Morgunblaðið - 21.07.2007, Page 14

Morgunblaðið - 21.07.2007, Page 14
14 LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                     ! "        $% '         ()  *+                    !" #        ',   -  . /0 '  1 -  . /0 11 2 -  . /0 &3   /0 $ -  . /0 -  41 /0 50 & 1 .  7, -  . /0  .8  41 /0 41 6 /0  , $/  /0      $9 040 /0 %: /0 ; /0     <=) /0 ', /0 '  , >  >?$ & 1 1 $  -  . /0 $@ : 7, , -  . /0   /0 "A/ 9 /0 % :    2  /0 B   2  /0   !" # C : '  C0 5 -  /0 5 . 9 /0 $%&' (                                                         B 1 .  % 4 D 1  .  FG*0*=+ (+*0+*+0FH* <=0+)=0++F <(I0G++0+HI FG+0)FG0=(= (0)+*0<GI0G+F )0)H)0)I= ()0GFH0)++ H*+0+<<0GIG =HF0IH(0(G< FGH0+++ (0<I=0+I*0F<< <F0+FH0I+( (I0H=(0F+( FI<0I=+ )0GI)0+++ <0G)=0GG< (F0<F+0)G+ FG)0(I) G0)(*0HIG <0(*)0+++ <)0IHG0H+) HI0)++ (G0FGG0)++  HI0*FH0=*+   G=JF+ HJGH I(JG+ *+J(+ FHJH) <+JI) *+J(+ <+JF+ (FG+J++ *(J++ (IJ++ F<J++ )J)G ((+J++ <J<* )JI) (((IJ++ I(IJ++ (JGI F<HJ++ =J<+ HIJ++ (HJ)+ <HJF) <G=)J++ (+J)+ G=JF+ HJH+ IFJ++ *+JF) <+J() <+JH+ *+J<+ <+J*+ (FG<J++ *(J() (IJ++ F<J+) )J=< ((+J)+ <J<= )JIH ((<<J++ IF<J++ (JGH F*=J++ =J<* HIJ*+ F<J++ <HJ=+ <GH*J++ (FJ++ =JG+ $92 1 . < (G (F =< <( )I < * G< I< F HG (< (+ ( F (( (I ( F< ( H ( F  G     10   F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F+0I0F++I F)0=0F++I F+0I0F++I (G0I0F++I F+0=0F++I VERÐ á ríkisskuldabréfum Evr- ópuríkja hefur hækkað verulega að undanförnu í kjölfar hinna miklu vanskila sem orðið hafa á áhættu- sömum bandarískum húsnæðislán- um. Margir fjárfestar virðast óttast að ástandið á bandarískum markaði muni hafa skaðleg áhrif á heims- hagkerfið og hafa því tekið að festa fé sitt í öruggum eignaflokkum. Almennt eru ríkisskuldabréf talin öruggustu fjárfestingar sem völ er á enda vanskilaáhætta lítil sem engin. Sérstaklega hefur eftirspurnin eftir evrópskum ríkisskuldabréfum auk- ist nú í vikunni eftir að neikvæðar fregnir bárust frá bandaríska fjár- festingarbankanum Bear Stearns. Útlit er fyrir að allt það fé sem bankinn festi í tveimur vogunarsjóð- um sínum er veðjuðu á áhættusöm veðlán sé glatað. Þannig hefur ávöxtun skulda- bréfa þýska ríkisins (Bunds) ekki verið lægri um þriggja vikna skeið en neikvæð fylgni er á milli ávöxt- unar skuldabréfa og verðs þeirra, þ.e. lækki ávöxtunin hækkar verðið. Bloomberg-fréttaveitan hefur eft- ir Folker Hellmeyer, yfirgreini hjá Bremer Landesbank Kreditanstalt í Þýskalandi, að búast megi við frek- ari verðhækkun þýskra ríkisskulda- bréfa. „Áhættufælnin er enn greini- legri en undanfarnar vikur sem styður við skuldabréf með ein- kunnina AAA á kostnað skuldabréfa með lægri einkunn,“ segir hann. Aukin eftirspurn hér Hafsteinn Hafsteinsson, áhættu- stjóri Lánasýslu ríkisins, segir eft- irspurn eftir endurhverfum verðbréfalánum Lánasýslunnar hafa aukist verulega að undanförnu. Hann vill þó ekki fullyrða að sú þró- un sé afleiðing af þróuninni á evr- ópskum skuldabréfamarkaði. Ástandið vestra virðist jafnframt hafa leitt til þess að fjárfestar óttast skuldabréf evrópskra fyrirtækja meira en áður. Samkvæmt frétt Bloomberg hefur skuldatrygg- ingarálag á evrópskum fyrirtækja- skuldabréfum almennt hækkað und- anfarnar vikur og hafa slík bréf ekki verið talin áhættusamari í tvö ár. Þar með er eflaust komin skýring á hækkun skuldatryggingarálags á skuldabréf íslensku bankanna sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Veðja á evrópsk ríkisskuldabréf