Morgunblaðið - 03.09.2007, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.09.2007, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins Ólafur Stef-ánsson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði sex mörk þegar lið hans, Ciudad Real lagði danska liðið Kolding, í æf- ingaleik frammi fyrir þrjú þúsund áhorfendum. Ciudad vann 28:23 og kom eitt marka Ólafs af vítalín- unni.    Handknattleiksmaðurinn, SergoDatukasvili, samherji þeirra Þóris Ólafssonar og Birkis Ívars Guðmundssonar hjá Lubbecke, var vel upplagður þegar lið þeirra tap- aði fyrir Nordhorn 33:28 í þýsku 1. deildinni. Datukasvili skoraði þá fimmtán mörk eða meira en helm- ing marka liðsins og aðeins eitt þeirra var úr vítakasti.    Mikkel Hansen skytta danskaliðsins GOG verður frá keppni alla vega fram í desember. Þetta er mikil blóðtaka fyrir liðið en íslensku landsliðsmennirnir, Snorri Guðjónsson og Ásgeir Örn Hall- grímsson, gengu til liðs við GOG í sumar.    Arnór Atlasonog félagar í FC Kaupmanna- höfn hafa fengið liðsstyrk en Sví- inn Tommy At- terhäll er geng- inn í raðir félagsins. Atter- häll er 28 ára gamall og hefur leikið með Sävehof í heimalandinu en með því liði mun landsliðs- markvörðurinn Hreiðar Guðmunds- son leika á komandi leiktíð. Þjálfari Kaupmannahafnar er Magnus And- erson, fyrrum leikmaður með hinu sterka landsliði Svía á tíunda ára- tuginum.    Landsliðsmaðurinn, Ragnar Ósk-arsson, og samherjar hans hjá Nimes í franska handboltanum munu leika opnunarleik deild- arinnar næstkomandi fimmtudag. Þeir fá aldeilis verðugt verkefni því þá sækja þeir Montpellier heim. Fólk sport@mbl.is næsta helgi verður eins, og nú hvílum við okkur áður en við förum til Lett- lands. Sá leikur leggst vel í mig, það er gott að fara út í upphafi tímabils, gefur okkur tíma til að sauma þetta saman hjá okkur,“ sagði Kristján eftir leikinn í Garðabæ. Hann hefur náð til sín mörgum góðum mönnum enda gat hann teflt fram mörgum í gærkvöldi. „Við höfum fengið mikið af nýjum nöfnum en byggjum ekki tímabilið á stórstjörnum eins og Tite Kalandze í fyrra, við höfum breiðan hóp og fleiri taka þátt í leikjunum. Það vilja marg- ir koma til okkar, sem er jákvætt. Það er samkeppni í liðinu, sem er bara af hinu góða, það eru miklar væntingar og við þurfum að standast pressu.“ Garðbæingar byrjuðu leikinn betur og náðu fljótlega forystu sem gest- irnir þurftu að berjast við að ná allan leikinn. Þeir reyndu þó og tókst stundum að minnka muninn í eitt mark, þar af með þremur síðustu mörkum leiksins og fengu auk þess aukakast í lokin en Garðbæingurinn Hlynur Morthens varði. „Ég er ósáttur með að jafna ekki og fara í framlengingu, mér fannst strákarnir mínir eiga það skilið,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf- ari Vals, eftir tapið í Ásgarði. „Þetta var skemmtilegur leikur en við gerð- um samt of mörg einföld mistök og fráköstin duttu þeirra megin auk þess að þeir fengu einfaldari mörk og það gengur ekki upp á móti reynslubolt- um eins og í Stjörnunni, heldur erum það við sem eigum að gera það en ég er ánægður með hvernig við náðum að koma til baka í lokin. Ég hefði vilj- að gera meira hér í kvöld til að sýna úr hverju við erum gerðir. Mér finnst sumir ekki hafa trú á okkur og aðrir Kristján Halldórsson, þjálfari Stjörn- unnar, var ánægður með uppskeruna. „Við erum þreyttir í dag eftir úrslita- leik í opna Reykjavíkurmótinu í gær en þetta var samt titill sem við ætl- uðum að vinna og gerðum það. Hann var kærkominn eftir erfiða leiki, halda að við séum búnir að vera fyrst það vantar ákveðna pósta hjá okkur en við eigum enn nokkra menn inni, til dæmis Erni Hrafn Arnarson og Baldvin Þorsteinsson, það eiga fleiri eftir að spila betur í vetur. Framhaldið er ekki síður spenn- andi hjá liði Vals en Stjörnunni því næsta laugardag og sunnudag leikur það tvo heimaleiki gegn meisturunum frá Litháen. „Nú er spennandi tími framundan, Evrópuleikur gegn Vik- ing Malt laugardag og sunnudag í næstu viku í Vodafone-höllinni, sem verður vígsluleikur og þar verða Vals- menn að troðfylla húsið, það er ekkert sem heitir. Við höfum ekki spilað í meistarakeppni síðan 1996 og undir- búningurinn núna snýst alveg um það. Nú þarf að hvíla aðeins og hlaða batteríin því við ætlum að komast áfram í þessari keppni.