Morgunblaðið - 01.10.2007, Síða 11
Lyn 22 8 4 10 35:38 28
Aalesund 22 8 3 11 34:47 27
Strömsgodset 22 7 4 11 27:39 25
Start 21 4 7 10 27:36 19
Odd Grenland 22 5 3 14 26:39 18
Sandefjord 21 4 3 14 24:41 15
Svíþjóð
AIK – GAIS ...............................................0:0
Halmstad – Gefle.......................................0:0
Helsingborg – Trelleborg.........................1:1
Brommapoj. – Elfsborg............................1:1
Djurgården – Örebro................................4:1
GAIS – Gautaborg ....................................0:1
Staðan:
Djurgården 23 11 7 5 35:22 40
Gautaborg 22 10 7 5 37:23 37
AIK 23 10 7 6 30:24 37
Elfsborg 23 9 9 5 36:26 36
Kalmar 22 11 3 8 34:30 36
Halmstad 23 9 8 6 31:29 35
Hammarby 22 10 3 9 31:25 33
Malmö FF 22 8 7 7 26:21 31
Helsingborg 23 7 8 8 38:33 29
Gefle 23 7 7 9 23:27 28
GAIS 23 6 8 9 21:30 26
Örebro 23 5 7 11 24:40 22
Brommapoj. 23 4 8 11 18:39 20
Trelleborg 23 4 7 12 21:36 19
Danmörk
Brøndby – Randers...................................1:1
Midtjylland – AGF....................................2:0
OB – Esbjerg .............................................1:1
AaB – Viborg .............................................3:2
København – Lyngby ...............................2:0
Staðan:
København 11 7 3 1 15:5 24
Midtjylland 11 7 2 2 19:10 23
AaB 11 6 2 3 21:19 20
OB 11 4 6 1 19:10 18
Horsens 10 5 3 2 18:14 18
Randers 11 4 3 4 17:9 15
Nordsjælland 10 4 3 3 15:12 15
Esbjerg 11 4 2 5 25:21 14
Viborg 11 3 1 7 10:25 10
AGF 11 2 2 7 6:15 8
Brøndby 11 1 4 6 10:20 7
Lyngby 11 1 3 7 8:23 6
Holland
Groninen – Sparta .................................... 1:0
Breda – PSV ............................................. 1:1
Roda – Exclsior ........................................ 3:3
Feynoord – Heerenveen.......................... 2:0
Ajax – Venlo.............................................. 6:1
Graafchap – Twente ................................. 0:0
Utrecht – Vitesse ..................................... 2:4
Heracles – AZ Alkmaar ........................... 2:1
Nijmegen – Willem .................................. 1:0
Staða efstu liða: Ajax 16, Feyenoord 15,
PSV 14.
Skotland
Aberdeen – Gretna....................................2:2
Celtic – Dundee Utd .................................3:0
Hibernian – Kilmarnock...........................4:1
Inverness – Falkirk ..................................4:2
Motherwell – Rangers ..............................1:1
St Mirren – Hearts....................................1:3
Staðan:
Rangers 8 7 1 0 26:6 22
Celtic 8 6 1 1 27:6 19
Hibernian 8 5 3 0 17:9 18
Dundee Utd 8 4 1 3 11:8 13
Motherwell 8 4 1 3 9:9 13
Kilmarnock 8 3 2 3 8:10 11
Hearts 8 2 2 4 10:15 8
Falkirk 8 2 1 5 11:19 7
St Mirren 8 2 1 5 5:14 7
Aberdeen 8 1 3 4 9:15 6
Inverness 8 2 0 6 8:19 6
Gretna 8 1 2 5 10:21 5
Frakkland
Caen – Toulouse ........................................2:1
Lyon – Lens ...............................................3:0
Staðan:
Lyon 9 6 1 2 18:8 19
Nancy 8 6 1 1 15:5 19
Bordeaux 9 5 3 1 12:6 18
Valenciennes 8 5 2 1 13:7 17
Le Mans 10 5 1 4 13:13 16
Rennes 9 4 3 2 9:7 15
Nice 9 4 2 3 10:7 14
Mónakó 9 4 1 4 13:9 13
Strasbourg 9 3 3 3 8:6 12
Lorient 9 3 3 3 10:11 12
St. Etienne 9 3 2 4 9:9 11
Toulouse 8 3 2 3 10:11 11
París SG 9 2 5 2 7:8 11
Lille 9 1 7 1 9:9 10
Auxerre 9 3 0 6 6:15 9
Caen 8 2 1 5 7:12 7
Marseille 9 1 4 4 7:12 7
Sochaux 9 1 4 4 8:14 7
Lens 8 1 3 4 3:8 6
Metz 9 1 2 6 4:14 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 11
íþróttir
Powerade-bikarkeppnin
Úrslitaleikur kvenna:
Haukar - Keflavík.................................90:85
Úrslitaleikur karla:
KR - Snæfell ..........................................72:65
Það var hin magnaða Birgit Prinz
sem skoraði fyrra mark Þjóðverja á
52. mínútu og Simone Laudehr inn-
siglaði sigurinn með marki fjórum
mínútum fyrir leikslok. Í millitíðinni
höfðu Brassarnir gert harða hríð að
marki Þjóðverja og fengu gullið
tækifæri til að jafna metin þegar
þeir fengu vítaspyrnu á 65. mínútu
en Nadine Angerer, markvörður
Þjóðverja, varði slaka spyrnu frá
Mörtu. Þýska liðið náði þeim frá-
bæra árangri að halda marki sínu
hreinu í öllu mótinu, sem er met í
sögu HM, en markatala liðsins í
keppninni var 21:0. Þjóðverjar hafa
haldið marki sínu hreinu í 619 mín-
útur í úrslitakeppni HM en Svíar
urðu síðastir til að skora í þýska
markið, í úrslitaleiknum fyrir fjórum
árum.
