Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 26

Morgunblaðið - 23.01.2007, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN BÓK Guðna Th. Jóhannessonar, Óvinir ríkisins, lýsir atburðum, þegar upp úr sauð, í átökum á þremur mikilvægum baráttuskeiðum í ís- lenskri sögu. Frá baráttu kreppu- áranna, 1930–1940, þegar bláfátæk íslensk alþýða reis upp gegn íslenskri yfirstétt, auðstétt og valda- mönnum, með afli þess sem er að berjast fyrir lífi sínu, með samstöð- una að sínu eina vopni. Þessi barátta olli því- líkum ótta meðal yf- irstéttarinnar að hún leitaði ásjár erlends valds, erlends hers til að vernda skjálfandi stoðir sínar. Þá hófst baráttu- tímabil tvö, 1946. Bar- áttan milli þeirra sem sáu þann einn kost, til að sefa ótta sinn, að fá hingað her frá mesta herveldi heimsins. Frá herveldinu sem var nýbúið að varpa kjarn- orkusprengjum á íbúa Híróshima og Naga- saki í Japan, búið að fremja þar fjöldamorð og valda þar mannlegri þjáningu, sem enn sér ekki fyrir endann á. Meirihluti Íslendinga reis upp og mótmælti þessu með fjöldabaráttu allt frá 1946, með baráttu sem reis kannski hæst 30. mars 1949, dag- inn sem íslenskum valdsmönnum tókst að troða Íslendingum inn í stríðsbandalagið NATO. 30. mars 1949, eins og í Gúttós- lagnum 1932, reis fólk upp í rétt- látri reiði gegn árásum harðsvír- aðrar yfirstéttar, af tilfinningahita, sem ekki virti venju- leg mörk. Þriðja baráttu- tímabilið Þriðja baráttutíma- tímabilið má kenna við 1968 og árin þar í kring þegar íslensk æska og eldri bar- áttumenn risu upp til að fletta ofan af þeirri heimsvaldastefnu sem íslenska ríkið varð þátttakandi í með inn- göngunni í NATO og með hernaðarsam- starfi við Bandaríkin. Þetta var líka barátta sem byggðist á kröfu um réttlæti og sam- stöðu með hinum kúg- uðu. Fjöldamorð Bandaríkjanna í Víet- nam voru lengi fram- an af afsökuð með kommúnistaógninni og Rússagrýlunni. Fjölmiðlar fluttu í sí- bylju bandarískar áróðursfréttir um eðli stríðsins. Andstæð- ingar heims- valdastefnu um allan heim settu sér það mark að fletta ofan af þjóðarmorðinu í Víetnam og vekja þannig almenna andstöðu gegn stríði Bandaríkjanna þar. Að afsaka valdhafana Bókin flettir ofan af sumum þeirra baráttuaðferða yfirvalda sem beint var gegn þessari gras- rótarbaráttu íslenskrar alþýðu. Þar er sagt frá símhlerunum og at- vinnuofsóknum gegn þeim sem höfðu afbrigðilegar skoðanir að mati valdhafa. Flett er að nokkru ofan af samstarfinu sem yfirvöld höfðu við leyniþjónustu Bandaríkj- anna í þessum athöfnum sínum. En þegar þessum afhjúpunum er lokið er eins og Guðna finnist þess- ir glæpir gegn lýðræði slíkir að hann verði að sýna fram á að vald- höfum hafi verið vorkunn. Að vísu trúir hann ekki almennilega á ótta yfirstéttarinnar, svona eftir á að hyggja. En hann þykist sjá að þeim var vorkunn, þeir trúðu nefnilega á að kommúnistarnir ætluðu að ræna hér völdum og að aðgerðirnar kringum ’68, til að vekja athygli á Víetnamstríðinu, væru hryðjuverk til undirbúnings því sama. Sem sagt, samkvæmt Guðna, var yf- irstéttin sjálf farin að trúa á þá grýlu sem hún hafði búið til í því skyni að ófrægja andstæðinga sína. Mér er eins farið og Guðna að ég vorkenni þeim yfirvöldum sem hafa orðið uppvís að valdníðsluaðferðum á þessum árum. Hins vegar er ég ekki sammála honum um að til að hugga íslenska yfirstétt sé allt í lagi að ófrægja grasrótarbaráttu íslenskrar alþýðu og andstæðinga bandarískrar heimsvaldastefnu. Sögu þessarar baráttu þurfum við að segja sjálf, hvort sem það voru þeir, sem voru í varnarliði verkalýðsins á 4. áratugnum, í bar- áttunni gegn hernáminu kringum 1949 eða í baráttunni gegn heims- valdastefnunni kringum 1968. Alla- vega þurfum við að safna gögnum um þessa baráttu, því hún er mik- ilvæg og glæst fyrirmynd þeim sem vilja berjast fyrir betra þjóð- félagi. Óvinir spilltra valdhafa en vinir fólksins Ragnar Stefánsson skrifar um bókina Óvini ríkisins »… er ég ekkisammála honum um að til að hugga ís- lenska yfirstétt sé allt í lagi að ófrægja gras- rótarbaráttu ís- lenskrar alþýðu og andstæðinga bandarískrar heimsvalda- stefnu. Ragnar Stefánsson Höfundur er jarðeðlisfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri. SJÓMINJASAFNIÐ Víkin legg- ur nú til móts við mikilvægt starfsár eftir tvö ár uppbyggingar vestur á Granda. Nú er í und- irbúningi sýning í til- efni 90 ára afmælis Reykjavíkurhafnar, en samtímis er í aðalsal rakin 100 ára saga tog- araútgerðar. Ráðist verður í margvíslegar endurbætur á húsnæði í ár til að bæta sýning- arrými og aðgengi al- mennings að safninu. Safnið nýtur vaxandi velvildar og margir samverkandi þættir stuðla að því að nú er byr í seglum:  Safnið nýtur síaukins meðbyrs al- mennings.  Safnið hefur sannað gildi sitt sem sögusetur og menningarmiðstöð.  Það er vel sýnilegt og býr yfir nær ótæmandi framtíðarmöguleikum í núverandi húsnæði, fjárhagsleg staða hefur styrkst.  Standsetningu húsnæðisins á Grandagarði 8 lýkur í árslok 2007.  Fyrstu 18 mánuðina voru gestir safnsins 15.000 talsins og fer að- sókn stigvaxandi.  Safngripir eru nú þegar 2.000 tals- ins, skráðir og í öruggri vörslu.  Hafið er margvíslegt rannsókna- starf á sviði minja og sögu.  Safnið hefur komið sér upp heima- síðu með ýmsum fróðleik, sjom- injsafn.is.  Það hefur á að skipa kröftugu og áhugasömu starfsfólki. Sterkir bakhjarlar Frá upphafi var ljóst að atbeina margra þurfti til að koma safninu á laggirnar. Þrjú stór einkafyrirtæki komu þegar að með styrkt- arfé, það eru Glitnir, Eimskip og HB Grandi. Auk þess hafa Faxaflóahafnir verið myndarlegar í öllu er varðar safnið, og Reykjavíkurborg lagt fram árlegt styrktarfé. Nú fyrir áramót lagði svo ríkið hönd á plóg og voru mennta- málaráðherra og sjáv- arútvegsráðaherra sér- stakir aufúsugestir þegar skrifað var undir samning um styrk. Stoðirnar eru því fjórar. En fjáröflun er ekki nóg. Öflugt fulltrúaráð sýnir safninu mikinn áhuga og margir hafa gefið því muni og sýnt ræktarsemi á annan hátt. Hvað með Óðin? Að mínu mati væri það mikill feng- ur fyrir safnið og Íslendinga alla ef verður af því að gamla varðskipið Óðinn verði einn af safngripunum. Hollvinasamtök Óðins héldu stofn- fund í haust í húsakynnum safnsins og vilja stuðla að því að Óðinn njóti verndar og verði umgjörð um sögu landhelgisbaráttunnar. Sjóminja- safnið getur séð um allan almennan rekstur, en eðlilegt er að með skipinu komi meðgjöf til að gera því til góða og setja upp sýninguna. Hugmyndin er að Óðinn verið hluti af sýningum safnsins þar sem skipið lægi við bryggju fyrir utan húsakynni þess. Sterk rök eru fyrir því að vernda Óð- in og hafa fasta sýningu um land- helgisstríðin um borð. Hverjum stendur nær að segja sögu þorska- stríðanna en Íslendingum? Þau eru hluti af sjálfstæðisbaráttu þjóð- arinnar og vörðuðu veg fyrir margar nýfrjálsar þjóðir sem kröfðust síðar forræðis yfir auðlindum sínum. Sem hluti af Sjóminjasafninu verður Óð- inn mikið aðdráttarafl fyrir innlenda og útlenda ferðamenn og sérstök og mikilvæg viðbót við safnaflóru lands- ins. Þá tel ég einboðið að gamla Að- albjörgin sem nú stendur á þurru landi í túnfæti Árbæjarsafns fái stað niður við höfn sem vitnisburður um liðna tíma í sjósókn. Allir vita að því merka tréskipi líður betur í sjó en á landi þar sem viðir gisna. Sjóminja- safnið stendur á frábærum stað við höfnina, í húsi þar sem áður var flak- aður og frystur fiskur og margir borgarbúar eiga enn minningar um sín fyrstu skref í atvinnulífinu. Það verður mikilvægur áfangastaður þeirra sem spóka sig í splunkunýju hverfi á Slippsvæðinu og kallast skemmtilega á við nýtt Tónlistar- og ráðstefnuhús í austurhöfninni. Vaxt- armöguleikar eru miklir og sannast hér hið fornkveðna, mjór er mikils vísir. Sjóminjasafn með byr í seglum Stefán Jón Hafstein fjallar um Sjóminjasafnið » Að mínu mati væriþað mikill fengur fyrir safnið og Íslend- inga alla ef verður af því að gamla varðskipið Óð- inn verði einn af safn- gripunum. Stefán Jón Hafstein Höfundur er stjórnarformaður Sjóminjasafnsins. É g var einu sinni ljós- myndari á Morg- unblaðinu, og meðal fastra liða í því starfi var að taka myndir af svokölluðum tombólu- börnum. Það voru börn sem komu á ritstjórnina til að segja frá því að þau hefðu haldið tombólu – sem heitir víst hlutavelta á fínni íslensku – og fá tekna af sér mynd sem síðan var birt í blaðinu með texta þar sem fram komu nöfn barnanna og upphæðin sem þau höfðu safnað og hvað þau höfðu gert við ágóðann. Hann höfðu þau undantekningarlaust gefið Rauða krossinum eða ein- hverju öðru líknarfélagi. Hvað er orðið af tombólubörn- unum? Er Morgunblaðið hætt að birta myndir af þeim? Eða skyldu þau vera hætt að koma á blaðið? Vissulega hvarflar að manni að flutningar ritstjórnarinnar upp í Hádegismóa hafi gert krökkunum erfiðara fyrir, en eru engin börn og engar tombólur í Árbænum? Eða er ástæðan kannski einhver önnur? Kona sem ég tek meira mark á en öðrum sagði mér að börn væru alls ekki hætt að halda tombólur, en hún hefði rökstuddan grun um að það væri ekki lengur Rauði krossinn eða slík líknarfélög sem nytu góðs af. Síðasta sumar hefðu börn meira að segja haldið fullt af tombólum í hverfinu okkar. Reyndar sagði hún að sér hefði sýnst síðastliðið sumar að börnin væru farin að færa út kvíarnar og stunda ýmsan verslunarrekstur, ekki síst að selja dótið sitt. En það virtist vera af sem áður var með tilgang þessarar starf- semi. Konan sem ég tek meira mark á en öðrum sagðist hafa keypt eitthvað á tombólu í hverf- inu okkar síðasta sumar og svo spurt krakkana sem héldu hana hvað þau ætluðu að gera við ágóðann. Það stóð ekki á svari: „Við ætlum að kaupa okkur tölvu- leik.“ Ég sé ekki alveg að það gengi upp að þessir krakkar færu upp í Hádegismóa á ritstjórn Morg- unblaðsins og fengju birta af sér mynd í blaðinu með texta um að þeir hefðu haldið hlutaveltu og ágóðinn hefði verið svo og svo mikill og að krakkarnir væru þeg- ar búnir að fara með hann í Skíf- una og kaupa tölvuleikinn Fles- heaters. Getur verið að þetta sé helsta ástæðan fyrir því að myndir af tombólubörnum eru hættar að birtast í Morgunblaðinu, fremur en að börnin nenni ekki að leggja á sig að fara alla leið upp í Há- degismóa? Hvað segir Rauði krossinn, berst honum enn hagn- aður af tombólum barna? Ef það er nú rétt sem virðist mega álykta af ofanskrifuðu að börn séu einfaldlega hætt að gefa ágóðann af tombóluhaldi sínu og verslunarrekstri til líkn- arstarfsemi, fremur en að þau séu alveg hætt að stunda slíka starf- semi, blasir við sú spurning hvað valdi þessari hugarfarsbreytingu hjá börnunum. Svarið blasir reyndar líka við: Breytingar á þeim grundvallargildum sem ríkjandi eru í þjóðfélaginu. Sam- hjálpin hefur vikið fyrir sjálfs- hjálpinni. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvort er horfið, tabúið á að einstaklingar sanki að sér miklum auðævum eða siðferð- islega skyldan til að veita með- bræðrum sínum hjálp. Ég held þó að það sé fremur hið fyrrnefnda. Meira að segja Katrín Jak- obsdóttir, væntanlegur þingmaður Vinstri grænna, sagði í sjónvarpi fyrir skömmu að það væri gott að bankarnir græddu mikið. Siðferðisskylduboðið um að hjálpa þeim sem minna mega sín er líklega enn í gildi. Ef auðmenn hafa það í heiðri fá þeir siðferð- islega heimild samfélagsins til sjálfsumbunar. En þar sem það er nú á almannavitorði að auðmenn greiða ekki lengur í sameiginlega þjóðfélagssjóðinn á formi skatta – þeir greiða einungis fjármagns- tekjuskatt til málamynda – þurfa þeir að uppfylla þetta siðferð- isskylduboð með öðrum hætti og verða að gera það sýnilega með því að fá fjölmiðla til að fjalla um það með áberandi hætti. Þetta fyrirkomulag virðist greinilega fengið að láni frá Bandaríkjunum, þar sem það hefur að margra mati gefið góða raun. Hollenski viðskiptaráðgjafinn og sálgreinirinn Manfred Kets de Vries hefur haldið því fram að stór hluti efnaðra viðskiptajöfra sé ákaflega upptekinn af því að vinna sér inn það sem hann kall- aði „éttu skít-peninga“, það er að segja fjármuni sem þeir þurfi ekki að standa neinum reiknings- skil á og geti ráðstafað eins og þeim sýnist án þess að kalla yfir sig skattayfirvöld eða samfélags- fyrirlitningu. Til að eignast eitthvað sem um munar af „éttu skít-peningum“ þarf maður fyrst að gjalda rík- issjóði og almenningsálitinu stór- ar fúlgur og þannig hefur fjár- magnstekjuskattsfyrirkomulagið hérlendis að vissu leyti gert auð- mönnum erfiðara um vik vegna þess að þeir hafa orðið að finna aðrar leiðir til að vinna sér inn „éttu skít-peninga“. Þetta eiga tombólubörn nú- tímans ef til vill eftir að læra. Að til að geta sett hundraðkall í sinn eigin tölvuleikjasjóð verða þau að gefa Rauða krossinum fjögur hundruð kall. Reyndar læðist að manni sá grunur að það séu ekki bara tombólubörnin sem eigi eftir að læra að feta þetta einstigi heldur hafi ýmsir fullorðnir nýrík- ir menn ekki enn áttað sig á þessu fyrirkomulagi og fari það sem kalla mætti „rússnesku leið- ina“, það er að segja að sanka að sér eins miklum auði og þeir framast geta og eru ósínkir á sjálfsumbunina, samanber Vla- dimír Pótantín, sem flutti George Michael og 40 manna fylgdarlið til Rússlands og greiddi honum sem svarar 234 milljónum króna – í beinhörðum peningum, að því er sagan segir – fyrir 75 mínútna einkatónleika á nýársnótt. Tombólu- börn »Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvort erhorfið, tabúið á að einstaklingar sanki að sér miklum auðæfum eða siðferðislega skyldan til að veita meðbræðrum sínum hjálp. BLOGG: kga.blog.is VIÐHORF Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.