Morgunblaðið - 15.03.2007, Qupperneq 2
!
!
!
!
!
" #$%
&
&
&
'(
''
" #$%
'(
''
'
'
'
" #$%
&(
&'
&
&
&
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net-
fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björn Jóhann Björnsson, frétta-
stjóri, bjb@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110
Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
BYR sparisjóður, sem nýlega varð til
með samruna Sparisjóðs vélstjóra og
Sparisjóðs Hafnarfjarðar, hefur
þegar hafið þátttöku í sínu fyrsta út-
rásarverkefni. Um er að ræða eign-
araðild að fjárfestingafélaginu Shel-
ley Oak Plc. í Bretlandi, sem mun
sérhæfa sig í brúarfjármögnun á
íbúðarhúsnæði í London og víðar.
Auk Byrs standa að félaginu Sax-
bygg ehf., eignarhaldsfélagið Quer-
cus ehf., sem er í eigu Árna Helga-
sonar, sem verður stjórnarformaður
Shelley Oak, og þrír Bretar sem
munu vera með langa reynslu af
bankastarfsemi og fasteignaþróun.
Meðal þeirra er Darren Schindler,
sem verður framkvæmdastjóri, en
hann hefur víðtæka reynslu úr
bankaviðskiptum á Bretlandi. Hann
starfaði í mörg ár hjá Barclays og
síðar yfir fasteignalánum hjá HBOS.
Fara hægt af stað
Byr mun sjá um svonefnda brúar-
fjármögnun, þ.e. brúa bilið frá lánum
banka og eiginfjárframlags eigenda.
Að sögn Ragnars Z. Guðjónssonar,
annars sparisjóðsstjóra Byrs, mun
verkefni sjóðsins einkum snúa um að
aðstoð við gróin félög í að kaupa lóðir
eða byggingar, fá byggingaleyfi fyrir
breyttri nýtingu á reitnum og ljúka
verkefninu með því að byggja íbúðir
og selja þær. Ragnar segir að Byr
muni fara hægt af stað, á þessu ári sé
reiknað með sparisjóðurinn leggi
fimm milljónir punda til lánveitinga,
eða um 650 milljónir króna. Síðar sé
reiknað með meiri fjárútlátum.
Byr er stærsti einstaki eigandi
Shelley Oak, með 34% hlut, Saxbygg
á 16% og afganginn eiga Árni Helga-
son og Bretarnir þrír, með álíka
stóra hluti hver. Að sögn Ragnars
hafði þetta verkefni í Bretlandi verið
í undirbúningi í eitt ár hjá Sparisjóði
vélstjóra, áður en til sameiningar við
SPH kom. Þó að þetta væri fyrsta
útrásarverkefnið eftir samrunann
hefðu sparisjóðirnir verið í ýmsum
verkefnum erlendis, m.a. í sam-
bankalánum með Landsbankanum í
London, þátttaka með sjóðnum
Carta Capital og MP fjárfestinga-
banka í Úkraínu og við Eystrasalt.
Kaupa hlut í bresku
fjárfestingafélagi
Fyrsta útrásarverkefni nýja sparisjóðsins Byrs
Shelley Oak sérhæfir sig í fasteignum í Bretlandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útrás Ragnar Z. Guðjónsson, annar
sparisjóðsstjóra hins nýja Byrs.
Í HNOTSKURN
»Nafn þessa íslensk-breskafjárfestingafélags er dreg-
ið af skáldinu Percey B. Shel-
ley, sem fæddist árið 1792 á
þeim stað í Sussex sem félagið
hefur haft aðsetur.
»Sat skáldið þar undir eik-artré, sem enn stendur, og
fékk innblástur til að semja
mörg sín merkustu ljóð.
»Shelley féll frá aðeins 30ára gamall, hann þótti
framsækinn og hugmyndarík-
ur og segjast forsvarsmenn fé-
lagsins ætla að starfa sam-
kvæmt því.
Morgunblaðið/Golli
Fasteignir Shelley Oak mun m.a.
fjárfesta í íbúðum í London.
FORSTJÓRI
Coca-Cola á
Norðurlöndun-
um, Laurie McAl-
lister, er kominn
til landsins til að
fylgjast með
kynningarher-
ferð Vífilfells á
nýjum sykurlaus-
um kóladrykk,
Coke Zero. Full-
yrða þeir Vífilfellsmenn að þetta sé
stærsta herferð sem fram hafi farið á
íslenskum matvörumarkaði til þessa.
