Morgunblaðið - 02.04.2007, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 02.04.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2007 F 55 Lögg. fasteignasali Hrafnhildur Bridde Sigurberg Guðjónsson hdl. Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is Agnar Agnarsson, lögg. fasteignasali 820 1002 Halldór Ingi H. Guðmundsson, sölufulltrúi 899 3111 Hrafnhildur Bridde, lögg.fasteignasali 821 4400 Ísak V. Jóhannsson, sölustjóri 822 5588 Sigurberg Guðjónsson, hdl. Valdimar Óli Þorsteinsson, sölufulltrúi 822 6439 534 2000 www.storhus.is HÖRÐUKÓR, KÓP. PENTHOUSE! 196,3 fm íbúð á 10. og 11.hæð með stór- kostlegu útsýni. 3 svefnherb. og 2 stof- ur. Afhending verður í apríl. Verð 63,8 millj. HÖRÐUKÓR, KÓP. PENTHOUSE! 126,4 fm íbúð á 10.hæð með stórkost- legu útsýni. 3.svefnherb. Afhending verður í apríl. Verð 45 millj. HÓLAVAÐ, NORÐLINGA- HOLT Glæsilegt parhús á einni hæð. Húsin verða afhent fullbúin að utan en rúmlega fokheld að innan. BJARKARHEIÐI, HVERAG. LAUST! 138 fm raðhús á einni hæð. Tvö svefnherb., stofa, eldhús. Lagnakjallari er undir húsinu m/fullri lofthæð. Verð 26,8 millj. ÁSAKÓR, KÓP. TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR! Eigum eftir þrjár íbúðir á 1. 2. og 4. hæð í þessu glæsilega lyftu- húsi. Suðursvalir m/útsýni. Bílskýli ÁLFKONUHVARF, KÓP. 92,3 fm 3.herb.íbúð á 3.hæð (efstu) í ný- legu fjölbýli. Vandaðar innréttingar. Verð 22,8 millj. Áhv. 18,8 millj. KAFFI KLETTUR, EINBÝL- ISHÚS OG LÓÐ FYRIR HÓTEL Um er að ræða notalegan veitingastað í Reykholti, Biskupstungum. Verð 73 m LEIFSGATA , 101 RVK. Laus við kaupsamn.! Nýuppgerð 2ja herb. íbúð á 1.hæð. Frábær staðsetning, stutt í alla þjónustu. Verð 16,6 millj. Áhv. 10.millj ÍLS. HÁTÚN, 101 RVK. TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR! Nýuppgerðar 2ja herb. íbúðir á 1-6.hæð í þessu glæsilega húsi. Stærð frá 53-76 fm. Frábær stað- setning. Verð 18-27 millj. RAUÐALÆKUR, 105 RVK. 2JA HERB. 63 fm kjallaraíbúð í bakhúsi. Sérinngangur.Mjög rúmgóð stofa. Lítið niðurgrafin. Verð 15,9 m. Áhv. 9,3 m.ÍLS. LAUS! FLÉTTURIMI, 112 RVK. 2JA HERB. 69,7 fm íbúð á 2.h m/stórkostl. útsýni og sér 13 fm bílastæði í bílageymslu.Þvottah. í íbúð. Eldhús opið inn í stofu. Laus! Verð 17,9 millj. HRAUNBÆR,110 RVK. LAUS! 2ja herb, 63 fm íbúð á jarðhæð. Engar tröppur. Mikið endurnýjuð. Útg.út í garð. Verð 15,3 millj. STEINHELLA - ATVINNU- HÚSNÆÐI. 1920 fm. atvinnuhús- næði. 1.320 fm að grunnfleti með mögu- leika á rúmlega 600 fm millilofti. Verð 210 m. EYJASLÓÐ - ATVINNU- HÚSNÆÐI 128,5 fm iðnaðarhús- næði með innkeyrslu, afgreiðslu, eldhús, salerni og lager. LEIGA ERUM MEÐ TIL SÖLU SUMARBÚSTAÐALÓÐIR VIÐ SOGIÐ. AÐEINS 7. LÓÐIR EFTIR ! STÆRÐ FRÁ 8.000 - 11.000 FM. NÁNARI UPPL. Á SKRIFSTOFU. EINBÝLI ÓSKUM EFTIR KAUP- ANDA AÐ 400-500 FM EINBÝLISHÚSI Í KÓPAVOGI. ATH! HÖFUM VERIÐ BEÐIN AÐ ÓSKA EFTIR 3.HERB. ÚT- SÝNISÍBÚÐ Í LYFTUHÚSI MEÐ BÍLSKÚR EÐA SKÝLI. ÍBÚÐIN VERÐUR AÐ VERA LAUS SEINNI- PART Í APRÍL. VÆNTAN- LEGUR KAUPANDI ER BÚINN AÐ SELJA www.storhus.is 534 2000 Stofupottablómið alparós heitir á fagmálinu Rhodo- dendron simsi en gengur einnig und- ir nafninu Azalea indica en það eru blendingar sem eru ræktaðir upp af R. simsi og öðr- um tegundum stofulyngrósa. Mikill fjöldi blendinga og afbrigða er á markaði. Alparósin er í raun stofu- lyngrós en lyngrósirnar eru ekki eiginlegar