Reuters Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is Áhættufælni Vanskil á áhættusöm- um lánum hafa fælt fjárfesta. ● TEKJUR Ný- herja á öðrum ársfjórðungi voru 2,6 milljarðar króna. Það er 24% aukning frá sama tímabili 2006 er tekjurnar námu 2,1 millj- arði króna. Hagn- aður fyrir af- skriftir, EBIDTA, var 156 milljónir króna Hagnaður eftir skatta nam 104 milljónum króna samanborið við 29 milljónir á sama tímabili árið áður. Eigið fé Nýherja þann 30. júní sl. var rúmir 1,5 milljarðar króna. Tekjur á fyrstu sex mánuðum árs- ins voru um 5 milljarðar sem er 25% aukning frá því í fyrra. EBIDTA var 300 milljónir en hagnaður eftir skatta var 209 milljónir, samanborið við 84 milljónir króna fyrir ári. Í tilkynningu frá Nýherja kemur fram að tekjur á fyrri árshelmingi séu nokkuð umfram áætlanir og nú sé gert ráð fyrir yfir 10 milljarða heildar- tekjum á árinu. Fjórðungsaukning tekna Nýherja Nýherji Keypti DanSupport í maí. ● ALFESCA hefur lokið endur- fjármögnun félagsins með al- þjóðlegu sambankaláni upp á 280 milljónir evra, en það svarar til um 23 milljarða íslenskra króna. Í tilkynningu til Kauphallarinnar OMX á Íslandi segir að árlegur sparn- aður á samanburðargrundvelli vegna lægri fjármagnskostnaðar Alfesca sé áætlaður um 1,5 milljónir evra eða um 125 milljónir króna. Kaupþing og franski bankinn Na- tixis voru umsjónaraðilar lánsins og sáu einnig um að selja það til al- þjóðlegra bankastofnana. Alls tóku tíu bankastofnanir þátt í endur- fjármögnuninni. Í tilkynningunni segir að það sé ánægjulegt að veruleg umframeft- irspurn hafi verið þegar lánið var boðið til sölu á alþjóðlegum banka- markaði. Það endurspegli sterka stöðu Alfesca á alþjóðavettvangi. Alfesca lýkur endurfjármögnun FJÖLMIÐLAKÓNGURINN fallni Conrad Black þarf ekki að sitja bak við lás og slá uns refsing hans verð- ur ákveðin hinn 30. nóvember nk. Þetta úrskurðaði dómari í máli hans í Chicago í gær. Black getur þó ekki alveg um frjálst höfuð strokið því dóm- arinn hefti ferða- frelsi hans veru- lega. Þannig verður Black að vera annaðhvort í norðurhluta Illinois-fylkis, þ.e. í Chicago og nágrenni, eða í S- Flórída þar sem hann á hús. Þá hefur Black verið gert að skila inn vegabréfi sínu. Conrad Black Kyrrsettur Black BAUGUR Group hefur lýst því yf- ir að ekki standi til að gera yf- irtökutilboð í Debenhams en fjöl- miðlar í Bretlandi hafa undanfarið velt þeim möguleika upp. Baugur, sem á um 9% hlut í Debenhams, segir í tilkynningu að ekki standi heldur til að eignast það stóran hlut í félaginu að yfirtökuskylda myndist. Lítill áhugi Baugs á Debenhams kemur líklegast fæstum Íslending- um á óvart en almennt er talað um að sala í Debenhams á Íslandi sé langt undir væntingum. Sumir ganga jafnvel svo langt að tala um að versluninni verði líklega lokað. Hlutabréf í Debenhams höfðu lækkað um tæp 4% við lokun markaðar í London á föstudag. Baugur vill ekki Debenhams Reuters Debenhams Ekki einu sinni vörur Matthew Williamson heilla Baug. HAGVÖXTURINN í Kína á öðrum ársfjórðungi var 11,9% sem er mun meira en spáð hafði verið og raunar hefur hagvöxturinn ekki mælst meiri í tólf ár. Enda fór svo að kín- verski seðlabankinn hækkaði stýri- vexti sína í gær um 0,27 prósentu- stig til þess að slá á þensluna og verðbólgu sem er komin í 4,4% og er þannig 1,4% yfir markmiðum bankans. Eins árs útlánsvextir í Kína eru eftir þessa hækkun komn- ir í 6,84% en þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem seðlabankinn kín- verski