Morgunblaðið - 07.07.2007, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
RÉTT ÁKVÖRÐUN
Það er alveg sérstök ástæða tilað fagna ákvörðun Einars K.Guðfinnssonar sjávarútvegs-
ráðherra og ríkisstjórnarinnar um að
fylgja ráðgjöf Hafrannsóknastofnun-
ar um þorskafla á næsta fiskveiðiári.
Þessi ákvörðun var erfið og hún kall-
ar margvíslega erfiðleika yfir fólk og
fyrirtæki í landinu og þá alveg sér-
staklega í sjávarþorpunum í kringum
landið en hún leiðir til þess að í fyrsta
skipti verður raunverulega látið á
það reyna, hvort fiskifræðingarnir
hafa rétt fyrir sér.
Morgunblaðið hefur hvatt til þess
að ráðgjöf Hafró yrði fylgt en á rit-
stjórn blaðsins voru miklar efasemd-
ir um að það yrði gert í ljósi fyrri
ákvarðana ráðherra og ríkisstjórna.
En nú hefur ríkisstjórn Geirs H.
Haarde tekið þessa skynsamlegu
ákvörðun. Hún er fagnaðarefni og nú
kemur í ljós á næstu árum hver staða
fiskifræða okkar er.
Ráðgjöf Hafró og ákvörðun sjávar-
útvegsráðherra valda sjávarbyggð-
unum miklum erfiðleikum. Fyrirtæk-
in verða fyrir miklum tekjumissi.
Fólk missir vinnu sína. Sveitarfélög-
in horfa á tekjustofnana hrynja. Það
getur að vísu dregið úr atvinnuleys-
isvandanum að mikill fjöldi útlend-
inga er að störfum í fiskvinnslu hér.
Sumt af þessu fólki hefur tekið sér
búsetu hér en stórir hópar koma og
fara, eru eins konar farandverka-
menn. Ef þeir fá vinnu hér í sjö mán-
uði í stað tíu fara þeir annað að sjö
mánuðum liðnum og koma svo
kannski aftur. Þetta veldur því að
hætta á yfirvofandi atvinnuleysi er
ekki eins mikil og ella.
Fyrirtæki í öðrum atvinnugreinum
hafa orðið fyrir tekjumissi af öðrum
ástæðum en eiga við í þessu tilviki og
hafa brugðizt við því með ýmsum
hætti, fækkun starfsfólks og niður-
skurði annars kostnaðar. Þetta munu
sjávarútvegsfyrirtækin gera nú og
eiga ekki annarra kosta völ.
Sumir telja, að minni fyrirtækin í
sjávarútvegi fari verr út úr þessum
niðurskurði en hin stærri. Það á eftir
að koma í ljós, hvort svo sé. Stundum
hafa lítil fyrirtæki meiri aðlögunar-
hæfni en þau stærri.
Morgunblaðið telur miður, að rík-
isstjórnin hefur ákveðið að fella veiði-
gjald af þorskveiðum niður í tvö ár.
Það er þó bót í máli að þessi ákvörðun
er takmörkuð við tvö ár og er ein-
göngu bundin við þorskinn.
Útgerðarmenn hafa krafizt þess
með sívaxandi þunga að veiðigjaldið
verði fellt niður. Þó er það svo lágt að
það getur ekki lægra verið. Og alveg
ljóst, að útgerðin hefði haft burði til
að greiða hærra veiðigjald síðustu ár-
in en hún hefur verið krafin um.
Auðlindagjaldið, sem samþykkt
var á Alþingi fyrir nokkrum árum, er
í raun og veru eina siðferðilega for-
sendan, sem kvótakerfið byggist á.
Ef það grundvallaratriði hefði ekki
verið sett í lög, að þjóðin eigi fiski-
miðin og að þeir, sem nýta sér þá
eign, verði að borga gjald fyrir þau
afnot, væri kvótakerfið með öllu því,
sem fylgir því, óþolandi fyrirbæri
fyrir þorra landsmanna. Þess vegna
er mjög miður að ríkisstjórnin skuli
telja sig knúna til að taka þetta skref.
