Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Leikurinn á Víkingsvelli var merki- legur fyrir þær sakir að áhorfenda- metið í deildinni féll og þar sem spenna er á toppi og á botni deild- arinnar má telja öruggt að 100.000 áhorfenda múrinn falli í næstu um- ferð. Víkingar hófu leikinn vel og máttu Valsmenn teljast heppnir að lenda ekki undir á fyrstu mínútum leiksins. Gunnar Kristjánsson fékk tvö upp- lögð færi til að koma Víkingum yfir og sérstaklega fór hann illa að ráði sínu á 18. mínútu þegar hann misnot- aði algjört dauðafæri. Hann var einn á markteig en skot hans var frekar misheppnað og Kjartan Sturluson náði að krafla í boltann og verja skot- ið. Andartaki áður hafði Helgi Sig- urðsson, markahæsti leikmaður Landsbankadeildarinnar, þurft að fara af leikvelli vegna meiðsla svo út- litið var ekki allt of gott fyrir Vals- menn á upphafskafla leiksins. En annað átti eftir að koma á dag- inn og á 13 mínútna kafla má segja að Valsmenn hafi gert út um leikinn með því að skora þrívegis, öll komu mörkin upp úr föstum leikatriðum. Gunnar Einarsson, ekki þekktur sem markaskorari, opnaði mark- areikinginn fyrir Hlíðarendaliðið á 29. mínútu og í kjölfarið fylgdu mörk frá Guðmundi Benediktssyni og Baldri Ingimar Aðalsteinsson, beint úr aukaspyrnum sem Víkingar voru allt annað en sáttir við. Þeir töldu að Valsmenn hefðu fengið á silfurfati frá dómara leiksins aukaspyrnuna sem Guðmundur skoraði úr og marki Baldurs mótmæltu þeir kröftuglega og vildu meina að dómarinn hefði flautað aukaspyrnuna eftir að Bald- ur spyrnti í boltann. Hafi Víkingar gert sér einhverjar vonir um að fá eitthvað út úr leiknum hurfu þær vonir út í veður og vind eftir sjö mínútna leik í síðari hálfleik þegar varamaðurinn Dennis Bo Mortensen skoraði fjórða markið. Annar varamaður, Egill Atlason, lagaði stöðuna fyrir Víkinga á 63. mínútu en skömmu áður hafði Stefán Kári Sveinbjörnsson þrumað boltan- um í þverslá Valsmarksins. Pálmi Rafn Pálmason innsiglaði stórsigur Valsmanna og það sem eftir lifði leiksins sóttu liðin á víxl og fengu bæði úrvalsfæri, ekki síst Hafþór Ægir Vilhjálmsson sem var í tvígang hársbreidd frá því að skora sjötta mark Valsara. Fyrst átti hann glæsi- legt skot í markvinkilinn og rétt á eftir brenndi hann af úr dauðafæri. Sterk liðsheild Valsmanna Valsmenn sýndu og sönnuðu að þeir hafa frábæru liði á að skipa sem hungrar í að hampa Íslandsmeist- aratitlinum eftir langa bið. Willum Þór Þórsson, þjálfari liðsins, hefur náð að skapa sterka liðsheild og það geislar leikgleði og öryggi af leik Hlíðarendaliðsins. Það breytti engu þó svo að í liðið vantaði Birki Má Sævarsson, Baldur Bett og að Helgi Sigurðsson lyki keppni eftir 18 mín- útna leik. Þeir leikmenn sem fylltu þeirra skörð gerðu það vel og sýnir þá miklu breidd sem er í liðinu. Bald- ur Ingimar, Sigurbjörn Hreiðarsson og Pálmi Rafn Pálmason voru mjög drjúgir á miðsvæðinu, vörnin sterk með Atla Svein Þórarinsson og Barry Smith fasta fyrir og hinn brögðótti Guðmundur Benediktsson var stórhættulegur og er Valsliðinu gríðarlega mikilvægur.Valsmenn eru svo sannarlega reiðbúnir að stíga dans við FH-inga um meistara- titilinn og það stefnir í úrslitaleik í Kaplakrika í næstsíðustu umferð- inni. Þungur róður hjá Víkingum Lánleysi Víkinga var algjört í þessum leik og leikur liðsins lýsandi dæmi fyrir lið sem er í vandræðum. Líkt og KR-ingar gerðu gegn FH á dögunum byrjuðu Víkingar