Morgunblaðið - 03.09.2007, Side 7

Morgunblaðið - 03.09.2007, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 7 tasti en pu á lék end- dals- 1 og ði 14 end- eist- ð en eska stok. agði Boisa að tilboð rússneska liðsins hefði verið mjög gott enda ekki van- þörf á að félagið borgi leikmönnum sínum góð laun. Vladivostok er í 6.300 km fjarlægð frá Moskvu og eru ferðalögin því löng og ströng í deildinni. Boisa sagði að liðið léki aðeins heimaleiki í 2 mánuði í senn og þess á milli flytti það sig um set til Moskvu. Á 2 mánaða tímabili leikur liðið aðeins útileiki og er með aðsetur í Moskvu þar sem leikmenn búa og stunda æfingar milli leikja. Vegalengdin á milli Moskvu og Vla- divostok er löng og til samanburðar má nefna að frá Moskvu til Reykja- víkur eru um 3.250 km. Vladivostok er stærsta hafnarborg Rússlands við Kyrrahafið en borgin er skammt frá landamærum Rússlands og Kína. Einn íslenskur leikmaður hefur leikið í rússnesku úrvalsdeildinni, Jón Arnór Stefánsson, en hann lék með Dynamo St. Pétursborg tíma- bilið 2004-2005. Þar náði Jón Arnór að landa Evrópumeistaratitlinum og skoraði Jón Arnór 9 stig í úrslita- leiknum gegn liði frá Kænugarði. Eitt félag hefur haft gríðarlega yfirburði í Rússlandi frá árinu 1992 en CSKA Moskva hefur unnið tit- ilinn fimm síðustu árin og alls 14 sinnum á síðustu 16 árum. löng ferðalög í Rússlandi                                                          Linda Björk Valbjörnsdóttir úrUMSS varð í 5. sæti í 400 m grindahlaupi á 62,86 sekúndum á Norðurlandamóti unglinga í Esbjerg um helgina. Linda er aðeins 15 ára gömul og var örskammt frá meyja- og stúlknameti sínu í greininni.    Íris Anna Skúladóttir úr Fjölnivarð í 4. sæti í 1.500 m hlaupi á mótinu á 4:42,76 mínútum.    Guðrún María Pétursdóttir úrBreiðabliki varð í 5. sæti í há- stökki með 1,67 metra. Brons- verðlaun unnust á sömu hæð.    Helga Margrét Þorsteinsdóttirúr USVH varð í 5. sæti í lang- stökki með 5,60 m, 6. sæti í kúlu- varpi með 12,34 metra, í 7. sæti í 100 m grindahlaupi á 14,99 sekúndum og í 8. sæti í 200 m hlaupi á 25,61 sek- úndum.    Kristján Sigurðsson úr FH varð í7. sæti í sleggjukasti með 49,71 metra.    Sandra Pétursdóttir úr ÍR varð í7. sæti í kringlukasti með 32,06 metra og í 7. sæti í sleggjukasti með 38,73 metra.    Stefanía Valdimarsdóttir úrBreiðabliki, sem er 14 ára, varð í 7. sæti í 400 m hlaupi á 58,73 sek- úndum, hársbreidd frá telpnameti, og í 8. sæti í 800 m hlaupi á 2:22,55 mínútum.    Bjartmar Örnuson úr UFA varð í8. sæti í 800 m hlaupi 1:58, 33 mínútu og í 8. sæti í 1.500 m hlaupi á 4:12,96 mínútum.    Örn Davíðsson frá Selfossi varð í6. sæti í spjótkasti með 58,98 metra, í 7. sæti í kringlukasti með 44,83 metra og í 8. sæti í kúluvarpi með 14,92 metra. Hann náði sínum besta árangri í bæði spjótkastinu og kúluvarpinu.    Rögnvaldur Magnússon úr Golf-klúbbi Bolungarvíkur og Anna Ragnheiður Grétarsdóttir úr Golf- klúbbi Ísafjarðar, sigruðu á mótaröð sjávarútvegsfyrirtækja á Vest- fjörðum sem lauk á laugardaginn. Mótaröðin samanstendur af átta mótum sem leikin eru á fimm völlum á Vestfjörðum: Patreksfirði, Bíldu- dal, Þingeyri, Ísafirði og Bolung- arvík. Stig úr fimm mótum telja í samanlagðri keppni.    