„Það var mikið sjálfstraust í mínu
liði og leikmenn duglegir að vinna
hver fyrir annan. Þetta var frábær
sigur liðsheildarinnar,“ sagði Silvia
Neid, þjálfari þýska liðsins, eftir
leikinn. „Þegar Laudehr varði víta-
spyrnuna fannst mér það vísbending
um að þetta yrði okkar kvöld,“ bætti
þjálfarinn við.
Í leiknum um þriðja sætið unnu
Bandaríkjamenn öruggan sigur á
Norðmönnum, 4:1. Abby Wambach
skoraði tvö af mörkum bandaríska
liðsins en hin tvö mörkin gerðu Lori
Chalupney og Heather O’Reilley.
Mark norska liðsins skoraði Ragn-
hild Gulbrandsen, sitt sjötta í keppn-
inni.
AP
Fögnuður Þýsku heimsmeistararnir fagna titlinum eftir sigurinn á Brasilíu í úrslitaleik HM í Kína í gær.
Þjóðverjar vörðu titilinn
og fengu ekki á sig mark
ÞJÓÐVERJAR hömpuðu heims-
meistaratitlinum í knattspyrnu
kvenna í annað sinn þegar þeir
lögðu Brasilíumenn, 2:0, í úrslita-
leik í Shanghai í Kína í gær. Þar
með vörðu Þjóðverjar heimsmeist-
aratitil sinn og eru fyrsta þjóðin í
sögu HM sem tekst það.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
EFTIR frábæran sigur á franska
meistaraliðinu Metz á föstudags-
kvöldið töpuðu Íslandsmeistarar
Stjörnunar síðustu tveimur leikj-
um sínum í milliriðli Meist-
aradeildarinnar og höfnuðu í
neðsta sæti en komast engu að
síður í 3. umferð EHF-keppn-
innar.
Stjörnukonur steinlágu fyrir
ungverska liðinu Györi, 33:20, á
laugardaginn eftir að hafa verið
12:17 undir í hálfleik.
Mörk Stjörnunnar: Ásta Björk
Agnarsdóttir 4, Birgit Engl 4,
Rakel Dögg Bragadóttir 4, Alina
Patrache 3, Ásdís Sigurðardóttir
3, Sólveig Lára Kjærnested 1,
Þorgerður Atladóttir 1.
Í gær tapaði Stjarnan fyrir
slóvenska liðinu Iuventa Micha-
lovce 37:30, en staðan í leikhléi
var, 18:17.
,,Ég fékk þær upplýsingar í
dag að efsta liðið fer áfram í
Meistaradeildina en hin þrjú liðin
í 3. umferð EHF-keppninnar en
við héldum að tvö lið kæmust
bara áfram í EHF-keppnina,“
sagði Aðalsteinn Eyjólfsson þjálf-
ari Stjörnunnar við Morgunblaðið
í gær.
,,Við vorum í vandræðum
vegna meiðsla og það tók sinn
toll í síðustu tveimur leikjum.
Stelpurnar voru algjörlega búnar
og sprungu í báðum leikjunum í
seinni hálfleik. Við fengum mjög
óhagstæða dómgæslu í leiknum
við slóvenska liðið og það var
ekki til að bæta úr. Þetta var lið-
ið sem ég hélt fyrirfram að við
myndum vinna en því miður gekk
það ekki eftir. Upp úr stendur
sigur okkar á Frökkunum og mér
finnst að við séum að nálgast
þessar þjóðir. Þegar við fáum
okkar meiddu leikmenn inn þá
eigum við meiri möguleika á að
keppa á alþjóðlegum vettvangi,“
sagði Aðalsteinn.
Mörk Stjörnunnar: Sólveig
Lára Kjærnested 13, Alina Pat-
rache 6, Ásta B. Agnarsdóttir 4,
Ásdís Sigurðardóttir 4, Birgit
Engl 1, Arna Gunnarsdóttir 1,
Björk Gunnarsdóttir 1.