Og það er alveg ljóst að verði ekki
horfið til baka, þegar betur árar,
veiðigjaldið á þorskveiðum tekið upp
aftur og hækkað umtalsvert, hefjast
ný allsherjarátök um fiskveiðistefn-
una.
Þau eru reyndar hafin að nokkru
leyti. Kerfi, sem býður upp á það, að
einn maður geti lagt heilt byggðarlag
í rúst en gengið sjálfur frá með millj-
arða í vasanum, gengur einfaldlega
ekki upp. Það er öllum landsmönnum
orðið ljóst og reyndar fyrir löngu.
En ráðgjöf Hafró er eitt og kvóta-
kerfið sem slíkt annað. Það er skilj-
anlegt að ríkisstjórnin telji nauðsyn-
legt að koma til móts við þau
byggðarlög, sem verst verða úti
vegna ákvörðunar sjávarútvegsráð-
herra. Það á eftir að koma í ljós, hvort
þær mótvægisaðgerðir, sem ríkis-
stjórnin hefur kynnt, skipta ein-
hverju máli.
Þegar upp verður staðið eru það
þær ákvarðanir, sem teknar eru í fyr-
irtækjunum og hinum einstöku
byggðarlögum, sem skipta mestu
máli. Það skiptir meira máli, hvaða
ráðstafanir sveitarstjórn gerir en það
sem ákveðið er í Reykjavík.
Vísindamenn Hafrannsóknastofn-
unar eiga næsta leik. Væntanlega fá
þeir nú meira fé til rannsókna en þeir
hafa haft handa á milli. Auknar rann-
sóknir og ákvörðun, sem fylgir ráð-
gjöf Hafró í einu og öllu, leiða til þess,
að á næstu árum mun koma í ljós,
hvers vísindamenn okkar eru megn-
ugir.
Þetta er óskastund fiskifræðing-
anna. Nú kemur í ljós, hvað þeir
kunna og geta.
Ýmsir aðilar urðu til þess í gær, að
gera athugasemdir við ákvörðun
sjávarútvegsráðherra. Framsóknar-
menn og LÍÚ eru samstiga í því að
vilja fara hálfa leið. Einhvern tíma
hefði íslenzkum útvegsmönnum þótt
erfitt að eiga sérstaka samleið með
Framsóknarflokknum. Kjarni máls-
ins er þó sá, að í afstöðu beggja aðila,
Framsóknar og LÍÚ, sem vilja veiða
einhvers staðar í kringum 150 þúsund
tonn af þorski, felst mikil skammsýni.
Það er búið að reyna slíkar leiðir. Það
er búið að reyna að byggja þorsk-
stofninn upp á lengri tíma en ella eins
og sagt var.
En óneitanlega veldur það von-
brigðum, að íslenzkir útgerðarmenn,
sem eiga mikið í húfi, skuli ekki taka
ábyrgari afstöðu en raun ber vitni.
Það er auðvitað ljóst að Einar K.
Guðfinnsson er að taka veigamestu
ákvörðun, sem hann hefur tekið á
stjórnmálaferli sínum, og á sennilega
aldrei eftir að taka svo mikilvæga
ákvörðun.
Það er heldur ekki hægt að útiloka
að ráðherrann verði fyrir þungum
áföllum í kjördæmi sínu og heima-
byggð, þar sem stór hópur fólks á eft-
ir að verða fyrir þungu áfalli og jafn-
vel upplifa eins konar kreppu. Þess
vegna ber að virða sjávarútvegsráð-
herra fyrir það að ganga gegn við-
teknum skoðunum í sjávarþorpunum
allt í kringum landið þess efnis, að
það sé nóg af fiski í sjónum.
