Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 6

Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is VLADIMIR Boisa er ekki þekkt körfuknattleiksmaður í heimi hann hefur vakið athygli í Evróp undanförnum misserum. Boisa með landsliði Georgíu gegn Ísle ingum sl. miðvikudag í Laugard höll. Boisa er fæddur árið 1981 er 2,06 m á hæð en hann skorað stig og tók 7 fráköst gegn Ísle ingum. Boisa lék með ítalska me araliðinu Siena á síðustu leiktíð hann hefur nú samið við rússne liðið Spartak Primorie Vladivos Í samtali við Morgunblaðið s Gríðarlega RÚSSNESKA tenniskonan, Maria Sharapova, mun ekki verja titil sinn á opna bandaríska meist- aramótinu í tennis. Sharapova fékk óvænt úr keppni á laugardaginn þegar hún tapaði fyrir tapaði fyrir hinni 18 ára gömlu, Agnieszka Radwanska. Sú síð- arnefnda er frá Póllandi og hafði sigur í þremur lot- um, 6:4, 1:6 og 6:2 og komst áfram í fjórðu umferð keppninnar, sem opna bandaríska er eitt af fjórum árlegum risamótum í tennisheiminum. Serena Williams þykir líklega til afreka í kvenna- flokki en hún er komin í átta manna úrslit eftir öruggan sigur á hinni frönsku, Marion Bartoli, sem er í tíunda sæti heimslistans. Williams sigraði 6:3 og 6:4. Í karlaflokki er Roger Federer frá Sviss að sjálfsögðu sigurstranglegur og hann er kominn í fjórðu umferð eftir sigur á Bandaríkjamanninum, John Isner, 6:7, 6:2, 6:4 og 6:2. Sharapova tapaði Reuters HAUKAR úr Hafnarfirði tryggðu sér á laugardaginn sæti í 1. deild karla í knattspyrnu, eftir eins árs fjar- veru, þegar þeir unnu stórsigur á Sindra frá Hornafirði, 7:1, í 16. umferð deildarinnar. Ásgeir Þór Ingólfsson, 17 ára piltur í liði Hauka, skoraði þrennu í leiknum og hef- ur gert 10 mörk í deildinni í sumar. Haukarnir hafa ekki tapað leik í deildinni, unnið 11 leiki og gert fimm jafntefli, og eiga eftir að mæta lið- unum í öðru og þriðja sæti, Selfossi og ÍR, í tveimur síð- ustu umferðunum. Þrjú lið komast upp í 1. deild vegna fjölgunar í úrvals- deildinni og Selfyssingar standa vel að vígi eftir sigur á Aftureldingu, 2:0, á útivelli þar sem Sævar Þór Gíslason skoraði bæði mörkin. Hann hefur gert 17 mörk í deild- inni í sumar. KS/Leiftur og ÍR eru jöfn í þriðja til fjórða sæti en þau gerðu einmitt jafntefli, 1:1, á laugardaginn og berjast við Selfyssinga um tvö sæti í 1. deild. Haukar í 1. deild KATRÍN Ómarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, ökklabrotnaði á æf- ingu með KR síðastliðinn föstudag. Katrín hefur verið sett í gifs sem hún verður með næstu tvær vikurnar. Ljóst er að leiktíðinni er lokið hjá henni, sem er mikil blóðtaka fyrir KR enda hefur Katrín tekið þátt í átta af níu A-landsleikjum á árinu. Katrín tjáði Morgunblaðinu í gær að hún hefði einfaldlega misstigið sig á æfingunni með þessum afleið- ingum: ,,Að sögn læknisins er ég ökklabrotin, og brotið er utanvert á fætinum. Ég leik að minnsta kosti ekki meira á þessu tímabili sem er gríðarlega svekkjandi þar sem þetta kemur á versta tíma. Hjá okkur KR-ingum er bæði Íslands- og bik- armeistaratitill í húfi. Maður er bú- inn að bíða lengi eftir síðari leikn- um á móti Val sem verður úrslita- leikur í deildinni,“ sagði Katrín þeg- ar Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar í gær, en KR og Valur munu mætast 13. september í Lands- bankadeildinni en fyrri leiknum lauk með jafntefli. Katrín ökklabrotnaði Katrín Ómarsdóttir Umboðsmaður minn hefur fengið fyr- irspurnir um mig en það er allt of snemmt að segja frá því að svo stöddu.