Það sé heldur ekki algengt að svo
háttsettir stjórnendur Coca-Cola-
verksmiðjunnar komi til að fylgjast
með slíkum herferðum. Árni Stef-
ánsson, forstjóri Vífilfells, segir að
nýi drykkurinn sé svar Coca-Cola
við sívaxandi eftirspurn eftir sykur-
lausum drykkjum. Æ fleiri neytend-
ur séu sér betur meðvitandi um að
draga úr sykurneyslu sinni og Coke
Zero sé niðurstaða áralangra til-
rauna Coca-Cola.
Fylgist með
kókherferð
Laurie
McAllister
AÐALFUNDUR Bakkavarar
Group fer fram föstudaginn 23.
mars nk. og meðal tillagna sem
liggja fyrir fundinum er að færa
hlutafé félagsins í sterlingspund,
sömu myntina og Bakkavör styðst
við í sínu bókhaldi. Einnig er komin
fram tillaga um að veita stjórn fé-
lagsins heimild til að hækka hluta-
féð um allt að tvo milljarða króna
að nafnvirði.
Verði þessar tillögur samþykktar
þá fjölgar þeim félögum í kauphöll-
inni sem hafa ákveðið að gefa út
hlutaféð í erlendri mynt. Þegar
hafa Straumur-Burðarás og nú Ex-
ista frá því í gær ákveðið að fara
með hlutaféð í evrur.
Bakkavör með
hlutafé í pund
VODAFONE hlaut hæstu ein-
kunn í flokki farsímafyrirtækja í
Ánægjuvoginni 2006 sem Samtök
iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent
Gallup sáu um framkvæmd á.
Mælir vogin ánægju viðskiptavina
íslenskra fyrirtækja og nokkra
aðra þætti sem hafa áhrif á hana,
s.s. ímynd, gæði þjónustu og
tryggð viðskiptavina. Hækkaði
Vodafone í einkunn frá fyrra ári,
sem mun hafa verið fátítt í mæl-
ingu þessa árs meðal annarra fyr-
irtækja.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri
Vodafone, segir að unnið hafi ver-
ið skipulega að því að bæta og
auka þjónustu fyrirtækisins. Verð-
launin séu ánægjuleg viðurkenn-
ing á árangri starfsmanna Voda-
fone. Mikilvægt sé að missa ekki
sjónar á því að tækninýjungar
geri ekkert einar og sér.
Verðlaun Starfsfólk Vodafone fagnar útkomunni í mælingu Ánægjuvog-
arinnar 2007 sem sýndi fyrirtækið efst í flokki farsímafyrirtækja.
Vodafone efst í
flokki símafélaga
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
VERULEG kólnun varð í íslenska
hagkerfinu í fyrra og hagvöxturinn
var þá væntanlega kominn undir
jafnvægishagvöxt eða „æskilegan“
hagvöxt til lengri tíma litið og raunar
má ætla að landsframleiðsla á hvern
mann í fyrra hafi dregist lítillega
saman.
Hagvöxturinn 2,6%
Þetta má lesa í nýbirtum áætlunum
Hagstofu Íslands en samkvæmt
þeim var aukning landsframleiðsl-
unnar í fyrra eða hagvöxturinn ekki
nema 2,6% en til samanburðar má
nefna að hann var 7,2% árið 2005 og
7,6% árið 2004.
Þegar horft er til þess að fólks-
fjölgun á Íslandi milli áranna 2005 og
2006 var líklega um 2,8% má ljóst
vera að framleiðsla á hvern mann
dróst lítillega saman milli áranna
2005 og 2006.
Þrátt fyrir að viðskiptakjör hafi
batnað frá árinu 2005 olli hallinn á
viðskiptajöfnuði því að þjóðartekjur
drógust saman 1,7% í fyrra en við út-
reikning þjóðartekna er tekið tillit til
breytinga á viðskiptakjörum gagn-
vart útlöndum svo og vaxta- og arð-
greiðslna. Sjálf viðskiptakjörin bötn-
uðu en aukning í nettó laun- og
fjármagnsgjöldum til útlanda átu
þann bata upp og gott betur.
