Morgunblaðið - 25.11.2007, Qupperneq 22
22 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Útboð
Landpóstaþjónusta frá Borganesi
Íslandspóstur hf óskar eftir tilboðum í þjónustu
landpósts frá Borgarnesi til Hvanneyrar og Bif-
rastar í Borgarfirði. Dreifing mun fara fram
fimm sinnum sinnum í viku. Gert er ráð fyrir 3
og hálfs árs samningi og að nýr verktaki hefji
störf 2. jan 2008.
Afhending útboðsgagna fer fram hjá stöðvar-
stjóra, Íslandspósts hf, í Borgarnesi gegn 3000
kr. skilatryggingu. Einnig er hægt er að fá
útboðslýsinguna senda í pósti.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en
miðvikudaginn 5 des. 2007 kl. 13:00. Tilboð
verða opnuð sama dag kl. 13:10 í húsakynnum
Íslandspósts að viðstöddum þeim bjóðendum,
sem þess óska. Réttur er áskilinn til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
*Nýtt í auglýsingu
14347 Bifreiðakaup ríkisins árið 2008.
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is. Opnun til-
boða 6. desember 2007 kl. 14.00.
14367 Rammasamningsútboð – Ritföng og
skrifstofuvörur. Ríkiskaup, fyrir hönd
áskrifenda að rammasamningakerfi
Ríkiskaupa, standa fyrir þessu útboði
vegna ritfanga/skrifstofuvara og gagna-
geymslna. Sú vara/þjónusta sem leitað er
eftir tilboðum í varðar þjónustu og sölu á
hefðbundnum ritföngum og skrifstofu-
vörum. Nánari upplýsingar er að finna í
útboðsgögnum sem eru aðgengileg á vef
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is. Opnun til-
boða 13. desember 2007 kl. 11.00.
Efnistaka af hafsbotni í
Faxaflóa
Björgun ehf. kynnir drög að tillögu að
matsáætlun
Hafið er mat á umhverfisáhrifum vegna efnis-
töku af hafsbotni í sunnanverðum Faxaflóa.
Efnistakan felst í útvíkkun á núverandi námum
Björgunar sem hafa verið nýttar undanfarna
áratugi.
Björgun ehf. er framkvæmdaraðili verksins en
mat á umhverfisáhrifum er unnið af VGK-
Hönnun hf. og Jarðfræðistofu Kjartans Thors
ehf. Á vefsíðu VGK-Hönnunar
(www.vgkhonnun.is) eru nú til kynningar drög
að tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar
og stendur kynningin til mánudagsins 10.
desember 2007.
Öllum er frjálst að leggja fram athugasemdir
og ábendingar og skulu þær berast fyrir 12.
desember til VGK-Hönnunar hf., Grensásvegi 1,
108 Reykjavík, eða á netföngin
rb@vgkhonnun.is og kthors@centrum.is.
Útboð
Vatnsmiðlunargeymir í Áslandi
Ryðrfrí klæðning
Vatnsveita Hafnarfjarðar óskar eftir tilboðum í ryðfría klæðningu
fyrir miðlunargeymi við Fjóluás 20a í Hafnarfirði.
Verkið felur í sér að útvega og setja upp klæðningu á veggi og
gólf innan í geyminum. Geymirinn er steinsteyptur, um 6 m hár og
36 m í þvermál.
Útboðsgögn verða seld hjá Vatnsveitu Hafnarfjarðar,
Gjótuhrauni 8, verð kr. 5.000,-
Einnig má nálgast útboðsgögn án endurgjalds á vef VSB
Verkfræðistofu www.vsb.is
Tilboð verða opnuð á VSB Verkfræðistofu að Bæjarhrauni 20,
þriðjudaginn 11. desember 2007, kl 11:00.
Verklok eru 1. september 2008.