Nýliðarnir í úrvalsdeild karla,IcelandExpress-deildinni, Stjarnan og Þór Ak. léku til úrslita í hraðmóti Vals í gær. Stjarnan hafði þar sigur, 62:56. Stjarnan hefur fengið sterka leikmenn í sínar raðir og má þar nefna Dimitar Kara- dovski og Fannar Helgason og Sæv- ar Haraldsson. Fólk sport@mbl.is ari í öllum greinum á mótinu, en það hefur aldrei áður gerst að sama stúlkan verði Norðurlandameistari í öllum greinum á einu og sama mótinu. Hún sópaði að sér verðlaun- um á Smáþjóðaleikunum og komst í úrslit á Ólympíumóti æskunnar í Bel- grad í sumar og varð þar í 18. sæti í fjölþraut, en hún var eina stúlkan frá Norðurlöndunum sem komst í úrslit- in. Alls eru 4 íslenskir keppendur á heimsmeistaramótinu í áhaldafim- leikum. Fríða Rún Einarsdóttir og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir hafa lokið keppni en Rúnar Alexand- ersson og Viktor Kristmannsson hefja keppni á morgun, þriðjudag. stjana úr leik Leifur Hafþórsson var á meðal kepp- enda á þessu móti en hann var einu höggi frá því að komast í gegnum nið- urskurðinn. Þetta er annar sigur hans á móta- röðinni en hann sigraði á Skandinav- íumeistaramótinu í fyrra, á fyrsta ári sínu á mótaröðinni. Það voru fáir sem áttu von á því að Warren myndi ná árangri á mótinu í Skotlandi – þar sem hann hafði aðeins komist í gegn- um niðurskurðinn á tveimur af síð- ustu átta mótum. „Þjálfarinn minn sagði mér að slaka aðeins á og draga aðeins úr æfingunum. Ég var því gríðarlega ánægður með útkomuna,“ sagði Warren. MARC Warren frá Skotlandi sigraði í bráðabana gegn Simon Wakefield frá Englandi á Johnnie Walker- meistaramótinu í golfi sem lauk í gær á Gleneagles í Skotlandi. Þeir voru báðir á 12 höggum undir pari að lokn- um 72 holum og léku þeir 18. holu vallarins tvívegis áður en úrslitin réð- ust. Í fyrra skiptið fengu þeir báðir par en í síðara skiptið fékk Warren fugl og tryggði sér sigur. Martin Er- landsson frá Svíþjóð og Sören Han- sen frá Danmörku léku báðir á 11 höggum undir pari vallar. Fyrir sig- urinn fékk Warren um 30 millj. kr. í verðlaunafé og tveggja ára keppnis- rétt á Evrópumótaröðinni. Birgir Warren sigraði í Skotlandi þriðja sæti á ÓL 2004 og HM 2006. Púertó-Ríkó sigr- aði bandaríska landsliðið árið 2004 á ÓL í Aþenu. Mike Krzyzewski, þjálf- ari bandaríska liðsins, var ánægður með leiki liðsins í Las Vegas og er hann bjart- sýnn á framhaldið. „Við teljum að þessi tími sem við höfum haft að und- anförnu sé dýrmætur fyrir stórmótið á næsta ári í Peking,“ sagði Krzy- zewski. BANDARÍSKA landsliðið í körfu- knattleik karla hefur öðlast virðingu á ný en liðið leikur til úrslita gegn Argentínu í forkeppni um laus sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári. Bandaríska liðið hefur ekki mis- stigið sig í keppninni til þessa og unnið alla leikina. Carmelo Anthony skoraði 27 stig þegar liðið lagði Pú- ertó Ríkó, 131:91 í undanúrslitum. Með sigrinum tryggði bandaríska liðið sér keppnisrétt á Ólympíu- leikunum í Peking í Kína á næsta ári. Gengi bandaríska liðsins á stór- mótum að undanförnu hefur verið slakt en liðið endaði í sjötta sæti á heimsmeistaramótinu árið 2002, og í Bandaríkin firnasterk Carmelo Anthony Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Byrjunin á leiknum var ekki góð hjá íslenska liðinu og náðu heimamenn mest 16 stiga forskoti í fyrri hálfleik og þegar blásið var til leikhlés var staðan var 41:36. „Þeir voru rosa- lega grimmir og ákveðnir í upphafi leiksins. Þetta var eini möguleiki þeirra á að landa sigri í riðlakeppn- inni og það var alveg ljóst að þeir ætluðu að gefa allt í þetta,“ sagði Sigurður. Þjálfarinn lagði á ráðin með leikmönnum Íslands í hálfleik og þeir fundu svör við flestum að- gerðum heimaliðsins. Í upphafi síðari hálfleiks náðu Ís- lendingar fínni skorpu og skoraði liðið 31 stig gegn aðeins 14 stigum heimamanna. Með 5 stig í forskot fyrir lokaleikhlutann fóru hjólin að snúast fyrir alvöru hjá íslenska lið- inu og 16 stiga sigur Íslands var staðreynd. „Við náðum okkur vel á strik í upphafi 3. leikhluta og eftir það var þetta aldrei spurning. Varnarleikur- inn var mun betri en í þeim fyrri og við náðum að skora fleiri auðveld stig úr hröðum sóknum.