Morgunblaðið - 01.10.2007, Page 4
4 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
knattspyrna
„MÉR líður eins og við höfum gert einhver jafn-
tefli,“ sagði Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari
Breiðabliks, þegar hann var beðinn um að gera
upp tímabilið í stuttu máli. Liðið gerði níu jafn-
tefli í átján leikjum og hafnaði í fimmta sæti
deildarinnar.
Ólafur bætti því síðar við að hann hefði viljað
fá fleiri stig en er ánægður með hversu mikið
leikmenn hans hafa þroskast, s.s. frá sama tíma í
fyrra. „Það er mjög jákvætt og gefur mér
ástæðu til þess að vona að liðið geti náð ennþá
lengra. Það er hægt að byggja gríðarlega mikið
á þessu tímabili, þar sem stöðugleiki er kominn í
liðið.“
Spurður út í leikinn gegn Fram sagði Ólafur
hann endurspegla tímabilið. „Mér fannst við
vera með yfirburði í spilinu, en við skorum of lít-
ið. Það vantar drápseðlið í þessum jafn-
teflisleikjum, þar sem við hefðum átt að breyta
jafntefli í sigur. Það helgast m.a. af því að við er-
um ekki nægilega ákveðnir að fara inn í vítateig-
inn og vera þar. Við þurfum að vinna í því í vet-
ur.“
Ólafur sagðist einnig hlakka til næsta tíma-
bils, þegar liðum verður fjölgað. „Það verður
gríðarlega skemmtilegt og þá verður þetta nær
því að vera alvöru mót. Nú var þetta að klárast
þegar við komum inn í september og því er til-
hlökkun að fá lengra mót á næsta ári.“
„Eitt tímabil í viðbót“
„Í heild erum við ekki endilega sáttir við tíma-
bilið. Það voru of margir leikir sem við misstum
niður í jafntefli og leikir sem við töpuðum þar
sem við vorum einfaldlega miklu betri aðilinn,“
segir Arnar Grétarsson, fyrirliði Breiðabliks.
Hann segir stöðu liðsins í deildinni því ekki endi-
lega gefa rétta mynd af frammistöðunni á tíma-
bilinu.
Arnar hefur staðið sig afar vel með liðinu á
tímabilinu og stjórnað miðjuspilinu af mikilli
festu. Hann er orðinn 35 ára gamall og því viðbú-
ið að spyrja hvort búast megi við því að sjá hann
á vellinum næsta sumar. „Ég stend ennþá upp-
réttur, þó svo félagarnir geri grín að því að ég
notist við göngugrind milli leikja. En þetta er bú-
ið að ganga ágætlega og markmiðið er að taka
eitt tímabil í viðbót.“
Liðið getur náð enn lengra
0:1 39. Henrik Eggerts gaf fína sendingu fyrir mark Breiðabliks,beint á kollinn á Jónasi Grana Garðarssyni sem stýrði bolt-
anum neðst í hægra hornið.
1:1 41. Prince Rajcomar fékk knöttinn inni í vítateig Fram, lagðihann út á Magnús Pál Gunnarsson sem skaut bylmingsskoti
að marki frá vítateigslínu. Knötturinn hafnaði í hægra horni marksins
án þess að Hannes Þór kæmi vörnum við.
2:1 56. Óðinn Árnason braut á Prince Rajcomar innan vítateigs.Magnús Páll Gunnarsson tók vítið og skoraði af miklu öryggi,
skaut knettinum ofarlega í hægra hornið.
2:2 73. Srdjan Gasic braut á Kristjáni Haukssyni inni í vítateigBlika. Jónas Grani Garðarsson skoraði örugglega úr vítinu,
sitt þrettánda mark á tímabilinu, og tryggði sér þar með markakóng-
stitilinn.
Breiðablik 2
Fram 2
Kópavogsvöllur, úrvalsdeild karla, Lands-
bankadeildin, laugardaginn 29. september
2007.
Mörk Breiðabliks: Magnús Páll Gunnars-
son 41., 56. (víti).
Mörk Fram: Jónas Grani Garðarsson 39.,
73.(víti).
Markskot: Breiðablik 12 (5) – Fram 9 (5).
Horn: Breiðablik 10 – Fram 5.
Rangstöður: Breiðablik 0 – Fram 4.
Skilyrði: Rigning, 6-10 m/s og völlurinn
þungur og laus í sér. Hiti um 10 stig.
