Morgunblaðið - 15.03.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 19
viðskipti/athafnalíf AnnarhfRekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is
a ÁrsreikningarBókhald
Skattframtöl
HREIN eign Stapa lífeyrissjóðs
til greiðslu lífeyris er um 84
milljarðar króna og lífeyrisþegar
eru um 21 þúsund talsins. Sam-
kvæmt tilkynningu frá sjóðnum
er hann fimmsti stærsti lífeyr-
issjóður landsins. Þá kemur fram
að jafnt kynjahlutfall er í að-
alstjórn sjóðsins, þrjár konur og
þrír karlar. Stapi varð til við
sameiningu Lífeyrissjóðs Austur-
lands og Lífeyrissjóðs Norður-
lands á ársfundum sjóðanna í síð-
ustu viku.
Heildariðgjöld sjóðanna
tveggja á síðasta ári voru 4,7
milljarðar króna. Sjóðirnir
greiddu alls 1,9 milljarða í lífeyri
í fyrra. Starfssvæði Stapa lífeyr-
issjóðs nær frá Hrútafirði í vestri
að Skeiðará í austri. Sjóðurinn
nær þannig til allra byggða-
kjarna á Norður- og Austurlandi.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórn-
ar Stapa lífeyrissjóðs var Björn
Snæbjörnsson, Akureyri, kjörinn
stjórnarformaður og Aðalsteinn
Ingólfsson, Höfn í Hornafirði,
varaformaður. Framkvæmda-
stjóri sjóðsins er Kári Arnór
Kárason.
Jafnt kynjahlutfall í nýrri
stjórn Stapa lífeyrissjóðs
Ljósmynd/Rúnar Þór
Stapi Stjórn Stapa á fyrsta fundi ásamt framkvæmdastjóra, f.v. Aðalsteinn
Ingólfsson, Sigurður Hólm Freysson, Anna M. Kristjánsdóttir, Björn Snæ-
björnsson, Ásgerður Pálsdóttir, Kári A. Kárason og Þorbjörg Þorfinnsd.
RAGNA Sara
Jónsdóttir hefur
verið ráðin til
starfa sem við-
skiptafulltrúi í
sendiráði Íslands
í Kaupmanna-
höfn. Ragna
Sara lýkur á
næstu mánuðum
mastersnámi í
viðskipta- og
þróunarfræðum frá Viðskiptahá-
skólanum í Kaupmannahöfn, að því
er segir í tilkynningu frá sendi-
ráðinu.
Hún lauk BA-gráðu í mannfræði
frá Háskóla Íslands árið 1997,
starfaði sem blaðamaður á Morg-
unblaðinu á árunum 1998–2000 og
einnig á árunum 2001–2003, og
hlaut m.a. fjölmiðlaverðlaun um-
hverfisráðherra vegna umfjöllunar
um virkjanakosti á hálendi Ís-
lands. Þá starfaði Ragna Sara sem
fréttaritari Morgunblaðsins í
Kaupmannahöfn á árunum 2003–
2006. Árið 2000–2001 var hún einn
þriggja þáttastjórnenda Kastljóss-
ins í Ríkissjónvarpinu og árið
2002–2003 var hún annar tveggja
umsjónarmanna sjónvarpsþátt-
anna Vísindi fyrir alla. Ragna Sara
er í sambúð með Stefáni Sigurðs-
syni, sem starfar við fyrirtækja-
ráðgjöf hjá Glitni í Kaupmanna-
höfn, og eiga þau tvö börn.
Ráðin við-
skiptafulltrúi
Ragna Sara
Jónsdóttir TRYGGINGADEILD Frjálsa
lífeyrissjóðsins skilaði 19,2%
ávöxtun árið 2006 sem er hæsta
ávöxtun deildarinnar frá stofnun
hennar, segir í tilkynningu. Eignir
umfram áfallnar skuldbindingar
voru 12,6% og eignir umfram
heildarskuldbindingar voru 8,1%.
Vegna sterkrar tryggingafræði-
legrar stöðu verða greiddar bón-
usgreiðslur úr tryggingadeild í
séreignadeild sjóðfélaga annað ár-
ið í röð. Að þessu sinni nemur
heildarbónusfjárhæðin 900 milljón-
um króna.
Há ávöxtun tryggingadeildar og
sjóðsins Frjálsa 1 er sögð skýrast
fyrst og fremst af hækkun er-
lendra verðbréfa og veikingu krón-
unnar, en markmið deildanna er
að hafa 35% af eignum í erlendum
verðbréfum. Hrein eign til
greiðslu lífeyris nam í lok árs um
60 milljörðum og jókst um 14,7
milljarða á milli ára, eða um 33%.
Þar af var ávöxtun ársins um 8,7
milljarðar. Iðgjöld til sjóðsins
námu um 4,9 milljörðum og jukust
um 10,8% á milli ára.
Metávöxtun
hjá Frjálsa
◆
HARALDUR Ingi Birgisson hef-
ur verið ráðinn sem lögfræðiráðgjafi
hjá Viðskiptaráði Íslands. Haraldur
mun ljúka meistaraprófi í lögfræði
frá Háskólanum í Reykjavík í vor.
Hann hefur áður starfað hjá Lands-
bankanum og Sparisjóði Kópavogs.
Davíð Þorláksson, sem verið hef-
ur lögfræðingur viðskiptaráðs frá
2005, hefur horfið til annarra starfa
hjá nýja fjárfestingabankanum Ask-
ar Capital, sem er að stærstum
hluta í eigu Milestone. Áður en Dav-
íð gekk til liðs við viðskiptaráð
starfaði hann m.a. hjá Íbúðalána-
sjóði.
Breytingar hjá
viðskiptaráði
◆