Morgunblaðið - 02.04.2007, Page 18
18 F MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sími
586 8080
Mávahlíð - 3ja herb. - Reykjavík
Falleg 80,8 fm, 3ja herbergja íbúð í kjallara í 3býlis húsi við Mávahlíð 6. Þetta er björt og rúmgóð
íbúð, með stórri stofu, eldhúsi m/borðkrók, holi, 2 samhliða svefnherbergjum og baðherbergi
m/sturtu. Þetta er flott íbúð á vinsælum stað í 105 Reykjavík.
Verð kr. 19,5 m.
Lindarbyggð - Glæsilegt parhús
Til sölu mjög glæsilegt 177,1 fm parhús á einni hæð á fallegum stað í lokuðum botnlanga í Lindar-
byggð í Mosfellsbæ. Húsið er teiknað af Ingimundi Sveinssyni, arkitekt og mjög bjart og rúmgott.
Stór stofa með góðri lofthæð og borðstofa við hlið eldhúss. 4 góð svefnherbergi, sjónvarpshol og
glæsilegt baðherbergi. Bílskýli hefur verið lokað af og gæti vel nýst sem t.d. unglingaherbergi. Fal-
legur suðurgarður og hellulagt bílaplan.
Verð kr. 41,8 m.
Einbýlishús við Varmá
Erum með fallegt einbýlishús í sölu á einstökum stað við Varmána, rétt við Reykjalund. Um er að
ræða 166,7 fm einbýlishús í byggingu með bílskúr. Húsið, sem er tilbúið til innréttinga, er tvílyft
timburhús, klætt að utan með aluzink bjárujárni. Einstök 1.500 m2, skógivaxin eignarlóð, með lækj-
arniðinn á lóðarmörkum. Þetta er eign sem vert er að gefa gaum.
Verð kr. 48,5 m.
Litlikriki - Raðhús í byggingu
4ra íbúða raðhúsalengja til sölu við Litlakrika 16-22 í Mosfellsbæ. Húsin eru á einni hæð og verða
154 fm -164 fm að stærð með bílskúr. Húsin afhendast rúmlega fokheld, þ.e. auk fokheldis, verða
útveggir einangraðir og tilbúnir undir sandspartl og þak verður einangrað og rakavarið.
Verð kr. 30,5 - 32,5 m.
Tröllateigur 141-150 fm íbúðir
*AÐEINS EIN EFTIR* Til sölu ein 150 fm íbúð í nýju fjórbýlishúsi í byggingu við Tröllateig 41 í Mos-
fellsbæ. Húsið er eitt síðustu húsa í nýju hverfi sem er að rísa við miðbæð Mosfellsbæjar. Stutt er í
alla þjónustu, skóla og íþróttasvæði. Íbúðin er á efri hæð og afhendist fullbúin með innréttingum, en
án gólfefna, þó verður baðherbergi og þvottahús flísalagt. Íbúðin verður afhent í maí nk.
Verð frá kr. 31,5 - 32,5 m.
Skeljatangi - 4ra herb.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá fallega og rúmgóða 94,4 fm fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í litlu
fjórbýli við Skeljatanga í Mosfellsbæ. 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, stofa og eld-
hús. Sérgarður út frá stofu. Lítill barnaleikvöllur rétt við húsið og grunnskóli, leikskóli og ný sundlaug
í göngufæri.
Verð kr. 22,4 m.
Esjugrund - 248,7 fm einbýlishús
*NÝTT Á SKRÁ* 248,7 fm einbýlishús á tveimur hæðum með miklu útsýni út á sundin, við Esjugrund
26 á Kjalarnesi/Reykjavík norður. Efri hæðin skiptist í 4 góð svefnherbergi, stóra stofu og borðstofu
með arni og svölum, baðherbergi, gesta WC, sér þvottahús og lokað eldhús. Á jarðhæð er tvöfaldur
bílskúr með góðu vinnurými og salerni. Stór hornlóð og gott hellulagt bílaplan.
Verð kr. 44,9 m.
Barrholt - 225 fm einbýlishús
Fallegt 224,7 fm einbýlishús á einni hæð með bílskúr og vinnustofu við Barrholt í Mosfellsbæ. Um er
að ræða „hefðbundið“ 174 fm einbýlishús í Mosfellbsæ, en á síðasta ári var byggt við húsið 50 fm
vinnustofa sem eftir er að fullklára. Hún gæti einnig vel nýst sem stór bílskúr, unglingaherbergi eða
aukíbúðarrými. Frábær staðsetning, rétt við alla þjónustu og skóla.
Verð kr. 49,5 m.
*Eigum til sölu nokkrar einbýlishúsalóðir á svæði
3b*. Parhús og raðhúsalóðir til sölu á svæði 5 og 3b.
TILBOÐUM VERÐUR ÞÁ SVARAÐ INNAN 24 KLST.
Þetta er eitt af fallegustu byggingarlöndum á höfuð-
borgarsvæðinu, með Leirvogsá og Köldukvísl á sitt
hvora hönd. Á svæðinu verða eingöngu byggð ein-
býlis-, rað- og parhús. Kynntu þér málið á www.leir-
vogstunga.is eða hafðu samband við okkur á Fast-
eignasölu Mosfellsbæjar.
Einar Páll Kjærnested
löggiltur fasteignasali
Sími: 586 8080
Fax: 586 8081
www.fastmos.is
ATVINNUHÚSNÆÐI
Urðarholt - 371 fm atvinnu-
húsnæði
306,1 fm atvinnuhúsnæði ásamt 65,1 fm millilofti í
miðbæ Mosfellsbæjar. Í dag er Mosfellsbakarí
með verslun og framleiðslusal í húsinu. Þetta er
stórt atvinnuhúsnæði á góðum stað í vaxandi bæj-
arfélagi - hús sem vekur upp ýmsar spennandi
hugmyndir. Verð kr. 53,5 m.
Urðarholt - 150 fm atvinnu-
húsnæði
Erum með 150 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð í
miðbæ Mosfellsbæjar. Gott verslunarpláss og inn
af því hefur verið innréttuð íbúðaraðstaða. Gott
gluggapláss er út á bílastæðið og gott aðgengi.
Rýmið er til sölu eða leigu og getur verið laust til
afhendingar fljótlega.
LÓÐIR OG LÖND
9,7 ha land í Mosfellsdal.
9,7 hektara land á fallegum stað í Mosfellsdalnum.
Rammaskipulag á þessum stað í Mosfellsdalnum
gerir ráð fyrir ca 1 hektara lóðum undir einbýlishús
ásamt hesthúsum/gróðurhúsum. Suðurá liggur
meðfram landinu að austanverðu og Æsustaðafell
er að sunnanverðu.
Smábýli 5 - Kjalarnesi
Erum með ca 5,8 hektara lóð undir einbýlishús á
fallegum útsýnisstað í jaðri Esjunnar. Þetta er frá-
bært tækifæri fyrir þá sem vilja hafa rúmt í kring-
um sig, en þó í aðeins 10 mínútna fjarlægð frá allri
þjónustu. Verð kr. 27,0 m.
Byggingarlóðir í Mosfellsbæ