hækkar stýrivexti. Kína, sem er orðið fjórða stærsta hagkerfi heimsins, á eftir Banda- ríkjunum, Japan og Þýskalandi en er nú um það bil að velta Þjóð- verjum úr þriðja sætinu að því er segir í frétt Süddeutsche Zeitung. Þjóðarframleiðslan í Kína er nú um 2.800 milljarðar dala en þjóð- arframleiðslan í Þýskalandi er 2.900 milljarðir dala en þegar horft er til þess að hagvöxtur þessa árs mun líklega verða í kringum 12% er ljóst að Kína verður komið fram úr Þýskalandi í lok ársins. Stórlega vanmetin Sumir hagfræðingar segja raunar að Kína sé fyrir allnokkru komið fram úr Þýskalandi þar sem op- inberar tölur í Kína vanmeti þjóð- arframleiðsluna um á bilinu 10- 20%. Árið 1999 var Kína sjöunda stærsta hagkerfi heimsins en hefur síðan farið fram úr Ítalíu, Frakk- landi og Bretlandi. Gangi spár eftir mun Kína velta Japan úr sessi sem annað stærsta hagkerfi heimsins innan tíu ára og sérfræðingar Gold- man Sachs reikna með að Kína fari fram úr Bandaríkjunum árið 2035. Sé miðað við þjóðarframleiðslu leiðrétta fyrir kaupmætti er Kína nú þegar komið fram úr Japan og ekki nema tæpur áratugur í að það nái Bandaríkjunum. Hagvöxtur í Kína fram úr Þýskalandi REUTERS ÞETTA HELST ... ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll OMX á Íslandi voru í minna lagi í gær, þau námu 7,9 milljörðum króna. Við- skipti með bréf Glitnis fyrir 1,5 millj- arða og Straums-Burðaráss fyrir 1,4 milljarða voru því um fjórðungur heildarviðskiptanna. Verð á bréfum Atorku hækkaði um 1,8% og bréfum Teymis um 1,6%. Mest lækkun var hjá Century Al- uminum, eða um 2,1%. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,07% og er nú 8.995 stig. Lítil viðskipti í gær STILLA eignarhaldsfélag, sem er í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona, hefur framlengt samkeppnistilboð sitt í hlutafé Vinnslustöðvarinnar til 20. ágúst næstkomandi. Í tilkynningu frá Stillum til Kaup- hallar OMX á Íslandi kemur fram að ákvörðun félagsins um framlengingu tilboðsins sé tekin með tilliti til nið- urstöðu samanburðarmats Saga Capital-fjárfestingarbanka, annars vegar á yfirtökutilboði Eyjamanna ehf. og hins vegar á samkeppnistil- boði Stillu. Stjórn Vinnslustöðvar- innar kynnti samanburðarmatið með tilkynningu til Kauphallarinnar hinn 13. júlí síðastliðinn. Í tilkynningu Stillu segir: „Er nið- urstaða Saga Capital-fjárfestingar- banka hf. sú að tilboð Eyjamanna ehf. geti ekki talist sanngjarnt gagn- vart þeim hluthöfum sem því er beint að en hins vegar sé tilboð Stillu eign- arhaldsfélags ehf. sanngjarnt gagn- vart hluthöfum Vinnslustöðvarinnar hf. og í samræmi við þá verðlagningu hlutafjár sem hluthafar í sambæri- legum félögum hafa notið á undan- förnum árum.“ Stilla framlengir Segja tilboð í Vinnslustöðina vera sanngjarnt DIETER von Holtzbrink hefur sagt sig úr stjórn Dow Jones & Co, í mótmælaskyni við þá ákvörðun stjórnarinnar í vikunni að mæla með 5 milljarða dala yfirtökutilboði News Corp., sem er að mestum hluta í eigu Ru- perts Murdoch, í félagið. Þetta kemur fram í frétt á vef Wall Street Journal (WSJ) í gær, sem birtir jafnframt afsagnarbréf Holtzbrink. Þar segir að þó hann telji tilboð News Corp. rausnar- legt hafi hann enn þungar áhyggjur af því að Murdoch komi til með að rýra orðspor Dow Jones til lengri tíma, hvað sem líði nefnd sem eigi að tryggja rit- stjórnarlegt sjálfstæði helstu miðla samsteypunnar. Segir sig úr stjórn Dow Jones ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.