Morgunblaðið - 15.03.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
S
amfélagsleg ábyrgð, sem á
ensku kallast „Corporate
Social Responsibility“
(CSR), má skilgreina á ís-
lensku sem ábyrgð fyrir-
tækja á rekstri sínum er nær til þess
samfélags og umhverfis sem þau
starfa í. Þetta er víð skilgreining og
innan hennar rúmast m.a. framlög
fyrirtækja til góðgerðarstarfsemi,
íþrótta- og félagsmála.
Túlkunin á samfélagslegri ábyrgð
fyrirtækja nær hins vegar varla
lengra í íslensku viðskiptalífi en til
slíkra framlaga, samkvæmt niður-
stöðum nýrrar meistaraprófsrit-
gerðar Huldu Steingrímsdóttur við
Viðskiptaháskólann í Gautaborg.
Markmið Huldu var að skoða
hvernig íslenskt viðskiptalíf þýðir og
skilur hugtakið samfélagsleg ábyrgð
fyrirtækja. Í því skyni tók hún viðtöl
við fimm Íslendinga úr viðskiptalíf-
inu, konur og karla. Í hópnum eru
stóreignamenn og allir hafa viðmæl-
endurnir mikla alþjóðlega reynslu
ásamt þekkingu á íslensku og er-
lendu viðskiptalífi.
„Viðmælendurnir höfðu sterkar
skoðanir á efninu og það var mjög
gaman og fróðlegt að taka þessi við-
töl,“ segir Hulda. Samdóma álit
þeirra var að það væri takmarkað að
skilgreina samfélagslega ábyrgð fyr-
irtækja sem framlög til góðgerðar-
mála. Þrýstingur á íslensk fyrirtæki
um að sýna samfélagslega ábyrgð
myndi aukast og stjórnendur fyrir-
tækja ættu að hugsa til lengri tíma.
Framlög til góðgerðarmála kalla
vissulega fram velvilja almennings
og veita fyrirtækjum auglýsingu til
skemmri tíma, en með því að hugsa
samfélagslega ábyrgð til lengri tíma
og flétta hana saman við kjarnastarf-
semi fyrirtækis, gildi og stefnu, mun
það koma frekar til góða.
En hvernig geta fyrirtæki sýnt
samfélagslega ábyrgð og er ekki af
hinu góða að þau láti fé af hendi
rakna til góðgerðarmála?
Hulda segir að sem dæmi um sam-
félagslega ábyrgð fyrirtækja megi
nefna bresku verslunarkeðjuna
Marks&Spencer sem kallar áætlun
sína Plan A. M&S selur eingöngu
siðgæðisvottað kaffi, te og bómull,
hefur ráðið 1.500 heilsuráðgjafa í
búðirnar, tvöfaldað matarinnkaup
frá Bretlandseyjum og minnkað
þannig flutninga, merkir allan mat
sem er fluttur með flugi, vegur upp á
móti útblæstri af völdum starfsem-
innar og fræðir ekki eingöngu starfs-
fólk sitt heldur líka viðskiptavini.
Önnur dæmi eru Cisco Systems, Pa-
tagonia og Whole Foods verslana-
keðjan sem Íslendingar kannast við.
„Það kemur fyrirtækjum til góða
ef stjórnendurnir hugsa um sam-
félagslega ábyrgð sem meira en það
að láta fé af hendi rakna,“ segir
Hulda. Hún vitnar í Michael Porter,
prófessor við Harvardháskóla, sem
sótti Ísland heim í haust sem leið.
Hann segir að fyrirtæki sem leggja
sitt af mörkum til lausnar fé-
lagslegra vandamála öðlist fremur
traust almennings en fyrirtæki sem
gefa einungis peninga.
Lífeyrissjóðir taki frumkvæði
Rannsóknir hafa ennfremur sýnt að
fjárfestingarsjóðir sem fjárfesta í
fyrirtækjum er sýna samfélagslega
ábyrgð, skila betri ávöxtun en aðrir.
Viðmælendur Huldu er á þeirri
skoðun að íslensku lífeyrissjóðirnir
ættu að taka frumkvæði í að krefjast
samfélagslegrar ábyrgðar fyrir-
tækja. Sterk staða lífeyrissjóða á Ís-
landi gefi þann þunga í umræðuna
sem nauðsynlegur er til að leiða í ljós
mikilvægi þess að fyrirtæki sýni
samfélagslega ábyrgð.
