta yrði að
taka þessi mál til endurskoðunar.
„Það er sammæli núna um alla aðra
fjölmiðla en Ríkisútvarpið.“
Eins og áður hefur komið fram
héldu stjórnarandstöðuþingmenn
langar ræður í sl. viku og á fund-
inum kom fram að á meðan hefði
verið reynt að ná sáttum um að vísa
frumvarpinu frá eða að fresta gild-
istöku laganna fram yfir kosningar.
„Það er algjörlega ljóst að rík-
isstjórnin hefur valið ófriðinn í
þessu máli,“ sagði Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lyndra, og bætti við að málefni Rík-
isútvarpsins yrðu eitt af kosninga-
málum vorsins.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, sagði stjórn-
arandstöðuna hafa gert ítrekuð
sáttatilboð varðandi RÚV-frum-
varpið. „Ríkisstjórninni stóðu til
boða að okkar mati mjög sann-
gjarnar sáttaleiðir,“ sagði Stein-
grímur og bætti við að ríkisstjórnin
væri með áberandi hætti að bregð-
ast friðarskyldu sinni um Ríkisút-
varpið og að með því væri hags-
munum RÚV og starfsmanna þess
teflt í hættu.
Umræðu um RÚV lokið
Vilja ríkisútvarp, ekki ríkisstjórnarútvarp, og segja sátt um RÚV rofna
Morgunblaðið/RAX
Yfirlýsing Stjórnarandstaðan tilkynnti í gær að umræðu um RÚV-frumvarpið væri lokið af hennar hálfu.
Í HNOTSKURN
» Þriðja umræða um Ríkis-útvarpið tók rúmar 56
klukkustundir.
» Stjórnarandstaðan til-kynnti í gær að af hennar
hálfu væri málinu lokið, ekki
hefði tekist að ná sáttum.
» Málið verður þó að matistjórnarandstöðunnar
kosningamál.
» Ingibjörg Sólrún segirsammæli vera um alla fjöl-
miðla nema Ríkisútvarpið.
» Stjórnarandstaðan villekki að Ríkisútvarpið sé
hlutafélag en að það eigi að
vera sjálfstætt, óháð stjórn-
mála- og viðskiptahagsmunum.
● Ró færðist yfir Alþingi eftir að
stjórnarandstaðan tilkynnti í gær að
umræðum um RÚV-frumvarpið væri
lokið af hennar hálfu. Þingflokks-
fundir voru á sínum venjubundna
stað og að þeim loknum hófst þing-
fundur að nýju. Fámennt var í salnum
en Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra lagði fram fjögur frumvörp sem
öll hafa fengið töluverða athygli í fjöl-
miðlum, m.a. frumvarp um aukna
refsivernd lögreglu, um dómstóla og
meðferð einkamála og um íslenskan
ríkisborgararétt. Atkvæðagreiðslum
var þó frestað um sinn.
Rólegra yfir Alþingi
eftir að umræðum um
Ríkisútvarpið lauk
● Guðrún Ögmundsdóttir, þingmað-
ur Samfylkingar, hefur lagt fram skrif-
lega fyrirspurn til forsætisráðherra
um einstaklinga í kynáttunarvanda.
Guðrún spyr m.a. hvaða skilyrði ein-
staklingur sem óskar eftir aðgerð til
leiðréttingar á kyni þarf að uppfylla
og hvaða stuðningsúrræði eru til fyrir
þá sem vilja láta breyta kyni sínu.
Hver eru skilyrði fyrir
leiðréttingu á kyni?
Jóhanna Sigurðardóttir 21. janúar
Ríkir greiða
ekki til RÚV
Þeir sem eru með fjár-
magnstekjur sér til
framfærslu en ekki
launatekjur þurfa ekki
að greiða nefskattinn
sem fjármagna á RÚV
verði hið umdeilda frumvarp mennta-
málaráðherra að lögum. Þessir fjár-
magnseigendur þurfa heldur ekki að
greiða gjald í Framkvæmdasjóð aldr-
aðra. Þennan hóp fylla milljóna- og
milljarðamæringar á Íslandi.
Meira: http://www.althingi.is/johanna/
Björgvin G. Sigurðsson 22. janúar
Hrikalegur þáttur
Kompásþátturinn á Stöð 2 var magn-
aður í gær, hrikalegur öllu heldur.
Þar beittu Jóhannes Kr. og félagar
tálbeitum í annað sinn til að kanna
umfang og eftirsókn barnaníðinga í
fórnarlömb í gegnum Netið. Nið-
urstaðan er ægileg; eftirspurninn er
talsverð og menn ganga langt.
Meira: http://www.bjorgvin.is/
● Þingfundur hefst að nýju kl. 13.30
í dag með síðustu atkvæðagreiðslu
um Ríkisútvarpið ohf. Áður fer fram
umræða utan dagskrár um auglýs-
ingar um fjárhættuspil. Frummæl-
andi er Ögmundur Jónasson.
Dagskrá þingsins
ÞETTA HELST …
ÞINGMENN BLOGGA
NOKKUR erlend
fyrirtæki hafa
sýnt áhuga á olíu-
leit í íslenskri lög-
sögu en ekki hef-
ur verið sótt
formlega um leyfi
á síðustu tveimur
árum. Síðast var
veitt leyfi til fyr-
irtækisins TGS-
NOPEC til leitar
á svokölluðu Drekasvæði. Þetta
kemur fram í skriflegu svari iðn-
aðarráðherra við fyrirspurn Guð-
mundar Hallvarðssonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokks, um olíuleit og
rannsóknir á landgrunni Íslands.
Erlendar sendinefndir í tengslum
við heimsóknir ráðamanna, s.s. frá
Indlandi, Kína og Angólu, hafa einn-
ig sýnt áhuga á möguleikum til olíu-
leitar og -vinnslu í íslenskri lögsögu.
Engar form-
legar umsókn-
ir um olíuleit
Guðmundur
Hallvarðsson