Morgunblaðið - 15.03.2007, Side 20
Brasilía
Rússland
Indland
Kína
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
–
9
0
7
0
2
4
4
Nýr heimur
fyrir fjárfesta
Rekstaraðili verðbréfasjóðsins er Rekstarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa www.spronverdbref.is.
B
ogi Nils Bogason er fæddur árið 1969 á Ak-
ureyri en sjö ára gamall fluttist hann til
Eskifjarðar þar sem hann ólst upp. „Þar var
frábært að vera, maður var á fullu í íþróttum,
helst skíðum, golfi og fótbolta. Jafnframt var
nóg að gera í fiskinum en ég byrjaði ungur að vinna, að-
allega í saltfiski og síld,“ segir Bogi en honum fannst sér-
staklega skemmtilegt að kynnast vertíðarstemningunni í
síldarsöltuninni. Það kom fyrir að þeir félagar komu beint
í skólann eftir að hafa unnið alla nóttina í síldinni. „Þetta
var frábær tími en kennararnir voru ekki alveg jafn
ánægðir með þetta og við félagarnir,“ segir Bogi.
Árið 1985 lá leið hans til Reykjavíkur og í Verzl-
unarskólann en þaðan lauk hann stúdentsprófi 1989. Síðan
fór hann í viðskiptafræði í Háskóla Íslands og lauk prófi
vorið 1993. Á námsárunum fór Bogi austur í fríum til að
vinna og spila fótbolta með því fornfræga liði, Austra frá
Eskifirði. Sumarið eftir útskrift úr háskóla vann hann í
bókhaldi hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar en réð sig svo um
haustið 1993 til KPMG. Árið 1998 hlaut hann löggildingu
sem endurskoðandi og varð meðeigandi hjá KPMG árið
1999. Hjá KPMG vann Bogi að endurskoðun félaga og
stofnana af öllum stærðum og gerðum. Jafnframt kom
hann talsvert að vinnu við áreiðanleikakannanir og verð-
möt á félögum. „Árin hjá KPMG voru mjög skemmtileg og
lærdómsrík. Þar var, og er, mjög hæft starfsfólk. Einnig
vann ég náið með starfsfólki og stjórnendum ýmissa fé-
laga sem voru í viðskiptum við KPMG og var það ómet-
anleg reynsla.“
Í sjávarútveginn og síðan bankaheiminn
Sumarið 2004 ákvað hann að breyta til og réð sig sem
framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandic Group hf.
„Ég hef alltaf haft áhuga á öllu því sem tengist sjávar-
útvegi og var því nokkuð fljótur að taka ákvörðun þegar
mér bauðst starf hjá Icelandic. Þar starfaði ég í tvö og
hálft ár og var það mjög viðburðaríkur tími. Ráðist var í
ýmsar fjárfestingar og miklar mannabreytingar áttu sér
stað, t.d. starfaði ég með fjórum forstjórum á þessu tíma-
bili. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika í rekstrinum var þetta
skemmtilegur tími og í starfinu vann ég með mörgu frá-
bæru fólki, bæði hér heima og erlendis,“ segir Bogi en
hann staldraði þó styttra við hjá Icelandic Group en
KPMG því í desember sl. ákvað hann skipta um kúrs og
gerast bankamaður. Þá tók hann við núverandi starfi sem
framkvæmdastjóra fjármála hjá Askar Capital. Um-
skiptin höfðu að hans sögn afar skamman aðdraganda.
Karl Wernersson og Tryggvi Þór Herbertsson kölluðu
Boga á fund og buðu honum að taka þátt í því að móta nýj-
an fjárfestingabanka. Það var tilboð sem hann segist ekki
hafa getað hafnað.
Á golfvöllinn með barnavagninn
Bogi er kvæntur Björk Unnarsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi sem er frá Eskifirði. Þau eiga þrjú börn, tvíburana
Boga Ísak og Jónínu Björk sem eru að verða 12 ára, og
Önnu Karen sem er rúmlega eins árs. En hvað gerir hann
þegar hann er ekki að sinna vinnu eða fjölskyldu?
