Morgunblaðið - 21.07.2007, Side 40
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Árið sem nú er rétt rúmlega hálfnaðhefur vægast sagt verið erilsamthjá Megasi. „Það byrjaði á því aðég skrifaði músík fyrir leikritið fyr-
ir norðan (Lífið – notkunarreglur eftir Þor-
vald Þorsteinsson sem Leikfélag Akureyrar
setti upp) og ég var að því eitthvað fram í
febrúar,“ segir Megas sem situr andspænis
blaðamanni á kaffihúsi við Austurvöll. „Svo
tóku Passíusálmatónleikarnir við sem haldnir
voru um páskana. Að því loknu var eiginlega
farið beint yfir í þetta verkefni. Miðað við
magnið af efni sem kom út úr þeirri vinnu
tók ferlið furðulítinn tíma. Það var samt setið
mjög rækilega yfir henni og hlustað eftir ein-
hverju sem mætti bæta við og svo var bætt
við. Í mixinu var svo kannski sleppt öllu
saman eins og gengur og gerist. Það þarf að
prófa hvað passar og svo þegar kemur að
lokadómnum kemur í ljós hvað gengur upp
og hvað dettur út til að aðrir hlutir fái að
njóta sín.“
Lífsreynsla
Hann viðurkennir að hafa ekki þekkt mikið
til tónlistar Hjálma áður en samstarf þeirra
hófst. „Ég hef sorglega vanrækt að fylgjast
með íslenskri músík. Það er svo erfitt að
finna út hvaða grúppur eru íslenskar og ég
eiginlega gafst upp á því.“
Upptökurnar á Frágangi fóru fram í
Hljóðrita og fer Megas mjög fögrum orðum
um þær vinnustundir sem hann átti þar með
hljóðfæraleikurunum. „Maður skrifar músík
og texta við hin ýmsu tækifæri og vinnur úr.
Það er síðan alltaf forvitnilegt að sjá hvað
gerist þegar maður er með eitthvert efni sem
maður heyrir fyrir sér en getur ekki fram-
kvæmt einn.“
Eftir dágott spilerí með hljómsveitinni
voru þeir komnir með um tuttugu lög. „Þetta
var sérstök lífsreynsla. Hjálmarnir eru ansi
lunknir og Guðmundur Pétursson er eins og
hann er. Það var alveg sama hversu leið-
inlegt efni ég kom með þá varð það skemmti-
legt þegar búið var að setja músík á bakvið
það. Þetta er ekki konsept-albúm eins og ég
hef stundum sent frá mér. Hér er allt mögu-
legt og platan hangir bara saman á þessum
anda sem var í grunnspiluninni,“ útskýrir
Megas.
„Síðan voru valin út þau lög sem okkur
þótti falla best saman og mynduðu sterka
heild. Platan er kannski heldur stutt miðað
við þær plötur sem ég hef sent frá mér á
liðnum árum. Athyglisþol fólks er líka heldur
lítið og löng plata, jafnvel þó að hægt sé að
slökkva á henni, getur virkað fælandi.“
Svíar
Það gætir ýmissa sænskra áhrifa á plöt-
unni en auk þess sem tveir hljóðfæraleik-
aranna er sænskir, þeir Nisse Törnqvist og
Mikael Svensson, hefst platan á sænsku
þjóðlagi þar sem Megas syngur á sænsku.
„Það kom nú til vegna þess að mig langaði til
að láta Svíunum líða svolítið sem þeir væru
heima hjá sér. Ég gróf upp þetta þjóðlag í
bók fyrir tveimur eða þremur árum sem ég
hef aldrei heyrt á plötu og aldrei heyrt nefnt.
