Morgunblaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
F
A
B
R
I
K
A
N
Aðalfundur
AðalfundurHBGranda hf. verður haldinn
föstudaginn 23.mars 2007 ímatsal
HBGranda viðNorðurgarð, Reykjavík.
Fundurinn hefst kl. 17:00.
Dagskrá.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 18. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin
hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Ennfremur er
hægt að nálgast gögnin á vefsíðu félagsins,
www.hbgrandi.is.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm
virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar
um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar
en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað frá kl. 16:30.
Óski hluthafar eftir að ákveðinmál verði tekin til
meðferðar á aðalfundinum, þarf skrifleg beiðni um
það að hafa borist félagsstjórnmeð nægjanlegum
fyrirvara, þannig að unnt sé að takamálið á dagskrá
fundarins.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn, en hyggjast
gefa umboð, þurfa að gera það skriflega.
Stjórn HBGranda hf.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÞEGAR tveir aðilar deila, hvort sem
um ræðir einstaklinga, stofnanir eða
fyrirtæki, og báðir eru sannfærðir um
að þeir hafi rétt fyrir sér er niðurstað-
an ósjaldan sú að málið fer fyrir dóm-
stóla og þar er úr því leyst. Þessi úr-
lausnarleið er hins vegar ekki eina
leiðin sem aðilar geta farið, og er ekki
í öllum tilvikum sú besta. Ein leiðin er
sú að leita aðstoðar sáttamiðlara og
reyna að ná sáttum án þátttöku dóm-
stóla. Þessi leið er sífellt vinsælli er-
lendis, einkum í Bandaríkjunum og
Evrópu, og hafa stjórnvöld í sumum
tilvikum tekið sáttamiðlun upp á sína
arma. Hér á landi hefur hins vegar lít-
ið farið fyrir sáttamiðlun við úrlausn
deilumála.
Sátt, fagfélag sáttamanna, hefur
undanfarið staðið fyrir námskeiðum í
sáttamiðlun og meðal kennara hefur
verið Lawrence Kershen, breskur
lögmaður og sáttamiðlari.
Mikill sparnaður
Kershen segir kosti sáttamiðlunar
fyrir fyrirtæki og einstaklinga um-
talsverða, einkum þegar miðlunin er
borin saman við dómsmál. „Sátta-
miðlun hefur í för með sér mikinn
sparnað, bæði fjárhagslegan og einn-
ig tímasparnað. Dómsmál getur tekið
vikur, mánuði eða jafnvel nokkur ár,
en sáttamiðlun tekur einungis brot af
þeim tíma. Oft er hægt að ná sáttum
og leysa úr ágreiningsmálum á einum
degi,“ segir Kershner. „Fjárhagslegi
sparnaðurinn leiðir af tímasparnaðin-
um. Í mörgum tilvikum þarf að hætta
framkvæmdum eða annarri starfsemi
þar til leyst hefur verið úr ágreiningi
og segir það sig sjálft að slíkar tafir
eru kostnaðarsamar. Þá eru dómsmál
í eðli sínu kostnaðarsöm, lögmenn
vinna jú sjaldnast í sjálfboðavinnu.“
Kershen segir kosti sáttamiðlunar
fram yfir dómsmál þó ekki einungis
fjárhagslegs eðlis. „Dómskerfið er
þannig skipulagt að aðilar mála eru
andstæðingar. Slíkt skipulag er að
vissu leyti óumflýjanlegt, en það er
ekki líklegt til að bæta persónulegt
samband deilenda. Að loknu löngu og
erfiðu dómsmáli eru allar líkur til
þess að viðskiptasamband aðila hafi
verið að öllu rofið og úr því verði ekki
bætt. Sáttamiðlun veitir aðilum tæki-
færi til að leysa úr deilumálum á þann
hátt að viðskiptasamband þeirra haldi
áfram, og styrkist jafnvel. Í mörgum
tilvikum eru viðskiptasamböndin
helsti styrkur og dýrmætasta eign
fyrirtækja og því er ýmislegt á sig
leggjandi til að viðhalda þeim.“
Sveigjanleiki
Segja má að helsti styrkur sáttamiðl-
unarleiðarinnar sé sá að sáttamiðlar-
inn er ekki bundinn af þeim reglum
sem dómstólar eru bundnir af. Til
dæmis eru dómstólar bundnir við þau
deiluefni og þau gögn sem fyrir þá eru
lögð, en sáttamiðlarinn er það ekki. Í
sáttamiðlun geta aðilar horft út yfir
hið þrönga deiluefni og skoðað það frá
fleiri sjónarhornum og ef til vill dreg-
ið inn í lausnina önnur atriði sem
dómstólar gætu ekki gert.
„Dómsmál eru afar formföst og í
dómsmáli er einn sigurvegari og einn
sem tapar. Dómsmál snúast um að
finna nákvæmlega út hver hefur rétt
fyrir sér og dæma út frá því. Í sátta-
miðlun er markmiðið ekki að sann-
reyna hver hafi rétt fyrir sér, heldur
að ná sáttum. Það getur þýtt að aðilar
þurfi að gera málamiðlanir sem þeir
hefðu ekki þurft að gera fyrir dómi,“
segir Kershen.