„Áhugamálin snúast um íþróttir. Golfið hef ég stundað,
eins og vinnan hefur leyft, frá því ég var sjö ára. Þetta er
fjölskyldusport hjá okkur og eru allir í fjölskyldunni, nema
einn, meðlimir í Golfklúbbi Reykjavíkur. Það er ekki hægt
að stunda golfið og vera í krefjandi vinnu ef fjölskyldan er
ekki líka í sportinu,“ segir Bogi en þrátt fyrir að þeim
hjónum hafi fæðst dóttir á síðasta ári mun það ekki hafa
haft teljandi áhrif á golfiðkun þeirra. Stúlkan sé nú þegar
orðin fastagestur á Korpunni. Tvíburarnir eru að hans
sögn á fullu í fótbolta og fer frítíminn á sumrin að mestu í
að spila golf og fylgja þeim á fótboltamót hingað og þang-
að um landið. „Áður stunduðum við skíðin af kappi en
snjóleysi á höfuðborgarasvæðinu hefur dregið verulega úr
þeirri iðkun. Fyrir um fjórum árum var ég hættulega ná-
lægt því að fara yfir 0,1 tonn á vigtinni og keypti ég þá kort
í ræktina. Hef ég mætt þar nokkuð reglulega síðan, enda
er það nauðsynlegt – ekki hættir maður að éta og drekka,“
segir Bogi að endingu.
Bogi Nils Boga-
son er fram-
kvæmdastjóri fjármála hjá fjárfest-
ingabankanum nýja, Askar Capital.
Guðmundur Sverrir Þór bregður
upp svipmynd af Boga.
Morgunblaðið/Ásdís
Kylfingur Bogi Nils Bogason hjá Öskum Capital er vel
liðtækur golfari enda með meistaraflokksforgjöf.
Úr endurskoðun og sjávar-
útvegi yfir í bankaheiminn
sverrirth@mbl.is
SVIPMYND »
TILKYNNT hefur verið um
skilnað rússneska auðjöfursins
Roman Abramovich og eiginkonu
hans Irinu en þau hafa verið gift
í 16 ár og eiga fimm börn saman.
Samkvæmt frétt breska götu-
blaðsins The Sun mun Irina fá í
sinn hlut um 721 milljarð króna.
Samkvæmt glænýjum lista banda-
ríska viðskiptatímaritsins Forbes
er Abramovich í 16. sæti yfir auð-
ugustu menn heims. Forbes met-
ur auð hans á 1.268 milljarða
króna og ljóst er að sé frétt The
Sun rétt verður þetta dýrasti
skilnaður sögunnar. Roman
Abramovich er
helst þekktur
fyrir að vera
eigandi enska
knattspyrnu-
liðsins Chelsea
sem náð hefur
ágætis árangri
á undanförnum
árum en örlæti
Rússans í leikmannakaupum hef-
ur átt sinn þátt í því. Skilnaður-
inn mun ekki hafa áhrif á stöðu
félagsins en ef til vill gæti frúin
fyrrverandi keypt sér annað lið
ef hún vill.
Dýrasti skilnaðurinn
ÍTALSKA tískuhúsið Dolce & Gabbana (D&G) er
hætt að auglýsa vörur sínar á Spáni til að sköp-
unarkraftur þess verði ekki heftur. Ástæðan er
harkaleg gagnrýni á tiltekna auglýsingu fyrirtæk-
isins, sem sögð er lofsyngja ofbeldi gegn konum.
Frá þessu er greint í frétt á vef BBC-fréttastof-
unnar.
Í hinni umdeildu auglýsingu heldur vörpulegur
karlmaður, ber að ofan, ungri konu fastri við jörð-
ina. Annar og ekki minna vöðvastæltur karlmaður,
einnig ber að ofan, horfir á eins og honum sé sama
um það sem er að gerast.
Spænsk stjórnvöld lögðu blátt bann við því að
auglýsingin birtist á síðum blaða þar í landi í síð-
asta mánuði eftir að opinber kvennastofnun og
samtök neytenda gagnrýndu myndbirtinguna og sögðu hana lofsyngja
karlrembuofbeldi.
Auglýsing D&G hefur einnig verið bönnuð á Ítalíu og hefur tískuhúsið
nú fjarlægt hana af öllum mörkuðum.
