Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2008, Síða 1
Laugardagur 9. 2. 2008
81. árg.
lesbók
ENDURREISN STALÍNS?
AFI PÚTÍNS VAR KOKKUR STALÍNS! RÚSSAR VELTA FYRIR SÉR
SAMHENGI SÖGUNNAR OG ENDURSKOÐA ARFLEIFÐ STALÍNS >>12
Konur Verdis og La Traviata, hin fallna kona » 8
Morgunblaðið/Kristinn
Thor Vilhjálmsson „Einhverjir verða að hjálpa fólki að dreyma. Svíarnir og reyndar kommarnir höfðu rangt fyrir sér,“ segir Thor Vilhjálmsson í viðtali við Þröst Helgason. »4
Eftir Þröst Helgason
vitinn.blog.is
Franska leikskáldið Yasmina Reza lýsirnýjasta leikverki sínu Vígaguðinumsem tragíkomedíu og segist halda að
það sé ennþá sterkara verk en Listaverkið sem
hún sló í gegn með fyrir tíu árum. Reza telur
Vígaguðinn betri að því leyti að í því verki bæt-
ist við fyndnina hræðslutilfinning.
Það þarf ekki endilega að taka mark á orð-
um höfunda um verk sín og líklega gerir Reza
of mikið úr tragískum undirtóni Vígaguðsins.
Verkið er, að minnsta kosti í uppfærslu Mel-
korku Teklu Ólafsdóttur á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins, fyrst og fremst gamanleikur,
á köflum svolítið farsakenndur. Að vísu var
uppfærsla Þjóðleikhússins á Listaverkinu fyr-
ir tíu árum ærslakenndari enda umfjöllunar-
efnið ekki jafn alvarlegt og viðkvæmt. Víga-
guðinn segir frá fundi tvennra hjóna vegna
slagsmála sona þeirra. Undir kurteislegu yf-
irborði krauma tilfinningar sem foreldrarnir
ráða illa við og fyrr en varir tekur fundurinn
óvænta stefnu.
Sýningin er besta skemmtun og má sér-
staklega mæla með henni fyrir vinnusjúka for-
eldra sem þekkja börnin sín lítið, leggja mikið
upp úr innanstokksmunum og áliti annarra,
snobba fyrir menningu og starfstitlum, baka
ávaxtaböku og drekka illfáanlegt romm. Slíkt
fólk dregur Reza sundur og saman í háði. Og
ekki skemmir fyrir að sýningin er að mestu
laus við ofleik og tilgerð í framsetningu. Hún
er líka hæfilega löng, ekki nema einn og hálfur
tími.
Fyrir vinnusjúka foreldra
MENNINGARVITINN