Morgunblaðið - 02.04.2007, Blaðsíða 54
54 F MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
564 1500
30 ára
EIGNABORG
Fasteignasala
LAXALIND 96 fm neðri sérhæð. Tvö
svefnherb., rúmgóð stofa, parket á gólf-
um, laus strax.
DIGRANESVEGUR 92 fm 4ra herb.
íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Búið er
að endurnýja íbúðina nokkuð mikið, m.a.
var þak málað á síðasta ári.
FÍFUHVAMMUR 84 fm íbúð á mið-
hæð í þríbýli. Vandaðar upprunalegar inn-
réttingar í eldhúsi, tvö svefnherb. 17 fm
bílskúr.
ENGIHJALLI 97 fm 5 herb. íbúð á 4.
hæð. Fjögur svefnherb., þvottahús á hæð,
laus fljótlega.
FURUGRUND Björt endaíbúð á 1.
hæð í suðurenda. Nýtt eldhús, parket og
marmari á holi og eldhúsi, stórir nýlegir
skápar í holi.
NÚPALIND Falleg 98 fm íbúð á 4. hæð
í lyftuhúsi. Flísalagt bað, ljósar innréttingar
í eldhúsi, þvottahús í íbúð, bílastæði í lok-
uðu bílahúsi, gott aðgengi fyrir hjólastóla,
laus strax.
HAMRABORG 70 fm 3ja herb. íbúð á
5. hæð í lyftuhúsi. Suðvestursvalir, þvotta-
hús á hæð. Íbúðin öll nýlega endurnýjuð.
Parket á gólfum, flísalagt í baðherbergi og
anddyri, mikið útsýni. Bílahús.
HLÍÐARHJALLI Glæsileg 169 fm
neðri sérhæð í suðurhlíðum Kópavogs.
Góð innrétting í eldhúsi, þrjú svefnherb.,
tvær stofur, merbau parket á gólfum, ný-
lega endurnýjað baðherb. með sturtu og
baðkari, sérmerkt stæði í bílahúsi.
FAGRIHJALLI 174 fm vandað tveggja
hæða parhús. 5 svefnherb., fallegar innr. í
eldhúsi, físalagt baðherb., massíft eikar-
parket á efri hæð, sjónvarps- og bóka-
herb. í risi. Einstaklingsíbúð er í bílskúr.
ÞRASTARLUNDUR 223 fm mikið
endurnýjað einbýlishús á einni hæð. 5
svefnherb., stórar stofur, sólstofa með
hita í gólfi, góð innr. í eldhúsi, flísalagt
baðherbergi sem er nýendurnýjað, tvö-
faldur bílskúr.
www.eignaborg.is
Sérlega glæsileg 166 fm efri sérhæð með innbyggðum 42 fm bílskúr sam-
tals 208 fm. Á efri hæð eru 4 svefnh. Rúmgóð stofa með arni. Glæsilegt
eldhús með vandaðri Alno hvítlakkaðri innréttingu, granitborðplata, vönd-
uð gaseldavél. Á neðri hæð er rúmgott herb., ásamt þvottahúsi. Innan-
gengt í bílskúr. Sérlega glæsilegur pallur með heitum potti, garðhýsi Góð
staðsetning og fallegt útsýni. Verð 42,5 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Kelduhvammur - Hf. sérhæð
Stórglæsileg ný 100 fm. enda íbúð á 2. hæð í nýju vönduðu húsi í miðbæ
Hafnarfjarðar. Íbúðin er til afhendingar strax, fullbúin með parketi á gólf-
um. Glæsilegar innréttingar, arkitekta-teiknuð íbúð. Granít borðplötur og
sólbekkir í stofu. Sérinngangur, forstofa, vandaður skápur, þvottaherbergi
inn af forstofu, vaskaborð þar. Hol tölvuaðstaða með borði, skápur. Björt
falleg stofa, útgengi út á s-v.svalir. Rúmgott svefnherbergi með skáp, gott
barnaherbergi með skáp, glæsilegt baðherbergi, baðkar m. sturtu. Flísar í
hólf og gólf. Rúmgóð sérgeymsla í kjallara. Húsið er steypt og klætt að ut-
an. Sér bílastæði. Frábær staðsetning, útsýni m.a. yfir höfnina. Öll þjón-
usta innan handar. Sjón er sögu ríkari. Verð 28,5 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Strandgata - Hf. Lúxusíbúðir
Nýtt hverfi í Garðabæ, sem hýsa
mun yfir 1.000 manns, er nærri
fullbúið, en það eru Húsakaup sem
standa fyrir frágangi og sölu
húsanna. Arnarneshæðin er síðasta
suðurhlíðin á höfuðborgarsvæðinu
sem er undir fimmtíu metrum fyrir
ofan sjávarmál.
Fólksfjölgun í Garðabæ
Undanfarin þrjú ár hafa ríflega
350 íbúðir verið byggðar í Garðabæ
enda mikil eftirspurn eftir húsnæði í
bænum. Í raun má segja að færri
hafi fengið en vildu. Undanfarna
mánuði hafa framkvæmdir haldið
áfram í Garðabæ og fyrir skömmu
voru teknar til sölu 40 nýjar íbúðir
til viðbótar við þau hús sem þegar
eru í sölu í nýju hverfi á Arnarnes-
hæð.
Á 10 árum hefur íbúum Garða-
bæjar fjölgað um tæp 25% og er
Garðabær nú sjötta stærsta sveitar-
félag landsins. Í dag eru íbúar
Garðabæjar 9.568 talsins. Þegar frá-
gangi við Arnarneshæðina er að
fullu lokið má búast við að þar muni
búa meira en 1.000 manns og þar
með skríður Garðabær yfir 10.000
íbúa markið. Engan skal undra
fjölgun í bænum enda Garðabær
einkar vel staðsettur á höfuðborg-
arsvæðinu og þekktur fyrir góða
þjónustu við íbúana.