“ Ísland á ekki möguleika á að kom- ast í A-deild að þessu sinni en Finn- ar hafa tryggt sér sigur í riðlinum og sæti í A-deild að ári. Íslenska lið- ið hefur unnið þrjá leiki til þessa í keppninni, báða leikina gegn Lúx- emborg og gegn Georgíu sl. mið- vikudag. Síðasti leikur liðsins er gegn Austurríki á miðvikudaginn og fer hann fram í Laugardalshöllinni. „Það eru allir heilir í okkar liði eftir ferðina gegn Lúxemborg en það er tilhlökkun í okkar liði fyrir síðasta leikinn. Að okkar mati eigum við harma að hefna gegn Austurríki. Við töpuðum með allt of miklum mun á útivelli þar sem tveir leik- menn þeirra gerðu út um leikinn á lokakaflanum. Það er hugur í strák- unum að sýna að þeir séu betri en Austurríkismennirnir en til þess að vinna þá þarf varnarleikurinn að vera á sama stigi og gegn Georgíu sl. miðvikudag.“ Íslenska liðið fær frí frá æfingum í dag, mánudag, en á morgun verður lokaundirbúningur liðsins fyrir síð- asta heimaleikinn á þessu ári. Jakob Sigurðarson tryggði Íslendingum sigur gegn Georgíu með mögnuðu þriggja stiga skoti rétt fyrir leikslok en þjálfarinn segir að liðið hafi ekki farið í gegnum slík atriði að und- anförnu. „Nei, við erum ekki búnir að setja upp leikkerfi fyrir síðasta skotið. Við eigum ýmislegt til á lager en við verðum að bíða og sjá hvernig leikurinn þróast.“ Brenton Birmingham kemur inn í liðið að nýju fyrir leikinn gegn Aust- urríki en hann fór ekki með til Lúx- emborgar vegna anna í vinnu. Öruggur sigur  Kaflaskiptur leikur gegn Lúxemborg  Austurríkismenn mæta í „Höllina“  „Ætlum að sigra,“ segir þjálfarinn „Við lékum vel í síðari hálfleik gegn Lúxemborg eftir skelfilega byrjun á leiknum þar sem við vor- um 16 stigum undir um tíma. Varn- arleikurinn lagaðist í síðari hálfleik og mér fannst 89:73 sigur okkar síst of stór,“ sagði Sigurður Ingi- mundarson þjálfari íslenska lands- liðsins í körfuknattleik í gær en lið- ið lagði Lúxemborg á útivelli á laugardaginn og aðeins eitt verk- efni er eftir í riðlakeppninni hjá Ís- lendingum – gegn Austurríki á heimavelli á miðvikudaginn. Morgunblaðið/Sverrir retti gegn Hollendingum og skoraði ellefu Lúxemborg 73 Ísland 89 Lúxemborg, Evrópukeppni karla, B-deild, laugardaginn 1. september 2007. Gangur leiksins: 25:15, 49:36, 63:67, 73:89. Stig Lúxemborgar: Rajniak 21, Schumac- her 10, Delgado 10, Rajniak 9, Jones 6, Melchior 6, Schartz 6, Ferreira 5. Fráköst: 8 í vörn – 22 í sókn. Stig Ísland: Logi Gunnarsson 21, Fannar Ólafsson 15 (9 fráköst), Páll Axel Vilbergs- son 15 (8 fráköst), Magnús Gunnarsson 12, Friðrik Stefánsson (7 fráköst), Jakob Sig- urðarson 8, Brynjar Björnsson 2, Kristinn Jónasson 2, Helgi Magnússon 3, Sigurður Þorsteinsson 2. Þorleifur Ólafsson, Svein- björn Claessen. Fráköst: 13 í vörn – 33 í sókn. Villur: Lúxemborg 25 – Ísland 23. Dómarar: Fabrizio Pizio (Sviss), Marko Vuckovic (Slóveníu). Áhorfendur: Um 500. Morgunblaðið/Ómar Skorari Logi Gunnarsson skoraði 21 stig gegn Lúxemborg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.