Lið Breiðabliks: (4-5-1) Casper Jacobsen –
Árni Kristinn Gunnarsson, Srdjan Gasic,
Guðmann Þórisson, Arnór Sveinn Aðal-
steinsson – Gunnar Örn Jónsson (Kristinn
Steindórsson 67.), Arnar Grétarsson, Ol-
geir Sigurgeirsson (Guðmundur Kristjáns-
son 73.), Magnús Páll Gunnarsson, Nenad
Zivanovic – Prince Rajcomar (Kristinn
Jónsson 89.).
Gul spjöld: Prince 54. (brot). Olgeir 72.
(brot).
Rauð spjöld: Engin.
Lið Fram: (4-3-3) Hannes Þór Halldórsson
– Óðinn Árnason, Reynir Leósson, Kristján
Örn Hauksson, Daði Guðmundsson – Ingv-
ar Þór Ólason, Hans Mathiesen, Alexander
Steen (Grímur Björn Grímsson 87.) –
Hjálmar Þórarinsson (Ívar Björnsson 70.),
Jónas Grani Garðarsson, Henrik Eggerts.
Gul spjöld: Óðinn 67. (brot), Kristján 87.
(brot).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Garðar Örn Hinriksson, Stokks-
eyri, 4.
Aðstoðardómarar: Gunnar Sverrir Gunn-
arsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson.
Áhorfendur: 578.
„ÞETTA er klárlega það gott lið að
það hefði alla vega átt að vera um
miðja deild,“ sagði Ólafur Þórð-
arson, þjálfari Fram, eftir leik liðs-
ins gegn Breiðabliki. Hann er engu
að síður ánægður með að markmið
sumarsins skyldi nást; að halda lið-
inu á meðal þeirra bestu.
Ólafur sagði að eitt markmið
hefði verið sett fyrir leikinn á laug-
ardag. Það hefði verið að fara upp
um eitt sæti og tryggja stöðu liðsins í
deildinni. Það tókst og þjálfarinn var
sáttur við það. „Svo er ég auðvitað
afar ánægður með að eiga marka-
hæsta leikmann deildarinnar. Það er
ánægjulegt og eitt skref í rétta átt.“
Átta ár í fallbaráttu
Fallbaráttan hefur loðað við
Framliðið átta síðustu ár í efstu
deild, en liðið lék í fyrstu deild í
fyrra. Þrátt fyrir það benti Ólafur á
að liðið hefði ekki verið það sem oft-
ast sat í neðsta sætinu í sumar. „Við
upplifðum það að vera nálægt falls-
væðinu og það er alltaf ákveðið
stress í kringum það. En við ætl-
uðum okkur aldrei annað en að
halda sæti okkar í deildinni, trúðum
á það og uppskárum eftir því. Við
lentum í ákveðnum erfiðleikum í
upphafi móts, lékum vel en gáfum of
mikið af stigum frá okkur sem við
áttum að innbyrða. Það olli því að
við lentum í þeirri stöðu að vera í
neðri hlutanum fram eftir móti.“
Spurður út í hvort þær væntingar
sem gerðar voru til liðsins fyrir mót
hefðu ekki brostið sagði Ólafur svo
vera, en ekki þannig að örvænting
hefði gripið um sig. Hann bætti því
við að auðveldlega væri hægt að
byggja á tímabilinu fyrir það næsta.
Áttum skilið
að vera ofar
á töflunni
BREIÐABLIK
Magnús Páll Gunnarsson
Srdjan Gasic
Nenad Zivanovic
Arnar Grétarsson
Prince Rajcomar
FRAM
Jónas Grani Garðarsson
Reynir Leósson
Henrik Eggerts
Alexander Steen
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Þó svo að undirritaður segi leikinn
hafa verið lítið fyrir augað var ekki
að merkja það af upphafsmínútun-
um. Þá réðu Blikar lögum og lofum á
vellinum og strax á 9. mínútu voru
þeir nálægt því að komast yfir. Arn-
ar Grétarsson, fyrirliði liðsins, átti
þá hörkuskot rétt fyrir utan vítateig
vinstra megin. Boltinn breytti um
stefnu af höfði varnarmanns og
markvörður Fram, Hannes Þór
Halldórsson, mátti hafa sig allan við
að verja.
Fyrsta stundarfjórðunginn var
sókn Breiðabliks þung. Á þeim tíma
fengu heimamenn t.a.m. fimm horn-
spyrnur, sem þeir að vísu náðu ekki
að nýta sér, og virtust til alls líklegir.
Því voru það vonbrigði að sjá leikinn
leysast upp í miðjumoð og á tíu mín-
útna leikkafla náði hvorugt lið skoti
að marki.