Íbúðirnar sem nú fara í sölu eru í
fjórum tveggja hæða fjölbýlishúsum
við Hallakur og Haustakur á Arn-
arneshæð. Tíu íbúðir eru í hverju
húsi og tveir stigagangar. Íbúðirnar
eru þriggja til fjögurra herbergja,
106 til 145 fermetrar að stærð. Þær
eru afar vel skipulagðar, rúmgóðar
og bjartar með stórum suðursvölum
eða hellulagðri verönd og geta því
íbúar notið íslenska sumarsins til
fullnustu. Víðast er glæsilegt útsýni
til sjávar og fjalla. Allar íbúðir við
Hallakur eru með sérinngangi og
þvottahús ásamt stórri geymslu í
kjallara. Þær eru sérlega rúmgóðar,
svefnherbergi stór, stofan björt og
opin og eyja í eldhúsi. Allar innrétt-
ingar eru úr eik utan þvottahúss, en
þar er innréttingin hvít. Baðher-
bergi eru í mismunandi útfærslum
en alls staðar flísalögð að öllu leyti.
Hiti er í gólfum bæði í baðherbergi
og þvottahúsi. Íbúðunum er skilað
fullfrágengnum en án annarra gól-
fefna. Arkitekt húsanna er Kristinn
Ragnarsson.
Vel staðsett og miðlæg
Stutt er í allar stofnbrautir og
græn svæði. Í skipulagi hverfisins
hefur tekist að skapa gott jafnvægi
milli fjölbýlis-, rað- og einbýlishúsa
en alls verða 335 íbúðir í hverfinu.
Leikskóli og grunnskóli verða í
hverfinu og í jaðri þess er Fjöl-
brautaskólinn í Garðabæ. Gert er
ráð fyrir að hverfið verði fullbyggt
undir lok næsta árs. Arnarneshæðin
er einkar vel staðsett, á einum eftir-
sóttasta stað höfuðborgarsvæðisins
og er hún raunar síðasta stóra suð-
urhlíðin nálægt sjó. Hverfið er mið-
svæðis, góður aðgangur að helstu
stofnbrautum og því stutt að fara
hvort sem stefnan er tekin út á land,
á miðbæ Reykjavíkur, Hafnarfjarð-
ar eða Kópavogs. Þar að auki eru
stórir þjónustukjarnar á borð við
Smáralind, Smáratorg og Garðatorg
í næsta nágrenni.
Fasteignasalan Húsakaup hefur
umsjón með sölu íbúða við Hallakur.
Viðhaldsfrí hús
Húsin eru vönduð að allri gerð og
byggð samkvæmt nýjustu bygging-
artækni. Þau eru steinsteypt, klædd
báruðu áli að utan. Gluggar og svala-
hurðir eru úr tré en ytra byrði er
klætt með áli sem tryggir bæði há-
marks einangrun og lágmarks við-
haldskostnað. Í stuttu máli sagt
benda öll rök til þess að eftirspurn
eftir íbúðum á Arnarneshæð muni
verða mikil, ekki síst vegna þess
hversu vel hverfið er staðsett og
verð íbúða hagstætt. Íbúðirnar á
Arnarnesi eru því góð fjárfesting
sem vex þegar fram líða stundir.
Nýtt hverfi Þegar frágangi við Arnarneshæð er að fullu lokið má búast við að þar muni búa meira en 1.000 manns.
Nýtt hverfi fyrir 1000
manns í Garðabæ
Hafnarfjörður | Fasteignasalan
Húsakaup er með í sölu fallega og
sérstaklega vel staðsetta eign á út-
sýnisstað í Lindarbergi. Húsið er í
rólegri götu með frábæru útsýni til
suðurs og vesturs. Allur frágangur
að utan er til fyrirmyndar ásamt
garði í góðri rækt. Að innan er húsið
sérlega snyrtilegt og vel skipulagt.
Íbúðin er 154,6 fm auk 26,4 fm bíl-
skúrs. Stutt er í alla þjónustu, skóla
og íþróttir.
Komið er inn í forstofu með fata-
hengi. Frá forstofunni er annars
vegar gengið inn í gott forstofu-
herbergi með skáp og hins vegar inn
á gang og þaðan er gengið í önnur
rými íbúðarinnar. Á neðri hæðinni
eru að auki tvö góð barnaherbergi,
annað með skáp. Stofan/borðstofa er
sérlega rúmgóð með gluggum á tvo
vegu og glæsilegu útsýni til suðurs
og vesturs yfir Hafnarfjörð. Eldhús-
ið er fallegt með góðri innréttingu
og tækjum. Eldhúsið er aðskilið frá
stofunni með sérlega smekklegum
léttum vegg. Aukin lofthæð er yfir
stofunni og eldhúsinu með innfelldri
lýsingu. Þvottahús er á hæðinni en
frá því er innangengt í bílskúrinn.
Frá stofunni er hringstigi upp á efri
hæðina. Þar er komið í rúmgott fjöl-
skyldurými sem nýtist sérlega vel
sem sjónvarphol og tómstundarými.
Inn af því er mjög gott hjóna-
herbergi með fataherbergi og súð-
argeymslu. Á gólfum eru flísar á for-
stofu, baðherbergi og eldhúsi en
annars er parket á íbúðinni.
Óskað er eftir tilboðum.
Lindarberg 56a
Tilboð Fasteignakaup er með í sölu þess eign á útsýnisstað.