„Í viðskiptum þarf fólk alltaf að
meta kostnað, ávinning og áhættu.
Dómsmál felur alltaf í sér áhættu,
sama hvað lögmaðurinn þinn segir, og
því fylgir alltaf kostnaður. Því getur
borgað sig fyrir fyrirtæki sem á í deil-
um að fara sáttaleiðina.“
Ekki ber þó að skilja Kershen á
þann veg að sáttamiðlun sé formlaust
spjall, heldur fylgir sáttamiðlunar-
ferlið ákveðnu formbundnu ferli.
Deiluaðilar skila til sáttamiðlara
greinargerðum þar sem þeir útskýra
sína hlið málsins og hvað þeir telja
vera hinn raunverulega ásteytingar-
stein. Ágreiningurinn er þannig af-
markaður, þeir þættir afmarkaðir
sem hægt er að vinna með og í hvaða
röð eigi að vinna með þá. Þá eru
mögulegar lausnir á deilunni ræddar
og reynt að koma með eins margar
mismunandi hugmyndir og mögulegt
er án þess að afstaða sé til þeirra tek-
in. Að því loknu er unnið að sam-
komulagi og samningaviðræður fara
fram á grundvelli hugmynda og til-
lagna sem aðilar hafa sjálfir sett fram.
Hlutverk sáttamiðlarans er að
komast að því hversu langt aðilar eru
tilbúnir að ganga til að ná samkomu-
lagi, hvað þeir eru tilbúnir að láta af
hendi og hvert endanlegt markmið
þeirra sé. Þagnar- og trúnaðarskylda
sáttamiðlara er augljós hvað þetta at-
riði varðar. Sáttamiðlari aðstoðar svo
deiluaðila að ræða málið, hugsa um
mögulegar lausnir og leiða þá að
lausn sem báðum er hugnanleg.
Kershen segir sáttaleiðina einnig
geta haft jákvæð sálræn áhrif.
„Vegna þess að sættirnar eru undir
aðilum sjálfum komnar neyðast þeir
til að horfa á málefnið hvor frá annars
sjónarhorni og það getur haft í för
með sér aukinn skilning á stöðu og af-
stöðu hins aðilans.“
Óhefðbundin lausn deilumála
Sáttamiðlun er sífellt vinsælli leið erlendis til að útkljá deilumál fyrirtækja eða einstaklinga án af-
skipta dómstóla Sátt er fagfélag sáttamanna hér á landi sem haldið hefur námskeið í sáttamiðlun
Sáttamaður Lawrence Kershen er
sérfræðingur í sáttamiðlun.
Morgunblaðið/Bjarni
öðrum vettvangi. Ingibjörg
Bjarnardóttir, lögmaður og for-
maður Sáttar, hefur skrifað um
sáttamiðlun og samkvæmt henni
er skilgreining á hugtakinu eft-
irfarandi:
Sáttamiðlun er aðferð til lausn-
ar á ágreiningi sem aðilar taka
sjálfviljugir þátt í með hjálp eins
eða fleiri óháðra og hlutlausra
sáttamanna. Aðilar komast sjálfir
að samkomulagi um lausn ágrein-
ings, sem þeir meta viðunandi
fyrir báða aðila, í gegnum skipu-
lagt og mótað ferli. Sáttamaður á
engan þátt í úrlausn málsins.
Aðilar velja sjálfir að taka þátt
Sáttamiðlun er tiltölulega nýtt
hugtak í íslensku athafnalífi og
hingað til hefur ekki farið mikið
fyrir henni í úrlausn deilumála
hér á landi.
Sátt, félag fagfólks sem vinnur
að lausn ágreiningsmála, hefur
viljað sjá breytingar þar á og er
markmið félagsins að vinna að
framgangi sáttamiðlunar. Til að
ná því markmiði vill Sátt vinna
að skipulagningu viðurkennds
náms hérlendis í sáttamiðlun, sem
veiti réttindi til að vera sátta-
maður vegna ágreinings sem ris-
inn er, eða er til meðferðar fyrir
dómstólum, stjórnvöldum og á
í sáttaumleitan óháðs sáttamanns,
hvort þeir vilji ljúka málinu með
samkomulagi og hvers efnis það
samkomulag á að vera. Það að
aðilar taka sjálfviljugir þátt í
sáttaferlinu felur í sér að þeir
geta, hvenær sem er, allt þar til
samkomulag liggur fyrir, hætt
þátttöku.
Sáttamiðlun fer fram í algjör-
um trúnaði, og er þar ekki aðeins
átt við þagnarskyldu sáttamanns
um það sem fram kemur í sátta-
ferlinu, heldur einnig þagn-
arskyldu aðila og skuldbindingu
þeirra að ræða ágreiningsefnið
ekki við utanaðkomandi aðila.
Sáttamiðlun í hnotskurn
?
! "!!
#
$ $%&
)$*
+
%
,!
!
-(
., -
-$
,
$,
/
0
1 2
,