Morgunblaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 15
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
NÝR forseti Bandaríkjanna verður
ekki settur í embætti fyrr en um þetta
leyti í janúar 2009. Það er meira en ár í
að fyrstu forkosningar stóru flokkanna
tveggja vegna forsetakosninganna
haustið 2008 fara fram. Engu að síður
er baráttan um útnefningu flokkanna
farin á fullt og hjá hvorum flokki um sig
hafa nú þegar á annan tug stjórnmála-
manna hafið undirbúning að framboði,
eða eru um það bil að lýsa því yfir að
þeir sækist eftir útnefningu flokks síns.
„Forsetakosningarnar 2008 verða
lengstu og dýrustu kosningar í sögu
Bandaríkjanna,“ hefur AFP-fréttastof-
an eftir Michael Toner, fyrrverandi for-
manni alríkiskjörstjórnar. En hvers
vegna fer baráttan svona snemma að
stað? Hvers vegna ætla svo margir að
keppa um útnefningu flokkanna, vit-
andi það að það er bæði dýrt og lýjandi
(tveir sem þóttu líklegir hjá demókröt-
um, Evan Bayh og Mark Warner,
sögðu seint á síðasta ári að þeir ætluðu
ekki í framboð, m.a. vegna þess að þeir
vildu ekki bjóða fjölskyldum sínum upp
á allt það ónæði sem því fylgir) að bjóða
sig fram til forsetaembættis?
Ein skýring er sú, að það gerist nú í
fyrsta skipti í meira en hálfa öld að
hvorki sitjandi forseti né varaforseti
hans verða í framboði. George W. Bush
getur ekki setið lengur en tvö kjörtíma-
bil í embætti og lengi hefur verið ljóst
að Dick Cheney varaforseti myndi ekki
sækjast eftir því að feta í fótspor hans.
sem ekki nær settu marki sem varafor-
setaefni þess, sem fær útnefninguna.
En hvers vegna fer baráttan svo
snemma á stað? „Þegar margir ætla
fram verður það til þess að menn lýsa
snemma yfir framboði,“ hefur New
York Times eftir Jennifer Palmieri,
ráðgjafa demókratans Johns Edwards.
Menn hafi áhyggjur af því að því seinna
sem þeir skelli sér í slaginn því erfiðara
verði að tryggja sér það fjármagn sem
þarf til að reka kosningabaráttu. Í frétt
NYT segir ennfremur að sú staðreynd,
að sitjandi forseti er töluvert laskaður
pólitískt séð, sökum óvinsælda stríðsins
í Írak, stuðli að því að menni hugi
snemma að næsta forseta.
Keppnin er því opnari en endranær,
jafnvel þó að sumir frambjóðendur séu
sigurstranglegri en aðrir; fyrirfram er
talið að Hillary Clinton og Barack
Obama séu líklegastir sigurvegararnir
hjá demókrötum og John McCain eða
Rudy Giuliani hjá repúblikönum.
Hinir sem ekki teljast fyrirfram sig-
urstranglegastir vonast auðvitað til
þess að ná í kosningabaráttunni að slá í
gegn; svona eins og Bill Clinton gerði í
aðdraganda forsetakosninga 1992. Ein-
hverjir gera sér kannski ekki í raun og
veru von um sigur, heldur vilja koma
tilteknu málefni á dagskrá og sjá fram-
boð sem góða leið til þess.
Svo endar kannski einhver þeirra
Lengstu og dýrustu
kosningar í sögunni?
Reuters
Margir um hituna John McCain þykir líklegastur á þessari stundu til að verða
frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningum í nóvember 2008.
ÞESSIR hafa ákveðið framboð í forkosningum demókrata og
repúblikana eða eru taldir líklegir til að bjóða sig fram:
Repúblikanar
John McCain, öldungadeildarþingmaður frá Arizona, 70 ára.
Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri
New York, 62 ára.
Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, 59 ára.
Sam Brownback, öldungadeildarþingmaður
frá Kansas, 50 ára.
Duncan Hunter, fulltrúadeildarþingm. frá Kaliforníu, 58 ára.
Tom Tancredo, fulltrúadeildarþingmaður
frá Colorado, 61 árs.
Tommy Thompson, fyrrv. heilbrigðisráðherra, 65 ára.
James Gilmore, fyrrverandi ríkisstjóri Virginíu, 57 ára.
Ron Paul, fulltrúadeildarþingmaður frá Texas, 71 árs.
Mike Huckabee, fyrrv. ríkisstjóri í Arkansas,
51 árs (líklegur).
George Pataki, fyrrv. ríkisstjóri í New York,
61 árs (líklegur).
Chuck Hagel, öldungadeildarþingm., Nebraska,
60 ára (líklegur)
Newt Gingrich, fyrrv. forseti fulltrúadeildar,
63 ára (líklegur).
Demókratar
Barack Obama, öldungadeildarþingmaður frá Illinois, 45 ára.
Hillary Clinton, öldungadeildarþingmaður
frá New York, 59 ára.
John Edwards, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður,
53 ára.
Tom Vilsack, fráfarandi ríkisstjóri Iowa, 56 ára.
Dennis Kucinich, fulltrúadeildarþingmaður frá Ohio,
sextugur.
Joseph Biden, öldungadeildarþingm., Delaware, 64 ára.
Chris Dodd, öldungadeildarþingmaður Connecticut, 62 ára.
Bill Richardson, ríkisstjóri Nýju-Mexíkó, 59 ára.
Mike Gravel, fyrrv. öldungadeildarþingm., Alaska, 76 ára
Wesley Clark, fyrrv. yfirmaður herafla NATO
í Evrópu, 62 ára (líklegur).
John Kerry, öldungadeildarþingm. Massachusetts,
63 ára (líklegur).
Al Sharpton, klerkur, New York, 52 ára (líklegur).
Óvenjulega
margir í framboði
ÚTSALASKÍÐAFATNAÐUR
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
Scott skíðaúlpa
22.600 6.900
Be-zo barna-skíðagalli
8.990 2.990
Scott barnaúlpa
12.900 4.900
Lange RRS 80 skíðaskór
26.900 – 9.900
Dynastar Classic
snjóbrettaskór
15.900 – 7.950
Dynastar Agyl skíði
14.800 – 7.400
Nitro Voltage snjóbretti
29.130 – 20.391
Sin Team
barnasnjóbretti
16.900 10.140
afsláttur
Húfur
30% afsláttur
Gönguskíði
50%
Skíða-
hanskar
frá
500
Skíða- og
snjóbretta-
hjálmar
30%
afsláttur
P
IP
A
R
S
ÍA
7
0
1
2
1