Vonandi verður ákvörðun Einars
K. Guðfinnssonar upphafið að nýjum
tímum í sjávarútvegi okkar.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Leyfilegur heildarafli í þorski ánæsta fiskveiðiári verður 130þúsund tonn, eins og Haf-rannsóknastofnunin lagði til.
Einar Kristinn Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra kynnti ákvörðun sína í
gær og gaf út reglugerð um leyfilegan
heildarafla á komandi fiskveiðiári, sem
hefst 1. september. Jafnframt greindi
hann frá tillögum sjávarútvegsráðu-
neytisins til aðgerða vegna breytinga á
leyfilegum heildarafla í þorski milli ára
og ríkisstjórnin gerði grein fyrir mót-
vægisaðgerðum til að styrkja atvinnu-
lífið í sjávarbyggðum vegna aflasam-
dráttar.
Horfið frá aflareglunni
Einar K. Guðfinnsson sagði að á
næsta fiskveiðiári yrði horfið frá þeirri
aflareglu sem hefði verið í gildi und-
anfarin ár og leyfilegur þorskafli skor-
inn niður um 63 þúsund tonn, úr 193 í
130 þúsund tonn. Ákvörðunin hefði
verið tekin í ljósi fyrirliggjandi upplýs-
inga um stöðu þorskstofnsins, stærð
viðmiðunarstofnsins og hrygningar-
stofnsins. Aflareglan yrði tekin upp að
nýju fiskveiðiárið 2008/2009 og þá yrði
leyfilegur þorskafli 20% afla úr viðmið-
unarstofni en þó ekki lægri en 130 þús-
und tonn.
Sjávarútvegsráðherra sagðist hafa
leitað víða samráðs vegna þessarar
ákvörðunar. Hann hafi rætt við hags-
munaaðila, vísindamenn og fjölmarga
aðra sem málið varðar. Ekkert væri
sjálfgefið í þessu efni en hann hefði
horft til tiltekinna markmiða. Í fyrsta
lagi að ákvörðun um hámarksafla
leiddi til þess að hægt væri, með eins
mikilli vissu og unnt væri, að tryggja
að hámarksafli á fiskveiðiárinu 2008/
2009 lækkaði ekki. Í öðru lagi að
ákvörðunin yrði til þess að sjá mætti
uppbyggingu á þorskstofninum sem
leiddi til hærra aflamarks sem fyrst.
Ljóst væri að ákvarðanir um hærra
aflamark myndu ekki ná þessum mark-
miðum.
Hafrannsóknir efldar
Samfara verulegum breytingum á
leyfilegum þorskafla hefur verið
ákveðið að setja af stað verkefni í þeim
tilgangi að styrkja forsendur fiskveiði-
ráðgjafarinnar og sérstaklega í þorski.
Einar Guðfinnsson sagði að hafrann-
sóknir yrðu efldar með margvíslegum
hætti.
Í fyrsta lagi nefndi hann að tryggja
yrði sem best fæðubúskapinn í hafinu
fyrir þorskinn. Því yrðu loðnuveiðar
ekki leyfðar í sumar og þær hæfust
ekki fyrr en 1. nóvember.
Í öðru lagi yrði stofnaður faghópur
vísindamanna og fulltrúa útgerðar og
sjómanna, fulltrúa bæði minni og
stærri báta, til að fara yfir gæði og eðli
togararallsins með það að markmiði að
bæta það, fjölga togstöðvum og
tryggja að það gefi réttari mynd af
stöðu þorskstofnsins.
Í þriðja lagi að skoðað verði hvort
auka eigi verndun þorsks á hrygning-
artíma. Einar áréttaði að gríðarlega
mikið hefði verið gert í því sambandi og
þær aðgerðir hefðu þegar haft áhrif
eins og t.d. minnk
engu að síður væri á
þessa vinnu á koma
uðum.