Á 25. mínútu fékk Jónas Grani
Garðarsson, markamaskína Fram-
ara, upplagt færi til að koma gest-
unum yfir. Þá átti Alexander Steen
fína sendingu inn fyrir vörn Breiða-
bliks og Jónas Grani var einn á móti
Casper Jacobsen, markverði Blika.
Casper gerði vel í að loka markinu en
Grani hefði átt að gera betur – skotið
ekki nægilega gott og varið.
Boltinn límdist við jörðina
Völlurinn var afar erfiður viður-
eignar og sást það vel á leiknum.
Stuttar sendingar fóru forgörðum
hvað eftir annað hjá báðum liðum og
leikmenn áttu erfitt með að hafa
stjórn á knettinum. Eitt slíkt tilvik
kom upp á 36. mínútu þegar Hjálmar
Þórarinsson þeysti upp völlinn. Þeg-
ar hann nálgaðist vítateiginn, með
Jónas Grana hægra megin við sig,
virtist boltinn límast við jörðina á
meðan Hjálmar hljóp áfram og auð-
velt var því fyrir varnarmenn Blika
að stöðva þá sókn.
Mörkin tvö voru kærkomin áhorf-
endum, sem voru tiltölulega fáir í
þetta skiptið. Þau komu með tveggja
mínútna millibili, á 39. og 41. mínútu.
Jónas Grani skoraði með fínni kolls-
pyrnu – hans sjötta skallamark í
sumar – og svo jafnaði Magnús Páll
með bylmingsskoti fyrir utan víta-
teig. Staðan því 1:1 í hálfleik.
Fátt markvert gerðist fyrstu á tíu
mínútum síðari hálfleiks, eða þar til
Blikar komust yfir á 56. mínútu. Þá
braut Óðinn Árnason af sér innan
vítateigs og Magnús Páll skoraði
annað mark sitt í leiknum; af víta-
punktinum. Arnar Grétarsson var
nálægt því að bæta við skömmu síðar
en skot hans fór hárfínt framhjá
marki Framara.
Mark dæmt af Blikum
Óðinn Árnason fékk upplagt tæki-
færi til að bæta fyrir vítaspyrnudóm-
inn þegar boltinn barst til hans í víta-
teig Blika. Skot hans var hins vegar
máttlaust og náði ekki að markinu. Á
70. mínútu voru Framarar aftur ná-
lægt því að jafna og í raun það eina
sem stóð í vegi var Garðar Örn Hin-
riksson, dómari leiksins. Hann
dæmdi mark Kristjáns Haukssonar
af vegna bakhrindingar.
Tveimur mínútum síðar tókst
gestunum loksins að jafna. Srdjan
Gasic braut þá á Kristjáni Hauks-
syni inni í vítateignum. Jónas Grani
tók vítaspyrnuna og skoraði af miklu
öryggi. Markið var hans þrettánda á
tímabilinu og með því tryggði hann
sér gullskóinn eftirsótta.
Eftir það gerðist fátt markvert,
eða þar til þrjár mínútur voru liðnar
af venjulegum leiktíma. Þá fékk títt-
nefndur Jónas Grani tækifæri til að
fullkomna þrennuna. Var í upplögðu
marktækifæri en hitti boltann illa og
hann hrökk yfir markið.
Að leik loknum fögnuðu leikmenn
Fram, enda takmarki sumarsins
náð; að halda liðinu í efstu deild auk
þess sem Jónas Grani fékk viðeig-
andi tolleringu fyrir árangur sinn í
sumar.
Morgunblaðið/Golli
Barátta Magnús Páll Gunnarsson, leikmaður Breiðabliks, og Reynir Leósson, fyrirliði Fram, berjast um knöttinn.
Úrslitin sanngjörn
í bragðdaufum leik
Jónas Grani tryggði Fram jafntefli og varð markahæsti leikmaður deildarinnar
ÞRÁTT fyrir fjögur mörk í leik
Breiðabliks og Fram á Kópavogs-
velli var leikurinn í heild lítið fyrir
augað, og ekki síst um að kenna ut-
anaðkomandi aðstæðum. Völlurinn
var blautur, þungur og laus í sér
ásamt því að rigning og vindur
lömdu á leikmönnum nær allan
leikinn. Úrslitin sem slík voru sann-
gjörn, bæði lið skoruðu tvö mörk og
mega una sátt við sitt. Fram, sem
var í fallbaráttunni, hafnaði að lok-
um í 7. sæti og Breiðablik, sem
hafði að engu að keppa, í 5. sæti.