rósir, enda eru þær af lyngætt en ekki rósaætt. Rhodo- dendron er dregið af gríska orðinu „rhodon“ sem þýðir rós og „dend- ron“ sem þýðir tré; þannig eru þetta rósatré á fagmálinu. Lyng- rósirnar eða Rhododendron eru sí- grænar en Azaleurnar eru yfirleitt lauffellandi. Lyngrósirnar eru upp- réttir, marggreindir, þéttvaxnir runnar sem eru vetrarblómstrandi í björtum og fallegum litum, af- skaplega fallegir og blómstra mik- ið, mislangt fram á vorið. Því er sjálfsagt að reyna að rækta þær, þó svo þær þarfnist smáumönnunar. Alparósin, eða stofulyngrósin, vill ekki vera í miklum hita því þá miss- ir hún bæði blöð og knúppa. Hún vill bjartan stað, þolir ekki beina sól en þolir samt vel íslenska vetrarsól og því svalari staður, þeim mun betra. Alparósir vilja fá mikla vökv- un og mega alls ekki þorna, sér- staklega á meðan þær eru í blóma og eru mjög kátar í háum loftraka. Í þeim tilfellum hjálpar oft að láta blómsturpottinn standa í skál með vatni í og hafa smásteina í botn- inum undir pottinum, þannig að rætur plöntunnar standi ekki í vatninu. Það er með alparósina eins og svo margar aðrar árstíðabundnar, blómstrandi pottaplöntur, að þeim er fleygt að blómgun lokinni. Það er í sjálfu sér allt í lagi enda má vel líta á þessar plöntur sem tímabundið augnakonfekt til ánægju- og ynd- isauka, enda tilgangur blómanna að gleðja sem þau vissulega gera. En það getur líka verið skemmtilegt að gera tilraunir og sjá hvernig til tekst. Helsti vandi við ræktun margra blómstrandi plantna er að halda þeim í góðu ástandi að blómg- un lokinni og oftast öllu erfiðara að fá þær til að blómstra aftur. Eftir að alparósin hefur fellt blómin er rétt að umpotta hana í stærri pott, færa hana á svalari stað og fljótlega ætti hún að taka við sér með aukn- um vexti. Þegar hlýtt er orðið úti og hætta á næturfrostum liðin hjá, má færa rósina út á svalir, á pallinn eða jafn- vel í beðið. Óhætt er að hafa hana úti yfir sumarið en gæta verður vel að vökvun. Best er að hafa hana á skjólgóðum og björtum stað. Alparós og aðrar lyngrósir vaxa í súrum jarðvegi eins og annar sí- grænn gróður. Gott er að gefa þeim veika lausn af fljótandi áburði hálfsmánaðarlega á meðan þær eru í vexti og í blóma. Eftir að blóm- knúppar byrja að myndast síðla sumars eru þær færðar inn í hús á ný á heitari stað og þá ættu þær að blómstra að nýju þegar líða fer á veturinn. Sé áhugi fyrir að prófa lyngrós í garðinn eða í sumarhúsalóðina, er venjulega úr töluverðu úrvali að velja hjá garðplöntustöðvum snemma vors. Fyrir byrjendur í lyngrósarækt mælir Ólafur Njáls- son með Rhodondendron ’Cunn- ingham’s White’, en hérlendis blómstrar hún venjulega mjög ríku- lega afskaplega stórum og fallegum hvítum blómum. Heppilegast er að gróðursetja hana í góðu skjóli þar sem vetrarmorgunsólin skín ekki á hana því sígrænn gróður er gjarn á að brenna þegar hann þiðnar hratt undan morgunsólinni eftir næt- urfrostið. Veðurguðirnir, staðsetn- ingin og jarðvegurinn sjá svo að einhverju leyti um hvernig útirækt- unin tekst til, en vissulega hjálpar að vera góður garðyrkjumaður. Alparós Höfundur er garðyrkjufræðingur, starfsmaður Garðyrkjufélags Ís- lands. www.gardurinn.is Alparós Einsog aðrar lyngrósir vex Alparós í súrum jarðvegi eins og annar sígrænn gróður 608. þáttur BLÓM VIKUNNAR Valborg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.