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Meistarar meistaranna Patrekur Jóhannesson fyrirliði Stjörnunnar tók við bikarnum eftir sigurinn á Val. Stjarnan safnar titlum VART var hægt að merkja þreytu hjá bikarmeisturum Stjörnunnar þegar þeir unnu Val 26:25 í keppn- inni meistarar meistaranna í Garðabæ í gærkvöld og kvöddu þar með íþróttahúsið í Ásgarði með virktum. Tveir titlar á tveimur dög- um ætti að vera Garðbæingum gott veganesti þegar liðið heldur til Lettlands á miðvikudaginn til að taka þátt í Evrópukeppni bik- arhafa. Hugurinn í Haukavörninni var í lagi frá byrjun svo að Stjörnustúlkum gekk illa að finna leiðir í gegn svo að Hafnfirðingar náðu öruggri forystu. Engu að síður tókst þeim að saxa forskotið niður í eitt mark eftir að þjálfari þeirra tók leikhlé um miðjan fyrri hálfleik en Haukastúlkur skelltu vörninni aftur og skora 9 mörk á móti einu á níu mínútum. Þrátt fyrir ágæt viðbrögð Garðbæ- inga eftir það, dugði það ekki til. „Við áttum tvo skelfilega leiki með lélegri vörn á opna Reykjavíkur- mótinu en það voru mikil umskipti núna, ég lagði upp með flotta varn- arvinnu, var búin að skoða vandlega leik Stjörnunnar og ætlaði að stöðva helsta vopn þeirra sem er hraðaupp- hlaupin og okkur tókst það,“ sagði Díana Guðjónsdóttir, þjálfari Hauka, sem kom yfir frá HK. „Þetta er fyrsti leikur minn með topplið, allt öðruvísi en í fyrra og þessar stelpur í Haukaliðinu kunna þetta og hjálpa mér vel þar sem ég bara á mínu þriðja ári.“ Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki sáttur við sveifluna. „Þetta er fyrsti tapleikur okkar síðan í janúar á síðasta ári sem er mjög leiðinlegt. Það er alltaf leið- inlegt að tapa og ég var búinn að gleyma þeirri tilfinningu en maður var rækilega minntur á að þegar ekki er mætt undirbúið í slaginn ger- ist svona. Við hittum á frábæran leik í gær, þegar allt gekk upp í vörn ásamt vel heppnuðum sóknarleik en í stað þess að halda því áfram föllum við í að gera eins og í leikjunum þar á undan. Við gerum öll mistökin í bók- inni,“ sagði Aðalsteinn en hlakkar til taka þátt í mikilli keppni í vetur. Haukar kúventu KVEÐJUSTUNDIN var ekki eins og Stjörnukonur hefðu kosið sér þegar Íslandsmeistararnir mættu bikarmeisturum Hauka í Ásgarði í gærkvöldi en það var síðasti leikur Stjörnunnar í íþróttahúsinu áður en félagið flytur heimavöll sinn í Mýr- ina. Haukakonur réðu ferðinni og unnu 32:26, hefndu þar með fyrir stórt tap gegn Stjörnunni í opna Reykjavíkurmótinu deginum áður. Morgunblaðið/Sverrir Ánægðar Haukakonur lögðu Stjörnuna að velli með sex marka mun í Ásgarði og eru meistarar meistaranna. Hefndu fyrir stórt tap gegn Stjörnunni Eftir Stefán Stefánsson ÞAÐ er mikil spenna fyrir loka- keppnisdag Deutsche Bank- meistaramótsins í golfi en Brett Wetterich er efstur á 13 höggum undir pari. Mótið er annað af alls fjórum í úrslitakeppni FedEx- bikarsins og eru rúmlega 660 millj. kr. í boði fyrir þann sem sigrar í úrslitakeppninni. Wetterich er með eins höggs for- skot á Arron Oberholser sem lék á 66 höggum í gær líkt og Wetterich. Tiger Woods gerði mistök á síð- ustu tveimur flötunum þar sem hann þrípúttaði í bæði skiptin og er það ekki líkt efsta kylfingi heims- listans. Woods er þremur höggum á eftir Wetterich og er því til alls líklegur. Phil Mickelson sýndi takta á öðrum keppnisdegi mótsins líkt og Woods þar sem þeir léku báðir á 64 höggum en í gær lék Mickelson á 68 höggum. Hann er þriðji fyrir lokadaginn á 11 högg- um undir pari vallar. Aðeins 70 efstu á stigalista úrslitakeppninnar fá þátttökurétt á næstsíðasta mótinu í næstu viku og aðeins 30 efstu leika á lokamótinu. Mótinu lýkur seint á mánudags- kvöld að íslenskum tíma. Wetterich á eitt högg Vann Akureyri í opna Reykjavíkurmótinu og Val í keppni meistaranna Eftir Stefán Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.