af krafti en um leið og þeir fengu á sig fyrsta markið greip um sig hálfgert von- leysi og að fá á sig þrjú mörk úr föst- um leikatriðum segir meira en mörg orð um það einbeitingarleysi sem virðist ríkja í herbúðum liðsins. Vík- inga bíður þungur róður í síðustu þremur umferðum. Næstu tveir leiksins liðsins eru útileikir gegn Keflavík og ÍA og í lokaumferðinni fá Víkingar Íslandsmeistara FH í heimsókn. Það má því ljóst vera að Víkingar þurfa að gyrða sig hressi- lega í brók ef þeir ætla að halda sæti sínu í deild þeirra bestu. Morgunblaðið/Árni Torfason Góður Húsvíkingurinn knái í Valsliðinu, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, hafði ástæðu til að gleðjast í Víkinni í gær- kvöld. Baldur skoraði eitt marka Hlíðarendaliðsins og lagði tvö upp, og Valsmenn unnu stórsigur, 5:1. Valur eltir FH-inga Valsmenn söxuðu á forskot FH eftir stórsigur á Víkingum, 5:1, í Víkinni VALSMENN neita að gefast upp í baráttunni við FH-inga um Íslands- meistaratitilinn en bláklæddir Vals- arar léku sama leik og Hafnarfjarð- arliðið gegn KR á dögunum. Valsmenn gjörsigruðu Víkinga, 5:1, á Víkingsvellinum og eru þremur stigum á eftir FH-ingum en Vík- ingar eru í bullandi fallbaráttu og verða gæta að sér ef ekki á illa að fara í haust. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is 0:1 30. Gunnar Ein-arsson skallaði í netið eftir hornspyrnu frá Guðmundi Benediktssyni. 0:2 34. GuðmundurBenediktsson skoraði með glæsilegu skoti, beint úr aukaspyrnu af 18 metra færi, í stöngina og inn. 0:3 45. Baldur I. Að-alsteinsson skoraði með skoti beint úr aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Boltinn breytti stefnu af Grétari Sig- urðarsyni varnarmanni Vík- ings og í netið. 0:4 52. Dennis Bo Mor-tensen skoraði með skalla úr miðjum vítateignum eftir fyrirgjöf Baldurs Að- alsteinssonar. 1:4 64. Egill Atlasonskoraði með föstu skoti hægra megin í vítat- eignum eftir að hafa fengið glæsilega hælsendingu frá Sin- isa Valdimar Kekic. 1:5 71. Pálmi RafnPálmason skoraði með þrumuskoti af stuttu færi eftir aukaspyrnu Baldurs frá miðjum velli. GUNNAR Einarsson kom Vals- mönnum á bragðið þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Valsmenn með skalla eftir horn- spyrnu. Þetta var fyrsta mark hans fyrir Hlíðarendaliðið og fyrsta markið sem hann skorar í deildinni í fimm ár en Gunnar hefur nú skor- að tvö mörk í efstu deild, eitt fyrir KR og eitt fyrir Val. ,,Það var gaman að ná skora loks- ins. Ég er búinn að eiga þó nokkuð af færum í sumar upp úr föstum leikatriðum og það var kominn tími til að nýta eitthvað af þeim,“ sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið. ,,Það er mikill hugur í okkur og það kom ekki annað til greina en að taka þrjú stig fyrst FH-ingarnir unnu KR. Við teljum að við höfum nógu gott lið til að fara alla leið en til þess þurfum við að vinna þá þrjá leiki sem við eigum eftir. Það var þýðingarmikið að ná svona stórum sigri því markatalan gæti ráðið úr- slitum þegar upp er staðið. Úrslitin leiknum gefa kannski ekki alveg rétta mynd af leiknum því Víking- arnir hefðu með smáheppni getað skorað í byrjun. En sem betur fer náðum við tökum á leiknum og sýndum mikla baráttu og þraut- seigju,“ sagði Gunnar. Máttum ekki misstíga okkur Sigurbjörn Hreiðarsson var með fyrirliðabandið að þessu sinni hjá Valsmönnum en þessi baráttujaxl kom inn í liðið í stað Baldurs Bett sem er frá vegna meiðsla. ,,Þetta