Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 1
mánudagur 1. 10. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Rúnar Kristinsson ætlar að leggja skóna á hilluna >> 3
MIKLAR TILFINNINGAR
„SAMSTAÐAN Í HÓPNUM ER EINSTÖK,“ SEGIR
WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON, ÞJÁLFARI VALS >> 2
„Eina markmið okkar fyrir tímabilið
var að vinna titilinn og við lögðum
upp með það fyrir mót að ná
ákveðnum fjölda stiga sem við gerð-
um og gott betur en það. Hópurinn
er frábær sem við erum með. Ég er
ekki í vafa um að mörg lið hefðu
brotnað við þá aðstöðu sem við Vals-
menn höfum þurft að búa við síðustu
ár en við náðum að búa til einstaka
stemningu innan hópsins sem skilaði
sér svo sannarlega alla leið.“
Fann fyrir taugaspenningi
Guðmundur sagði leikinn við HK
hafa verið taugastrekkjandi. „Ég
held að við séum þrír í hópnum sem
höfum orðið Íslandsmeistarar og það
er alltaf stórt skref fyrir leikmenn að
ná sínum fyrsta titli. Ég fann að það
var taugaspenningur í mönnum. Við
byrjuðum af krafti og náðum að
skora en eftir það vorum við frekar
varkárir, greinilega hræddir við að fá
á okkur mark.“
Þið voruð á tímabili átta stigum á
eftir FH. Voruð þið aldrei við að
missa móðinn?
„Nei, aldrei. Við vissum að það
kæmi sá tímapunktur að FH myndi
misstíga sig og það varð raunin. Það
voru allir að tala um að við hefðum
ekki nýtt tækifærið að komast yfir
FH en staðreyndin er sú að við töp-
uðum bara tveimur leikjum í sumar
og ég held að það sé engin tilviljun að
við erum orðnir Íslandsmeistarar.“
Guðmundur spilaði alla 18 leiki
Valsliðsins í sumar – skoraði fimm
mörk og var maðurinn á bak við
mörg mörk sinna manna. Þegar und-
irritaður spjallaði við Guðmund fyrir
þremur árum þakkaði hann fyrir
hvern leik sem hann spilaði enda hef-
ur hann gengið mikla þrautagöngu
vegna erfiðra meiðsla sem hann hef-
ur þurft að glíma við á ferlinum.
„Meðan ég hef gaman af þessu held
ég áfram. Ég nýt hverrar einustu
mínútu sem ég spila og blessunar-
lega hef ég sloppið við meiðsli í sum-
ar.“
Fyrirliðinn frá 1987
var gráti næst
Þorgrímur Þráinsson var síðastur
Valsmanna til að lyfta Íslandsbikarn-
um á loft áður en Sigurbjörn Hreið-
arsson gerði það á laugardaginn.
Þorgrímur var fyrirliði Valsmanna
þegar þeir hömpuðu titlinum1987 og
hann var mættur til að fagna með
Hlíðarendapiltunum þegar þeir inn-
byrtu titilinn eftir 20 ára bið.
„Ég verð nú bara að segja það að
ég var gráti næst,“ sagði Þorgrímur
við Morgunblaðið í þann mund sem
Valsmenn voru krýndir Íslands-
meistarar og það mátti vel sjá tár í
augum gamla fyrirliðans þegar hann
fylgdist með verðlaunaafhending-
unni á Laugardalsvellinum.
„Ég átti bágt með mig meðan á
leiknum stóð. Ég gekk um í áhorf-
endastúkunni í síðari hálfleik enda
var þetta mjög erfiður leikur sem tók
á taugarnar. Valsliðið hefur oft spilað
betur og það mátti greinilega merkja
að strákarnir voru taugastrekktir
sem kom niður á leik þeirra. Ég var
hins vegar nokkuð öruggur með að
við myndum hafa þetta því mér
fannst hlutirnir hafa þróast á þann
veg að Valur yrði meistari,“ sagði
Þorgrímur.
Willum hefur neistann
„Ég verð að hrósa Willum þjálfara
fyrir glæsilegan árangur. Hann hefur
þennan neista sem þarf, hann á auð-
velt með að koma mönnum í rétta gír-
inn og svo hefur hann þessa yfirveg-
un sem þarf á að halda. Hópurinn
sem hann hafði úr að spila í sumar var
mjög samstilltur og örlögin höguðu
því að Valur stóð uppi sem sigurveg-
ari. Það er að hefjast nýtt tímabil hjá
Val. Félagið er komið með glæsilega
aðstöðu og að ná núna að landa titlum
bæði í karla- og kvennaflokki er stór-
kostlegur árangur,“ sagði Þorgrímur
og bætti við: „Mér finnst svo stutt síð-
an ég stóð í þessum sporum, – nánast
eins og í gær.“
Allt um lokaumferð Landsbanka-
deildarinnar.
» 2, 3, 4, 5, 6, 7 , 8, 10, 12
Valsmaðurinn Guðmundur Benediktsson meistari í fimmta sinn Fjórum sinnum meistari með KR
„Eina markmiðið var
Íslandsmeistaratitillinn“
„ÞETTA er búið að vera stórkost-
legt sumar og okkur tókst að gera
það sem við stefndum að,“ sagði
Guðmundur Benediktsson, sem tók
á móti sínum fimmta gullpeningi á
Íslandsmótinu en framherjinn
snjalli, sem átti stóran þátt í vel-
gengni Valsmanna í sumar, varð
meistari með KR-ingum í fjögur
skipti áður en hann var krýndur
meistari með Val. Guðmundur er
tengdasonur Inga Björns Alberts-
sonar, sem var meistari og fyrirliði
Vals á árum áður. Já, og mesti
markverðahrellir Íslandssögunnar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fögnuður Guðmundur Benediktsson var að sjálfsögðu fremstur í flokki þegar Valsmenn fögnuðu langþráðum Íslandsmeistaratitli.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is