Morgunblaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
HVER kannast ekki við að koma
ákveðnum leikara ekki fyrir sig,
muna ekki hvað ákveðin bíómynd
heitir eða að reyna að muna hvar
viðkomandi leikkona lék áður?
Þegar slíkar meinlokur koma upp
er kærkomið að leita í upplýs-
ingabrunn vefsíðunnar Internet Mo-
vie Database, imdb.com, sem er
sannarlega rafræn biblía kvik-
myndaáhugamannsins.
Á síðunni er að finna allar mögu-
legar og ómögulegar upplýsingar
um kvikmyndir, sjónvarpsþætti,
leikara, leikkonur, leikstjóra og
aðra sem tengjast kvikmyndageir-
anum á einhvern hátt.
Ef maður flettir til dæmis upp
nafni Goldie Hawn kemst maður að
því hvaða millinafn hún ber, í hvaða
myndum og sjónvarpsþáttum hún
hefur leikið og hvað persónur henn-
ar hafa heitið. Einnig er hægt að sjá
lista yfir öll verðlaun og tilnefningar
sem Goldie hefur fengið á ferlinum,
sjá ýmsar myndir af henni í gegnum
tíðina, renna yfir æviágrip hennar
og svona mætti lengi lengi telja.
Það er hægt að dunda sér heil-
lengi við að skoða ýmsar aðrar upp-
lýsingar sem síðan hefur upp á að
bjóða. Hægt er að skoða nýút-
komnar myndir, væntanlegar, þær
vinsælustu og svo framvegis. Á síð-
unni er einnig að finna lista yfir 250
bestu myndir allra tíma en nið-
urstöðurnar eru byggðar á stigagjöf
notenda síðunnar á kvikmyndum.
Samkvæmt listanum er Guðfaðirinn
I besta mynd allra tíma, The Shaws-
hank Redemption í öðru sæti og
Guðfaðirinn II í því þriðja. Athygli
vekur að Citizen Kane er í 23. listans
en hún er jafnan valin besta mynd
allra tíma af ýmsum fagaðilum.
Sjaldan lýgur almannarómur.
Til gamans má líka renna yfir
lista yfir 100 verstu myndir allra
tíma. Surf School frá árinu 2006 ber
þann vafasama heiður að skipa
toppsæti þess lista.
Þess ber þó að geta að gagna-
grunurinn er ekki tæmandi fyrir
kvikmyndaiðnaðinn í heiminum, til
dæmis eru upplýsingar um afar fáar
Bollywood-myndir miðað við fjölda
þeirra í heiminum. Þó má finna upp-
lýsingar um ýmsa íslenska lista-
menn sem og aðra norræna.
Saga imdb.com nær aftur til árs-
ins 1989 þegar tveir hópar söfnuðu
upplýsingum um kvikmyndir inn á
gagnagrunna á svokölluðu Usenet.
Árið 1993 var búið að sameina
grunnana og og þeir fluttir yfir á ný-
stofnaðan Veraldarvefinn (www).
Vefsíðan hefur verið í sífelldri þró-
un æ síðan og er í sífelldri endurnýj-
un.
Um það sjá um 20 umsjónarmenn
vefjarins auk netverja sem láta síð-
unni upplýsingar í té.
Síðan fær yfir 50 milljónir heim-
sókna í mánuði hverjum og er án efa
sú alvinsælasta sinnar tegundar á
Netinu.
Vefsíða vikunnar: imdb.com
Rafræna biblían
Vefsíðan Internet Movie Database kemur oft að góðum notum.
imdb.com
- Kauptu bíómiðann á netinu
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Harry Potter 5 kl. 12 - 1 - 3 - 4 - 6 - 7 - 9 - 10 B.i 10 ára
Harry Potter 5 kl. 12 - 3 - 6 - 9 LÚXUS B.i 10 ára
Evan Almighty kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10
Die Hard 4.0 kl. 2 - 5 - 8 - 10.45 B.i. 14 ára
Fantastic Four 2 kl. 12
Yippee Ki Yay Mo....!!
Death Proof kl. 2:45 - 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
Taxi 4 kl. 3 - 6 - 8 - 10
Die Hard 4.0 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 14 ára
Fantastic Four 2 kl. 3 - 5:45 - 8 - 10:15
Þessar 8 konur eru um það bil að hitta 1 djöfullegan mann!
Nýjasta meistaraverk
Quentin Tarantino
eee
„Geggjaður stíll... sterk og
bráðskemmtileg...bara stuð!“
- Þórarinn Þórarinnsson, Mannlíf
HÖRKUSPENNANDI GRÍNMYND
FRÁ LUC BESSON
NÚ VERÐUR ALLT GEFIÐ Í BOTN
Death Proof kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
1408 kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Evan Almighty kl. 6 (450 kr.)
Die Hard 4.0 kl. 5.40 (450 kr.) B.i. 14 ára
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
STÆRSTA
GRÍNMYND SUMARSINS
eeee
S.V. - MBL
T.S.K. – Blaðið
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eeee
V.J.V. – Topp5.is
eee
F.G.G. – FBL
eee
Ó.H.T. - Rás 2
eee
MBL - SV
eee
„Þessi mynd er í flokki
betri Stephen King-mynda...“
E.E. – DV
eeee
FGG - Fréttablaðið
eeee
ÓHT - Rás2
eeee
Morgunblaðið
eeee
RUV
eeee
DV
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
eeee
„Helvíti flottur hollustueiður“
- T.S.K – Blaðið
eee
- S.V. – MBL
Eftir þrjármyndir
í félagsskap
stökk-
breyttra sam-
starfsmanna
sinna fær ein-
farinn Wol-
verine loksins
að ganga laus
einn í heila
mynd. Hugh
Jackman leik-
ur stálúlfinn
sem fyrr og
nú er búið að ráða Gavin Hood sem
leikstjóra en fyrir rúmu ári tók hann
við Óskarsverðlaununum fyrir bestu
erlendu mynd ársins, hina suður-
afrísku Tsotsi. Myndin mun fjalla um
uppruna Wolverine sem töluvert hef-
ur verið ýjað að í X-Men-myndunum.
Þá er orðrómur uppi um að gamlar
minningar úr Víetnam komi upp á yf-
irborðið.
Það var þó ekki Tsotsi sem sann-
færði framleiðendur hjá Fox end-
anlega um að Hood væri rétti mað-
urinn í leikstjórastólinn heldur
Rendition, pólitískt drama með
Reese Witherspoon, Jake Gyllenhaal,
Meryl Streep og Peter Sarsgaard í
helstu hlutverkum. Sú mynd er tilbú-
in og væntanleg með haustinu.
Úlfur, úlfur Hugh Jack-
man mun einn halda
uppi heiðri X-mann-
anna í Wolverine.
Stálúlfurinn
fær leikstjóra