Morgunblaðið - 07.07.2007, Page 2

Morgunblaðið - 07.07.2007, Page 2
2 LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Baldur Arnarson í Moskvu RÚSSNESKA rétttrúnaðarkirkjan hefur í hyggju að efla umsvif sín á Íslandi og biðlar til íslensks við- skiptalífs um að styrkja byggingu kirkju sem fyrirhugað er að reisa við Mýrargötu í Reykjavík. Þetta kom fram á fundi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, með Kirill, ráðgjafa rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í utanríkismálum, á dvalarstað patrí- arkans Alexey II., æðsta leiðtoga kirkjunnar í Moskvu í gær. Loftslagsbreytingar ræddar Kirill var staðgengill patríarkans Alexey II., æðsta yfirmanns rétt- trúnaðarkirkjunnar í Rússlandi, en alls bera fimmtán þann titil í jafn mörgum rétttrúnaðarkirkjum heimsins. Mun fleiri gegna hins vegar stöðu Kirills sem ber titilinn metropolitan. Með þeim á fundinum voru Tim- othy Zolotuski, prestur rétttrún- aðarkirkjunnar á Íslandi, og Alex- ander A. Rannikh, fyrrum sendiherra Rússlands á Íslandi, og sagðist sá síðarnefndi binda vonir við að kirkjubyggingin – sem yrði úr timbri – á Mýrargötu gæti orðið „ein af perlum Reykjavíkur“. Umræðuefni fundarins voru fjöl- breytt og voru hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga á íslenska nátt- úru meðal þess sem Kirill vildi vekja athygli á, hann taldi óvenju mildan vetur í Moskvu í ár til vitnis um að lofthjúpurinn væri að hlýna. Vilhjálmur vakti einnig máls á þessum vanda og sagði Íslendinga hafa virkan áhuga á umhverfis- málum. Eitt af markmiðum þess- arar heimsóknar væri að kynna fyr- ir Moskvu stefnu Reykjavíkur í orkumálum þar sem endurnýjanleg orka væri í fyrirrúmi. Með slíkri orkunotkun væri dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda enda óþrjótandi tækifæri til þess að virkja hreinar orkulindir í Rúss- landi, sem og víðar í Austur- Evrópu. Þorvald víðförla og athafnir hans í Rússlandi bar einnig á góma en báðir voru leiðtogarnir sammála um að margir samhljómar væru í menningu ríkjanna tveggja. Við lok fundarins skiptust þeir svo á gjöfum, Kirill fékk Hávamál en Vilhjálmur forláta ferðatösku með máluðum íkonamyndum sem eiga sér djúpar rætur í myndlist- arhefð Rússa. Biðlar til íslensks viðskiptalífs Morgunblaðið/Baldur Moskvufundur Vilhjálmur borgarstjóri, ásamt konu sinni, Guðrúnu Kristinsdóttur, skiptist á gjöfum við Kirill, ráðgjafa rússnesku rétt- trúnaðarkirkjunnar í fundinum sem var haldinn í Moskvu í gær. BORGARYFIRVÖLD hafa nýlega gengið frá samningi við rétttrún- aðarkirkjuna á Íslandi um staðsetn- ingu kirkju, sem ætla má að rísi á næstu árum, sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipu- lagsráðs Reykjavíkurborgar, að loknum fundinum í Moskvu í gær. Í fréttatilkynningu segir að kirkjan muni rísa á Mýrargötu 20 og útlit hennar muni bera einkenni rúss- neskrar byggingarhefðar. Hæð kirkjunnar verður um 20 m og stærð byggingarinnar á bilinu 600- 950 ferm. Málið er þegar búið að fara í aug- lýsingu sem lauk 13. júní og bárust athugasemdir vegna bílastæða sem eru til skoðunar. Skipulagsráð hef- ur verið samdóma í því áliti sínu að kirkjubygging á þessu svæði skapi spennandi fjölbreytni og undir það tóku margir íbúar í ábendingum sínum og athugasemdum, að sögn Hönnu Birnu. Rétttrúnaðar- kirkja rísi við Mýrargötu  Borgarstjóri Reykjavíkur ánægður með fund sinn með fulltrúa rétttrúnaðarkirkjunnar í Moskvu  Bindur vonir við að kirkja rétttrúnaðarkirkjunnar gæti orðið ein af „perlum“ Reykjavíkur ÁRNI M. Mathiesen, fjármálaráðherra og 1. þingmaður Suðurkjör- dæmis, segir kjördæmi sitt verða fyrir mjög miklum áhrifum vegna skerðingar á þorskkvóta. Nefnir hann að fimm af stærstu þorskhöfnunum á landsbyggðinni séu í kjördæminu, þar á meðal Grindavík, Vestmannaeyjar og Höfn í Hornafirði. Um óánægju með niðurskurð- inn segir Árni: „Auðvitað vildu allir hafa niðurskurðinn minni en fólk hefur almennt skilning á að það er búið að reyna þá mála- miðlun að byggja stofninn hægar upp og skerða kvótann minna frá ári til árs.