“ Að mörgu er að hyggja hjá Gylfa sem keypti sér hús við æfingasvæði Leeds. Á næstunni mun fjölga um helming í fjölskyldunni þar sem hann á von á tvíburum. Það er því ýmislegt sem þarf að huga að ef hann tekur ákvörðun um að færa sig um set. Gylfi er kominn í gott líkamlegt form eftir undirbúningstímabilið. Hann hefur verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli en kennir sér ekki meins núna: ,,Það verður ekki sagt um Wise að hann geti ekki komið manni í form.“ GYLFI Einarsson knattspyrnumaður hefur fengið sig lausan frá enska lið- inu Leeds United. Gylfi hefur ekki verið inni í þeim áætlunum sem knatt- spyrnuþjálfarinn Dennis Wise hefur um liðið. Gylfi tjáði Morgunblaðinu í gær að þessi niðurstaða hefði verið vilji beggja aðila: ,,Wise vill gjarnan spila með tvo miðjumenn sem sækja lítið fram á við. Það á kannski ekki al- veg við mig,“ sagði Gylfi sem segist ekki vera á leið heim til Íslands: ,,Ég er 28 ára og tel því að ég eigi mínu bestu ár eftir sem knattspyrnu- maður. Ég ætla mér að vera áfram í atvinnumennsku og er bjartsýnn á að ég finni mér nýtt lið á næstu vikum. Gylfi ætlar ekki til Íslands FRÍÐA Rún Einarsdóttir og Krist- jana Sæunn Ólafsdóttir komust ekki í úrslit í fjölþraut á heimsmeist- aramótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Stuttgart. Þær kepptu á laugardaginn og fékk Fríða 51,550 samtals í einkunn og endaði í 90. sæti af alls 214 keppendum, en Kristjana Sæunn Ólafsdóttir fékk 48,175 samtals í einkunn og varð hún í 127. sæti. Steliana Nistor frá Rúmeníu varð efst með 61,600 í einkunn. Fríða Rún, sem er aðeins 15 ára gömul, hefur staðið sig mjög vel í ár og varð Norðurlandameistari í fjöl- þraut auk þess sem hún varð meist- Fríða og Kris Segja má að leikmenn hollenska liðs- ins hafi verið númeri of stórar fyrir leikmenn Íslands, í orðsins fyllstu merkingu. Hollenska liðið er mun há- vaxnara en það íslenska, auk þess sem Íslendingar söknuðu Maríu Ben Erlingsdóttur sem er við nám í Bandaríkjunum. Yfirburðir hollenska liðsins í fráköstum voru augljósir, en þær tóku fimmtíu og þrjú fráköst í leiknum á meðan íslensku leikmenn- irnir náðu þrjátíu og fimm fráköstum. Holland var fyrirfram talið sterk- asta liðið í riðlinum enda fyrrum A- þjóð í kvennakörfubolta. Íslendingum tókst hins vegar að koma þeim á óvart þegar liðin mættust í Hollandi í fyrra. Ísland hafði þá forystu þar til ein og hálf mínúta var eftir af leiknum. Væntingarnar fyrir þennan leik voru því nokkrar en greinilegt var að þær hollensku ætluðu ekki að gera sömu mistökin tvisvar með því að vanmeta íslenska liðið aftur. Þær hófu leikinn af miklum krafti og spiluðu góðan varnarleik. Helena Sverrisdóttir skoraði 25 stig gegn Hollendingum í fyrra en fékk mun minni frið á laug- ardaginn til athafna: ,,Þær spiluðu rosalega fast á móti okkur og þetta var mjög erfitt. Ég fékk nú samt nokkur opin skotfæri en hitti bara ekki vel í dag,“ sagði Helena Sverr- isdóttir, fyrrum leikmaður Hauka, sem kom frá Bandaríkjunum í leik- inn. Hún hefur ekki spilað leik í þrjár vikur þar sem hún er að búa sig undir tímabilið í bandaríska háskólakörfu- boltanum. Það skýrir að einhverju leyti slæma hittni: ,,Þær hollensku eru einnig búnar að spila marga æf- ingaleiki en við engan. Þær voru greinilega tilbúnari í þennan leik. Þar fyrir utan er náttúrlega mikill munur á liðunum í fráköstum. Þær ná tutt- ugu fleiri fráköstum en við. Það er erfitt að keppa við andstæðing sem fær tuttugu fleiri skottilraunir en við, en þeir náðu allt of mörgum sókn- arfráköstum,“ sagði Helena að leikn- um loknum. Vorum alltaf skrefinu á eftir Guðjón Skúlason landsliðsþjálfari sagði slæma byrjun hafa orðið ís- lenska liðinu að falli að þessu sinni: „Við vorum lengi í gang og hittum illa. Erum að spila við sterkt varnarlið sem gefur lítinn séns, sem