Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Hjá flestum fjölskyldum eru bílakaup þau
viðskipti sem krefjast næstmestra fjárútláta
á eftir fasteignakaupum og því er sérlega
mikilvægt að þar sé rétt staðið að bæði kaup-
um og sölu. Í kjölfar nýrra laga sem tóku
gildi árið 1994, sem skyldar alla þá sem reka
bílasölu með notaða bíla að hafa lokið tilsettu
löggildingarnámi fyrir bifreiðasala, hefur
landslagið á markaði notaðra bifreiða gjör-
breyst til hins betra, bæði fyrir fagaðila inn-
an geirans og neytendur.
Blaðamaður ræddi við þá Dag Jónasson
sölustjóra notaðra bíla hjá Ingvari Helgasyni
og Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB,
en þeir sitja í prófnefnd bifreiðasala ásamt
Vilhjálmi Bjarnasyni, formanni nefndarinnar.
Námskeiðið hefur verið haldið með reglu-
legu millilbili frá árinu 1994 og hinn 19. nóv-
ember næstkomandi hefst nýtt námskeið og
stendur það yfir í þrjár vikur. Námskeiðið
hefur yfirleitt verið haldið einu sinni til tvisv-
ar á ári en árlega ljúka á bilinu 20 til 30 ein-
staklingar náminu.
Gífurleg breyting
„Tilgangurinn með þessari lagasetningu á
sínum tíma var að koma á aðhaldi og eftirliti
á þessa starfsgrein,“ segir Dagur um löggjöf-
ina. Hann segir jafnframt að sú hafi verið tíð-
in þegar heilmikið brask og svindl tíðkaðist í
bílaviðskiptum landsmanna.
„Á þeim árum sem hafa liðið frá því að lög-
gjöfin tók gildi hefur orðið gríðarlega mikil
breyting á,“ segir Runólfur.
Þeir segja að krafan um löggjöfina hafi
ekki síður komið frá greininni sjálfri. Hið
slæma orðspor, sem gekk að hluta til yfir
geirann, angraði þá mikið sem stunduðu
þessa starfsgrein af heiðarleika og fag-
mennsku.
„Það var því komin uppsöfnuð þörf, bæði
hjá neytendum og fagaðilum í greininni, fyrir
ákveðið átak og var löggjöfinni vel tekið þeg-
ar hún komst til framkvæmda,“ segir Run-
ólfur og nefnir að þar sé umrætt löggilding-
arnámskeið undirstöðuatriði.
„Það eykur fagmennsku þeirra sem við-
skiptavinurinn á í viðskiptum við; eykur
þekkingu þeirra á greininni og samhliða
þessu eru gerðar kröfur til þeirra sem annast
sölu á bifreiðum, að það séu fagaðilar sem
standa að þeim og að tryggingar og allar við-
eigandi upplýsingar séu uppi á borði varð-
andi ástand ökutækis og svo framvegis. Lög-
gjöfin var því ansi stórt skref; annars vegar
fyrir neytendur og hins fyrir hina faglegu
hlið greinarinnar,“ útskýrir Runólfur.
Á löggildinganámskeiðinu er farið í það
helsta sem snýr að greininni. Farið er í gegn-
um skráningarreglur, bifreiðaskatta, almenn-
an rekstur, frágang ýmissa sölumála, samn-
ingarétt, viðskiptabréfareglur, þinglýsingar,
ýmis fjármál, veðrétt og margt fleira.
„Það má segja að bílasali í dag sé ekki ein-
göngu að selja bíl heldur er hann líka að selja
fjármögnun og veitir samhliða því viðeigandi
fjármálaráðgjöf í tengslum við skuldabréf,
vexti og svo framvegis,“ segir Runólfur og
bætir við:
„Bílakaup eru þau viðskipti fjölskyldunnar
sem krefjast næstmestra fjárútláta og jafn-
framt er rekstur ökutækisins næststærsti út-
gjaldaliður fjölskyldunnar. Þannig að það
skiptir máli að fagmennskan sé til staðar.
Þetta fyrirkomulag eykur líka aðhald innan
greinarinnar og innleiðir ákveðnar leikreglur
í markaðinn.“
Í reglugerðunum sem þeir vísa til eru
gerðar miklar kröfur bæði til seljandans og
eins til kaupandans og því sé nauðsynlegt að
bílasali sé vel kunnugur lögunum og öllum
þáttum reglugerðarinnar.
„Eftir á getur það skipt gríðarlega miklu
máli hvort þér sem kaupanda hafi verið gerð
grein fyrir öllu sem skiptir máli. Ef þú sem
neytandi verður var við einhverjar bilanir í
bílnum skömmu eftir að þú hefur keypt hann
og þú varst ekki upplýstur um þær, sinnir
bifreiðasalinn ekki sínum skyldum. Það er
þetta sem skiptir okkur svo miklu máli sem
vinnum í þessum geira að menn vinni sam-
kvæmt þessu,“ segir Dagur.
Allir græða
„Í svona viðskiptum er líka mikil krafa á
okkur sem neytendur,“ heldur Runólfur
áfram. „Við megum ekki ganga að einhverju
ökutæki og kaupa það án þess að skoða það
og prófa. Þegar notaður bíll er keyptur er
hægt að fara með hann í ástandsskoðun hjá
óháðum aðila ef þú treystir þér ekki sjálfur
til að leggja faglegt mat á ökutækið sem
skyldi.“
„Þegar til viðskipta er stofnað af heilindum
verða ekki þessir agnúar sem stundum
fylgdu hér áður fyrr. Ef kaupandi og seljandi
uppfylla báðir sínar skyldur, þ.e. ef að selj-
andinn segir satt og rétt frá, öll gögn eru til
staðar og kaupandinn hefur látið óháðan að-
ila skoða bílinn, þá er seljandinn búinn að fría
sig nánast hvers kyns eftirmálum og kaup-
andinn nokkuð öruggur um það sem hann
hefur í höndunum. Ef allir uppfylla þessi skil-
yrði segir það sig sjálft að eftirmálum sem
slíkum viðskiptum geta fylgt fækkar. Það
græða allir á þessu umhverfi.“
Nánari upplýsingar um námskeiðið má
finna á vefsíðunni www.iðan.is.
Betra viðskiptaumhverfi
fyrir neytendur og fagaðila
Morgunblaðið/Kristinn
Bifreiðasali Dagur Jónasson sölustjóri notaðra bíla hjá Ingvari Helgasyni. „Þegar til viðskipta er stofnað af heilindum þá verða ekki þessir
agnúar sem stundum fylgdu hér áður fyrr“, segir Dagur sem hefur mikla reynslu af sölu notaðra bíla. „Það græða allir á þessu umhverfi.“
Morgunblaðið/Ásdís
Bílar Bílakaup eru þau viðskipti fjölskyldunnar sem krefjast næst stærstu fjárútláta og jafnframt er rekstur ökutækisins næst stærsti útgjaldaliður fjölskyldunnar.