“ Mismunandi aðstæður Sértækar mótvægisaðgerðir í kjördæm- inu segir Árni mótast af aðstæðum hverju sinni. Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar segir hann verkfærakassa, en mismunandi verkfæri þurfi að nota á hverjum stað. Nefnir Árni viðhald á opinberum bygg- ingum sem dæmi um mótvægisaðgerð sem eigi við víðast hvar. Fjölbreytni í atvinnu- lífi kjördæmisins segir hann hjálpa á heild- ina litið en „til þess að geta nálgast verk- efnið án þess að valda frekari þenslu en ná samt til þeirra sem verða fyrir áhrifunum þarf að beita klæðskerasaumuðum aðferð- um á hverjum stað. Grindavík taldist ekki veikt pláss fyrir, en áhrifin verða mikil þar. Vestmannaeyjar og Höfn eru veikari fyrir. Í Eyjum hefur fólki fækkað og þenslan undanfarin ár hefur ekki náð til Hafnar.“ Farvegurinn er þegar til staðar Fyrir Höfn og Vestmannaeyjar segir Árni farveginn fyrir aðgerðir þegar til staðar. „Í Vestmannaeyjum og á Höfn er nýbúið að opna útibú frá Fiskistofu. Þar er vísir að opinberri eftirlitsstarfsemi. Eins eru þar útibú frá Matís með rannsókn- arstarfsemi og tengslum við háskólastarf- semi. Kjarninn sem við viljum byggja utan um er þess vegna til staðar. Það er hægt að færa verkefni til útibúanna og auka umsvif þeirra.“ „Klæðskera- saumaðar aðgerðir“ Árni M. Mathiesen MIKILL fjöldi ferðamanna hefur sótt land og þjóð heim það sem af er sumri. Að venju er það íslensk náttúra sem freistar fólks og ein vinsælasta afþrey- ingin er að fara hinn Gullna hring. Ferðamenn sem staddir voru í Haukadal á dögunum horfðu hug- fangnir á Strokk gjósa enda tilkomumikil sjón. Gera má ráð fyrir að yfir fimmtán hundruð manns ferðist um Gullna hringinn á dag þegar fjöl- mennast er og því margt um manninn þegar hver- inn byrjar að gjósa. Veðrið hefur þá verið ein- staklega gott að undanförnu og eflaust tryggt landinu góða kynningu. Víða um land verður hægur vindur og nokkur úr- koma í dag en léttir víða til þegar líður á daginn, fyrst norðan til. Hiti verður á milli 10 og 20 stig, hlýjast í innsveitum Norður- og Austurlands. Morgunblaðið/ÞÖK Hugfangin horfðu þau á Íslensk náttúra skartar sínu fegursta BJÖRN Hallgrímsson ehf. hefur keypt hlut Ernu ehf. í Árvakri hf., útgáfufélagi Morgunblaðsins og Blaðsins. Björn Hallgrímsson ehf. átti fyr- ir 8,4% í félaginu og hefur nú keypt jafnstóran hlut Ernu ehf. Nemur eignarhlutur Björns Hall- grímssonar ehf. nú 16,74%. Eigendur Björns Hallgrímsson- ar ehf. eru systkinin Kristinn Björnsson, Emilía B. Björnsdóttir, Áslaug Björnsdóttir og Sjöfn Björnsdóttir. Auka við hlut sinn í Árvakri ♦♦♦ GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heilbrigðisráð- herra segir á dag- skrá ráðuneytis síns að endur- skoða lög um læknaráð sem sett voru árið 1943 en í frétt Morgunblaðsins í gær kom fram í máli landlæknis, Matthíasar Hall- dórssonar, að lögin væru úr sér gengin og nauðsynlegt að breyta þeim. „Við munum væntanlega skipa sérstakan vinnuhóp sem fer yfir þessi mál með Læknafélaginu og öðrum aðilum. Ég held að það sé rétt að þessi lög eru komin til ára sinna og þau taka mið af þeim tíðaranda sem þau voru samin í,“ segir Guð- laugur og bendir jafnframt á að til- raun hafi verið gerð til að breyta lög- unum árið 1994 og frumvarp m.a. lagt fyrir Alþingi. „Og læknaráðið var aftur til umræðu þegar lögin um heilbrigðisþjónustu voru endurskoð- uð. Þannig að okkur er ekkert að vanbúnaði að klára þetta mál.“ Ekkert að vanbúnaði Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.