Einar Guðfinnsso
yrði áherslu á að
hegðun þorsks inna
Íslands. Allar þessa
þess að styrkja grun
ur væri til hliðsjón
leyfilegum heildaraf
Samræmdar aðge
Sjávarútvegsráðh
hefði einnig ákveði
irnar nefnd undir
Marteinsdóttur, pró
„Það kemur e
fyrir 60 þúsun
Farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar Leyfil
Sjávarútvegsráðuneytið leggur fram tillögur til aðg
Erfið ákvörðun Ein
breytingum á leyfil
Forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í
Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gærmorgun
þar sem kynnt var ákvörðun sjávarútvegsráðherra
um aflaheimildir og mótvægisaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar. Steinþór Guðbjartsson sat fundinn og
ræddi við ráðherra.
GEIR H. Haarde forsætisráðherra sagði á fréttamannafundinum í gær að
ákvörðun sjávarútvegsráðherra um aflaheimildir á næsta fiskveiðiári nyti
stuðnings allrar ríkisstjórnarinnar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík-
isráðherra tók í sama streng.
„Ég tel að þetta sé rétt ákvörðun sem tekin hefur verið,“ sagði forsætisráð-
herra. „Hún er ábyrg og lýsir heilmiklu hugrekki.“
Forsætisráðherra sagði ljóst að ákvörðunin um hámarksafla myndi bitna mis-
munandi þungt á einstökum svæðum í landinu og ríkisstjórnin myndi ekki víkja
sér undan þeirri ábyrgð að bregðast við hugsanlegum vanda á einstökum stöð-
um. Í því sambandi vísaði hann til yfirlýsingar ríkistjórnarinnar og bætti við að
hún vildi nota tækifærið til að styrkja atvinnulífið í sjávarbyggðum almennt af
þessu tilefni. Gripið yrði til sérstakra aðgerða til að styrkja atvinnulíf á þeim
svæðum sem helst yrðu fyrir barðinu á aflasamdrættinum. Í fyrsta lagi væri
um skammtímaaðgerðir að ræða, í öðru lagi aðgerðir til lengri tíma og í þriðja
lagi tillögur um eflingu hafrannsókna og endurskoðun sem lúta að stjórn fisk-
veiða. Reynt verði að hrinda aðgerðunum í framkvæmd eins fljótt og hægt sé.
Ekki sársaukalaust
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að sjávarútvegsráðherra hefði staðið and-
spænis mjög erfiðri ákvörðun. „Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé rétt ákvörð-
un en hún er auðvitað ekki sársaukalaus,“ sagði utanríkisráðherra. Ingibjörg
Sólrún bætti við að ljóst væri að einstaklingar, fyrirtæki og byggðarlög yrðu í
erfiðri stöðu vegna mikillar skerðingar á þorskafla og fyrir lægi að mörg
byggðarlög væru í erfiðri stöðu nú þegar vegna samþjöppunar í sjávarútvegi,
vegna tæknibreytinga í greininni sem hefði leitt til fækkunar starfa, vegna há-
gengis og vegna hárra vaxta. Þegar gripið yrði til mótvægisaðgerða vegna nið-
urskurðar í þorskheimildum væru þær líka tengdar þeirri almennu stöðu sem
ríkti sumstaðar á landsbyggðinni vegna þessara þátta.
Ingibjörg Sólrún gerði grein fyrir aðgerðum ríkisstjórnarinnar og gat þess
sérstaklega að ákveðin svæði á landinu, Vestfirðir, Norðausturland og Suðaust-
urland, væru mjög illa í sveit sett í sambandi við fjarskiptaþjónustu við landið
að öðru leyti og mjög mikilvægt væri að framkvæmdum í samgöngumálum á
þessum svæðum yrði hraðað svo þau fengju nauðsynlega tengingu.
Rétt og ábyrg ákvörð
1'
"##$2"##3
5
"
!
" #$%&
' $
#($%
$
) *$%
+,$%
!$
+,
- $
./
0 $1 / , $'
23 4 5