var frábær sigur og gefur liðinu sjálfstraust fyrir lokabarátt- una. Við máttum alls ekki misstíga okkur þar sem FH-ingarnir voru komnir með sex stiga forskot. Nú verður þetta barátta við þá fram á síðustu stundu og við ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hafa betur í þeirri baráttu,“ sagði Sigurbjörn sem átti mjög góðan leik fyrir Valsmenn. Fyrsta mark Gunn- ars í 5 ár Víkingur R. 1 Valur 5 Víkin, úrvalsdeild karla, Landsbankadeild- in, sunnudaginn 2. september 2007. Mörk Víkings: Egill Atlason 64. Mörk Vals: Gunnar Einarsson 30., Guð- mundur Benediktsson 34., Baldur I. Aðal- steinsson 45., Dennis Bo Mortensen 53., Pálmi Rafn Pálmason 71. Markskot: Víkingur 13 (6) – Valur 17 (9). Horn: Víkingur 6 – Valur 7. Rangstöður: Víkingur 3 – Valur 1 Skilyrði: Hægviðri, skýjað og 12 stiga hiti. Völlurinn háll eftir miklar rigningar. Lið Víkings: (4-3-3) Ingvar Þór Kale – Höskuldur Eiríksson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson (Valur Adolf Úlfarsson 49.), Milos Glogovac, Hörður S. Bjarnason (Eg- ill Atlason 20.) – Jón Björgvin Her- mannsson, Stefán Kári Sveinbjörnsson, Þorvaldur S. Sveinsson, – Arnar Jón Sig- urgeirsson, Sinisa Valdimar Kekic (Pétur Örn Svansson 75.), Gunnar Kristjánsson. Gul spjöld: Jón B. 42. (brot), Sinisa Kekic 43. (mótmæli) Stefán Kári 76. (brot), Pétur Örn 89. (brot). Rauð spjöld: Engin. Lið Vals: (4-4-2) Kjartan Sturlson – Gunn- ar Einarsson, Barry Smith, Atli Sveinn Þórarinsson, Rene Carlsen – Baldur Ingi- mar Aðalsteinsson (Daníel Hjaltason 80.), Sigurbjörn Hreiðarsson, Pálmi Rafn Pálmason, Bjarni Ólafur Eiríksson – Helgi Sigurðsson (Dennis Bo Mortensen 18.), Guðmundur Benediktsson (Hafþór Ægir Vilhjálmsson 76.). Gul spjöld: Bjarni Ólafur 11. (brot), Atli Sveinn 44 (brot), Dennis Bo 70. (brot). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Sævar Jónsson, ÍA, 3. Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson og Oddbergur Eiríksson. Áhorfendur: 1010. „ÞETTA var slæmur skellur hjá mínum mönnum. Mér fannst við vera miklu betri fyrsta hálftím- ann en síðan fáum við á okk- ur þrjú mörk á nokkrum mín- útum. Tvö mörkin komu úr vafasömum aukaspyrnum. Þá fyrri fengu Valsmennirnir gefins og í þeirri seinni flautaði dómarinn eftir að spyrnan var tekin. En ég tek það skýrt fram að dómarar tapa ekki leikjunum. Frammistaða minna manna var bara ekki nógu góð og nú verðum við bara að taka okk- ur saman í andlitinu,“ sagði Magnús Gylfason, þjálfari Vík- inga, við Morgunblaðið eftir leik- inn við Val. ,,Það var skelfilegt að horfa upp á að við skyldum ekki nýta tvö dauðafæri í stöðunni 0:0 og okkur var refsað grimmilega fyr- ir það. Við fengum fullt af góðum færum en uppskeran var aðeins eitt mark og fjögurra marka tap. Það féll allt með Valsmönnum en að sama skapi var lánsleysi okkar algjört. Þetta er kannski dæmi- gert fyrir lið sem er í vandræðum og hjá liði sem er á skriði eins og Valur er á. Fram undan hjá okk- ur er lífróður og þeir þrír leikir sem við eigum eftir verða allir úrslitaleikir,“ sagði Magnús. Féll allt með Vals- mönnum Magnús Gylfason VÍKINGUR Stefán Kári Sveinbjörnsson Þorvaldur Sveinn Sveinsson Egill Atlason VALUR Kjartan Sturluson Barry Smith Atli Sveinn Þórarinsson Rene Carlsen Sigurbjörn Hreiðarsson Pálmi Rafn Pálmason Baldur Ingimar Aðalsteinsson Guðmundur Benediktsson Dennis Bo Mortensen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.