Morgunblaðið - 25.11.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 B 19
Spennandi, sérhæft starf
Skoðunarmaður
öryggisbúnaðar
Traust fyrirtæki óskar eftir skoðunarmanni til
framtíðarstarfa. Starfið felst í skoðun á öryggis-
búnaði, s.s. björgunarbátum, björgunar-
búningum, sleppibúnaði o.fl.
Starfsmaður þarf að sækja námskeið innan-
lands og erlendis til að öðlast og viðhalda til-
skildum réttindum sem skoðunarmaður. Starfs-
maður getur einnig þurft að fara í vinnuferðir
út á land. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:30.
Leitað er efir reglusömum einstaklingi, eldri en
22 ára, sem er skipulagður og nákvæmur í
vinnubrögðum. Haldbær ensku- og tölvu-
kunnátta er mikill kostur. Starfið hentar jafnt
konum sem körlum. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst, helst eigi síðar en
1. janúar 2008.
Hér er um áhugavert starf að ræða sem krefst
töluverðrar sérhæfingar. Umsóknir óskast
sendar á netfangið bjj@viking-life.com eða í
pósti merktar: Viking Life Saving Equipment á
Íslandi, Hvaleyrarbraut 27, 220 Hafnarfirði.
Frekari upplýsingar um starfið veita Einar eða
Berglind í síma 544 2270.
Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum verður
svarað.
Umsóknarfrestur er til 5. desember.
Einn vinnustaður
Forstöðumaður Ræktunarstöðvar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynjanna í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endur-
spegli fjölbreytileika reykvísks samfélags. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is/storf. Í símaveri Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11 eru veittar allar upplýsingar um þjónustu og
starfsemi borgarinnar og símasamband gefið við starfsmenn einstakra sviða og deilda.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar,Umhverfis- og
samgöngusvið frá og með 1. janúar 2008, auglýsir laust til
umsóknar starf laust starf forstöðumanns yfir
Ræktunarstöð Reykjavíkur. Næsti yfirmaður er
Garðyrkjustjórinn í Reykjavík.
Leiðarljós Skrifstofu náttúru og útivistar að
Reykjavíkurborg er falleg borg þar sem græn svæði
borgarinnar skapa umgjörð fyrir holla útivist, fræðslu og
ræktun. Uppbyggileg viðfangsefni handa reykvískum
unglingum. Náttúruvernd og nýting náttúruauðlinda á sjálf-
bæran hátt í samræmi við
Staðardagskrá 21.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Garðyrkjufræðingur af garðplöntubraut
Hæfni og reynsla í stjórnun
• Reynsla af framleiðslu plantna
• Færni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í
starfi
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
óskast sendar Umhverfissviði Reykjavíkur, Skrifstofu nátt-
úru og útivistar, Skúlagötu 19, 101 Reykjavík eigi síðar en
17. desember. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi
viðkomandi stéttarfélags og Reykjavíkurborgar.
Upplýsingar um starfið veitir Ragna B. Sigursteinsdóttir,
forstöðumaður Ræktunarstöðvar Reykjavíkur,
í síma 693-2327.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi viðkomandi
stéttarfélags og Reykjavíkurborgar.
Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því
að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf
og hvetja því það kynið sem er í minnihluta í við-
komandi starfsgrein að sækja um. Konur er því hvattar
til þess að sækja um starfið.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar mun frá næstu áramótum heita Umhverfis- og samgöngusvið. Helstu verkefni
sviðsins eru: heilbrigðis og mengunarvarnareftirlit, náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum,
dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykjavíkur, Staðardagskrá 21 og stefnumótunar og umferðar- og samgöngumál.
Ræsting í
Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja í Reykjavík óskar eftir að ráða
starfsmann í ræstingu. Um er að ræða 40%
starf með sveigjanlegum vinnutíma.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 3. janúar
2008. Umsóknir skulu sendar til
Hallgrímskirkju, pósthólf 651, 101 Reykjavík,
eigi síðar en 4. desember nk. Einnig má senda
umsóknir til jonanna@hallgrimskirkja.is.
Nánari upplýsingar veitir Jónanna í síma
510 1018 frá 10-12 virka daga.
Deildarstjóri sérfræðiþjónustu
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýs-
ingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsemenn sem þú þarft að ná í.
Laus er til umsóknar tímabundin staða deildarstjóra við
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21.
Staðan er til eins árs, frá 1. mars 2008 til 28. febrúar
2009.
Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í fjölmenningu og
margbreytileika.
Helstu verkefni:
• Dagleg stjórnun og stefnumótun deildar sem sér um sál-
fræðilega-, félagslega- og kennslufræðilega greiningu,
ráðgjöf og handleiðslu við börn og fullorðna, kennara og
stofnanir á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitar-
félaga, grunnskólalaga, leikskólalaga o.fl.
• Frístundaráðgjöf og félagsauðsvinna, fjárhagsaðstoð, inn-
ritun leikskólabarna, daggæsluráðgjöf og þekkingar-
stöðvarverkefnið fjölmenning er einnig hluti af starfsemi
deildarinnar.
• Umsjón með ráðningum, starfsmannahaldi og símenntun
starfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sérfræðimenntun á háskólastigi, sem nýtist í starfinu.
• Þekking og reynsla af stjórnun nauðsynleg.
• Þekking og reynsla af ráðgjöf og handleiðslu, einkum
innan grunn- eða leikskóla og þekking á félagsþjónustu
sveitarfélaga æskileg, sem og þekking og/eða reynsla af
þverfaglegri vinnu og starfi þjónustumiðstöðva Reykja-
víkurborgar.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða leggur áherslu á:
• Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki.
• Góðan starfsanda.
• Handleiðslu.
• Sveigjanlegan vinnutíma.
Nánari upplýsingar veitir Sigtryggur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri í síma 411-1600,
netfang: sigtryggur.jonsson@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal skilað til Þjónustumiðstöðvar Miðborgar
og Hlíða, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík eða í framangreint
netfang fyrir 10. desember 2008.
Aðstoðarmaður
í sundlaug
Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir að ráða
aðstoðarmann í sundlaug.
Stöðuhlutfall er 100%. Góðir samstarfs- og
samskiptahæfileikar mikilvægir svo og
frumkvæði í starfi. Góð sundkunnátta
nauðsynleg. Laun taka mið af kjarasamningi
SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu við
fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs.
Upplýsingar um starfið veitir Þórdís Richter
skrifstofustjóri í síma 5500311 eða
richter@sbh.is.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100