Tvö töp en Stjarnan
samt í EHF-keppnina
KEFLAVÍK sigraði í Powerade-
bikarkeppni kvenna í körfuknatt-
leik í gær en liðið lék til úrslita
gegn Haukum sem hafði titil að
verja í fyrirtækjabikarkeppni KKÍ.
Keflavík skoraði 95 stig gegn 80
stigum Hauka og það er ljóst að
Haukar ná ekki að endurtaka leik-
inn frá því á síðustu leiktíð þar sem
að liðið vann alla titla sem í boði
voru á tímabilinu. Haukar höfðu
fyrir úrslitaleikinn í gær landað sjö
titlum í röð í ýmsum keppnum og er
greinilegt að Keflavíkurliðið ætlar
sér að hirða einhverja titla af Hafn-
arfjarðarliðinu í vetur. Sterkasti
leikmaður Hauka á undanförnum
árum, Helena Sverrisdóttir, leikur
ekki með liðinu næstu árin þar sem
hún stundar nú nám í bandarískum
háskóla.
Kiera Hardy leikmaður Hauka
meiddist á ökkla í síðari hálfleik og
eftir það var á brattann að sækja
fyrir Hauka en staðan í hálfleik var
48:44 fyrir Keflavík.
Keflavík lagði grunninn að sigr-
inum í öðrum leikhluta þar sem lið-
ið skoraði 28 stig gegn aðeins 10
stigum Haukaliðsins.
Keflavík
lagði Hauka
Einar ÖrnJónsson
skoraði tvö mörk
fyrir Minden sem
tapaði fyrir
Lemgo, 22:19, í
þýsku úrvals-
deildinni í hand-
bolta. Logi Geirs-
son lék ekki með
Lemgo vegna meiðsla.
Þórir Ólafsson var ekki á meðalmarrkaskorara hjá Nettelstedt
Lübbecke þegar liðið bar sigurorð
af Balingen, 23:19. Með liði Nettel-
stedt leikur einnig Birkir Ívar Guð-
mundsson landsliðsmarkvörður.
Alexander Petersson skoraði 5mörk fyrir Flensburg sem
vann í gær sætan sigur á Hamborg
á útivelli, 33:32, í þýsku úrvalsdeild-
inni. Einar Hólmgeirsson lék ekki
með Flensburg vegna meiðsla.
Marcin Lijewski skoraði 8 mörk
fyrir Flensburg.
Arnór Atlason skoraði 6 mörkfyrir FC Köbenhavn þegar lið-
ið sigraði Mors, 40:30, í dönsku úr-
valsdeildinni.
Vignir Svav-arsson átti
mjög góðan leik
og skoraði 7
mörk þegar
Skjern hrósaði
sigri á Bjerr-
inbro/Silkeborg
á útivelli, 24:25.
Sigurður Eggertsson skoraði eittaf mörkum nýliða Skandeborg
sem töpuðu á heimavelli fyrir Njor-
dsjælland, 26:30.
Árni Þór Sigtryggsson skoraði 2mörk fyrir Granollers þegar
liðið lá á heimavelli fyrir Almeria,
27:26, í spænsku úrvalsdeildinni.
Sigfús Sigurðsson komst ekki áblað fyrir Ademar Leon sem
gerði jafntefli Pilotes Posada, 27:27.
Ólafur Stefánsson skoraði 4mörk fyrir Ciudad Real, þar af
eitt úr vítakasti, í sigri liðsins á Ar-
rate, 39:22. Barcelona og Ciudad
Real jöfn en liðin eru með 6 stig eft-
ir að hafa unnið alla þrjá leiki sína.
Elías Már Halldórsson náði ekkiað skora fyrir Empor Rostock
sem tapaði fyrir Hildesheim, 30:24, í
þýsku 2. deildinni í handbolta í gær.
Íslenski lands-liðsmaðurinn
Pavel Ermol-
inskij sem leikur
með CB Huelva á
Spáni fór í að-
gerð í síðustu
viku þar sem
annað lungað féll
saman. Pavel
fékk högg á rif-
bein og fór hann í bráðaaðgerð í
kjölfarið. Frá þessu er greint á karf-
an.is. Pavel verður frá keppni og æf-
ingum í einn mánuð en hann er í láni
hjá Huelva frá stórliðinu Unicaja
Malaga sem leikur í efstu deild á
Spáni.
Keppni á Evrópumóti kvennaliðaí Þýskalandi í golfi fór eig-
inlega út um þúfur vegna vatnsveð-
urs. Kjölur úr Mosfellsbæ tók þátt í
mótinu og endaði íslenska sveitin í
12.–3. sæti af alls 15. Sveit Kjalar
skipuðu Nína Björk Geirsdóttir,
Guðríður Sveinsdóttir og Helga
Rut Svanbergsdóttir.
Fólk sport@mbl.is