Þetta er mjög fallegt verk og ég spilaði það
fyrir þá og það varð úr að við tókum það
upp.“
Megas segist ennfremur alltaf hafa heillast
af sænskri trúbadorhefð og orðið fyrir tölu-
verðum áhrifum af henni. „Hún liggur langt
aftur og síðan kemur Bellman, risi og vernd-
ardýrlingur fyrir það sem á eftir kemur. Það
sækja allir eitthvað til Bellmans. Ég er mikill
Bellman-aðdáandi og þeir eru það líka og
eins hrífumst við af sænskum þjóðlögum og
öllu mögulegu. Þeir skildu því vel hvað ég
var fara. Trommarinn spurði bara hvort lagið
væri þunglynt eða glaðlynt og svo trommaði
hann eins og hann hefði þekkt lagið frá upp-
hafi. Og píanistinn passar mér afskaplega vel
því hann er með nokkuð djassaða takta, frá
skandinavískum heimilisdjassi, og það heyr-
ist í sumum lögunum.“
Lítið breyst
Lögin á Frágangi eru flest nýleg úr smiðju
Megasar en þó eru nokkur laganna eitthvað
eldri. „Ég hef hvorki þróast né þroskast síð-
an ég byrjaði að semja tólf ára gamall eða
eitthvað svoleiðis. Þannig að ég get sett inn
lag frá því ég var kornungur og það tekur
enginn eftir því. Það er alveg sama hvar bor-
ið er niður; lögin eru alltaf á sama stigi,“ út-
skýrir Megas. „Ég var svolítið melódískari
þegar ég var yngri eða þegar ég var mjög
ungur. Ég var kannski nákvæmari og sam-
viskusamari. Hugsanlega skrifaði ég líka fal-
legri línur þegar ég var barn að aldri en ég
geri í dag. En annars er lítill munur. Þegar
hljómsveit er komin á bakvið mig þá verður
þetta allt einhvern veginn í líkum stíl. Ég hef
sáralítið breyst – nánast ekki neitt. Ég er
nokkurn veginn á sama „leveli“ og ég var
þegar ég byrjaði.“
„ÉG HEF
SÁRALÍTIÐ
BREYST“
SAMSTARF MEGASAR OG MEÐLIMA HJÁLMA Á SÉR EKKI ÝKJA
LANGA SÖGU EN HEFUR ENGU AÐ SÍÐUR REYNST EINSTAK-
LEGA GJÖFULT. UPPHAFIÐ MÁ REKJA TIL SÍÐASTA ÁRS ÞEGAR
HJÁLMAR FENGU MEGAS TIL AÐ SYNGJA NOKKRAR LÍNUR YF-
IR LAG HANS „SÖGU ÚR SVEITINNI“ SEM HJÁLMAR END-
URFLYTJA Á SAFNPLÖTUNNI PÆLDU Í ÞVÍ SEM PÆLANDI ER Í
EN ÞAR FLYTJA ÝMSIR INNLENDIR TÓNLISTARMENN LÖG
MEGASAR EFTIR EIGIN NEFI. STEFNUMÓTIÐ VIRÐIST HAFA
HEPPNAST VEL ÞVÍ SNEMMA Á ÞESSU ÁRI VAR MEGAS MÆTT-
UR Í UPPTÖKUVER ÁSAMT GUÐMUNDI KRISTNI JÓNSSYNI,
SIGURÐI GUÐMUNDSSYNI, NISSE TÖRNQVIST OG MIKAEL
SVENSSON ÚR HJÁLMUM OG GÍTARLEIKARANUM GUÐMUNDI
PÉTURSSYNI. HÓFUST ÞÁ UPPTÖKUR Á NOKKRUM LÖGUM
OG Á MÁNUDAGINN NÆSTKOMANDI LÍTUR AFRAKSTURINN
DAGSINS LJÓS. ÞÁ ER FORMLEGUR ÚTGÁFUDAGUR PLÖT-
UNNAR FRÁGANGS EN HÚN GEYMIR TÓLF LÖG EFTIR MEGAS Í
FLUTNINGI HANS OG SENUÞJÓFANNA.
Morgunblaðið/Eyþór
Meistarinn „Ég er nokkurn veginn á sama „leveli“ og ég var þegar ég byrjaði,“ segir Megas.
Hann var einn af örfá-
um rasistum mann-
kynssögunnar sem fór í með-
ferð… 44
»
reykjavíkreykjavík