Morgunblaðið - 21.07.2007, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SLYSA- og bráðamóttaka Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss (LSH) hefur
nokkra sérstöðu í heilbrigðiskerfinu.
Henni er aldrei lokað og alltaf verður
að sinna sjúklingum sem leita að-
stoðar. Á sama tíma og álag á öðrum
deildum spítalans minnkar yfir sum-
artímann og starfsfólk hans og ann-
arra heilbrigðisstofnana fer í frí
fjölgar þeim sem þurfa að leita til
deildarinnar. Komum á deildina fer
sífellt fjölgandi og þar hefur verið
mannekla eins og á mörgum öðrum
deildum sjúkrahússins.
„Sjúklingum hefur fjölgað frá því
árin á undan og það er nokkuð sem
við bjuggumst við,“ segir Ófeigur
Þorgeirsson, yfirlæknir bráða-
móttökunnar. „Það má segja að þetta
hafi verið heldur meira nú vegna
þess hvað veðrið hefur verið gott.
Fólk hreyfir sig meira, sem er að
sjálfsögðu af hinu góða, og við erum
búin að fá mikið af einhvers konar
tómstundaslysum, t.d. vegna hjól-
reiða, hestamennsku eða línu-
skauta.“ Á sama tíma fara starfs-
menn deildarinnar í sumarfrí og
þurfa þá þeir sem eftir eru og sum-
arstarfsmenn að bera byrðarnar.
„Fólk hefur tekið mikið af óreglu-
legum aukavöktum og oft hefur
starfsfólk þurft að vinna mun meira á
vöktunum af því að það eru færri á
staðnum.“ Ófeigur dregur ekki dul á
að þótt álagið hafi verið mikið hafi
starfsfólk unnið fórnfúst starf. „Það
hefur reynt gríðarlega mikið á mann-
skapinn en við höfum alveg ráðið við
þetta. Starfsfólk hefur sýnt mikla
fórnfýsi og unnið af fagmennsku. Það
hefur unnið þrekvirki.“
Davíð Björn Þórisson umsjón-
ardeildarlæknir staðfestir að þótt
óvenjumikið hafi verið að gera hafi
ekki skapast neyðarástand. „Læknar
hafa tekið lengri vaktir en við höfum
passað að enginn vinni lengur en
heimilt er og allir fái tilskildan hvíld-
artíma á milli vakta.“ Hafa læknar
unnið uppundir 55 klukkustundir á
viku en sveiflukennt getur verið hvað
hver og einn vinnur á milli vikna.
Lágmarkshvíldartími á milli vakta er
11 klukkustundir
Í vor höfðu margir áhyggjur af því
að of fáir hjúkrunarfræðingar yrðu í
sumar við störf vegna leyfa. Ragna
Gústafsdóttir, hjúkrunardeild-
arstjóri slysa- og bráðadeildarinnar,
segir vandamálið vera svipað nú og í
fyrra. „Hjúkrunarfræðingarnir hér
eru afar góður hópur og allir hafa
reynt hvað þeir geta til að þetta
gangi upp.“ Ragna segir að tekist
hafi að einhverju leyti að létta álag-
inu af spítalanum með því að senda
sjúklinga á sjúkrahús annars staðar
á landinu.
Fullsödd á ofbeldi miðbæjarins
Að mati Rögnu fer mesti álagstími
slysadeildarinnar nú í hönd en al-
mennt sé mikið að gera á öllum vökt-
um yfir sumartímann. Spurð hvenær
flestir sjúklingar leiti til deildarinnar
segir hún ákveðna ös skapast á
mánudögum. „Þá kemur fólk sem
hefur veikst eða meiðst við útiveru
um helgarnar og áttar sig síðan á því
að það þarf að leita aðstoðar.“ Hún
segir hins vegar að síst minna álag
fylgi minni hópi fólks sem þyrpist inn
á deildina á næturnar um helgar
vegna slagsmála. „Þetta eru yfirleitt
illviðráðanlegri sjúklingar vegna
neyslu á áfengi og fíkniefnum. Það
má alveg nefna það að við erum fyrir
löngu orðin fullsödd á þessu ofbeldi
sem á sér stað í skemmtanalífinu.“
Deildin þarf jafnframt að taka við
sjúklingum sem heldur hefðu leitað
til deilda eða stofnana sem eru lok-
aðar vegna sumarleyfa en að sama
skapi er erfiðara að koma sjúklingum
frá slysadeild yfir á aðrar deildir.
Eykur þetta enn frekar álag á slysa-
deildinni.
Ragna segir að helsta afleiðingin
sem bitni á sjúklingum séu meiri taf-
ir. „Þegar það er mikil aðsókn getur
biðin orðið allt að þrjár eða fjórar
klukkustundir. Auðvitað er samt for-
gangsraðað til að tryggja öryggi
sjúklinga,“ segir Ragna. Fram-
kvæmdir hafa staðið yfir til að end-
urbæta húsakost deildarinnar og hef-
ur það gert starfsaðstæður erfiðari
en farið er að sjá fyrir endann á þeim.
„Þá opnast hér skammlegueining
fyrir fólk sem þarf tíma til að ná sér
en hefur hingað til þurft að liggja á
göngum.“ Til stendur einnig að taka
upp nýtt afgreiðslukerfi, að erlendri
fyrirmynd, sem mun auka þjónustu
við sjúklinga og minnka biðtímann.
