Morgunblaðið - 25.11.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 B 17
Bókasafn
Mosfellsbæjar/Listasalur
Mosfellsbæjar
Leitað er að áhugasömum og hugmyndaríkum, há-
skólamenntuðum starfsmanni, sem getur hafið störf
1. janúar 2008. Kunnátta í helstu hönnunarforritum
s.s. Photoshop, InDesign og Illustrator æskileg.
Starfið er fjölbreytt og í því felst m.a. upplýsinga-
þjónusta, almenn afgreiðsla, almannatengsl og
grafísk tölvuvinnsla.
Starfshlutfall 50%, á bilinu kl. 8.00 til 19.00.
Starfsemi og þjónusta Bókasafns og Listasalar
Mosfellsbæjar er fjölbreytt og í sífelldri endurskoðun.
Allir starfsþættir safnsins og allir starfsmenn eru jafn
mikilvægir til að ná góðum árangri.
Við leitum að starfsmanni sem:
● Er kraftmikill, hugmyndaríkur og ábyrgur.
● Tekur virkan þátt í skipulagningu, endurskoðun
og sífelldri þróun.
● Hefur góða hæfileika til samstarfs við aðila
innan safns og utan.
● Getur unnið sjálfstætt.
● Hefur sveigjanleika til að takast á við fjölbreytt
verkefni.
Við leitum að starfsmanni:
● Með jákvætt lífsviðhorf.
● Sem er stofnuninni og samstarfsaðilum trúr.
● Sem er góður félagi.
● Með metnað fyrir sjálfan sig og stofnunina.
Umsókn með upplýsingum m.a. um menntun og fyrri
störf berist til Mörtu Hildar Richter, forstöðumanns
Bókasafns og Listasalar Mosfellsbæjar, Þverholti 2,
fyrir 15. des. 2007. Nánari upplýsingar í síma 566
6822 virka daga og á heimasíðu safnsins.
Kennarar, skólaliðar, þroskaþjálfar
og stuðningsfulltrúar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf . Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upp-
lýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Álftamýrarskóli, Álftamýri 79, sími 570-8100
• Íþróttakennari frá 1. janúar 2008
Árbæjarskóli, Rofabæ 34, sími 567-2555
• Smíðakennari í hlutastarf
Foldaskóli, Logafold 1, sími 540-7600
• Umsjónarkennari í 6. bekk
• Umsjónarkennari í 8. bekk, kennslugreinar enska og
danska, frá 1. janúar 2008
• Stuðningsfulltrúi í 70-100% starf frá 1. janúar 2008
Hamraskóli, Dyrhömrum 9, sími 567-6300
• Stuðningsfulltrúi
Húsaskóli, Dalhúsum 41, sími 567-6100
• Skólaliði frá 1. desember 2007
Ingunnarskóli, Maríubaugi 1, sími 411-7828
• Umsjónarkennari á miðstigi
• Stigstjóri í 4. - 5. bekk
Langholtsskóli, Holtavegi 23, sími 553-3188
• Yfirþroskaþjálfi frá 1. janúar 2008
Laugarnesskóli, Kirkjuteigi 24, sími 411-7444
• Skólaliði
• Skólaliði í baðvörslu drengja
• Þroskaþjálfi
• Stuðningsfulltrúi
Rimaskóli, Rósarima 11, sími 411-7720
• Íslenskukennari á unglingastigi
• Stuðningsfulltrúi í 75% starf
• Skólaliði, aðstoð við nemendur og ræsting
Safamýrarskóli, Safamýri 5, sími 568-6262
• Stuðningsfulltrúi
Sæmundarskóli, Gvendargeisla 168, sími 411-7848
• Stuðningsfulltrúi í 75% starf frá 1. janúar 2008
Víkurskóli, v/Hamravík, sími 545-2700
• Stærðfræðikennari í 8. - 10. bekk í 80% stöðu,
möguleiki á 100% stöðu.
• Námsráðgjafi, vegna forfalla
Vogaskóli, v/Skeiðarvog, sími 411-7373
• Skólaliði í mötuneyti í 50% stöðu
Ölduselsskóli, Ölduseli 17, sími 557-5522
• Skólaliði í baðvörslu drengja
• Stuðningsfulltrúi í 70-100% starf
• Matreiðslumaður til að sjá um nýtt mötuneyti
í skólanum
Öskjuhlíðarskóli, Suðurhlíð 9, sími 568-9740
• Heimilisfræðikennari
Ekki er um tæmandi upptalningu lausra starfa að
ræða. Öll laus störf á Menntasviði eru auglýst á
www.menntasvid.is. Þar er einnig að finna frekari
upplýsingar um hverja stöðu og umsóknarfresti.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar
í viðkomandi skólum. Laun eru skv. kjarasamningi
Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög.
Menntasvið
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skattaflótti Hingað til Kaupmannahafnar flykkjast Svíar sem leiðir eru orðnir á skattpíningu heimalandsins.
UMFERÐ um Eyrarsundsbrúna milli Svíþjóðar og Danmerk-
ur hefur aukist um nærri 30% á þessu ári og er búist við því að
umferðin muni aukast enn frekar á næsta ári.
Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins.
Lægri skattar í Danmörku
Þar segir að ástæðan sé einföld og hafi lítið að gera með dá-
læti Svía á frændum sínum. Skattar á laun í Danmörku séu
lægri en í Svíþjóð og um áramótin verði skattar lækkaðir enn
frekar í Danmörku. Það borgi sig því fyrir Svía sem búa á
Skáni að keyra yfir til Danmerkur og vinna þar.
Eftir sitja sænskir atvinnurekendur í erfiðleikum með að
manna fyrirtækin sín. Þeir eru að verða undir í skattasam-
keppni við nágranna sína og samkeppnisstaða þeirra fer versn-
andi þar sem laun í Danmörku eru að jafnaði hærri en í Sví-
þjóð, en tekjuskattur lægri.
Umdeilt fyrirkomulag
Fjallað er um málið á vef sænsku samtaka atvinnulífsins en
þar kemur fram að umfang skattalækkana Dana um áramótin
nemi um 12 milljörðum sænskra króna og eru margir sænskir
launamenn staðráðnir í að njóta þessara lækkana. Svíar sem
búa á Skáni en vinna í Danmörku greiða skatta sína í Dan-
mörku og finnst sumum Svíum það umdeilanlegt. Áætlað er að
skattalækkunin muni skapa um 7.300 ný störf í Danmörku.
Skattarnir stýra umferðinni
Ljóst er að skattabreytingar Dana munu hafa áhrif í Svíþjóð
en atvinnurekendur á Skáni sjá fram á að þurfa að hækka laun
til að mæta samkeppninni frá vinnumarkaðnum í Kaupmanna-
höfn. Samkeppnisstaða þeirra versnar verulega um áramótin
og jafnvel er búist við því að sum fyrirtæki þurfi að hætta
rekstri. Að því er fram kemur á vefsíðunni segist veitingahús-
eigandi í Malmö gera ráð fyrir því að Svíum sem vinna í Dan-
mörku verði gert að greiða sænska skatta í Svíþjóð og það
muni draga úr umferðinni yfir sundið í kjölfarið. Lægri skattar
í Svíþjóð myndu þó jafna samkeppnisstöðuna að hans mati.
Nýtt umferðarmet yfir Eyrarsundsbrú á næsta ári fær Svía
kannski til að hugleiða hvort það sé orðið tímabært að lækka
tekjuskatt.
Landflótti frá Svíþjóð