Morgunblaðið - 07.07.2007, Side 10
10 LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kæri sjúklingur, við erum nýja teymið í heilbrigðisgeiranum.
Helga Sveinsdóttir | 6. júlí 2007
Get ekki orða bundist
Ég bara á ekki til orð
yfir þetta mál.
Ég hélt að svo lengi
sem ég segi ekki Já við
viðkomandi um að
stunda kynmök við
hann að þá sé það
nauðgun.
Ég veit að nei þýðir nei og já þýðir
já en það er nú bara þannig að þegar
fólk lendir í þessum aðstæðum þá er
ekki alltaf hægt að segja nei, því það
er svo mismunandi hvernig áfallið
kemur.
Meira: lost.blog.is
Hlynur Þór Magnússon | 6. júlí 2007
Hver skrattinn hefur
hlaupið í sjávar-
útvegsráðherra?
Einkennileg og for-
dæmislaus er sú
ákvörðun Einars K.
Guðfinnssonar sjáv-
arútvegsráðherra, að
fara að ráðum vísinda-
manna varðandi þorsk-
veiðikvótann. Fram að þessu hafa
ráðherrar ævinlega hunsað álit vís-
indamanna og látið veiða mun meira
en skynsamlegt hefur talist.
Meira: maple123.blog.is
Palli Pé | 6. júlí 2007
ÍA-Keflavík
Þessi var vondur við
mig og þessi gerði þetta
og veistu að þessi réðst
á mig og hótaði mér og
þessi þarna var dóna-
legur og konan hans
var vond við mig og ég ekki við hana
og hann átti ekki að skora, hann er
rosa vondur og ég kýla hann og nei
hann kýldi mig.
Hvað er að þessu liði? Umdeilt
mark vissulega en þessar froðu-
heimsku rökræður á opinberum vett-
vangi er forheimskandi fyrir alla.
Meira: stundinokkar.blog.is
Þröstur Helgason | 6. júlí 2007
Endurnýjunargjald
Sjóvár
Þeir sem tryggja hjá
Sjóvá þurfa að greiða
svokallað endurnýj-
unargjald þegar þeir
eru rukkaðir um trygg-
ingargjaldið á ári
hverju. […]
Þór Sigfússon, forstjóri fyrirtæk-
isins, segir gjaldið vera lið í þeirri
stefnu þess að viðskiptavinir sem noti
þjónustu sem aðrir noti ekki þurfi að
greiða fyrir viðkomandi þjónustu.
„Rétt eins og þeim ökumönnum sem
síður eru líklegir til að lenda í alvar-
legum slysum verður gert kleift að
greiða minna fyrir ökutækjatrygg-
ingar munu þeir sem greiða iðgjöld
sín rafrænt losna við að borga sér-
stakt 200 króna endurnýjunar- eða
útgáfugjald sem tryggingafélagið
hefur rukkað fyrir síðustu tvö ár,“
segir Þór.
Málið er hins vegar að gjaldið hef-
ur verið rukkað í tvö ár en það verður
ekki hægt að sleppa við að greiða það
fyrr en í haust.
Þetta er mjög undarlegt […]
Seðilgjald er jú í raun og veru ekk-
ert annað en gjald sem viðskiptavin-
urinn greiðir fyrir að „fá að“ end-
urnýja viðskipti sín við fyrirtækið.
Maður hefði haldið að fyrirtæki
gerðu þvert á móti allt til þess að fá
viðskiptavini til þess að endurnýja
viðskipti sín við sig! Að rukka mann
sérstaklega fyrir að vilja endurnýja
viðskiptin er fáránlegt. Auðvitað hef-
ur þetta eingöngu viðgengist vegna
þess að viðskiptavinirnir eru al-
gjörlega vitundarlaus hjörð.
Sjálfur hef ég verið lengi í við-
skiptum við Sjóvá en íhuga nú að
skipta um tryggingafélag vegna
þessa gjalds sem ekkert annað félag
innheimtir. […] Á sama tíma hafa
tryggingar mínar hjá félaginu hækk-
að verulega. Frá síðasta ári hafa þær
hækkað um rúmlega tíu þúsund
krónur. Og auðvitað er það brandari
að „þeim ökumönnum sem síður eru
líklegir til að lenda í alvarlegum slys-
um verði gert kleift að greiða minna
fyrir ökutækjatryggingar“. Ég hef
aldrei valdið tjóni þessi 20 ár sem ég
hef verið í viðskiptum við Sjóvá og
enn hækka tryggingagjöldin hjá mér.
Ég kannast ekki við að hafa fengið
einhverja sérstaka lækkun á gjöldum
vegna þess að ég keyri varlega.
Meira: vitinn.blog.is
Bjóðum nú frábært sértilboð í viku á Hotel Rhodos Palace með hálfu
fæði. Frábær valkostur sem býður góðan aðbúnað fyrir hótelgesti.
Njóttu lífsins í fríinu á eyju sólarinnar. Ath. Mjög takmarkaður fjöldi
herbergja í boði á þessu frábæra verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Rhodos
14. og 21. júlí
Sértilboð á Rhodos Palace - m/hálfu fæði
frá kr. 49.990
Gott hótel m/hálfu fæði - örfá herbergi í boði!
Verð kr. 49.990 - hálft fæði
Netverð á mann , m.v. gistingu í tvíbýli með
hálfu fæði í hótelherbergi á Rhodos Palace í
viku.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
VEÐUR
Nú eru breytingar framundan íHæstarétti. Hrafn Bragason
hæstaréttardómari hefur sagt
starfi sínu lausu eins og tilkynnt
hefur verið opinberlega.
Raunar erunokkrar vik-
ur liðnar frá því
að dómarinn
baðst lausnar en
það reyndist
ómögulegt fyrir
Morgunblaðið að
fá það staðfest
fyrir nokkru. Af
hverju er það svona mikið leynd-
armál að dómari við Hæstarétti
segi af sér? Af hverju þarf að fara í
felur með það í nokkrar vikur?
Nú verður fróðlegt að sjá hvaðgerist við næstu skipan dómara
í Hæstarétt. Hverjir sækja um?
Hver verður skipaður en þó alveg
sérstaklega hvernig verður staðið
að þeirri skipan?
Eiga þeir dómarar sem fyrir eru íréttinum enn einu sinni að gefa
umsækjendum einkunnir? Getur
það verið?
Er ekki öllum ljóst að það kerfiheyrir fortíðinni til?
Má kannski búast við því að ein-hverjir hæstaréttardómarar
reyni að hafa áhrif á það hverjir
sækja um dómarastöðuna?
Það getur varla verið. Einhvernúverandi dómara var í hættu
staddur fyrir nokkrum árum þegar
það var reynt og gerir varla slíka
tilraun aftur.
Vonandi og kannski fer þettafram með skikkanlegum hætti.
Það eru margir hæfir lögfræðingar
á Íslandi sem eiga heima í Hæsta-
rétti. Vonandi sækja einhverjir
þeirra um.
STAKSTEINAR
Hrafn Bragason
Breytingar í Hæstarétti
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
"
"#$
%%&
"
" &
"
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
!
$%%$
:
*$;<
!
"#
$
%
*!
$$; *!
' (
)
*
=2
=! =2
=! =2
')( %$+
%&
,-#$%.
>2?
62
8
&
'&
(
$
;
%
&
)
)
$
*
*
%
+
"#
/0$$ 11
%$2
#+
%&
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C
3
3!
!
3
3
3
3
3
3
3
3!
3
3
3
3
3!
3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
BLOG.IS