sást á því að það var erfitt að fá opin skotfæri. Það tók okkur nánast fyrsta leikhlut- ann að koma okkur í gang. Það gerði það að verkum að við vorum alltaf skrefinu á eftir. Samt sem áður vor- um við alveg fram í fjórða leikhluta að minnka muninn og náðum þessu nið- ur í tólf til fjórtán stiga mun. Við misstum hins vegar tökin á þessu í restina og þegar upp var staðið fannst mér þetta aðeins of stór sigur,“ sagði Guðjón. Hann er þeirrar skoðunar að ís- lenska liðið hefði átt möguleika á því að ná betri úrslitum: ,,Við hefðum átt að geta betur en í sókninni hittum við illa og í vörninni náðum við ekki nægi- lega mörgum fráköstum. Í heildina náðu þær hollensku fimmtíu og þrem- ur fráköstum. Nokkrar þeirra eru náttúrlega mjög hávaxnar en það er sama. Þær ná sautján sóknarfráköst- um en við einungis átta. Það er svolít- ið erfitt þegar við erum lágvaxnara lið og þurfum að treysta á að ná fráköst- um til þess að keyra á þær.“ Guðjón bætir því við að það fari mikil orka í að vera að elta andstæð- ingana og reyna að vinna upp mun sem skapast á upphafsmínútum leiks- ins: ,,Þegar þú lendir tíu stigum undir strax í upphafi leiks þá ertu ósjálfrátt kominn í þá stöðu að vera alltaf að elta og þá vantar eitthvert traust til þess að klára hlutina. Við verðum að taka jákvæðu hlutina með okkur úr þess- um leik. Þeir voru margir, það komu góðar sóknir og nokkrar góðar varnir einnig. Við þurfum að byggja á því og læra betur hvernig á að spila á móti svona liði eins og Hollandi.,“ sagði Guðjón. Með sigri hefði íslenska liðið átt möguleika á því að vinna riðilinn en nú er ljóst að það verða Hollendingar sem komast áfram. Ísland leikur næst gegn Norðmönnum og að endingu gegn Írlandi. Annað sætið í riðlinum gefur hins vegar hvorki áframhald- andi þáttöku né góða stöðu þegar næst verður dregið í riðla: ,,Það er frágengið að Holland vinn- ur riðilinn enda hafa þær unnið hinar tvær þjóðirnar í riðilinum með mikl- um mun. Fyrir okkur er þetta spurn- ing um að ná öðru sætinu í riðlinum. Ná okkur í frekari reynslu og nota þessa tvo leiki sem eftir eru til þess að fínpússa þá hluti sem við erum að vinna í. Ég held að það sé engin styrk- leikaskipting þegar dregið er næst í riðla og annað sætið gefur því bara heiðurinn,“ sagði Guðjón Skúlason landsliðsþjálfari að lokum. Þær hollensku númeri of stórar Slæm byrjun íslenska liðsins varð því að falli ÍSLENSKA kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði illa fyrir Hol- lendingum, 73:52, á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardaginn. Liðin áttust við í B-deild Evrópumóts landsliða og með sigrinum eru Hol- lendingar svo gott sem búnir að tryggja sér sigur í riðlinum. Stjórnandi Hildur Sigurðardóttir leikstjórnandi íslenska landsliðsins átti ágæta sp stig en það dugði skammt þar sem þær hollensku unnu öruggan sigur. Ísland 52 Holland 73 Ásvellir, Hafnarfirði, Evrópukeppni kvenna, B-deild, laugardaginn 1. septem- ber 2007. Gangur leiksins: 2:9, 11:21, 15:26, 20:36, 27:42, 36:49, 44:62, 52:73. Stig Íslands: Helena Sverrisdóttir 12, Hild- ur Sigurðardóttir 11, Signý Hermannsdótt- ir 9, Svava Ósk Stefánsdóttir 6, Bryndís Guðmundsdóttir 5, Pálína María Gunn- laugsdóttir 4, Petrúnella Skúladóttir 3, Margrét Sturludóttir 2. Fráköst: 27 í vörn – 8 í sókn. Stig Hollands: Laura Kooij 20, Marloes Roetgerink 18, Marlous Nieuwveen 13, Francisca Donders 8, Kim Hartman 4, Ta- nya Bröring 4, Anouk Biesters 4, Rinske Schooneveld 2. Fráköst: 36 í vörn – 17 í sókn. Villur: Ísland 15 – Holland 17. Dómarar: Johannes Sarekoski Finnlandi og Daniel Berler Svíþjóð. Áhorfendur: 700.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.