Heimilin gíra niður
Drifkraftur hagvaxtarins í fyrra var
líkt og undanfarin ár mikill vöxtur
einkaneyslunnar sem jókst um 4,6%
að raungildi í fyrra sem þó er mikl-
um mun minna en árið 2005 þegar
hún jókst um nærfellt 13%. Því er
ljóst að verulega dró úr neyslugleði
heimilanna í fyrra og má fastlega
gera ráð fyrir að m.a. gengislækkun
krónunnar samfara hækkandi vöxt-
um hafi átt sinn þátt í því.
Fjárfesting í hagkerfinu í fyrra
jókst mikið eða um 13% en mikill
vöxtur hefur verið í fjárfestingu fjög-
ur ár í röð. Þjóðarútgjöld, sem eru
samtala neyslu og fjárfestinga, juk-
ust um 7,4% í fyrra sem er mun
minna en árið 2005 en þá jukust þau
um 15,5%.
Hagvöxtur
snarminnkar
Ætla má að landsframleiðsla á hvern
mann hafi dregist lítillega saman
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
EINS OG fram hefur komið hyggst
matsfyrirtækið Moody’s „fínpússa“
eins og segir í tilkynningu nýtt mat
sitt á lánshæfi banka vegna gagn-
rýni frá alþjóðlegum greinendum
sem hafa m.a. fullyrt að lánshæf-
iseinkunn íslensku bankanna fái
ekki staðist og gangi þvert á skoð-
anir og mat markaðarins á skuldum
þeirra.
Í tilkynningu Moody’s er tekið
fram að við þessa breytingu kunni
lánshæfiseinkunn sumra banka,
sem nýlega hefur verið hækkuð, að
lækka aftur og er sérstaklega vísað
til banka þar sem mikill munur er á
lánshæfiseinkunn og svokallaðri
sjálfstæðri einkunn (einkunn fyrir
fjárhagslegan styrkleika) en allir ís-
lensku bankarnir falla í þann flokk.
Því má segja að nær allir gangi að
því sem gefnu að lánshæfiseinkunn
íslensku bankanna verði lækkuð aft-
ur. Þetta mun væntanlega skýrast á
morgun eða annað kvöld en þá mun
Moody’s greina frá breyttum láns-
hæfiseinkunnum í einstökum lönd-
um eða hvenær þeim verður breytt.
Sérfræðingar Moody’s vörðust
allra fregna á símafundi nú í upphafi
vikunnar en í samantekt sérfræð-
inga Morgans Stanley vegna fund-
arins telja þeirra líklegast að láns-
hæfiseinkunn íslensku bankanna
verði lækkuð og þá um eitt eða tvö
þrep en tekið skal fram að þeir eru
nú með hæstu mögulegu ánshæfis-
einkunn Moody’s.
Gengi bréfa íslensku bankanna
hefur lækkað í vikunni og má vænt-
anlega rekja hluta lækkunarinnar
til óvissu vegna Moody’s.
Moody’s
spilar út á
morgun
Reiknað með lækkun
á lánshæfiseinkunn
íslensku bankanna
SKOSKI auðkýfingurinn Tom
Hunter, sem hefur verið talsvert í
samstarfi við Baug á hinum ýmsu
sviðum, ætlar að fjárfesta á fast-
eignamarkaði víðs vegar um Bret-
land með Bank og Scotland fyrir um
100 milljónir punda, um 13 milljarða
íslenskra króna. Í frétt á TimesOn-
line segir að fjárfestingafélagið
Grant Managemt muni annast fjár-
festingarnar undir nýjum sjóð,
Grant Fund Management.
Grant Management á fyrir fast-
eignir í tíu borgum á Bretlandi. Með
hinu nýja félagi er ætlunin að fjölga
þeim í 26 innan tveggja ár. Þess má
geta að fjárfestingafélag Hunters,
West Coast Capital, er m.a. stærsti
hluthafinn í félaginu Jötunn Hold-
ing, sem Baugur á 35% hlut í, en það
félag á um 1% hlut í Glitni. Baugur
og Hunter stóðu m.a. saman að
kaupum á bresku verslanakeðjunni
House of Fraser.
Hunter á fast-
eignamarkaði
í Bretlandi
◆
viðskipti/athafnalíf