Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 30

Morgunblaðið - 02.04.2007, Síða 30
30 F MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Auðvitað er allt bísness, efþannig má komast að orði,en menn eru smám samanað átta sig á því að hönnun er engin mótsögn við hagnýtingu, það er bara fallegri leið til að hag- nýta hlutina,“ segir Eyjólfur. Óbilandi trú Eyjólfur stundaði nám við Kundhaandværkskolen í Kaup- mannahöfn og vann þar í borg um skeið eftir að náminu lauk. Sjálfur segir hann að þrátt fyrir byrjunar- erfiðleika er hann sneri aftur til heimalandsins hafi hann haft óbil- andi trú á því að hægt væri að auka skilning og virðingu fyrir hönnun á Íslandi. „Frá upphafi hef ég haft þetta að leiðarljósi og hugmyndin bak við Epal er einmitt þetta, að velja aðeins góða hönnun og gæðavörur fyrir við- skiptavinina. Mér hefur legið á hjarta að standa vörð um góða hönn- un og sjá til þess að eftirlíkingar eigi ekki upp á pallborðið. Auðvitað má fólk búa til það sem það vill, en að líkja eftir og láta sem það sé ekta er ekki rétt. Virðingin fyrir sköpun og hönnun er spurning um höfundarétt og sem betur fer hafa fleiri og fleiri áttað sig á því að þannig á þetta að vera,“ segir Eyjólfur. Orkuveita Eyjólfur hefur ekki bara rekið verslun og selt erlend gæðahúsgögn um áratuga skeið, hann hefur líka veitt íslenskum hönnuðum stuðning og aðstoð. Þannig séð hefur hann líka verið eins konar orkuveita fyrir íslenska hönnuði, þótt hann geri nú helst lítið úr þessari hlið starfsemi sinnar. „Mér er efst í huga að hlutirnir séu upprunalegir og að eftirlíkingar séu ekki leyfðar. Sem betur fer er þetta að verða að veruleika og nýj- asta dæmið er dómur í fyrsta kópíu- máli á Íslandi þar sem ítalska fyr- irtækið Magis vann.“ Hugmyndin að baki Epal er þess vegna svo einföld, að sögn Eyjólfs, að ekkert er selt í versluninni nema það sé upprunaleg hönnun og helst góð hönnun. Leiktjöld frá Epal Hér eru vörur heimsþekktra nor- rænna hönnuða boðnar fram; Alvar Aalto, Arne Jacobsen, Erik Jörg- ensen, Georg Jensen og Piet Hein eru meðal þeirra sem hannað hafa vörurnar sem seldar eru í Epal. Þess má reyndar geta að húsgögn og leikmynd í söngleiknum Leg eftir Hugleik Dagsson, sem frumsýndur var í vikunni, er allt fengið frá Epal. „Það þótti mér heiður og skemmtilegt öðrum þræði, en það sýnir bara hversu mikill skyldleiki er á milli hinna ýmsu listgreina. Það sem er vel gert er eftirsótt og þannig á það að vera,“ segir Eyjólfur. Sjálfur segist Eyjólfur Pálsson vera hugsjónamaður eða eins konar trúboði. Fyrir honum er hönnun gæðavara mikilvægari en allt annað. Í rúm 30 ár hefur hann rekið Epal og hann sér fyrir sér stækkun og styrkingu verslunarinnar á næstu árum. Krist- ján Guðlaugsson leit inn og ræddi við hönnuðinn og kaupmanninn Eyjólf. Í Epal er hönnunin hugsjón Hönnuður Eyjólfur Pálsson, innahússarkitekt, elskar góða hönnun. Listrænt Skálar og ljósastaki eftir hinn fræga dansk hönnuð Georg Jen- sen. Epal selur margar fleiri klassískar hönnunarvörur eftir meistarann. Íslenskt Erla Sólveig Óskarsdóttir hefur hannað þennan fallega sófa. Hringir Lampar eru ekki bara lampar þegar góðir hönnuðir eru annars vegar. Takið eftir hringunum sem gera lampann eins og síu fyrir ljósið. Húsnúmer Íslensk húsnúmer komu löngum frá Dansk emalje design.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.