Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 18
18 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sýslumaðurinn í Reykjavík
Deildarstjóri
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra í þing-
lýsinga- og skráningadeild embættisins.
Í deildinni starfa í dag fimm lögfræðingar en
aðrir starfsmenn eru sautján talsins og er deild-
in ein af þremur fagdeildum embættisins og
jafnframt sú fjölmennasta.
Verkefni þinglýsinga– og skráningadeildar
eru m.a:
Þinglýsingar
Lögbókandagerðir
Firmaskráning
Útgáfa leyfa
Framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Umsækjandi þarf að hafa embættispróf í
lögfræði eða meistarapróf í lögfræði.
Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg.
Eiginleikar sem tekið verður mið af við val á
umsækjanda:
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
Er tilbúinn að taka þátt í þróun og breyt-
ingum á vinnustað
Reynsla og færni við úrlausn lögfræðilegra
úrlausnarefna
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
viðkomandi stéttarfélags við fjármálaráðuneyti.
Umsóknir skulu berast sýslumanninum í
Reykjavík, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, b/t
Úlfars Lúðvíkssonar, eigi síðar en 10. desember
2007. Tekið er á móti umsóknum rafrænt á net-
fangið: ulfar.ludviksson@tmd.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sýslumanninn í Reykjavík má finna á
heimasíðu: http://www.syslumadur.is.
Laust starf ritstjóra
Námsgagnastofnun óskar eftir ritstjóra í 50%
starf frá 1. janúar 2008 að telja. Leitað er eftir
starfsmanni til að annast ritstjórn námsefnis í
grunnskólum með sérstaka áherslu á sam-
félagsgreinar. Ráðið verður í starfið til eins árs.
Ritstjóri þarf að hafa haldgóða þekkingu á
skólastarfi og gott vald á íslensku máli. Hann
þarf að eiga auðvelt með að tjá sig í mæltu
máli og rituðu og hafa ríka skipulags- og sam-
skiptahæfileika. Kennaramenntun og kennslu-
reynsla er nauðsynleg.
Starfið er fjölbreytt, lifandi og skemmtilegt og
býður upp á mikil samskipti við kennara og
fræðslustofnanir. Boðið er upp á sveigjanlegan
vinnutíma og góða vinnuaðstöðu á reyklausum
vinnustað.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum,
sendist Námsgagnastofnun, Laugavegi 166,
pósthólf 5020, 125 Reykjavík, fyrir 5. desember
nk. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari
upplýsingar veita Eiríkur Grímsson skrifstofu-
stjóri og Tryggvi Jakobsson útgáfustjóri.
Einn vinnustaður
Heilbrigðisfulltrúi - Mengunarvarnir
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynjanna í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endur-
spegli fjölbreytileika reykvísks samfélags. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is/storf. Í símaveri Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11 eru veittar allar upplýsingar um þjónustu og
starfsemi borgarinnar og símasamband gefið við starfsmenn einstakra sviða og deilda.
Starfið felst m.a. í þjónustu við íbúa og fyrirtæki
borgarinnar og ábyrgð á:
• Reglubundnu eftirliti með starfsemi í samræmi við
reglugerð nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit.
• Skráningum og skýrslugerð, sinna kvörtunum og
annast fræðslu.
• Sinna öðrum verkefnum samkvæmt gildandi starfs
lýsingu fyrir heilbrigðisfulltrúa og samkvæmt fyrir
mælum deildarstjóra.
• Samstarf og samvinna við aðrar deildir
Heilbrigðiseftirlits og vöktunar.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda,
raunvísinda, eða sambærilega menntun.
• Hæfni í mannlegum samskiptum er afar mikilvæg
sem og geta til að leiða og taka þátt í uppbyggilegu
hópastarfi.
• Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt og
krefjandi verkefni.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagningu í starfi
• Réttindi til að mega starfa sem heilbrigðisfulltrúi
æskileg.
Launakjör fara að kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélaga og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veita Lúðvík E. Gústafsson,
deildarstjóri Mengunarvarna og Árný Sigurðardóttir,
forstöðumaður Heilbrigðiseftirlits og vöktunar,
hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19,
frá kl. 9-16 í síma 411 8500.
Umsóknir skulu berast til Umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar eigi síðar en 10. desember nk.
merktar „Heilbrigðisfulltrúi - Mengunarvarnir“.
Reykjavík 25. nóvember 2007.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Umhverfis- og samgöngusvið frá og með 1. janúar 2008, auglýsir laust til
umsóknar starf heilbrigðisfulltrúa hjá Mengunarvörnum, Heilbrigðiseftirliti og vöktun.
Næsti yfirmaður er deildarstjóri Mengunarvarna.
Leiðarljós Mengunarvarna er að koma í veg fyrir umhverfismengun, hvort heldur er af völdum fyrirtækja eða
einstaklinga og stuðla að því með öflugri umhverfisvöktun að borgarbúum séu ávallt búin heilnæm lífsskilyrði
á landi, lofti sem legi.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar mun frá næstu áramótum heita Umhverfis- og samgöngusvið. Helstu verkefni
sviðsins eru: heilbrigðis og mengunarvarnareftirlit, náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum, dýraeftirlit,
Vinnuskóli Reykjavíkur, Staðardagskrá 21 og stefnumótunar og umferðar- og samgöngumál.
Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og
hvetja því það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein að sækja um .
Konur er því hvattar til þess að sækja um starfið.
Ertu með verkefni
í upplýsingatækni sem þú þarft að láta
vinna?
Finnur þú engan sem vill gera það eða hrýs
þér hugur við kostnaðinum?
Láttu sérfræðinga okkar á Íslandi og í
Austur Evrópu leysa verkefnið fyrir þig.
Hafðu samband og við skulum skoða málið.
Áhugasamir sendi umsókn á box@mbl.is
merkta : ,,F- 20907”.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn