Morgunblaðið - 15.03.2007, Qupperneq 1
fimmtudagur
15. 3. 2007
viðskipti mbl.is
viðskipti
Stjórnendur íslenskra fyrirtækja að sýna aukna samfélagslega ábyrgð » 16
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Á AÐALFUNDI Exista var sam-
þykkt að veita stjórn félagsins
heimild til þess að skrá hlutafé fé-
lagsins í evrum í stað króna. Þá var
og samþykkt heimild til að auka
hlutafé félagsins um 3,6 milljarða
hluta sem skila myndi því liðlega
100 milljörðum króna miðað við
gengi bréfa Exista nú.
Í ræðu Lýðs Guðmundssonar,
stjórnarformanns Exista, kom
fram að stjórn félagsins hefði
ákveðið að skrá lykileignir Exista í
fjármálafyrirtækjum samkvæmt
kaupaðferð til þess að draga úr
sveiflum vegna breytinga á mark-
aði. Þetta táknaði að frá og með
þessu ári reiknaði Exista sér hlut-
fall hagnaðar í félögum sem það
ætti meira en 15% í stað þess að
reikna sér ávinning af hækkun á
gengi bréfa félaganna sjálfra.
Exista taki þátt
Lýður minnti á að Exista hefði
skilgreint fjármálaþjónustu sem
kjarnastarfsemi sína og Norður-
Evrópu sem höfuðmarkað félags-
ins.
„Það eru vísbendingar um að
meiriháttar breytingar muni verða
á norrænum fjármálamarkaði á
næstu árum. Slík endurskipulagn-
ing skapar tækifæri og ætti einnig
að skapa umtalsverð verðmæti.
Norrænar fjármálastofnanir
byggja á traustum grunni og í þeim
búa gífurlegir möguleikar. Ég tel
að Exista eigi að vera þátttakandi í
þessari þróun og við erum í öfunds-
verðri stöðu með stórum eignar-
hlutum okkar í Kaupþingi banka
og Sampo Group.“
Lýður sagði Exista leggja
áherslu á fjármagnsmyndun þeirra
félaga sem það ætti í en á því væri
ein undantekning sem væri helm-
ingseign Exista í Viðskiptablaðinu
þar sem aðrar ástæður byggju að
baki. „Á tiltölulegu skömmum tíma
hafa nær öll blöð og ljósvakamiðlar
endað í höndum tveggja fjöl-
skyldna. Burt séð frá Ríkisútvarp-
inu, ráða þessar fjölskyldur allri
fjölmiðlun í landinu. Við höfum tal-
ið það skyldu okkar að halda að
minnsta kosti litlum hluta fjöl-
miðlanna utan þessara tveggja
blokka. Af þessum sökum eiga
dótturfélög okkar hlut í tveimur
fjölmiðlum: Skjá 1, sjónvarpsstöð
sem Síminn á, og Viðskiptablaðið,
sem er sérhæft daglegt viðskipta-
blað.“
Exista í öfundsverðri stöðu
á norrænum bankamarkaði
Morgunblaðið/Kristinn
Töluverð lækkun
í Kauphöllinni
ÚRVALSVÍSITALA
aðallista Kauphallar
Íslands lækkaði um
2,1% í gær og er loka-
gildi hennar 7.331 stig.
Öll félögin í vísitölunni
utan eitt lækkuðu í
gær. Það eina sem
lækkaði ekki, 365 hf.,
stóð hins vegar í stað.
Mest lækkun varð í gær á gengi hluta-
bréfa Atlantic Petroleum, 4,0%. Þá lækk-
uðu bréf Glitnis um 3,3% og Eimskipa-
félagsins um 3,2%.
Ef litið er eina viku aftur í tímann kem-
ur í ljós að öll félögin í Úrvalsvísitölu
Kauphallarinnar hafa lækkað á tíma-
bilinu. Mest hefur lækkunin orðið á bréf-
um Eimskipafélagsins, 7,4%, Mosaic Fas-
hions 6,1% og Straums-Burðaráss 4,8%.
Lækkanir í útlöndum
Svipaða sögu er að segja af erlendum
mörkuðum og hér á landi því nokkra og
jafnvel miklar lækkanir voru víða í gær.
Það á við um markaði vestanhafs, þar sem
áhyggjur af stöðunni á íbúðalánamarkaði
hafa sett mark sitt á markaðina vegna
aukinna vanskila íbúðaeigenda. Þá voru
einnig umtalsverðar lækkanir í mörgum
kauphöllum Evrópu og Asíu. Þannig
lækkaði FTSE-vísitalan í London um 2,6%
í gær, DAX í Þýskalandi um 2,7% og CAC
í Frakklandi um 2,5%. Nikkei-vísitalan í
Japan lækkaði enn meir, eða um 2,9%.
Í gær var fjallað nokkuð um stöðuna á
hlutabréfamörkuðum heimsins í erlend-
um fjölmiðlum. Kom meðal annars fram
að ýmsir eru farnir að hafa áhyggjur af
hugsanlegum samdrætti í efnahagslífinu,
en neikvæðar fréttir af mörkuðum hafa
verið meira áberandi í fjölmiðlum að und-
anförnu en um nokkuð skeið.
5,4%*
ávöxtun í evrum
8,5%*
ávöxtun í dollurum
15,8%*
ávöxtun í krónum
7,1%*
ávöxtun í pundum
Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur
telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar
en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum Kaupflings e›a á www.kaupthing.is.
*Nafnávöxtun í ISK, EUR, USD og GBP á ársgrundvelli fyrir tímabili› 31/01/07-28/02/07.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
Kynntu flér kosti peningamarka›ssjó›a Kaupflings í ISK, EUR, USD og GBP. Haf›u samband vi› rá›gjafa okkar í síma 444 7000.
P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ I R
Ávaxta›u betur
– í fleirri mynt sem flér hentar