Talsmaður D&G segir að tískuhúsið hafi neyðst til að fjarlægja auglýs-
inguna af markaði, þótt það sé skoðun stjórnenda þess að það sé fyrirtæk-
inu ekki fyrir bestu.
Auglýsing veldur usla á Spáni
ÚTHERJI þurfti nýlega að bregða
sér bæjarleið og tók fjölskylduna
með í bílinn. Ættarlaukurinn er mikill
áhugamaður um helstu óvini tann-
anna, þá Karíus og Baktus, og þurftu
aðrir fjölskyldumeðlimir að hlusta
nokkrum sinnum á leikritið í geisla-
spilara bílsins.
Þegar diskurinn var búinn að
hljóma um sex sinnum án truflunar
sló það Útherja að hann væri að
hlusta á umfjöllun um íslensku út-
rásina. Hann fékk óneitanlega þá
mynd í hugann að í augum útlend-
inga væru íslensku fyrirtækin ekkert
ósvipuð Karíusi og Baktusi. Litlir
karlar sem eru allduglegir við að afla
sér óvinsælda. Þetta á þó sér-
staklega við um Danina sem hafa
tekið innrás útrásarvíkingana mis-
vel, svo ekki sé meira sagt.
Þeir bræður gerðu þau reg-
inmistök að ætla sér um of, sem
varð til þess að Jens þurfti að heim-
sækja tannlækninn og allir þekkja
framhaldið. Ef til vill gerðu útrás-
arskáld okkar Íslendinga vel í því að
taka lífinu með ró og leyfa útlend-
ingum að venjast því að þeirra hagur
er okkar hagur.
Útrásarskáldin Karíus og Baktus
ÚTHERJI
Vörpulegir? Stofnend-
urnir, Steffano Gabbana
og Domenico Dolce.
MARGIR af tæknisérfræðingun-
um í Sílíkondalnum í Kaliforníu í
Bandaríkjunum, sem hafa verið á
kafi bæði í því mögulega og því
ómögulega sem Netið býður upp á,
hafa í auknum mæli snúið sér að
möguleikum sjálfbærrar orkufram-
leiðslu. Vindorka, sólarorka, etanól
og vetni eru nú ær og kýr margra
þeirra sem náðu langt, eða
dreymdi um að gera það, á árum
netbólunnar sem sprakk um síð-
ustu aldamót og einnig þeirra sem
fylgt hafa í kjölfar þeirra á tækni-
sviðinu.
Ekki bara Íslendingar
Íslenska félagið Geysir Green
Energy, sem FL Group, VGK-
Hönnun og Glitnir standa að, og
væntanlegt félag Landsbankans og
Landsvirkjunar, stefna hátt með
sjálfbærri orkuframleiðslu. En þeir
sem standa að þessum félögum eru
ekki þeir einu sem hafa trú á því
að sjálfbær orkuframleiðsla eigi
miklar framtíð fyrir sér.
Í frétt í bandaríska stórblaðinu
New York Times (NYT) segir að
peningamenn og fjárfestingasjóðir
í Bandaríkjunum séu farnir að ausa
peningum úr sjóðum sínum inn í
fyrirtæki í Sílíkondalnum, sem
bera nöfn eins og SunPower,
Nanosolar og Lilliputian Systems.
Þetta eru sprotafyrirtæki sem ætla
að ná langt í sjálfbærri orkufram-
leiðslu.
Áhugi tæknimannanna og pen-
ingamanna hefur smitað út frá sér
því lögfræðingar, endurskoðendur
og fleiri eru einnig sagðir sjá
gróðavonina í sjálfbærri orkufram-
leiðslu í Bandaríkjunum. Þeir
streymi nú til Sílíkondalsins alveg
eins og á tímum netbólunnar og
watt.com hafi komið í stað dot.com,
segir í frétt NYT.
Snúa sér frá Neti að wöttum
Reuters
Sólarorka Augu sérfræðinganna í Sílikondalnum í Kaliforníu hafa að undanförnu verið að opnast fyrir mögu-
leikum sjálfbærrar orkuvinnslu, sem felst til að mynda í vindinum, sólinni og á ýmsum fleiri sviðum.