Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 10

Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 10
10 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,bæjarstjóri og hafnarstjóri í Grundarfirði, segir í grein hér í Morgunblaðinu í gær:     Það er ekki auðvelt að hendareiður á því, hvers vegna Morg- unblaðið gengur svo hart fram í ásökunum um svindl, brottkast og þjófnað í sjávarútvegsgreinum, sem raunin er. Eng- inn nema rit- stjórnin sjálf get- ur svarað þessu. Þaðan er þó varla að vænta nokkurra svara annarra en þeirra, sem við hafa blasað í Reykjavíkurbréfi blaðsins síðastlið- inn sunnudag og svo aftur á miðopnu í dag, miðviku- daginn 18. júlí 2007. Hver ætli til- gangur blaðsins sé?“     Svarið við þessum spurningumhefur komið fram en það skal endurtekið. Í fyrsta lagi telur Morgunblaðið mikilvægt að íslenzkir sjómenn geti komið skoðunum sínum á framfæri. Þeir treysta sér ekki til að gera það nema undir nafnleynd vegna at- vinnuöryggis og Morgunblaðið axl- ar þá ábyrgð að birta sjónarmið þeirra. Í öðru lagi er alveg ljóst að það er mikilvægt að komast til botns í því hvað hæft er í þeim ásökunum sem lengi hafa verið uppi um að ekki sé fylgt lögum og reglum kvótakerf- isins. Hvers vegna er það svona mikilvægt? Vegna þess að ef það er ekki gert er augljóst að ráðgjöf Hafró byggist á röngum for- sendum. Ef vísindamenn okkar hafa ekki réttar upplýsingar undir höndum er framtíð auðlindarinnar í hafinu í voða og þar með sjómanna og fiskverkunarfólks.     Um þetta ættu Morgunblaðið ogbæjarstjórinn og hafnarstjór- inn í Grundarfirði að geta verið sammála. STAKSTEINAR Guðmundur Ingi Gunnlaugsson Hvers vegna? „Öryggisráðs-ballettinn" VEÐUR SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                      *(!  + ,- .  & / 0    + -           !                     12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (       !                        :  *$;<                          !" !# *! $$ ; *! " # $   #   %  & ' & =2 =! =2 =! =2 " %$  (!) * &+ <2>         6 2  ?    8   , & $ & $  + -       !! #$  #  & !.  #        # / 6 2  ?    8   , & $ & $  + -       !! #$  #  & !.  #        # / *    ;  0$ + -     !  #$  ' & # &/ 0    / 1-  &22  &   3 &  & (! 3'45 @4 @*=5A BC *D./C=5A BC ,5E0D ).C . . / / / / 4/  / /    4/  . .4 . .4 . . . . . . . . . .                      Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Salvör | 20. júlí 2007 Tilkynning móðgandi við Pólverja Annars finnst mér þessi pólska tilkynning frá Stangveiðifélagi Reykjavíkur vera afar móðgandi fyrir Pól- verja á Íslandi og einn- ig þær upplýsingar að í öllum upplýstum tilvikum hafi verið um karlmenn frá Póllandi að ræða. Þetta er eins móðgandi fyrir Pól- verja á Íslandi eins og ég ásakaði fé- laga í Stangveiðifélaginu um að drepa selina í Grafarvogi. Meira: salvor.blog.is Vigdís Eva Líndal | 20. júlí 2007 Í sjokki!! Já, það þarf ekki mikið til að koma mér úr jafnvægi, sérstaklega þegar ég er í smávægi- legu ójafnvægi fyrir. Ég rölti niður í bæ áð- an og fram hjá Hótel Borg og blasti þar við mér splunkuný snúningshurð. Þeir eru búnir að taka gömlu flottu sígildu viðarhurðina og skipta henni út fyrir eitthvað gler/harðplasts ógeð. Ég tók andann á lofti og hvíslaði "neeeeeeiiiii!!!!". Meira: vigdiseva.blog.is Guðmundur Jónas Kristjánsson | 20. júlí 2007 Á að flækja Íslandi inn í átök í Palestínu ? Við þessar svo mjög krítískar aðstæður í innanríkismálum Pal- estínumanna ferðast utanríkisráðherra Ís- lands, Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir. Hún gat í raun ekki valið verri tíma. Í heimsókn sinni til Palestínu virðist hún nefnilega algjörlega horfa fram hjá hinum alvarlega pólitíska klofn- ingi palentísku þjóðinnar, og þeirri staðreynd, að fyrst verði að koma á fót pólitískum stöðugleika á heima- stjórnarsvæðinu sjálfu, áður en nokkur von verði til þess að byggja upp frið milli Palestínumanna og Ísraela. - Með því að Ingibjörg ákvað að hitta aðeins fulltrúa Fatah og aðila þeim tengd, hefur hún í raun fyrirgert aðkomu sína og Íslands að einhverju friðarferli Meira: zumann.blog.is Kristín Ástgeirsdóttir | 19. júlí 2007 Eins og fiskur í vatni Það er fróðlegt að fylgj- ast með ferð Ingibjarg- ar Sólrúnar og fylgd- arliðs hennar um löndin fyrir botni Miðjarð- arhafs. Enn einu sinni erum við minnt á að það eru tvær hliðar á deilum Ísraela og Palestínumanna, þó að Ísraelsmenn hafi vissulega valdið og vopnin sín megin. Íbúar Ísraels hafa liðið mikið en því miður hafa stjórnvöld þar í landi reynt að brjóta Palestínumenn niður í stað þess að semja við þá og það fyrir löngu. Það hefur allt of lengi verið alið á hatri og hefndum og und- anfarið hafa Palestínumenn barist innbyrðis sem er bæði þeim sjálfum og nágrönnum þeirra hættulegt. Ég vona að Ingibjörg Sólrún hafi rétt fyrir sér í því að Ísraelsmenn séu að átta sig á því að frekari upplausn í Palestínu getur leitt til þess að ekki verði við neinn að semja. Mér finnst Ingibjörg Sólrún standa sig afar vel við að túlka og kynna það sem hún er að upplifa. Hún er eins og fiskur í vatni, fagleg og manneskjuleg í senn. Hún er flottur utanrík- isráðherra og ég er viss um að þessi ferð á eftir að verða henni að miklu gagni. Bloggari sem ég las í dag skrifaði að utanríkisráðherrann væri að flakka um heiminn á kostnað skatt- greiðenda og var á honum að skilja að þessi ferðalög væru ónauðsynleg. Hvernig á Ingibjörg Sólrún (sem og aðrir utanríkisráðherrar) að sinna og skilja sinn málaflokk ef hún fer ekki á vettvang og kynnir sér málin? Per- sónuleg kynni skipta líka miklu máli í samskiptum ríkja. Það er mjög mik- ilvægt fyrir alla heimsbyggðina að friður komist á við botn Miðjarð- arhafs og þar getur Ísland beitt sér á alþjóðavettvangi. Höfum við ekki ver- ið grátbeðin um að hjálpa flóttamönn- um frá Írak sem eru þúsundum sam- an í Jórdaníu? Ingibjörg Sólrún er á leið þangað til að kynna sér málefni flóttamanna. Ísland er auk þess í framboði til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, hvað sem okkur finnst um það. Fyrst það var ákveðið er eins gott að standa almennilega að málum. Þetta er nöldur í bloggaranum sem á ekki rétt á sér. Meira: kristinast.blog.is BLOG.IS Ívar Páll Jónsson | 19. júlí 2007 Mæðraskoðun? Ég bara skil ekki hvað ófrískar konur eru sí- fellt að fara í mæðra- skoðun, eins og þær fái eitthvað út úr því að skoða aðrar konur. Ég hef samt enga fordóma gagnvart því Meira: nosejob.blog.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.