Helstu magntölur:
• Þyngd veggklæðningar: 8.150 kg
• Þyngd botnklæðningar: 12.220 kg
• Suða á samskeytum og kverkum: 1.500 m
Raðauglýsingar 569 1100
Tilboð/Útboð
ÁSTAND á vinnumarkaði er gott um þessar mundir, at-
vinnuþátttaka mikil og atvinnuleysi með minnsta móti, segir
á vefsíðu Alþýðusambands Íslands.
Þá segir að reyndar hafi örlítið dregið úr tólf mánaða
kaupmáttaraukningu undanfarið eftir að hún náði hámarki í
júní sl. Ástæðan liggi m.a. í því að áhrif af launahækkunum
í kjölfar endurskoðunar kjarasamninga á síðasta ári hafi
verið að detta út úr mælingum. Þá hafi verðbólgan verið að
aukast síðustu tvo mánuði og vegi nú upp æ stærri hluta af
launahækkunum.
Nánast ekkert atvinnuleysi
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands var
fjöldi á vinnumarkaði 184.700 manns á þriðja ársfjórðungi
2007 og fjölgaði um 6.800 milli ára. Þetta jafngildir því að
atvinnuþátttaka sé nú 84% (nánast óbreytt frá fyrra ári).
Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar var skráð at-
vinnuleysi komið niður í 0,8% í september og október og
hefur ekki mælst svo lítið síðan í október 1988. Atvinnuleysi
mældist mest á Suðurnesjum (2,1%) og á Norðurlandi
eystra (1,5%). Alls voru 972 erlendir starfsmenn skráðir inn
á íslenskan vinnumarkað í október sl. eða 267 færri en í
mánuðinum á undan en 300 fleiri en á sama tíma í fyrra.
Kaupmátturinn hefur aukist
„Kaupmáttur launa hefur aukist mikið síðustu ár enda
hagvöxtur mikill. Fyrirsjáanlegt er að eitthvað muni draga
úr umsvifum á næstunni, m.a. vegna fækkunar fram-
kvæmda við mannvirkjagerð og niðurskurðar aflaheimilda.
Reyndar hefur örlítið dregið úr tólf mánaða kaupmátt-
araukningu undanfarið eftir að hún náði hámarki í júní sl.
Ástæðan liggur m.a. í því að áhrif af taxtahækkunum í kjöl-
far endurskoðunar kjarasamninga í júní á síðasta ári hafa
verið að detta út úr mælingum. Þá hefur verðbólgan verið
að aukast síðustu tvo mánuði og vegur nú upp æ stærri
hluta af launahækkunum,“ segir ennfremur á vefsíðu ASÍ.
Kjarasamningar á almennum markaði séu lausir nú um ára-
mót svo og samningar margra félaga hjá hinu opinbera á
vormánuðum. Óvissa ríkir því um launaþróun á næstu miss-
erum.
Erfitt að sporna við verðbólgu
Þrátt fyrir háa stýrivexti hefur gengið illa að sporna við
verðbólgu. Mest fór hún í 8,6% í ágúst í fyrra. Hún hjaðn-
aði nokkuð í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á matvælum
í byrjun mars sl. Síðustu tvo mánuði hefur hún hinsvegar
verið að aukast aftur. Þannig mælist tólf mánaða verðbólg-
an nú 5,2%. Þeir liðir sem hafa haft hvað mest áhrif til
hækkunar eru kostnaður vegna eigin húsnæðis og verð á
bensíni og dísilolíu. Margir aðrir liðir hafa verið að hækka
upp á síðkastið, svo sem varahlutir í bíla, flugfargjöld og
skófatnaður. Það verður hins vegar að líta til þess að mikið
framboð er nú á nýju húsnæði og vextir á íbúðalánum hafa
hækkað. Því mun líklega draga úr verðhækkunum húsnæðis
á næstunni sem aftur mun hafa áhrif á verðbólgu til lækk-
unar.
Morgunblaðið/Eggert
Óvissa Óvissa ríkir um launaþróun á næstu misserum að mati
ASÍ sem telur að draga muni úr umsvifum á næstunni.
Óvissar horfur
á vinnumarkaði