Viðmælendur Huldu nefndu ýmis
dæmi um það hvernig samfélagsleg
ábyrgð fyrirtækja getur birst: að
styðja verkalýðsréttindi, virða um-
hverfið, ekki misnota aðstöðu sína í
þróunarlöndum og að vinna gegn
spillingu. Að þeirra sögn eru íslensk
fyrirtæki að stíga sín fyrstu spor í að
sýna samfélagslega ábyrgð, en eiga
enn langt í land. Eins og einn orðaði
það:
„Íslendingar eru eins og hópur af
drukknum unglingum í bíl, öskrandi
og æpandi og leggja svo bílnum sem
þeir eru á í blómabeði nágrannans,
kasta út rusli og er alveg sama um
aðra!“
Ástæðu þess að Hulda vildi rann-
saka samfélagslega ábyrgð fyrir-
tækja á Íslandi má m.a. rekja til
starfa hennar að umhverfismálum í
mörg ár, en hún starfar nú hjá ráð-
gjafarstofunni Alta. Hulda er líf-
fræðingur að mennt og henni er hug-
leikin sjálfbær þróun, sem eins og
samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja
sameinar þrjár stoðir: peninga, fólk
og umhverfi. Í námi sínu í umhverfis-
stjórnun við Gautaborgarháskóla
kaus hún að rannsaka hvernig
„prestar nútímans“ skynja sam-
félaglega ábyrgð á Íslandi.
„Ég fann svo sterkt að prestar nú-
tímans eru þeir sem hafa náð mest-
um árangri í viðskiptum. Það sem
þeir segja er orðið.“
Og prestum nútímans varð auðvit-
að tíðrætt um hagnaðinn sem öllu
stýrir. Að mati a.m.k. tveggja við-
mælenda á að líta á hagnað fyrir-
tækja sem tæki til að bæta samfélag-
ið fyrir komandi kynslóðir, en ekki
sem trúaratriði eða markmið í sjálfu
sér. Stjórnendur fyrirtækja eru und-
ir þrýstingi frá hluthöfum um að
skila síauknum hagnaði en þeir mega
ekki gleyma skyldum sínum gagn-
vart samfélaginu, að mati viðmæl-
enda Huldu.
Ekki nýtt fyrirbæri
Það er á allra síðustu árum sem
orðasambandið samfélagsleg ábyrgð
fyrirtækja hefur orðið hluti af um-
ræðunni á Íslandi. Í raun var það
varla fyrr en undir lok síðasta árs
þegar haldin var ráðstefna um efnið
á Íslandi. Á vefjum Glitnis og Lands-
bankans er nú ennfremur fjallað um
samfélagslega ábyrgð í löngu máli.
Einn viðmælandinn benti á að
samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja væri
þó alls ekki nýtt fyrirbæri á Íslandi.
Gömul fjölskyldufyrirtæki hefðu
sjálfkrafa sýnt samfélagslega
ábyrgð þar sem þau voru mörg
stofnuð í þeim tilgangi að bæta lífs-
kjör á Íslandi. Hins vegar auglýstu
þau það ekki. Nú til dags auglýsi
stórfyrirtæki hins vegar framlög sín
til góðgerðarmála
Hulda segir að aukið vægi sam-
félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja í
umræðunni sé hægt að túlka svo að
eitthvað sé að gerast á Íslandi. Hún
bendir þó á að vissra efasemda hafi
gætt hjá viðmælendum hennar.
„Þeir óttast jafnvel að þetta tal um
samfélagslega ábyrgð sé bóla sem
springur. Enn sem komið er eru það
bara stór fyrirtæki sem hafa blandað
sér í umræðuna eða sett sér stefnu í
þessum málum og enn sem komið er
er túlkunin á hugtakinu takmörkuð
við góðgerðarstarfsemi fyrirtækja.
En það verður gaman að fylgjast
með umræðunni. Frekari rannsókn-
ir eru svo fyrirhugaðar á vegum Há-
skólans í Reykjavík. Þar verður bor-
ið saman CSR í fyrirtækjum á
Norðurlöndunum,“ segir Hulda.
Ábyrgir stjórnendur
eða drukknir unglingar?
Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja er orðasam-
band sem nýlega er orðið tamt fólki í íslensku
viðskiptalífi. Steingerður Ólafsdóttir ræddi
við Huldu Steingrímsdóttur sem skrifað
hefur meistaraprófsritgerð um þetta efni
við Viðskiptaháskólann í Gautaborg.
Morgunblaðið/Ásdís
Ábyrgð Hulda Steingrímsdóttir starfar nú hjá fyrirtækinu Alta í Reykjavík en meistaraprófsritgerð hennar frá
Viðskiptaháskólanum í Gautaborg fjallaði um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, með áherslu á Ísland.
Í HNOTSKURN
»Með vaxandi styrk ís-lenskra útrásarfyrirtækja
hefur umræða um samfélags-
lega ábyrgð þeirra aukist.
»Hulda Steingrímsdóttirtók í sínu meistaranámi
viðtöl við fimm einstaklinga
úr íslensku viðskiptalífi, bæði
konur og karla.
» Í hópnum voru stór-eignamenn sem allir höfðu
mikla alþjóðlega reynslu og
þekkingu á íslensku og er-
lendu viðskiptalífi.
steingerdur@telia.com