Sumarveðrið, sumarlokanir og sumarleyfi valda miklu álagi á slysa- og bráðamóttöku LSH
Morgunblaðið/ÞÖK
Mikið að gera Reynt hefur á starfsfólk slysa- og bráðamóttöku Landspítala háskólasjúkrahúss í Fossvogi í sumar
„Starfsfólkið
hefur unnið
þrekvirki“
Yfirleitt hægist á í þjóðfélaginu á sumrin en
Gunnar Páll Baldvinsson komst að því í gær að á
sama tíma eykst álagið á slysa- og bráðadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi.
gunnarpall@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Góða veðrið hefur valdiðþví að margir hafa slasast
við tómstundaiðkanir. Alvar-
leg slys þó fá.
»Þegar starfsmenn fara ísumarleyfi þurfa aðrir að
bera byrðarnar.
» Aðrar deildir og stofnanirhafa dregið saman seglin.
»Aðstaða og skipulag deild-arinnar verða töluvert
bætt næstkomandi vetur.
ÞEIR virtust á hraðferð, andarungarnir sem áttu leið
um bílastæði í höfuðborginni í gær. Eflaust hefur þá
verið farið að lengja eftir að svamla í tjörn eða polli
undir handleiðslu móður sinnar. Af myndinni að dæma
er öndin vanari malbikinu en afkvæmin, enda stillti
hún sér fagmannlega upp fyrir ljósmyndara. Unga
fólkið fylgdist grannt með hverri hreyfingu og líklega
hefur sú hugsun hvarflað að því hvort það væri ekki
ljúft að vera áhyggjulaus andarungi sem senn fær að
baða út vængjunum og fljúga á vit ævintýranna.
Morgunblaðið/Frikki
Villtir ungar vekja lukku
„ÉG bara skil ekki hverjum dettur í
hug að gera svona,“ segir Aðalheið-
ur Borgþórsdóttir, forsvarsmaður
Listahátíðar ungs fólks á Austur-
landi sem nú stendur yfir. Brotist
var inn á heimasíðu hátíðarinnar í
fyrrakvöld og hún eyðilögð. „Það
var farið inn í gagnagrunninn og
öllum skipunum eytt eða breytt
þannig að það er ekkert efni inni
nema myndir.“ Hún segir allt efni
vera til en til að gera síðuna starf-
hæfa aftur þurfi að setja allt efnið
inn á hana upp á nýtt, sem taki
mikinn tíma og mikla vinnu. Að-
alheiður telur tjónið nálgast eina
milljón króna.
Síðan einnig eyðilögð í fyrra
Að sögn Aðalheiðar ætlar hún að
kæra brotið. „Mér var bent á að
hringja í efnahagsbrotadeild lög-
reglunnar og ég veit ekki alveg
hvað gerist í framhaldi af því. Þetta
er gríðarlega mikið tjón fyrir okkur
en hátíðin stendur nú sem hæst og
við erum að vísa í síðuna og þar er
auðvitað ekkert að hafa.“
Einnig var brotist inn á síðu
LungA síðastliðið haust. Þá þurfti
að setja allt efni inn upp á nýtt en
tjónið þá var minna en nú þar sem
brotið var ekki framið meðan á há-
tíðinni sjálfri stóð, að sögn Aðal-
heiðar. Hún segir að ekki hafi kom-
ist upp um netþrjótana þá en
hópurinn að baki hátíðinni hafi ein-
faldlega ekki áttað sig á því að gera
eitthvað í málunum. „Nú er nátt-
úrlega fulllangt gengið ef þetta á að
vera stundað reglulega.“
Aðspurð segist hún ekki vita
hvort eyðilegging heimasíðunnar
hafi mikil áhrif á hátíðina. „Nú er
upplýsingastreymið ekki jafngott
og þetta hefur þau áhrif að við
þurfum að fara í mikla aukavinnu
eftir hátíðina því við notum þetta
sem samskiptatæki fyrir þetta
stóra ungmennaskiptaverkefni sem
við erum með. Það þarf að byggja
það allt upp upp á nýtt.“ Hún segir
jafnframt að í stað þess að leita á
síðunni eftir upplýsingum verði fólk
nú að hafa beint samband við
skipuleggjendurna.
Aðalheiður segir líklegt að í
framtíðinni muni þau tryggja síð-
una svo þau verði ekki fyrir jafn-
miklu tjóni og þau hafi orðið fyrir
nú. „Við erum ekkert tryggð, við
verðum að bera þetta tjón sjálf, eða
ég reikna með því. Við eigum eftir
að sjá hvað rannsóknin leiðir í ljós.“
Hún segir það ekki vafamál að
varnir síðunnar fyrir svona
skemmdum verði efldar á næsta
ári. Hún segir hýsingaraðilana sjá
um öryggismálin en þeir séu jafn-
undrandi á þessu og þau, þeir héldu
að þeir hefðu tryggt að svona lagað
gæti ekki komið fyrir.
Heimasíða
eyðilögð
LungA stendur uppi heimasíðulaus
öðru sinni eftir skemmdarverk