Morgunblaðið - 07.07.2007, Page 1
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ráðherrar þungir á brún Árni M. Mathiesen, Einar K. Guðfinnsson, Geir
H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jóhanna Sigurðardóttir.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„ÞAÐ kemur ekkert í staðinn fyrir
60 þúsund tonn af þorski,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs-
ráðherra eftir að hafa tilkynnt
ákvörðun sína um 130 þúsund tonna
hámarksþorskafla á næsta fisk-
veiðiári.
Ríkisstjórnin greindi á fundi í
gær frá mótvægisaðgerðum vegna
niðurskurðarins. „Ég tel að þetta sé
rétt ákvörðun,“ sagði Geir H.
Haarde forsætisráðherra. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráð-
herra tók í sama streng: „Ég er
þeirrar skoðunar að þetta sé rétt
ákvörðun en hún er auðvitað ekki
sársaukalaus.“
Mótvægisaðgerðirnar felast m.a.
í eflingu hafrannsókna og tvöföldun
framlags í verkefnasjóð sjávarút-
vegsins.
Ríkisstjórnin hefur jafnframt
ákveðið ákveðnar aðgerðir til að
styrkja atvinnulífið í byggðum sem
skerðingin kemur mest við.
Kvótaskerðing og mót-
vægisaðgerðir boðaðar
Í HNOTSKURN
» Í samræmi við tillögur Haf-rannsóknastofnunar verður
leyfilegur heildarafli í þorski
130 þúsund tonn á næsta fisk-
veiðiári.
Forsætisráðherra telur ákvörðunina rétta Hafrannsóknir efldar Framlag
í verkefnasjóð sjávarútvegsins tvöfaldað Aðgerðir til styrktar atvinnulífinu
Það kemur ekkert | Miðopna
STOFNAÐ 1913 183. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
LIFANDI JÖRÐ
ÍSLAND ÚR LOFTI: EINSTÖK MYNDARÖÐ
RAGNARS AXELSSONAR >> LESBÓK
LANDSLIÐSTAKTAR
HELGA SIGURÐSSONAR
KJARKUR
MARKAHRÓKUR >> ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
DÓMUR vegna meintrar nauðg-
unar á salerni Hótels Sögu er ekki
síst athyglisverður vegna þess að
framburður konunnar er talinn trú-
verðugur en í framburði mannsins
voru aftur á móti veilur. Var mað-
urinn sýknaður þar sem háttsemi
hans taldist ekki ofbeldi eins og
hugtakið hefði verið skýrt í refsi-
rétti.
Ragnheiður Bragadóttir, prófess-
or í refsirétti við lagadeild Háskóla
Íslands, telur ofbeldishugtakið skil-
greint of þröngt í dóminum.
Mannréttindadómstóllinn telur
mótspyrnu ekki nauðsynlega
Bendir hún á að ofbeldishugtakið
hafi þróast auk þess sem leggja eigi
áherslu á verknað geranda en ekki
viðbrögð þolanda. Er sá skilningur
lagður til grundvallar í greinargerð
með frumvarpi að nýjum hegning-
arlagaákvæðum um kynferðisbrot,
sem samþykkt voru á Alþingi sl.
vor. Er þar m.a. vísað til dóms
Mannréttindadómstóls Evrópu þar
sem fram kemur að þolandi kyn-
ferðisbrots eigi að njóta refsivernd-
ar þótt hann veiti ekki líkamlega
mótspyrnu.
Ragnheiður telur að í háttsemi
mannsins, eins og henni er lýst í
dóminum, hafi falist ofbeldi. Við
skýringu á ofbeldishugtaki nauðg-
unarákvæðisins er ekki gerð krafa
um líkamlega áverka og þess verður
ekki krafist að þolandi veiti virka
mótspyrnu. Því þurfi lítið til svo að
ofbeldi teljist beitt. Nauðgunar-
ákvæðið tekur til þeirra tilvika þar
sem kynmök fara fram án sam-
þykkis þolanda og í dóminum sé í
raun fallist á að mökin hafi verið
gegn vilja konunnar.
Þá bendir Ragnheiður á að við-
brögð þolanda, að frjósa og fá
„sjokk“ eða lamast, séu löngu þekkt
sem algeng viðbrögð þolenda
nauðgana. Ekki verði séð að at-
burðarásin í heild hafi gefið geranda
tilefni til að álíta að vilji þolanda hafi
staðið til þess sem þarna gerðist.
Hvenær
er ofbeldi
beitt?
Prófessor ósam-
mála héraðsdómi
Morgunblaðið/Golli
Vettvangurinn Atvikið átti sér stað
á salerni á Hótel Sögu í mars.
STUNDUM er stutt á milli þess að vera flugmaður og sjómaður. Það var
heitt á Ísafirði í gær, svo drengirnir í bænum ákváðu að kæla sig með því
að stökkva útbyrðis af Gunnbirni ÍS. Sjórinn var að þeirra sögn ylvolgur.
Ljósmynd/Kári Þór Jóhannsson
Manndómsraun á Ísafirði
FORSETI bæjarstjórnar Snæfells-
bæjar, Ásbjörn Óttarsson, segir að
ómögulegt sé að ná endum saman í
rekstri bæjarfélagsins vegna þeirr-
ar miklu tekjuskerðingar sem
þorskkvótaskerðingin mun hafa í
för með sér. Hann telur ákvörðun
sjávarútvegsráðherra gjörsamlega
galna og segir að menn verði að
fara að átta sig á því að vandamálin
sem hún hafi í för með sér verði
ekki leyst með því að koma fáeinum
sveitarfélögum á Vestfjörðum til
hjálpar.
Björn Ingimarsson, sveitarstjóri
Langanesbyggðar, segir að þótt
áhrif niðurskurðar á þorskkvóta
verði lítt áberandi í stærstu
byggðakjörnum landsins sé líklegt
að þau geti falið í sér endanlegt
hrun í smærri byggðakjörnum á
Norðausturlandi.
Ekki er hljóðið skárra í forseta
Farmanna- og fiskimannasambands
Íslands, Árna Bjarnasyni: „Það er
alveg skuggalegt hljóð í mönnum.
Margir af reyndustu skipstjórum
okkar eru búnir að tala við mig og
þeir segjast ekki ætla að eyða síð-
ustu starfsárunum í það að reyna
að ljúga menn út á sjó fyrir enga af-
komu.“ Árni segist hafa beyg af því
að ganga til samningaborðsins við
útgerðarmenn fyrir hönd sjómanna
vegna þess hve veiðiheimildirnar
eru orðnar litlar. | 11
Lífskjörum í sjávar-
plássum teflt í tvísýnu
Einar K. Guðfinnsson: „Gríðarleg
vonbrigði“
VEFVARP mbl.is